Morgunblaðið - 26.06.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.06.1974, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1974 23 Tíminn hefur ekki haft af miklu að státa undanfarna daga og vik- ur. Hann nefndi þó fyrir skömmu valkostina, sem hann metur svo: „Viðreisnin, sem hrakti fólk úr landi fyrir fáum árum og lumar nú á því í pokahorninu, sem ekki er nefnandi upphátt,“ — og vinstri stjórnin svonefnda, sem enginn gerir reyndar ráð fyrir að haldi velli. Og víst er um það, menn hafa að undanförnu velt því mjög fyrir sér, hver væri I raun viðskilnaður vinstri stjórnarinn- ar. Tómas skáld Guðmundsson kvað einhverju sinni: „Ég mæti honum daglega, manninum með pokann. Og hvert sinn hef ég spurt: Hvað er I pokanum? En ég fæ ekkert svar, og held áfram leiðar minnar, æstari en nokkru sinni áður. Svo stappa ég niður fætinum og stilli mig. Og I nótt dreymdi mig draum. Mig dreymdi að ég stóð úti á stræti. Ég stóð úti á stræti og hélt ræðu. Ég ávarpaði lýðinn, sem flykktist að úr öllum áttum, og orðin féllu af vörum mínum, máttugog þung: Bræður mínir, sagði ég, bræður mínir og systur. Allir þér, sem eruð viðstaddir, og einnig þér, sem ekki heyrið orð mín. Gefið gaum að yðar pokum. Sleppið ekki sjónum af yðar pokum. Því sjá! Dagur dómsins nálgast, þegar Drottinn sjálfur snýr yður við og segir: Hvað er I pokanum?“ Þessari spurningu hefur verið svarað I fjölmiðlum, blöðum og útvarpi undanfarnar vikur. Hver hefur orðið raunin? Hver er við- skilnaður vinstri stjórnarinnar? Vantar alla sjóði allt — eða er einungis um smávægis milli- færsluskekkju að ræða? En stjórnarblöðin hafa fjálglega skrifað um það, að I raun og veru sé ekki um annað en „milli- færslu“ milli sjóðanna að ræða, meðan fólkið bíður árangurslaust eftir fjármunum úr þessum fé- pokum. í byggingasjóð vantar 1300 milljónir, 7—8000 milljóna við- skiptahalli, 1000 milljónir vantar í stofnlánadeild landbúnaðarins, 1200—1400 milljónir vantar I fisk- veiðasjóð, 300—400 milljóna halli er á bátaflotanum, 1900 milljónir vantar I vegasjóð, 1000 milljóna króna árstap á rekstri skuttogar- anna, 1200 milljóna króna tap áætlað I frystiiðnaði, 4000 milljóna yfirdráttarskuldir banka, framkvæmdasjóð vantar 1000 milljónir króna, á ríkissjóðn- um er um 3300 milljón króna fyrirsjáanlegur halli, gengið „síg- ur“ eða „fellur“ eftir því, hvað mönnum þykir hentara að nefna það, ríkisfyrirtækin eru rekin með tapi, gjaldeyrisvarasjóðir eru að tæmast. Þetta er allt að gerast þrátt fyrir afburða góðæri, t.a.m. 300% hækkun afurðaverðs. Við höfum áður átt við örðugleika að etja, en á árunum 1967 og 1968 stóð þannig á, að útflutningsverð- mæti okkar féll um helming á tveimur árum. Þar var að sjálf- sögðu allt öðru til að dreifa en nú og óliku saman að jafna. Er nú von, þótt einhverjum sak- leysingja verði á að spyrja: Hvað er I pokanum? Hver skyldi vera svo heppinn að reka sig á þá stað- reynd, að aðeins sé um minni- háttar „millifærsluskekkju“ að ræða á milli sjóðanna, — já, hinna tómu sjóða? Guðmundur H. Garðarsson átt- undi maður á lista Sjálfstæðis- flokksins I Reykjavík hefur skrif- að tvær ágætisgreinar I Morgun- blaðið nú nýverið, aðra um góð- æri og stjórnmál og hina um kaupmátt og raunveruleika. í þessum greinum hefur höfundur m.a. svarað hluta af spurning- unni: Hvað er I pokanum? Það hafa og ýmsir fleiri gert, svo sem forstjóri SlS og formaður Sölu- sambands íslenzkra fiskframleið- enda. Allt eru þetta mikil ósköp, þegar saman kemur í eitt og þess er tæpast að vænta, að Tíminn reyni að tíunda innihald pokans. Þjóðviljinn hefur það nú helzt sér til dundurs að fjalla um „við- tækar réttarrannsóknir" vegna undirskrifta rúmlega 55.000 ís- lendinga um það að hafa land okkar varið. Blaðið býsnast yfir því, að hér sé um að ræða um- fangsmesta meiðyrðamál á Is- landi til þessa. Sannast sagna er þó hér um eitt kröftugasta spark að ræða I íslenzkum stjórnmálum, spark liðlega 55.000 íslendinga í afturhluta hinna svokölluðu her- námsandstæðinga, spark, er birt- ist í viljayfirlýsingu, sem afhent var forsætisráðherra og forseta sameinaðs alþingis, — þótt þeir af stærilæti og hroka segðust myndu hunza þann vilja. Þar var engin launung á því, hvað I pokanum væri. Við síðustu alþingiskosn- ingar var alls ekki kosið um her- varnir landsins. Það hefur hins vegar einu sinni áður verið gert, árið 1956. Þá stóð Sjálfstæðis- flokkurinn einn gegn öllum hinum, er af hugrekki börðust til kosninga í Hræðslubandalagi og mynduðu hina svokölluðu fyrri vinstri stjórn. Helzta stefnumál þeirrar stjórnar var: Herinn úr landi! En herinn var og herinn er, — „farinn her er ennþá hér.“ Svo kom að því, að íslendingar þurftu enn á því að halda, að mynduð yrði vinstri stjórn að nýju árið 1971. Þá var gamla kjör- orðið enn tekið upp úr pokahorn- inu og þurrkað af því rykið: Her- inn úr landi! Ekkert samráð var að sjálfsögðu haft við samherja okkar í Atlantshafsbandalaginu, enda „sjálfstæð utanríkisstefna“. — En herinn er ennþá í landi. Hvað veldur? Utanríkisráðherra og raunar ríkisstjórnin öll er nú orðin að hreinasta viðundri eftir Ottawa- yfirlýsinguna. Þar segir m.a., að ekkert ríki geti varóveitt friðinn með því að vanrækja eigið öryggi og einnig, að allir aðilar Atlants- hafsbandalagsins verði að taka þátt I sameiginlegum vörnum bandalagsins. Sjálfur hefur utan- ríkisráðherra I blaðaviðtali sagzt leggja „áherzlu á II. gr. yfirlýs- ingarinnar, þar sem fjallað er um nauðsyn samráðs milli aðildar- landanna um mótun utanríkis- stefnunnar og ákvarðanir á því sviði“. Það verða sannarlega fróðleg þau undur, sem upp koma, „þegar Drottinn sjálfur snýr yður við og segir: Hvað er I pokanum?" „Hvað er í pokanum?”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.