Morgunblaðið - 28.07.1974, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1974.
29
Ungir leikarar sýna Mann og konu eftir Jón Thoroddsen og koma fram
f gömlum þjóðlegum búningum.
Margskonar sýningar voru á vinnu skólabarna til fróðleiks og skemmtunar. Ljósm. Sv. Þorm.
I Réttarholtsskóla mátti sjá skjöld og myndir af biskupum og öðru fyrirfólki fyrri alda.
Þetta drykkjarhorn, sem ungur hagleiksmaður hefur gert, hefði sómt
hvaða vfkingi sem er.
1 tilefni af 1100 ára afmæli tslandsbyggðar undirbjuggu skólabörn í Reykja-
vík vorsýningar í skólum sínum I þjóðlegum stfl. Var mikil vinna lögð í
undirbúninginn og viðfangsefnin tekin margbreytilegum og hugmyndaríkum
tökum. Voru þar bæði leiksýningar og ljóðalestur úr sögu þjóðarinnar, sýndir
gamlir atvinnuhættir, komið upp líkönum er sýndu landnámið, búskap lands-
manna á ýmsum öldum, veggskreytingar gerðar úr handritunum og af ýmsum
þáttum úr sögunni, svo eitthvað sé nefnt. Þessar merkilegu sýningar og þáttur
skólabarnanna á þjóðhátíðarári fór því miður fram hjá mörgum vegna þess að
skólahátíðirnar voru meðan blaðaverkfall var. En hér birtum við myndir, sem
ljósmyndarar blaðsins tóku í tveimur skólum, Réttarholtsskóla á fyrri siðunni
og Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi á seinni síðunni, þegar þar voru haldnar
hátiðir í tilefni þjóðhátíðarárs í vor.
L____________________________________________________________________
Haganlega gert drykkjarhorn.
Bömin o g afmæli
íslandsbyggðar