Morgunblaðið - 26.06.1974, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.06.1974, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JUNÍ 1974 Kristján Guðmunds- son bakarameistari, Flateyri — Minning Fæddur 25. ágúst 1927 Dáinn 17. júní 1974. „Ýmsum veitti erfitt að trúa andlátsf regn hans“ Oft hefur hún verið hugsuð, sögð og rituð þessi setning og enn á hún við. Mörgum veitir erfitt að trúa, að Kristján Guðmundsson sé allur. Veikindi hans bar brátt að, stóðu ekki lengi og með skjótum hætti er Kiddi bakari horfinn okkur. Hann kom ungur til Flateyjar frá Patreksfirði til þess að læra bakaraiðn. Eftir að þvi námi lauk, settist hann að á Flateyri og stundaði þar iðn sfna allt til bana- legu sinnar. Það kom fljótt f ljós, að með Kidda bakara hafði félags- og skemmtanalífi Önfirðinga bætzt mikill og góður liðsauki, og í hópu strákanna á Flateyri var hann þegar dáður fyrir fimi sína á skíð- um, hann var einn af örfáum, sem renndi sér beint frá Litla kletti niður að sjó, en það var á þeim árum afrek, sem skipaði mönnum í hóp hinna beztu. Kiddi aflaði sér hinsvegar ekki frekar frægðar á skíðum, en hins minnumst við nú, hversu óvenju- lega skemmtilegur og elskulegur maður hann var í alla staði, frá- bær liðsmaður félagslífs og góður iðnaðarmaður. Það er ekki vist, að fólk í marg- menni geri sér grein fyrir, hve menn eins og Kiddi eru mikils virði í fámenninu og hvílíkt reiðarslag þar er f raun og veru að missa hann á bezta aldri. Þetta verður varla með orðum skýrt og allra sizt I þessari stuttu minning- argrein. Hann fékk fólk til að gleyma áhyggjum og daglegu striti með leikarahæfni sinni, en Kiddi var áreiðanlega fágætlega góður leikari. Hann var sjálfkjör- inn til að koma fram og skemmta, þegar skemmtun var haldin, enda ávallt til þess boðinn og búinn. Hann var allra manna skemmti- legastur í kunningjahópi og yfir- leitt hrókur alls fagnaðar, hvar sem hann kom. En hann var líka mikill félags- málamaður á öórum sviðum og vann af alhug að öllu, sem til framfara og heilla horfði. Hann var forystumaður um leikstarf- semi í allmörg ár og vann þar mikið og gott starf. Hann var t Móðursystir mln MÁLMFRÍÐUR MARÍA BJARNADÓTTIR andaðist á Sjúkrahúsi Patreks- fjarðar fimmtudaginn 13 júnl. Jarðarförin hefur farið fram. Steinunn G. Helgadóttir. t Þökkum auðsýnda samúð við út- för JÓNÍNU G. ÍSLEIFSDÓTTUR Laugavegi 137 Þórey, Jerry, Ása, Þórarinn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför RÖGNVALDAR JÓHANNSSONAR frá Stighúsi, Vestmannaeyjum. Jóhann P. Pálmason og systkini hins látna. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður okkar, og tengdamóður GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Túngötu 5, IsafirSi, Einnig þökkum við læknum og öðru starfsliði Sjúkrahúss ísa- fjarðar fyrir ágæta hjúkrun og aðra umönnun við hana meðan hún lá þar Ragnhildur Majasdóttir, Ólafur Magnússon, Dagbjartur Majasson, Sigrlður Kristjánsdóttir. Ingólfur Majasson, Sigrlður Guðlaugsdóttir, Sigrfður Sæmundsdóttir. áhugamaður um slysavarna- og björgunarmál og góður verkmað- ur á því sviði, og hann var for- göngumaður um að Lionshreyf- ingin festi rætur i Önundarfirði og einstaklega farsæll og ötull liðsmaður hennar. í stuttu máli er hér horfinn maður, sem veitti öllu því atfylgi, sem horfði til gleði og menningar í okkar litla byggóarlagi. Þannig var Kiddi bakari, þessvegna var hann svo mikils virði og þess- vegna veitir svo mörgum erfitt að trúa andlátsfregn hans. Eitt sið- asta verk hans var að stjórna fjár- öflun til kaupa á lækningatæki fyrir sjúkraskýlið á Flateyri, og hann var nýkominn frá Isafirði, þegar yfir hann þyrmdi og hann var alíekinn þeim sjúkdómi sem nú hefur dregið hann til dauða, en á tsafirði var hann ásamt fleir- um aó æfa gamanþætti eða kabarett, sem átti að ferðast með um Vestfirði í sumar. Við vitum að Kiddi hlakkaði til þeirrar ferð- ar og við hlökkuðum til að fá að sjá hann enn einu sinni á sviðinu og fá að njóta leiks hans og gamansemi. Þetta verður nú ekki. Við eig- um ekki eftir að sjá hann, en við munum njóta góðra og mannbæt- andi minninga um hann og ásamt öðrum njóta þeirra verka er hann vann. Við þökkum fyrir að hafa feng- ið að kynnast Kidda bakara og fyrir að hafa mátt vera vinir hans. Eiginkonu hans, börnum, skyldu- og tengdaliði sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur, og kveðjum hann með sökn- uði. Emil og Jón Trausti. Þótt vér sjáumst oftar eigi undir sól, er skín oss hér. Á þeim mikla dýrðardegi Drottins aftur finnumst vér. Kristján Guðmundsson var fæddur á Patreksfirði þann 25 ágúst 1927 og voru foreldrar hans þau Ingveldur Gísladóttir og Guð- mundur Kr. Kristjánsson. Bæði voru þau af breiðfirzkum ættum, en bjuggu allan sinn búskap á Patreksfirði. Lifir Ingveldur og á heimili í Kópavogi, en Guðmund- ur lézt árið 1959. Kristján var næst elztur af 10 börnum þeirra Ingveldar og Guð- mundar, en áður hafði Guðmund- ur eignast son og eru öll systkyni Kristjáns á Iífi, sjö þeirra búsett hérlendis en þrjú eiga heimili er- lendis. Kristján ólst upp hjá foreldrum sínum á Patreksfirði en dvaldist eitthvað á sumrum hjá frændfólki sínu í Breiðafjarðareyjum. Minntist hann ávallt æsku sinnar með miklum hlýleika til foreldra og frænda, og hugstæðar voru honum samverustundir með afa sínum á Breiðafirði. Fyrstu störf sín vann Kristján við verzlun 0. Jóhannessonar á Patreksfirði, þá ungur að árum, en faðir hans var þar lengi starfs- maður. Starfaði hann þar að sendils- og afgreiðslustörfum við verzlunina og síðar varö hann að- stoðarmaður við brauðgerð, sem þar var rekin. Árið 1944 þá 17 ára gamall fluttist hann til Flateyrar og hóf nám i bakaraiðn hjá Jóhannesi Guðjónssyni bakaram. og lauk sveinsprófi á tilskyldum tíma og sfðan meistaraprófi í iðn- inni. Um áramótin 1949 og 1950 keyptu Kristján og Kaupfélag Ön- firðinga saman brauðgerð þá er starfrækt er hér á staðnum og hefir sú sameign staðið síðan. Starfaði Kristján alla tíð að iðn sinni á Flateyri og lauk þar full- um starfsdegi þann 22. maí s.l. eins og hans var venja, en aðfara- nótt 23. mai veiktist hann snögg- lega, svo að flytja varð hann þá þegar til ísafjarðar á sjúkrahús og skömmu síðar á sjúkrahús í Reykjavík, þar sem um mjög alvarlegt sjúkdómstilfelli var að ræða. Varð því ekki á betra kosið um eftirlit og aðhlynningu og vonuðum við hér heima að úr myndi rætast, þó að illa horfði í bili og að við myndum fá Kristján heim hressan og heilbrigðan. En allt fór á aðra leið, veikindin reyndust alvarlegri en við vildum trúa og að áliðnum degi þann 17. júni s.l. andaðist hann á Borgar- spítalanum í Reykjavfk. Hinn 13. nóvember 1948 kvænt- ist Kristján eftirlifandi konu sinni Þorbjörgu Jónasdóttur frá Flateyri. Foreldrar hennar voru Jónas Guðmundsson, skipstjóri, er þá var látinn, og María Þor- bjarnardóttir, og hófu ungu hjón- in búskap á heimili hennar en tóku brátt við búsforráðum og hefir María verið hjá þeim á heimilinu alla tíð, nú 77 ára gömul, vel ern þó að heilsan hafi nokkuð látið sig I seinni tíð. Fór sérstaklega vel á með þeim Marfu og Kristjáni sem og öðru heimilis- fólki, enda mátu þau hvert annað af verðleikum. Börn þeirra Þorbjargar og Kristjáns eru tvö: Guðmundur Jónas f. 13. mai 1949 nú skrif- stofumaður hjá Hjálmi h.f. Flat- eyri og María Kristin f. 7. septem- ber 1954 skrifstofustúlka hjá Agli Vilhjálmssyni h.f. Reykjavík. Er hún heitbundin Sigurbirni Svavarssyni stýrim. f Reykjavík. Eru börnin myndarlegt dugnaðar- fólk eins og þau eiga kyn til, en Guðmundur Jónas hefir frá barn- æsku átt við nokkra vanheilsu að striða vegna „spaltiskrarlömun- ar“ en þrátt fyrir það sýnt af sér mikinn dugnað við nám og störf. Einnig hefir alizt upp á heimilinu frá 7 ára aldri bróðursonur Þor- bjargar, Hallgrimur Baidursson, sem þá hafði misst móður sina og mun hann einskis minnast af dvöl sinni þar nema alls hins bezta, en hann er nú 16 ára. Kristján var góður heimilisfað- ir — mikið snyrtimenni f starfi og allri umgengni og Þorbjörg fyrir- myndar húsmóðir enda heimilið með miklum myndarbrag þó að húsakynni væru ekki alltaf mikil, en úr því hafði rætzt verulega fyrir nokkrum árum, þegar þau endur byggðu hús sitt á Flateyri. Mikið af fritímum Kristjáns fóru í að sinna ýmsum félagsmál- um, svo sem leiklist, er hann starfaði mikið að og lék fjölda hlutverka bæði stór og smá, enda alltaf leitað til hans þegar mikils þurfti með á þeim vettvangi. Slysavarnamál lét hann mjög til sfn taka og einnig opinber mál, sat lengi f hreppsnefnd Flateyrar- hrepps fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Einnig var hann slökkviliðsstjóri hér í mörg ár. Þó að lítillega hafi verið drepið hér á nokkur æfiatriði Kristjáns, er svo margt ótalið, sem hann lét gott af sér leiða á alltof stuttri æfi, en ég veit að aðrir munu geta þess að einhverju. Eins og oft vill verða, þar sem hjálpfýsin vinnu- gleðin var slik sem raun bar vitni, og engri bón hægt að neita, yrðu samverustundir með fjölskyld- unni oft fáar heimafyrir. Kristján flfkaði ógjarnan til- finningum sínum, en átti mjög gott með að umgangast fólk og blanda geði við aðra. Var hann alltaf foringi f flokki, þegar vinna þurfti að framgangi góðra mála, sem laun voru þá ekki sótt fyrir að kveldi, og hrókur alls fagnað- ar, er komið var saman til vina- funda, hvort sem voru þar fleiri eða færri. Kristján sagði meiningu sína, ef þvf var að skipta og með þurfti að hans áliti, en aldrei til þess að særa nokkurn mann, því að alltaf vildi hann gott úr öllu gera og gerði hann oft meiri kröfur til t Ástkaer eiginkona mín; móðir okkar, tengdamóðir og amma GUÐMUNDA KRISTINSDÓTTIR, Tómasarhaga 14, lézt að heimili sínu þriðjudaginn 25. júní sl. Kristinn Filippusson, synir, tengdadætur og barnabörn. + Dóttir mín og systir okkar RANNVEIG ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR og eiginmaður hennar BRUCE AKERBLOM létust af slysförum 1 7. júnl. Jarðarförin hefur farið fram Ragna Erlendsdótt ir og börn. + Hjartkær móðir okkar RAGNHEIÐUR GUÐNADÓTTIR, frá Eystri-Tungu, lézt I Landspítalanum 24 júnl Guðríður Ársælsdóttir Guðni Ársælsson Sigrlður Ársælsdóttir Jón Ársælsson Bjarni Ársælsson Ingi B. Ársælsson + Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall dóttur okkar og systur ELSU SILVÍU BENEDIKTSDÓTTUR Brynhildur Pálsdóttir, Benedikt Geirsson, Sigríður Benediktsdóttir, Ragnhildur Benediktsdóttir, og Brynhildur Benediktsdóttir. + Innilegt þakklæti, færi ég öllum þeim sem vottuðu mér samúð. með hlýju hugarfari og vinarkveðjum við fráfall og útför móður minnar STEFANÍU EIRÍKSDÓTTUR Guð blessi ykkur öll Herbert Glslason. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu GUÐLÍNAR JÓNSDÓTTUR Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur og presti og söngkór Fljótshlíðarsóknar. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INGIBERGS KRISTINSSONAR, netagerðameistara. EmelFa Þórðadóttir, Þorvaldur Ingibergsson, Svanhvit Ásmundsdótttr, Guðlaug Ingibergsdóttir, Jóhann Gislason, María Ingibergsdóttir, Sturla Snorrason. og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.