Morgunblaðið - 28.07.1974, Síða 2

Morgunblaðið - 28.07.1974, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULl 1974. 12 mílna landhelgi 200 mílna efnahagslögsaga lögö veröur fyrir ráðstefnuna á morgun, mánudag. Flutnings- ríkin eru Island, Kanada, Chile, Indland, Indonesía, Maurit- ania, Mexíkó, Nýja-Sjáland og Noregur. Meginefni tillögunnar er, að landhelgi skuli vera 12 mílur og efnahagslögsaga 200 mílur. I tillögunni segir, aö innan efna- hagslögsögunnar skuli skip og flugvélar allra þjóða njóta frelsis til siglinga og flugs skv. reglum, sem kunna að vera sett- ar á ráðstefnunni. Strandrfki skal óhindrað njóta réttar sfns og gegna skyldum sínum innan efna- hagslögsögunnar, án þess þó að hindra löglega nýtingu hafsins, Caracas 27. júlí. stefnunni f Caraeas hafa náð STRANDRlKIN á hafréttarráð- samkomulagi um tillögu, sem im 874 ii m 1974 „Þess biður Inga Jóhannes- dóttir” INGA Jóhannesdóttir í Gríms- ey hefur beðið Morgunblaðið fyrir eftirfarandi kveðju í til- efni 100 ára afmælis síns í sum- ar: „Ég vil þakka mfnum elsku- legu börnum öllum og fóstur- dætrum, barnabörnum, tengda- börnum og systkinabörnum fyr- ir bæði miklar gjafir, heim- sóknir og öll hlýlegheit, sem þetta blessaða elskulega fólk hefur sýnt mér. Þeim heitt og innilega Guðs friðar og Guðs launa á himnum biður Inga Jóhannesdóttir í Guðs friði." Á bls 22 f dag er viðtal við Ingu Jóhannesdóttur og tvær aðrar 100 ára gamlar konur. MORGUNBLAÐIÐ er 72 bls. f dag, tvö blöð. Efni þeirra er m.a.: BLAÐ I. Bls. I: Teikning eftir Halldór Pétursson. — 3: Verið, eftir Einar Sigurðsson. — 4: Þjóðhátfð á Þingvelli, eftir sr. Árelfus Nfelsson — 10: Stjórnarskráin 1874, eftir Geir H. Haarde. — 12: Ó, guð vors lands — þjóðsöngur tslendinga, eftir Pétur Eirfksson. — 14: Stjórnarskrá tslands 100 ára, eftir dr. Gunnar Thoroddsen. — 15: Endurskoðun stjórnarskrárinnar, eftir Hannibal Valdimars- son. — 16: Listaverk um landnámið, eftir Geir H. Haarde. — 18: Upplýsingar og leiðbeiningar fyrir þjóðhátfðargesti. — 19: Maðurinn f félagi við landið, eftir Steinþór Gestsson, Hæli. — 20: Reykjavfkurbréf, kaflar úr ræðu eftir dr. Bjarna Benedikts- son um endurskoðun stjórnarskrárinnar. — 21: Frásögn Landnámsbókar af komu Ingóifs til tslands. — 22: Rabbað við þrjár 100 ára gamlar, eftir Arna Johnsen. — 25: Er sifk saga ekki ævintýri, eftir dr. Gylfa Þ. Gíslason. — 26: Heill tslandi, eftir Jörgen Schleimann. — 27: Landgræðsla og gróðurvernd 1975—1979. — 29: Börnin og afmæli tslandsbyggðar, myndir. BLAÐ II. Bls. 1: Litmyndir af listaverkum á sýningunni 1 Kjarvalsstöð um „tslenzk myndlist f 1100 ár“. — Ljósm. MbL: ÓI.K. M. — Efst til vinstri: Altaristafla frá Þingvöllum, eftir Ófeig Jónsson. — Efst t.h.: Postulakiæði frá Hrafnagili (eign Nationalmuseet f Khöfn). — Neðst t.v.: Altarisklæði með heilagri þrenningu (eign rfkissafnsins Twenthe f Enschede í Hollandi). — Neðst t.h.: Refilsaumað altarisklæði með sögu heilags Marteins (eign Musée de Cluny f Parfs). — 2: tslendingabók og Landnámabók, eftir dr. Jónas Kristjáns- son. — 3: tslands minni, Ijóð eftir Matthfas Jochumsson og Fjallavfs- ur, ljóð eftir Steingrfm Thorsteinsson. — 4: tslenzkar fornleifar og upphaf byggðar f landinu, eftir Þór Magnússon þjóðminjavörð. — 6: Fyrirheit og eftirvænting, eftir Matthfas Johannessen, for- mann þjóðhátfðarnefndar 1974. — 7: Um fslenzka tungu að fornu og nýju, eftir dr. Hrein Benediktsson. — 8: Norskir landnemar á íslandi, eftir Arna Óla ritstjóra. — 10: Um uppruna fslenzkra landnámsmanna, eftir Björn V. Sig- urpálsson. — 12: Þættir af nokkrum landnámsmönnum, eftir Svein Guðjónsson. — 14: Landnámsmenn bjuggu f veglegum húsakynnum, samtal við Hörð Agústsson, eftir Magnús Finnsson. — 16: Afnot af landi f 11 aldir og framtfðarbúseta á fslandi, eftir dr. Sturlu Friðriksson. — 19: „Frétta“-sfða frá landnámsöld. — 20: Nokkrir þættir um áhrif landnáms á skáldskap, eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur. — 20: Slagsfða um strákapör á söguöld og æskuna fyrr og nú, eftír Svein Guðjónsson, með teikningum eftir Halldór Pétursson. — 24: Landnáma hin nýja, teikningar eftir Halldór Pétursson. — 27: Sannleikskjarni sagnanna um uppruna tslendinga virðist sterkur, samtal við dr. Jens Pálsson. — 28: Þjóðhátfðin 1874, eftir Gfsla Sigurðsson. — 30: Knerrirnir voru allt að 50 rúmlestir að stærð, eftir Þórleif Óiafsson. — 31: Þjóðhátfðarnefnd 1974. — 32: Svipmyndir úr „Við byggjum land — þjóðhátfðarbók barn- anna. Síbreytileg dagskrá á Þróunarsýningunni Framhald á bls. 39 Davíð og Hrafn höfundar Islend- ingaspjalla ÞAÐ hefur hvílt mikil leynd yfir því, hver eða hverjir bæru ábyrgð á íslendingaspjöllum, sem Leik- félag Reykjavfkur hefur sýnt við mikla aðsókn og hrifningu að undanförnu. Höfundurinn hefur fram til þessa leynzt bak við nafn- ið Jónatan Rollingstón Geirfugl, þar til í gærkvöldi að leyndarmál- ið var afhjúpað á sýningu í Iðnó. Höfundarnir reyndust vera tveir, þeir Davíð Oddsson og Hrafn Gunnlaugsson, % hlutar Matthild- inga og Þórðar Breiðfjörð. Sem kunnugt er hafa þeir Davíð og Hrafn séð um Matthildi í útvarp- inu undanfarin ár, ásamt Þórarni Eldjárn, og nú er verið að sýna í Þjóðleikhúsinu leikrit þeirra félaga, Ég vil auðga mitt land, einnig við miklar vinsældir, svo húmor þeirra (og alvara) virðist eiga greiðan aðgang að Islend- ingum. 27-11 á móti Nixon? Washington 27. júlf, AP EKKI tókst að hefja atkvæða- greiðslu í dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gærkvöldi, en talið er, að hún geti farið fram í dag. Ábending um úrslitin kom í gær, er nefndin felldi tillögu frá repúblíkönum um að fella burt ákæruatriðið á hendur Nixon, þar sem segir, að hann hafi skrökvað að þeim, sem rannsökuðu Watergate-málið. Var tillagan felld með 27 atkvæðum gegn 11. Talið er, að þannig mun atkvæði falla, er atkvæða- greiðslan um, hvort forsetanum skuli stefnt fyrir ríkisrétt, fer fram. „ÞAÐ ER alltaf eitthvað að ske hjá okkur," sagði Agnar Guðna- son, þegar við inntum frétta af gangi Þróunarsýningarinnar í Laugardalshöll. „Sýningin er opin alla daga frá kl. 14—22, nema í dag frá kl. 20—22, en fólk getur þó alltaf skoðað sýninguna til kl. 23“, sagði Agnar, „og á kvöldin eru alltaf einhverjar skemmtidagskrár, héraðsvökur og fleira. A mánudagskvöld flytja leikararnir Róbert og Valur þátt úr Sjálfstæðu fólki og Eddukór- inn syngur íslenzk lög. Daglega eru kvikmyndasýn- ingar kl. 16—18 og 20—21, þar sem sýndar eru nýjustu íslenzku kvikmyndirnar. Kl. 18—18.40 eru þættir úr Reykjavíkurlífinu, Pískrað við vatnspóstinn, en þar eru fluttir þættir úr gömlum reví- um og sjá nokkrir leikarar í Iðnó um þann lið. Þannig mætti lengi telja, það er alltaf eitthvað við að vera og þeir, sem hafa séð sýning- una í Laugardalshöll hafa hrifizt mjög af henni.“ Gestir á þjóðhátíð: Alarik Hággblom frá Álandseyjum FULLTRUI Álandseyja á þjóð- hátfðinni á Þingvöllum f dag er Alarik Hággblom, æðsti maður flandsstjórnar Álandseyja. Hann er 60 ára að aldri og hefur verið f forsæti lands- stjórnarinnar s.l. tvö ár, en f henni hefur hann setið sfðan 1953. Undanskilin eru þó árin 1967—’71, en þá sat Hággblom á þingi Álandseyja. Álandseyjarnar eru alls um 6,500 talsins, en eins og gefur að skylja er aðeins lítill hluti þeirra byggður. Ibúar eyjanna eru 22 þúsund, og þar af búa um 9 þúsund í höfuðborginni Mariehamn. Alandseyjar hafa svipaða stöðu innan finnska ríkisins og Færeyjar innan þess danska. Bæði Færeyjar og Álandseyjar komu inn í Framhald á bls. 39 Islands minnzt \ öldungadeildinni BANDARlSKI öldungadeildar- þingmaðurinn Frank E. Moss frá Utah flutti 24. júlf ræðu f öldungadeild Bandarfkjanna, þar sem hann minnti á þjóð- hátfð tslendinga. Fer ræða hans hér á eftir. Hr. forseti. Okkur ber að minnast sérstaklega hinnar dugmiklu fslenzku þjóðar, sem 28. júlf nk. heldur hátfð f til- efni 1100 ára afmælis byggðar f landi sfnu. Þegar við nú undir- búum hátfðarhöldin f tilefni 200 ára afmælis stjórnarskrár okkar 1976, ætti mikilvægi ts- landsbyggðar að verða okkur augljósari. Hefðir noskra vfk- inga, sem sigldu Atlantshaf djarfir og fullir af ævintýraþrá út f óvissuna og fundu tsland og tóku sér þar bólfestu, eru hluti af fslenzkri og vestrænni arfleifð. Norskir og keltneskir útflygjendur byggðu tsland á innan við 60 árum og stofnuðu þar sjálfstætt lýðveldi, sem stjórnað var af Alþingi. Þetta þing er elzta löggjafarþing heims. Á 1000 ára afmæli þingsins 1930 sendu Banda- rfkjamenn fslenzku þjóðinni að gjöf styttu af Leifi Eirfkssyni til viðurkenningar á margvfs- legum og merkilegum framlög- um fslenzku þjóðarinnar. Það var Leifur Eirfksson, „sonur ts- lands,“ sem um árið 1000 steig fyrstur Evrópubúa fæti á bandarfska grund. Hann og aðr- ir vfkingar eru einmitt sam- nefnarar fyrir hið hugrakka, frelsisunnandi fólk Vestur- land. Það eru slfkir menn, sem eru hornsteinar þess lýðræðis, sem við f Bandarfkjunum höf- um tileinkað okkar. Þetta höf- um við viðurkennt með þvf að lýsa 9. október ár hvert dag Leifs Eirfkssonar. Hr. forseta. Mikil hátfðahöld hafa farið fram á tslandi og hófust þau með þjóðhátfðinni 17. júní sl. og þeim lýkur með þjóðhátfð- inni á ÞingvöIIum 28. júlf. Hefðir forfeðra vfkinganna hafa haft auðgandi áhrif lff f Bandarfkjunum og geta hjálp- að okkur að mæta erfiðleikun- um, sem kunna að koma upp, er við hefjum 3ju öld sjálfstæðis okkar. Það skulum við hafa hugfast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.