Morgunblaðið - 26.06.1974, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JUNl 1974
„Abyrgðarhluti að blekkja
bændur með lánsloforðum, sem
peningar eru ekki til fyrir“
Málefna-
samningur
Loforð
1 málefnasamningi
vinstri flokkanna var
eftirfarandi loforð gefið
um takmörkun verðbólg-
unnar: „Hún mun leit-
ast við að tryggja, að
hækkun verðlags hér á
landi verði ekki meiri
en f helztu nágranna- og
viðskiptalöndum."
Efndir
Þetta loforð hefur
vinstri stjórnin efnt á
þann veg, að frá 1. maf
1973 — 1. maí 1974 nam
verðbólguvöxturinn hér
á íslandi 43,8% og eru
íslendingar þar með að
líkindum orðnir Evrópu-
methafar í verðbólgu.
Til samanburðar skal
þess getið, að í „helztu
nágranna- og viðskipta-
löndurn" var verðbólgu-
þróunin þessi miðað við
nýjustu tölur frá 1. marz
1973 til 1. marz 1974: I
Noregi 9,2%, í Finnlandi
17,4%, í Danmörku
(febrúar) 13,6%, í Sví-
þjóð (febrúar) 10,1%, í
Bretlandi 13,5%, í Vest-
ur-Þýzkalandi 7,2%, í
Bandaríkjunum 10,2%.
Af þessum tölum má
sjá, að ríkisstjórnin hef-
ur algjörlega brugðizt
því fyrirheiti að halda
verðbólguvextinum í
skefjum.
Loforð
í málefnasamningnum
sagði: „Rfkisstjórnin
mun ehki beita gengis-
lækkun gegn þeim
vanda, sem við er að
glíma í efnahagsmál-
um...“
Efndir
Þetta loforð sveik rík-
isstjórnin 10 mánuðum
síðar eða í desember
1972, er hún lækkaði
gengi íslenzku krón-
unnar og á valdatfma
vinstri stjórnar HEFUR
gengikrónunnar lækkað
um allt að 31% gagnvart
gjaldmiðlum helztu við-
skiptalanda.
6 súlur fundn-
ar á Mýrum
SEX öndvegissúlur hefur nú
rekið á land á Mýrum f Borgar-
firði, allar númer 11 og hefur
þeim verið varpað fyrir borð frá
Bjarna Sæmundssyni út af Garð-
skaga. Þrfr bræður Eirfkur, Guð-
mundur og Erlendur Árnasynir f
Knarrarnesi á Mýrum fundu tvær
súlur hver.
Mikil veiði
ÞEIR, sem rennt hafa fyrir lax í
Miðfjarðará frá þvf að veiðitíma-
bilið hófst 9. júní, hafa ekki þurft
að kvarta yfir veiðinni. Að kvöldí
síðasta föstudags voru 147 laxar
komnir á land og er það mun
méiri veiði en á sama tíma í fyrra.
segir Karl
Árnason
fulltrúi í
bankaráði
Búnaðar-
bankans
„Ég tel það mjög alvarlegan
hlut, að nokkrir framsóknarmenn
og forystumenn bænda hafa pínt
út lánsloforð, sem notuð eru til
þess að blekkja bændur til fram-
kvæmda á jörðum sínum þótt pen-
ingar fyrir þessum lánveitingum
séu ekki til og engin trygging
fyrir að þeir verði til og jafnf ramt
látið í það skína, að lánin verði
ekki verðtryggð, þótt ljóst sé, að
verðtrygging er alger forsenda
þess, að um nokkrar lánveitingar
verði yfirleitt að ræða.“ Þannig
komst einn af bankaráðsmönnum
Búnaðarbankans, Karl Árnason,
að orði er Mbl. sneri sér til hans í
gær um málefni stofnlánadeildar
landbúnaðarins, í tilefni af um-
mælum Gunnars Guðbjartssonar
formanns Stéttarsambands
bænda f Tímanum f gær og láns-
loforðum, sem nú hafa verið send
út til bænda.
Karl Árnason sagði, að á sfðasta
bankaráðsfundi í Búnaðar-
bankanum hefði verið gert ráð
fyrir að veita lán samtals að upp-
hæð 635 millj. kr. til bænda og
þess fjár ætti að afla þannig, að
talið væri, að stofnlánadeild gæti
haft til umráða af eigin fé 110
milljónir upp f þessa upphæð. Þá
hefði verið gengið út frá því, að
framkvæmdasjóður mundi lána
stofnlánadeild 375 millj. kr., en
helmingur þeirrar upphæðar yrði
verðtryggður og loks hefði fjár-
málaráðherra gefið fyrirheit um,
að 150 millj. kr. skuld stofnlána-
deildar við Seðlabanka sem ella
yrði að greiðast upp á þessu ári,
yrði breytt í fimm ára lán. Banka-
ráðsmenn hefðu talið, að fjár-
málaráðherra hefði verið búinn
að koma þessari breytingu á lán-
inu f Seðlabankanum f kring, en f
gær, 25. júnf, hefði þetta mál ver-
ið óafgreitt hjá Seðlabankanum
og yfirlýsing fjármálaráðherra
því ekki staðizt.
Þá er ljóst, sagði Karl Árnason,
að peningar þeir, sem stofnlána-
deildin á að fá hjá framkvæmda-
sjóði, eru ekki til og engin trygg-
ing fyrir þvf, að þeir komi inn eða
hvenær þeir koma inn, auk þess
sem stofnlánadeildin á óuppgerð-
ar skuldir við framkvæmdasjóð.
Þessi upphæð kann að skerðast af
þeim sökum, svo og einnig vegna
þess, að hún er miðuð við 25%
niðurskuró á lánveitingum, en nú
er ætlun að skera lánveitingar
niður um 30%.
I viðtalinu við Tfmann segir
Gunnar Guðbjartsson, að af-
greiðsla á dráttarvélalánum hafi
stöðvazt „fyrir misskilning hjá
starfsmönnum Búnaðarbankans".
Karl Árnason sagði, að ákveðið
hefði verið að stöðva lánveitingar
vegna 5. málsgreinar bráðabirgða-
LANDSPlTALINN hafði sam-
band við varnarliðið í fyrrakvöld
og bað það að flytja f skyndi
nýrnasjúkling til aðgerðar í
Kaupmannahöfn. Rfkisspftalinn
danski hafði sent boð um, að nýra
væri fáanlegt til ígræðslu í ís-
lenzkan nýrnasjúkling með bæði
nýrun ónýt. Nýrnasjúklingurinn,
Ríkarður Tómasson, 51 árs
gamall, var kominn um borð í
eina af könnunarflugvélum
varnarliðsins klukkustund eftir
að beiðnin um aðstoð var send, en
Ríkarður hefur verið með bæði
laga frá 21. maf sl. Áframhald-
andi lánveitingar hefðu leitt til
þess, að því fleiri óverðtryggð lán,
sem veitt hefðu verið til dráttar-
vélakaupa, þeim mun meiri verð-
trygging yrði að koma á önnur lán
til bænda vegna verðtryggðrar
lántöku • stofnlánadeildar hjá
framkvæmdasjóði. Þetta veit
Gunnar Guðbjartsson manna
bezt, sagði Karl Árnason, en fram-
sóknarmenn pína út lánsloforð til
þess að blekkja bændur til fram-
Framhald á bls. 39
nýru ónýt í tæp tvö ár og verið
þann tfma í gervinýra. Könnunar-
flugvélin var 3 klst. og 20 min. til
Arósa, en þar var Rikarður lagður
á sjúkrahús. Nýrað var síðan
grætt f hann f gærmorgun og að
sögn Páls Asmundssonar læknis á
Landspftalanum leið honum vel
eftir aðgerðina.
Þegar nýru standa til boða til
ígræðslu verður að bregða mjög
skjótt við. Páll kvað Ríkarð vera
þriðja nýrnasjúklinginn, sem
varnarliðið flytti fyrir Landspítal-
ann til útlanda.
102 segja sig úr Framsóknarflokknum
vegna óljósrar stefnu í varnarmálum
I FYRRADAG voru lagðar
fram úrsagnir 102 félagsmanna
f Félagi ungra framsóknar-
manna f Reykjavfk og er það þá
komið fram, er Morgunblaðið
skýrði frá fyrir nokkru, að um
100 ungir framsóknarmenn
hygðust segja skilið við Fram-
sóknarflokkinn fyrst og fremst
vegna afstöðu hans til varnar-
málanna.
Forystumaður þessa hóps er
Birgir Viðar Halldórsson, sem
átt hefur sæti í stjórn Sam-
bands ungra framsóknarmanna
og hefur Morgunblaðið átt við
hann stutt samtal af þessu til-
efni, en í því kemur fram, að
flest af þessu unga fólki hyggst
styðja Sjálfstæðisflokkinn í
komandi kosningum og finna
sér starfsvettvang innan sam-
taka ungra sjálfstæðismanna.
Birgir Viðar Halldórsson hef-
ur sem fyrr segir átt sæti í
stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna og verið fulltrúi í
fulltrúaráði framsóknarfélag-
anna f Reykjavík, en hann átti
einnig á sfnum tíma sæti f
stjórn fulltrúaráðs framsóknar-
félaganna í Reykjavík og var í
stjórn FUF í Reykjavík. I hópi
þeirra 102, sem gengið hafa úr
Framsóknarflokknum, er stór
hópur, sem átt hefir til þessa
sæti f fulltrúaráði framsóknar-
félaganna í Reykjavík.
Aðspurður um þær ástæður,
sem liggja að baki þessari hóp-
úrsögn úr Framsóknarflokkn-
um, sagði Birgir Viðar Hall-
dórsson í viðtali við Morgun-
blaðið í gær, að þær væru fyrst
og fremst óljós stefna í varnar-
málum og einnig skortur á
festu í stjórn Framsóknar-
flokksins á efnahagsmálum
þjóðarinnar. Það væri sam-
eiginleg skoðun þessara 102, að
hér ætti að vera varnarlið í
landinu eins og nú væri ástatt,
og þetta unga fólk treysti ekki
öðrum stjórnmálaflokki en
Sjálfstæðisflokknum til þess að
standa vörð um varnir landsins.
Birgir Viðar Halldórsson
kvaðst vilja leggja áherzlu á, að
engar persónulegar ástæður
lægju til úrsagnar þessa hóps
heldur byggðist hún á þeim
málefnalegu ástæðum, sem að
framan greinir.
Hann kvað þetta unga fólk
vera á aldrinum 19—32 ára,
meðal þess væru fimm, sem
ekki væru komnir á kjörskrá,
en flestir hefðu tekið virkan
þátt í starfi ungra framsóknar-
manna. Ursagnir þessar eiga
sér langan aðdraganda, sagði
Birgir Viðar Halldórsson, og
hafa þróazt á undanförnum
mánuðum, Eftir að þessi
ákvörðun var tekin hef ég talað
við alla þá, sem skrifað hafa
nafn sitt undir þessar úrsagnir,
m.a. farið heim til þeirra í því
skyni. j
Um þróunina innan samtaka
ungra framsóknarmanna, sem
nú hafa misst mestan hluta
vinstri sinnaðra fylgismanna og
stóran hóp úr hægri armi
flokksins, sagði Birgir Viðar
Halldórsson, að hann gerði fast-
lega ráð fyrir því, að hægri öfl-
in mundu sfga þar á.
— Hver telur þú, að muni
taka við formennsku SUF?
— Ég tel, að Alfreð Þorsteins-
son og Guðmundur G. Þórarins-
son muni keppa um for-
mennsku í Sambandi ungra
framsóknarmanna og lfklega
verður Alfreð þar sterkari.
— Áttu von á frekari átökum
innan FUF?
— Ég reikna með, að tveir til
þrír hópar muni takast á um
völdin í félaginu, ef ekki næst
samkomulag áður.
Að lokum kvaðst Birgir Viðar
Halldórsson vilja láta í ljós þá
von, að þessi ákvörðun 102
félagsmanna í Félagi ungra
framsóknarmanna í Reykjavík
yrði öðru ungu fólki hvatning
til þess að veita Sjálfstæðis-
flokknum stuðning.
Nýtízkuleg
söngmessa
100 prestar sækja prestastefn-
una, sem hófst I Hallgrfms-
kirkju í gær og mun standa f 3
daga. Biskupinn yfir tslandi,
herra Sigurbjörn Einarsson,
flutti ávarp, frumflutt var
söngmessa eftir séra Hauk
Agústsson f Vopnafirði og m.a.
sýnd ný kvikmynd, sem kirkj-
an hefur látið Vilhjálm Knud-
sen gera um kirkjuna f lffi
þjóðarinnar.
Varnarliðið flyt-
ur nýrnasjúkling