Morgunblaðið - 26.06.1974, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 26.06.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JUNÍ 1974 11 1967—’69. Ég tel þó ekki út í hött að minna þá og áróðursmeistara þeirra á, að á þessu tímabili minnkuðu útflutningsverðmæti landsins um 50% — og hlaut-.það að koma niður á þjóðinni allri, einnig hinum lægstlaunuðu, svo að ekki sé talað um þá, sem urðu atvinnulausir um skeið. Ég heyrði Bjarna Benediktsson segja, að ómögulegt væri að stjórna land- inu nema með sáttfýsi og samn- ingum. Að því vann hann af heil- indum eins og allir vita, nema einhverjir staurblindir ofstækis- menn, sem víla ekki fyrir sér að sverta minningu pólitískra and- stæðinga, jafnvel hana. Ég skil vel, að þeim hefur orðið heitt I hamsi, sem fóru utan I leit að atvinnu vegna erfiðleikanna á fyrrnefndum árum. En nú eru þeir komnir heim og ættu að una glaðir við sitt. Og af hverju komu þeir heim? Það var vegna þess að Bjarni Benediktsson sagði strax í upphafi kreppunnar, að hann væri staðráðinn i að sigla þjóðar- skútunni gegnum brimgarðinn. Það hvarflaði aldrei að honum að skjóta sér undan vandanum. „Góður skipstjóri siglir skipi sínu I höfn,“ sagði hann — og það gerði hann. Sú sigling er ein hin glæstasta í stjórnmálasögu síð- ari tíma á tslandi. Þegar hann lézt um aldur fram var skútan komin í höfn og góðæri framundan. Þetta er sannleikur þessa máls og ástæðulaust að klifa á hálf- kveðnum visum og ósannindum í framastreði sínu. Bjarni Bene- diktsson var raunsærri maður og meiri leiðtogi en svo, að honum kæmi til hugar að stinga höfðinu í sandinn og tala um stórfelld þjóð- félagsvandamál sem „bókhalds- atriði" eins og nú er gert. Því má svo bæta við, að Við- reisnarstjórnin skilaði hagsælu búi í hendur Vinstri stjórn- arinnar — og ef einhver reynir að telja mér trú um, að ástandið hafi verið verra þá en nú, ætla ég að leyfa mér þann munað að draga dómgreind þess hins sama í efa og fullyrða, að hann sé haldinn ólæknandi pólitfskri veilu nema hann sé þetta „idíót“, sem Erik Eriksen taldi, að gæti ekki verið fullkomið. Þegar á árinu 1969 sáust veru- leg batamerki vegna ákveðinnar afstöðu Bjarna Benediktssonar og stjórnar hans og nauðsynlegra viðbragða á örlagastund. Þá tók efnahags- og atvinnulíf landsins að færast í rétt horf. Viðskipta- jöfnuðurinn í heild varð hagstæð- ur um 380 milljónir króna. Gjald- eyrisvarasjóðurinn, sem var í rauninni upp urinn síðla árs 1968, fór aftur að vaxa og nam 1988 milljónum króna í árslok 1969. Það var enginn venjulegur skipstjóri, sem stóð við stjórn- völinn á þessum árum. Bjarni Benediktsson sagði við mig fyrir kosningarnar 1967: „Kosningar skipta ekki öllu máli. Það, sem skiptir máli, er, hvað við eigum skilið." Ég legg í dóm lesenda, hvað landsfeðurnir nú eiga skilið. En Bjarni Benediktsson og minning hans eiga ekki skilið þær alvarlegu aðdróttanir, sem hafa tröllriðið stjórnarblöðunum und- anfarna daga. öll er mér þessi saga harla minnisstæð, svo náin kynni sem ég hafði af stjórnmálamanninum Bjarna Benediktssyni. Um vin- áttu okkar ræði ég ekki hér, hún er dýrmætari minning en svo. Mér er það í fersku minni, hver viðbrögð Bjarna Benediktssonar urðu, þegar ég sendi heim frétt frá Bandaríkjunum í júlf 1966, þess efnis, að þorskblokkin hefði lækkað um 2 cent pundið. Frétt- ina hafði ég eftir forstjóra út- flutningsfyrirtækis Sambandsins f Ameríku. Bjarni Benediktsson var fljótur að átta sig á hættunni. I Reykjavíkurbréfi 31. júlf skrifar hann m.a.: „En þaðvekur ugg, að verðlag á fiski í Bandaríkjunum hefur undanfarið farið lækkandi og nemur lækkunin rúmum 10%. Á sama tíma hefur orðið veruleg lækkun á verði bæði lýsis og mjöls, þannig að fyrirsjáanlegir erfiðleikar eru við útflutning helztu afurða okkar. Raunar áttu menn að búast við þvf að verðlag mundi ekki stöðugt halda áfram að hækka. Á heims- markaði eru sveiflur á verðlagi flestra vörutegunda, en ekki stöð- ugar verðhækkanir. Á þetta eink- um við um vörur, sem mismun- andi mikið er framleitt af frá ári til árs eins og einmitt er um fisk- afurðirnar. Verðlagshækkanirnar undan- farin ár á íslenzkum afurðum ásamt miklum aflafeng hafa gert það að verkum, að unnt hefur verið að standa undir hinum miklu kauphækkunum, sem hér hafa orðið, en nú þegar verð- hækkanirnar hafa ekki einungis stöðvazt, heldur er beinlínis um verulegar verðlækkanir að ræða, hlýtur hvert mannsbarn að skilja, að ógjörlegt er að hækka enn kaupgjald. Það er sú meginstað- reynd, sem bæði launþegar og vinnuveitendur verða að hafa í huga, er kaupgjaldssamningar verða ræddir á næstunni. Verkamenn og aðrar láglauna- stéttir hafa fengið nokkrar raun- hæfar kjarabætur. Frumskilyrði bess að þær verði ekki af þeim teknar, er að kauphækkanirnar fari ekki yfir allt atvinnulífið, heldur verði nú látið staðar numið og sá grundvöllur treystur, sem hinar miklu framfarir, sem menn sjá daglega fyrir augum, eru nú byggðar á.“ Mér er til efs, að nokkur ís- lendingur hafi verið eins fljótur og Bjarni Benediktsson að átta sig á því, að verðlækkun þessi mundi hafa þær alvarlegu afleiðingar í för með sér, sem raun bar vitni. Hann varar þegar við hættunni. Og ekkert var fjærri honum en uppgjöf. Verðlækkunin hélt áfram — og varð að hruni. Við ofurefli var að etja. Kreppa skall á, óvægin og miskunnarlaus. Hún kom við okkur öll. En þá sýndi sig, að þær fullyrðingar, sem tönnlazt er á, að íslendingar séu spilltir orðnir af græðgi og þæg- indum, áttu sem betur fer ekki við rök að styðjast. Kjarninn er þó heill, ef glöggt er greint, segir Einar Benediktsson f ljóði sínu Á Njálsbúð. íslendingar tóku erfið- leikunum af karlmennsku og létu raunar engan bilbug á sér finna. Þá sýndi sig, að þjóðin átti enn það þolgæði, sem hefur verið herini eins konar leiðarljós gegn- um aldirnar. Hún stóð af sér áfall- ið. Og hún var stoltari eftir en áður. I þessu pólitíska stórviðri sýndi Bjarni Benediktsson betur en nokkru sinni hvílíkur leiðtogi hann var. Hann mundi lfka kreppuárin 1931—’39 og það von- leysi, sem þá setti svip sinn á allt þjóðfélagið undir stjórn þáver- andi vinstri flokka. Á það minnt- ist hann oft með hryllingi í sam- tölum við vini sfna. Ég kem þessu á framfæri hér í lokin til að minna enn einu sinni á, hvílfkt fjarstæðubull sú fullyrðing er, að hann og aðrir leiðtogar Sjálfstæð- isflokksins vilji nota atvinnuleysi sem hagstjórnartæki í einhvers konar baráttu gegn launþegum landsins. Samt koma stjórnarblöð- in nú með hverja greinina á fætur annarri til að ata minningu Bjarna Benediktssonar auri, auðvitað án þess að minnast nokk- urn tíma á nafn hans. Slíkt er hvorki mannlegt né stórmann- legt. En hitt var mannlegt að leita sér atvinnu út fyrir landsstein- ana, meðan holskeflan gekk yfir, og ekkert við þvf að segja. Víta- vert er þó að ráðast á þá, sem heima sátu og unnu bug á vand- anum, svo að við mættum halda áfram að njóta þeirrar gæfu að vera íslenzk þjóð á íslandi. ís- lenzk þjóð verður auðvitað annað- hvort hér f landinu eða hvergi — hvorki í Ástralíu né Svíþjóð. Bjarni Benediktsson varð oft fyrir árásum — stundum lúa- legum — meðan hann lifði. En nú er mál að linni. Sumar- bústaða- og húseigendur MÁLNING og LÖKK úti — inni Bátalakk — Eirolia Viðarolía — Trekkfastolía Pinotex, allir litir Tjörur, allskonar Kítti, allskonar Vírbustar — Sköfur Penslar — kústar — rúll- ur ryðeyðir — ryðvörn. GARÐYRKJU- ÁHÖLD Handverkfæri, allskonar Stauraborar — Járnkarlar Jarðhakar — Sleggjur Múraraverkfæri, allskonar ★ Handsláttuvélar Garðslöngur og tilheyrandi Slöngugrindur — Kranar Garðkönnur — Fötur Hrífur — Orf — Ljáir — Brýni Skógar-, greina- og grasklippur Músa- og rottugildrur GAS- FERÐATÆKI Olíu- ferðaprímusar Vasaljós — Rafhlöðulugtir Olíulampar — Steinolia ÚTI-GRILL Grillstengur — gafflar Viðarkol — Spritttöflur. ARINSETT Fýsibelgir Viðarkörfur Vatnsdælur — Brunnventlar Plastbrúsar 5, 10 og 20 lítra FÁNAR Fánalínur — Húnar GÓLFMOTTUR Greinlætisvörur Skordýraeitur Gluggakústar Bilaþvottakústar Biladráttartaugar Hengilásar og hespur Þvottasnúrur Þéttilistar á hurðir og glugga SLÖKKVITÆKI Asbest — teppi Brunaslöngur. BJÖRGUNAR- VESTI fyrir börn og fullorðna. Árar — Árakefar Króm. búnaður á vatna- báta Silunganet og slöngur. Vinnufatnaður Regnfatnaður Gúmmístígvél Vinnuhanzkar Vinnuskór Rýmingarsala Hattabúðar Reykjavíkur Vegna flutnings verzlunarinnar bjóðast kostakjör i 3 daga: Kjólar — Pils — Blússur — Peysur. Notið þetta tækifæri. HATTABÚÐ REYKJAVÍKUR, LAUGAVEGI 10. Lausafjáruppboð Nauðungaruppboð á útistandandi skuldum og hlutabréfum dánarbús Gústafs A. Sveinssonar, hrl., fer fram í dómsal bæjarfógetaembættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, miðvikudaginn 3. júlí n.k. kl. 13.30. Bókhaldsgögn og önnur tiltæk gögn varðandi umræddar kröfur og hlutabréf liggja frammi á skrifstofu uppboðshaldara. BÆJARFÓGETASKRIFSTOFUNNI í HAFNARFIRÐI 21. JÚNÍ 1974. MÁR PÉTURSSON, HÉRAÐSDÓMARI. Hestafólk Hestaþing Faxa, verður haldið að Faxaborg, sunnudaginn 21. júlí og hefst kl. 15 með hópreið félagsmanna. Keppt verður í þessum greinum: Skeið 250 metrar, stökk 800 metrar, stökk 300 metrar, stökk 250 metrar, brokk 1500 metrar. Gæðingakeppni A og B flokkur. Gæðingar mæti laugardag 20. júlí kl. 1 6. Þátttaka tilkynnist fyrir 18. júlí til Þorsteins Valdimarssonar, Borgarnesi, sími 7190 og 71 94 eftir kl. 7 á kvöldin. Dansað á palli að loknum kappreiðum. Stjórnin. Utankjörstaða kosning Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er að Laufásvegi 47. Símar: 26627, 22489, 17807, 26404. Sjálfstæðisfólk! Vinsamlega látið skrifstof- una vita um alla kjósendur, sem verða ekki heima á kjördegi. Utankjörstaðakosning fer fram í Hafnarbúð- um alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22. Sunnudaga kl. 14—18. JFÉLAGSSTARF ELDRI BORGARA ORLOFSDVÖL Félagsstarf eldri borgara efnir í samvinnu við Félagsstarf Þjóðkirkjunnar til 12 daga orlofs- dvala að Löngumýri í Skagafirði júlí og ágúst n.k. sem hér segir: I. ferð: Lagt af stað frá Reykjavík 22. júlí, komið til baka 2. ágúst. II. ferð: Lagt af stað frá Reykjavík 6. ágúst, komið til baka 1 7. ágúst. III. ferð: Lagt af stað frá Reykjavík 19. ágúst, komið til baka 30. ágúst. Þátttökugjald kr. 7.000.00 (allt innifalið). Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Félagsstarfs eldri borgara Tjarnargötu 11 kl. 9.00 til 12.00 f.h. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku sem fyrst. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.