Morgunblaðið - 26.06.1974, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNl 1974
37
Skuggamynd i fjarska
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MARIU LANG,
PÝÐANDI: JÓHANNA KRISTJONSDÓTTIR.
40
þvi alla nóttina að skipa gestum
niður við borðin, fékk vægt tauga-
áfall. Síðan fórum við upp í veit-
ingasalinn, þar sem pattaralegur
lektor frá Osló hélt fyrirlestur um
merka en óþekkta norska skáld-
konu og sfðan snerum við okkur
að krásunum, sem fram voru
bornar í borðsalnum.
— Hamingjan sanna! Er ætlun
hans að við étum á okkur gat!
Ég leit um öxl og sá mittismjóa
ungmeyju, Görel Fahlgren
smeygja sér að borðinu með kræs-
ingunum, í fylgd með Staffan
Arnold. Ég sá einnig þau Kersti
Ryd og Ingmar Granstendt og ég
gat ekki varizt að hugsa með
þakklæti um, að nú fengi Ingmar
þó einu sinni ærlega máltið.
Ég hafði til borðs sjálfan
Antonsson prófessor og þar sem
hann er bæði skemmtilegur og
skrafhreifinn var það hin ánægju
legasta stund, sem við áttum sam
an. Við töluðum um allt milli him-
ins og jarðar, nema morð og þegar
ég sagði svona I leiðinni að mér
fyndist Pelli — sem sat skammt
frá okkur—furðu fölur og þreytu
legur og líklega kviði hann fyrir
doktorsvörninni, svaraði prófess-
orinn þvi þurrlega, að það skildi
hann undur vel og síðan fórum
við að ræða um, hvar heppilegast
væri að fá sér land undir sumar-
bústað og deildum við um það
efni drykklanga stund, í mestu
vinsemd þó.
Ösjálfrátt hvarflaði hugur minn
að því, hvað það væri fráleitt og
óhugnanlegt að við sætum hér,
glöð og kát og lifandi og biðum
eftir að horfa á revfu, þegar Eva
væri tekin að rotna í gröf sinni og
að morðingi hennar sæti hér á
meðal okkar — að öllum líkind-
um. En svo var tjaldið dregið frá
og ég varð eins og aðrir að hlæja
tryllingslega að þeirri sönnu Hug-
B stemningu, sem var töfruð fram
á sviðinu. Jan Hede kom fram og
söng gamanvísur um bókasafnið
og okkar ástkæru Lillemor.
Prófessorinn hvíslaði, svo að
vel mátti greina: Hver er Lille-
mor? og samstundis var sussað á
hann úr öllum áttum, en ég gat þó
hvíslað þvf að honum, að það væri
ung stúlka sem hefði öllu meiri
áhuga á karlmönnunum á safninu
en náminu sjálfu. Karl Gustaf
Segerberg, sem átti að visu að
koma fram sem andmælandi eftir
fáeina daga, lét ekkert á sig bíta
og sýndi ótvíræða leikhæfileika
sfna — hann kom inn klæddur
kvenmannspilsi og gulri peysu og
hann burfti ekki annað en hreyfa
sig Lillemorslega á sviðinu, þegar
hann nálgaðist Jan, til að salurinn
veltist um af hlátri.
Að revíunni lokinni voru ljósin
kveikt og allir voru kátir og léttir
á svip, nema einn var drungaleg-
ur og samanbitinn að sjá — Pelle
Bremmer. Hann varð þess var, að
ég var að horfa á hann og reyndi
að brosa til mfn, en það varð að-
eins aumkunarverð gretta og ég
var aftur rifin á vit raunveruleik-
ans. Ég gat að vísu ekki neitað.
þegar Antonsson prófessor bauð
mér upp í fyrsta valsinn, en kæti
mfn var horfin, og ég hafði ekkert
gaman af dansinum — aldrei
þessu vant. Görel sveif framhjá f
fangi Staffans og mér flaug allt í
einu í hug, að hún væri venju
fremur föl. Við einn vegginn stóð
Ingmar Granstedt, einn og yfir-
gefinn... og einhvers staðar
heyrði ég hláturinn í Lillemor.
Þegar dansinum var lokið fór
ég niður á næstu hæð. Mig sár-
langaði f vatnsglas og til að vera
ein í nokkrar mínútur. En í for-
salnum stöðvaði húsvörðurinn,
hr. Andersson, mig.
— Ekki mætti ég nú biðja yður,
frú Bure.... byrjaði hann
hikandi
— Þannig er mál með vexti að
það kom ung stúlka hérna niður
rétt áðan og hún grét svo sárt, að
ég varð alveg ruglaður. Ég hleypti
henni inn f lestrarsalinn, því að
ég bjóst við, að hún vildi fá að
vera ein. En nú er ég að velta því
fyrir mér, hvort ekki væri réttast
að einhver færf til hennar. Svo að
ef þér vilduð nú tala við hana, frú
Bure,...
Inni í lestrarsalnum var svalt
og kyrrt. Það liðu nokkrar
sekúndur áður en ég kom auga á
Kersti. Hún knipraði sig saman í
einum hægindastólnum og þegar
hún kom auga á mig fór hún aftur
að gráta beizklega, svo að tárin
runnu í strfðum straumi niður
vanga hennar. Ég lagðist á hnén
við hlið hennar og rétti henni
vasaklútinn minn.
Hún snýtti sér duglega og
stamaði með miklum ekka:
— Venjulega . .. læt ég ekki
svona ... En ég gat ekki afborið
að horfa á hann ... svona glaðan
og eins og ekkert væri. Hvernig
getur hann .. . hvernig getur
hann ... Þegar Eva er dáin og
hann ....
Hún fór aftur að gráta, og ég
varð alveg ringluð, — skyldi hún
segja eitthvað meira? Hvað átti
hún við? Hvern var hún að
meina? Jan Hedi og Karl
Gustaf? Jan Hedi og Karl Gustaf?
Annanhvorn þeirra... eða átti
hún við eitthvað annað...
En nú hafði hún beitt öllu sínu
þreki til' að ná stjórn á sér. Hún
snýtti sér enn einu sinni og sagði
svo af ákefð: — Gleymdu því, sem
ég var að röfla áðan. Það var bara
rugl. ÉG MEINTI EKKERT MEÐ
ÞVl SEM ÉG SAGÐI. Skilurðu
það ..’. alls ekki neitt.
Og áður en ég gat nokkuð að-
hafst frekar stökk hún á dyr.
Frammi stóð Andersson og starði
út í myrkrið:
— Hún hljóp út, tautaði hann
hissa ... Hljóp án þess að fara í
kápu. Og út í þetta líka veður ....
14. kafli.
Kersti Ryd var reyndar ekki
eina manneskjan, sem kom ein-
kennilega fram þetta kvöld. Rétt
eftir að hún var rokin varð ég af
tilviljun vitni að atviki, sem varð
til þess, að ég braut heilann enn
meir. Og samt sem áður staðfesti
það ef til vill aðeins þær grun-
semdir, sem ég hafði alið með
mér.
Ég veit ekki hvað olli því, að ég
fór aðra leið upp en ég hafði
komið niður. Og rétt á bak við
sviðið sá ég mannveru, sem stóð
ein — Görel Fahlgren, föl og um-
komuleysisleg, í fjarska dunaði
dansmúsíkkin.
VELVAKANDI
Velvakandí svarar í síma 10-100
kl 10.30 — 1 1 30, frá mánudegi
til föstudags.
# Heimsmet
í vérðbólgu
Ingjaldur Tómasson skrifar:
„Ríkisstjórn Islands hefir gefið
þjóðinni ömurlegan minnisvarða
á þjóðhátiðarári með þvf að
magna, ýmist með óviturlegum
aðgerðum eða með algeru stjórn-
leysi, hið hrikalegasta verðbólgu-
bál, sem nokkurn tíma hefir
þekkzt hér og þótt víðar væri
leitað. Það er óneitanlega kald-
hæðnislegt, að helzt megi líkja
stjórninni við einræðisstjórnina I
Grikklandi, kannski óvíst hvor á
verðbólgumetið.
0 Óðaverðbólga
er grímuklætt
gengisfall
Allir, sem kaupa vöru eða
þjónustu, finna hvernig krónan
fellur og verður stöðugt verð-
minni innanlands. Þetta endar
svo með gengisfalli erlendis,
þegar búið er að magna verðbálið
svo mikið, að engin útflutnings-
framleiðsla er samkeppnisfær og
að því stefnir nú óðfluga.
Að þetta skuli geta gerzt í ein-
dæma góðæri er flestum ofraun
að skilja.
# Spánný hagfræði
Það hefur jafnan þótt stefna til
hagsældar og bættrar afkomu,
þegar einstaklingar (félög eða
ríki) geta selt vörur sínar fyrir
gott verð, en versnandi afkomu,
þegar varan fellur í verði. Nú-
verandi ríkisstjórn og málgögn
hennar halda því hins vegar fram,
að því betur sem varan selst
erlendis, þeim mun verra sé að
stjórna f jármálum þjóðarinnar.
Hvernig hefði núverandi stjórn
farið að ef hún hefði orðið fyrir
öðru eins verðfalli og samdrætti f
útflutningi og viðreisnarstjórnin
varð að glíma við f að minnsta
kosti 2 ár?
# Gerningaþokan
fyrir kosningar
Til þess að fela það ófremdar-
ástand, sem búið er að sökkva
þjóðinni í, er gripið til svo
gegndarlausra niðurgreiðslna á
landbúnaðarvörum, að lítt
skiljanlegt er, hvernig slíkt getur
gerzt. Hitt er auðskilið hverjum
islenzkum kjósanda, að þetta er
ekkert annað en svimhár
hengingarvfxill, sem þjóðin verð-
ur að greiða að fullu innan tíðar
ásamt allri skuldasúpunni, sem
stjórnin hefir stofnað til erlendis,
og svo til bragðbætis verður þjóð-
inni gert að greiða greiðsluhalla
hinna nýju skuttogara og
annarrar útflutningsframleiðslu.
Ég er þess fullviss, að íslenzkur
almenningur sér vel í gegnum allt
þetta ömurlega kosningamold-
viðri, sem stjórnin er að reyna að
fela sig í.
Hinn þögli meirihluti íslenzkra
kjósenda sýndi það með undir-
skriftum Varins lands og nú
sfðast með þvf að lýsa vantrausti á
stjórnina í bæjar- og kauptúna-
kosningunum.
# Stefna til fram-
fara og hagsældar
Það hefir nú þegar komið f ljós,
að nýunninn stórsigur Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavfk og
nágrenni hefir gert það mögulegt
að gera stórátak í nýtingu jarð-
varmanámanna hér í nágrenninu
til stórhagsældar fyrir fólkið, sem
annars neyðist til að nota rándýra
innflutta olfu til húsahitunar.
Margt fleira þessu líkt á eftir að
koma í ljós.
Ég vil að lokum skora á bæði
aldna og unga, sem kosningarétt
hafa, að fylkja sér um að vinna að
falli núverandi vandræða-
stjórnar, en það tekst tæpast
nema sjálfstæðismenn vinni tals-
vert stærri sigur en f síðustu
kosningum. Það er líka fullvíst,
að það, sem tryggir að þjóðin fái
stórhuga og trausta framfara-
stjórn, er, að sem allra flestir
landsmenn kjósi Sjálfstæðisflokk-
inn. Ingjaldur Tómasson."
# Sundnámskeið
fyrir börn
Kona nokkur hafði samband við
Velvakanda. Sagðist hún eiga
börn á aldrinum 6—8 ára, sem
hún hefði hug á að senda á sund-
námskeið. Hún sagðist hafa vitað
um slfk námskeið í sundlaug Vest-
urbæjar og hefðu þau verið hald-
in þar um árabil. Mikil aðsókn
væri að námskeiðunum, en þau
væru venjulega snemma sumars
og komust þá færri að en vildu.
Hún sagðist hafa verið of sein
til að láta skrá krakkana á það
námskeið, sem nú stæði yfir, en
hefði þá farið að spyrjast fyrir
um, hvenær það næsta yrði hald-
ið, en þá hefði komið f ljós, að
fleiri námskeið yrðu ekki haldin.
Nú vill konan beina þvf til þeirra,
sem að slfkum námskeiðum
standa, hvort ekki sé hægt að
halda fleiri, eða jafnvel halda
uppi sundkennslu fyrir börn allt
sumarið.
Vitað sé, að sundiðkun er
heilsusamleg fólki á öllum aldri
og líka lffsnauðsynlegt fyrir alla
að kunna að synda.
Að sjálfsögðu sé sundkennsla f
sambandi við skyldunámið, en
börn geti hafið þetta nám mun
fyrr en gert er ráð fyrir þar.
# Tíu á toppnum
Tveir foxillir unglingar komu
að máli við Velvakanda nýlega.
Þeir áttu ekki nógu sterk orð til
að lýsa andúð sinni á þeirri ráð-
stöfun, að þátturinn „Tíu á toppn-
um“ skuli hafa verið fluttur yfir á
sunnudaga f stað þess að vera á
laugardögum eins og verið hefur
frá upphafi. Þeir sögðu, að allir
þeirra vinir og kunningjar væru á
einu máli um þetta, og vilja skora
á „valdaklíkuna í útvarpinu" að
kippa þessu í lag eins og skot.
Wagner
úthýst
í Israel
Tel Aviv, 24. júní.
AP.
Fflharmóníuhljómsveit tsraels
og Zubin Mehta hljómsveitar-
stjóri létu undan ofbeldishótun-
um f dag og aflýstu tónleikum
með tónlist eftir Richard Wagn-
er.
ísraelsmönnum er í nöp við
tónlist Wagners þar sem þeir telja
hana tákn Hitlers og nasismans.
Fyrrverandi fangar úr útrýming-
arbúðum höfðu hótað að brjóta
allt og bramla f stærsta tónleika-
sal Tel Aviv um leið og Metha
gæfi hljómsveitinni merki um að
hefja flutning á „Ragnarökum".
„Við gátum ekki tekið þessa
áhættu," sagði framkvæmdastjóri
filharmónfusveitarinnar.
r ~ * * *
Iran vill
kjarnorku
frá Frökkum
París, 24. júní.
NTB. AP.
NOKKRUM tímum áður en írans-
keisari kom til Frakklands í opin-
bera heimsókn í dag var því opin-
berlega neitað, að rétt væri haft
eftir keisaranum í blaðaviðtali,
að iranir hygðust koma sér upp
kjarnorkuvopnum.
Hins vegar hafa Iranir áhuga að
kaupa fimm kjarnorkustöðvar af
Frökkum, sem eiga f samkeppni
við Bandaríkjamenn og Kanada-
menn um slíkan samning. Keisar-
inn mun kynna sér rækilega
frönsk kjarnorkumál f heimsókn-
inni.