Morgunblaðið - 15.06.1974, Side 40

Morgunblaðið - 15.06.1974, Side 40
son nucivsincRR ^jt«r«22480 UlflSKIPTin nucLvsnf morgiun&la^ittiu LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 1974 Skuldum Rússum mílljónir kr. Skuld íslendinga við Sovétríkin vegna viðskipta milli landanna nemur nú 1500—2000 millj. kr., og hefur aldrei verið hærri en hún er um þessar mundir. Ástæðan fyrir þessari miklu skuldasöfnun við Sovétríkin er tvíþætt. Annars vegar hin gífurlega hækkun olíuverðs, sem orðið hefur á þessu ári og hins vegar tregða Sovétrikjanna til þess að kaupa af okkur sjávarafurðir upp í olíukaup okkar frá þeim. Á þessu ári er gert ráð fyrir, að við kaupum frá Sovétríkjunum um 300.000 tonn af gasolfu, 80.000 tonn af bensfni og 110.000 tonn af svartolíu. Miðað við olfuverð eins og það er nú, kostar þetta magn af olíuvörum okkur um 4500 millj. kr. í ár, en til samanburðar má geta þess, að svipað magn af olí- um og bensfni kostaði á árinu 1973 um 1600 millj. kr. Kostnaðar- aukinn vegna hækkunar olíu- verðs er því um og yfir 3000 millj. kr. á þessu ári. Þrátt fyrir þessa gffurlegu hækkun olfuverðs hefur reynzt erfitt að auka fiskútflutning til Sovétrfkjanna og raunar dróst hann saman á sfðasta ári. Á árinu Nýtt skip E.Í. — Urriðafoss URRIÐAFOSS, nýtt skip Eim- skipafélags Islands, var afhent f Danmörku f gær. Viggó Maack skipaverkfræðingur og Björn Kjaran skipstjóri veittu skipinu viðtöku fyrir hönd Eimskips, en Björn veróur skipstjóri á þvf. Þetta skip er systurskip Álafoss, Uðafoss og Grundarfoss, sem félagið hefur nýlega fengið. Urriðafoss fer frá Friðriks- höfn til Kaupmannahafnar, þar sem það tekur fullfermi af vörum, en skipið er væntan- legt til Reykjavfkur mánu- daginn 24. júnf. Skip Et eru þá orðin 19 talsins, en tvö — Tungufoss og Bakkafoss — eru nú raunar f sölu. Hins vegar er f ráði að kaupa enn tvö skip f þeirra stað. 1973 nam heildarútflutningur okkar til Sovétríkjanna, aðallega á frystum sjávarafurðum, en einnig iðnaðarvörum, 932 millj. kr. en á árinu 1972 nam útflutn- ingur til Sovétríkjanna 1219 millj. kr. Minnkun útflutnings milli þessara ára stafar af þvf, að Sovét- rikin keyptu minna af frystum fiski af okkur en árið á undan. Um miðjan aprfl sl. tókst loks að gera samning við Sovétríkin um útflutning á frystum fiskaf- urðum til þeirra og nemur hann um 1000 millj. kr. Undanfarnar vikur hafa staðið yfir tilraunir til þess að selja þeim meira magn af frystum fiskafurðum, en jákvætt svar hefur ekki fengizt. Jafnvel þótt Sovétríkin tvöfölduðu það magn, sem samið var um í apríl- mánuði, þannig að þau keyptu af okkur frystar fiskafurðir fyrir 2000 millj. kr. í ár er ljóst, að í árslok yrði um að ræða mikla skuld við Sovétríkin, þar sem út- flutningur iðnaðarvara til þeirra Framhald á bls. 39 Gunnar og Halldór fengu verðlaunin UTHLUTAÐ var úr Rithöfundasjóði Islands f gær og fór veitingin fram f Ráðherrabústaðnum. Verðlaunin fengu að þessu sinni rithöfundarnir Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness. Sigurð- ur A. Magnússon, formaður sjóðsstjórnar, afhenti þeim verðlaunin að upphæð 250 þúsund krónur. Menntamálaráðherra, Magnús Torfi Ólafsson, ávarpaði rithöfundana og flutti þeim árnaðarósk- ir, en þeir fluttu báðir stutt þakkarávörp. Stjórn Rithöfundasjóðsins skipa nú, auk Sigurðar, þeir Indriði G. Þorsteinsson og Runóifur Þórarinsson. A myndinni sjást rithöfundarnir Gunnar og Hall- dór ásamt menntamálaráðherra. Um 100 ungir framsóknarmenn ganga úr Framsóknarflokknum AÐ því er Morgunblaðið ræða unga menn og konur, an fyrir úrsögnum þessa hægra armi Framsóknar 1_ _ r e 3L .. r AA 1_ <* _ * • 1 _1 * ri n • P '11 n t 1 fl/xlrlrninn /\/v /vlrLi 1-».. /vM «/. AÐ því er Morgunblaðið hefur fregnað, munu um 100 ungir framsóknar- menn vera að ganga úr Framsóknarflokknum þessa dagana. Er hér um að ræða unga menn og konur, sem átt hafa aðild að Félagi ungra framsóknarmanna í Reykjavík, og er talið, að þessi hópur sé um 10% félagsmanna í FUF. Ástæð- an fyrir úrsögnum þessa unga fólks úr Framsóknar- flokknum mun vera af- staða flokksins til varnar- mála og efnahagsmála, en þessi hópur mun tilheyra Læknavaktin í borginni leggst niður FRÁ og með þriðjudegi næstkom- andi hættir Læknafélag Reykja- vfkur skipulagningu kvöld-, nætur- og helgidagaþjónustu, en félagið hefur um áraraðir séð borgarbúum fyrir þessari þjón- ustu. I fréttatilkynningu frá Læknafélaginu kemur fram, að þessi þjónusta hafi verið að miklu leyti borin uppi af sjúkra- húslæknum, þar eð heimilislækn- ar hafa verið of fáir til að anna henni. Sjúkrahúslæknar hafa bætt þessari vinnu við langan starfstima á sjúkrahúsunum, en þeir hafa lengi talið, að ekki fáist nægilega greitt fyrir þetta auka- álag, og þvf ekki tekið þátt f henni frá 1. aprfl sl. Hafa heimiiislæknar gegnt þessari þjónustu einir frá þeim tfma, en nú er svo komið, að þeir geta ekki annað henni. Samningaviðræður hafa ekki borið árangur. Ljóst er, að þessi breyting hefur f för með sér margvfsleg vandamál hvað snertir læknisþjónustu á þessum tfma sólarhringsins. T.d. er við- búið að álag á slysadeild Borgar- spftala stóraukist og allir heimilislæknar geti átt yfir höfði sér að verða kvaddir til sjúklinga sinna á hvaða tíma sem er. Morgunblaðið hafði af þessu tilefni samband við Guðmund Oddsson, formann Læknafélags Reykjavíkur, og spurði hann nán- ar um ástæður fyrir þessari ráð- stöfun. „Sjúkrahúslæknarnir hafa unn- ið þessa þjónustu algjörlega í aukavinnu og eru ekki inn á heimilislæknasamningunum að neinu leyti,“ sagði Guðmundur. „Á sfðari árum hefur ekki verið nein fastagreiðsla fyrir þessar vaktir, heldur hefur greiðslan farið eftir þvf, hversu margar vitj- anir eru á þessum vöktum, en gjöldin fyrir vitjanirnar eru 600 krónur að kvöldi og 1000 krónur að nóttu. Komi því 3 útköll að næturlagi fær viðkomandi læknir aðeins 3 þúsund krónur í sinn hlut fyrir vaktina. Hann sefur kannski ekkert alla nóttina, en þarf síðan að vinna allan næsta dag f spítalanum." Guðmundur sagði, að ekki væri gert ráð fyrir þessari þjónustu neins staðar í heilbrigðiskerfinu. Hann sagði, að flestir læknar væru í þessu aðeins stuttan tfma en gæfust síðan upp á þvf. Vaktir þessar væru erfiðar og nefndi Guðmundur sem dæmi, að meðal heimilislækna væri samkomulag um að menn yfir fimmtugt þyrftu ekki að standa þessar vaktir, enda þyrfti viðkomandi læknar að stunda fulla vinnu næsta dag. „En 1. apríl — þá höfðu orðið miklar hækkanir alls staðar, meðan þessar vaktagreiðslur voru óbreyttar, og ákváðu þá sjúkra- húslæknarnir að hætta að gegna þessari þjónustu," sagði Guð- mundur ennfremur. „Þá var ekki annað að gera en að reyna að manna vaktirnar með heimilis- læknum, en þeir eru alltof fáir, sem treysta sér til að taka þessar vaktir, rosknir menn eru það stór hluti af heimilislæknunum hér f borg. Þessir fáu læknar þurftu siðan að taka svo margar vaktir, að þeir gáfust hreinlega upp, og við hjá Læknafélaginu sáum okkur tilneydda til að taka ofan- greinda ákvörðun. Þetta er vita- skuld alvegafleitt.þvf að þjónusta þessi er mjög nauðsynleg,“ sagði Guðmundur. Hann sagði enn- fremur, að undir venjulegum kringumstæðum hefðu um 20 læknar staðið þessar vaktir, en þar af hefðu sjúkrahúslæknar verið um 60—70%. Hann kvað óformlegar samn- ingaviðræður hafa farið fram við fulltrúa sjúkrasamlags, borgar- lækni og ráðuneytisstjóra Heil- brigðisráðuneytis. I þvf sambandi tók Guðmundur fram, að nýlega hefði verið gert samkomulag milli heimilislækna annars vegar og Tryggingastofnunar og sjúkra- samlags hins vegar um vitj- anagreiðslur, og þó að taxti þess- arar þjónustu hefði ekki hækkað nema um 6% hefðu heimilislækn Framhald á bls. 39 hægra armi Framsóknar- flokksins og ekki hugnast sú stefna flokksforystunn- ar að varnarliðið verði látið hverfa af landi brott! Forystumaður þessa hóps mun vera Birgir Viðar Hall- dórsson, sem á sæti í stjórn Sambands ungra framsóknar- manna og er fulltrúi í fulltrúaráði Framsóknarfélaganna í Reykja- vfk, en hann átti einnig á sfnum tíma sæti í stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykja- vfk og var f stjórn Félags ungra framsóknarmanna f Reykjavík. 1 hópi þessa unga fólks, sem er að segja sig úr Framsóknarflokkn- um, er sagður vera stjórnarmaður í Félagi ungra framsóknarmanna og um það bil þriðjungur af full- trúum ungra framsóknarmanna í fulltrúaráði framsóknarfélag- anna í Reykjavík. Eins og áður hefur fram komið, hefur meginhluti forystumanna Sambands ungra framsóknar- manna, sem verið hafa í vinstra armi Framsóknarflokksins,gengið til samstarfs við ýmsa hópa til vinstri um framboð í þingkosn- ingunum og ýmsir áhrifamenn úr Framsóknarflokknum víðs vegar um land gengið til samstarfs við Möðruvallarhreyfinguna. Hefur framkvæmdastjórn Framsóknar- flokksins lýst þessa menn brott- ræka úr flokknum. Nú virðist sem byrjað sé að kvarnast úr hægra armi Framsóknarflokksins ekki síður en vinstri arminum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.