Morgunblaðið - 28.07.1974, Page 30

Morgunblaðið - 28.07.1974, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JULl 1974. Sigurður H. Matthías- son vélstjóri - Minning Sigurður lézt 20. júlí sl. eftir harða baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Sigurður kenndi þessa sjúk- dóms fyrst á síðastliðnu hausti og var þá þegar lítil von um bata. Baráttan var erfið frá upphafi, en þó erfiðust undir lok- in eins og oft vill verða. Hann hefur nú öðlazt hvíld og ró og líður nú aftur vel í heimi handan við gröf og dauða. Dauðinn hér á jörð er fæðing til nýs lífs og ég veit, að Sigurður nýtur þess nú, hve vel hann starf- aði hér á jörð og þess andlega þroska, sem hann hafði öðlazt hér. Sigurður sýndi mikinn andleg- an styrk f sjúkdómsbaráttu sinni og hélt fullu andlegu heilbrigði til síðustu stundar. Hann hafði allan timann sjálfur nokkra von um bata og víst hefði hann þegið að fá að vera lengur hjá fjölskyldu sinni, sem hann unni mjög og hefði fórnað öllu fyrir. Áreiðan- legt er, að betri heimilisföður hef- ur vart verið unnt að finna og er missir eiginkonu hans, dóttur og dótturdóttur mikill. Sigurður er fæddur í Reykjavík 11. september 1908. Foreldrar hans voru hjónin Sigríður Gísla- dóttir og Matthías Sigurðsson verzlunarmaður. Sigríður móðir hans var dóttir hjónanna Hólm- fríðar Eyjólfsdóttur og Gfsla Tómassonar verzlunar- manns, sem vann allan sinn starfsaldur hjá fyrirtæki Geirs Zoéga hér í borg. Matthías faðir hans var sonur hjónanna Guðrúnar Matthfasdótt- ur frá Nikulásarkoti í Reykjavík og Sigurðar Sveinssonar stein- Sigrún Skarphéðinsdóttir, Vilberg Skarphéðinsson. smiðs frá Smiðsnesi f Grímsnesi. Matthías faðir Sigurðar var óvenjulega dugmikill og fram- sækinn ungur maður, sem sést á því, að aðeins rúmlega tvítugur að aldri rak hann verzlun hér í borg ásamt móðurbróður sínum Guðmundi Matthíassyni, en auk þess var hann eigandi báta, sem hann gerði út héðan. Þá varð það hræðilega slys, að Matthías fórst með báti sínum ásamt þremur öðrum mönnum. Hann hafði hlaupið i skarðið fyrir einn báts- verjann þennan dag og var aðeins 26 ára að aldri, þegar hann fórst. Þetta var mikill missir fyrir hina ungu ekkju með tvö ung börn sín, Sigurð á öðru ári og Hrefnu á fyrsta ári. Hún fluttist nú til for- eldra sinna með börnin tvö og áttu þau öll þar dásamlegt heimili um nokkurt skeið, eða þar til for- eldrar Sigríðar létust. Eftir það var hún ein með börnin. Sigríður lézt árið 1935. Sigríður sýndi í þessu mótlæti sem í öðru sterkan persónuleika og hafa bæði börnin notið góðs uppeldis hennar og get- að byggt á því æ sfðan. Sigurður átti því ekki langt að sækja dugnað sinn og vinnusemi. Fáa veit ég um, sem hafa verið jafnsfvinnandi og Sigurður. Má með sanni segja, að honum hafi ekki fallið verk úr hendi. Hann var snemma sérlega handlaginn og lærði hann járnsmíði í Vél- smiðju Kristjáns Gfslasonar, en fór að loknum Iðnskóla í Vélskól- ann og varð vélstjóri þaðan árið 1928. Starfaði sfðan að námi loknu á togurum sem vélstjóri í mörg ár eða allt til ársins 1956, þegar hann réðst að Vélsmiðjunni Hamri í Reykjavík, en þar hefur hann starfað síðan. Kemur fram í löngu starfi hans þar einn sterkur þáttur í persónu hans, sem var einstakt trygglyndi. Veit ég, að trúmennska hans og vinnusemi eru metnar að verðleikum í Hamri, þar sem hann starfaði svo lengi og reyndar lengur en hann gat, þvf að ekki vildi hann hætta að starfa fyrr en hann var orðinn mikið sjúkur. Á sfnum yngri árum var Sigurð- ur íþróttamaður góður. Stundaði hann sérsraklega sund af kappi og náði prýðisárangri f þeirri grein. Vann hann til margra verð- launa á sundmótum, en náði einn- ig góðum árangri í fleiri fþrótta- greinum. Sigurður varð þeirrar gæfu að- njótandi að eignast gott og fallegt heimili og fjölskyldu, sem hann unni mjög. Hann giftist eftirlif- andi konu sinni Margréti Ingunni Jónsdóttur 26. október 1940. Eina dóttur áttu þau, Steinvör, sem er fædd árið 1942. Býr hún ásamt eiginmanni sfnuum Elíasi Arna- syni bifr.stj. og dóttur þeirra Sigríði í húsi foreldra sinna og hefur heimili hennar ekki farið varhluta af þeirri ástúð og um- hyggju, sem Sigurður sýndi fjöl- skyldu sinni. Sérlega mikil var þó ást hans til dóturdóttur sinnar Sigrfðar, og var hún sólargeisli í lífi hans. Er missir þeirra beggja mikill og gagnkvæmur. Ég átti því láni að fagna að kynnast Sigurði nokkuð vel, en þvf miður ekki fyrr en alltof seint að því er mér finnst núna. Ég hefði gjarnan viljað kynnast hon- um fyrr og njóta vináttu hans lengur en raun varð á. Þó vissi ég alltaf vegna tengsla minna við systur hans Hrefnu um hans ágætu mannkosti. Strax við fyrstu kynningu varð ég var við prúð- mennsku hans og einlægni. Sigurður var alla tíð dulur maður t GUÐLAUG VILHJÁLMSDÓTTIR Nönnugötu 3 Reykjavlk verður jarrsett frá Frikirkjunni i Reykjavik mánudaginn 29. júlí kl. 3. Blóm eru vin.~',mlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennarer bent á líknarstufnanir Svala Guðmundsdóttir Guðbjörg Guðmundsdóttir Ragnar S. Magnússon Kjartan Guðmundsson Helga Einarsdóttir Þorgerður Vilhjálmsdóttir Steinn Ingvarsson t Þökkum innilega öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför eiginkonu, móðurog tengdamóður okkar, VILBORGAR JÓNSDÓTTUR, frð Hópi Grindavik. Stfgur Guðbrandsson, Jón Stfgsson, Dagbjartur Stfgsson. Þórhallur Stfgsson, Edda B. Stfgsdóttir, Heimir Stfgsson, Ingibjörg Bjömsdóttir, Hrafnhildur Ágústsdóttir, Ingibjörg Guðnadóttir, Magnús Magnússon. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda hlýju og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu. ELfSABETAR KARÓLINU BERNDSEN. Sérstaklega viljum við þakka læknum og hjúkrunarfólki Borgarspítal- ans, fyrir sérstaka umönnun. _ .. . Birna og Fredric Mann, Steinunn og Ingvar N. Pálsson, Björg og Benedikt Ólafsson, Ásta og Fritz H. Berndsen, Ásta Bjömsdóttir Levi. barnabörn og bamabarnabörn. t Eiginmaður minn og faðir, SIGURÐUR HÓLMSTEINN MATTHfASSON, vélstjóri, Kaplaskjólsvegi 28. verður jarðsettur frá Dómkirkjunni mánudaginn 29. júlf kl. 1 3.30. Margrét Ingunn Jónsdóttir, Steinvör Sigurðardóttir. t Alúðar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför drengsins okkar BIRGIS AGNARS STEFÁNSSONAR, frá Siglufirði Frfða Sigurðardóttir, Stefán Þór Haraldsson og systkini. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar SKARPHÉOINS NJÁLSSONAR, Fyrir hönd vandamanna. að eðlisfari og bar ekki tilfinning- ar sinar á torg. Hann hafði sér- lega hlýtt viðmót og áreiðanlega hefur hann aldrei lagt illt til nokkurs manns. Það er þvf góður drengur horf- inn sjónum okkar. Hann hefur unnið gott dagsverk hér á jörð og fer héðan hreinn á sálu sinni. Ég vil að lokun nota hans eigin orð og segi við fjölskyldu hans og ást- vini, Guð geymi ykkur öll, um leið og ég bið honum sjálfum blessun- ar á nýjum stað. Guðmundur S. Jónsson. Með örfáum orðum vildi ég kveðja hann Sigurð, sem hefir verið næsti nágranni minn í 26 ár. Á óvenju blfðu sumri, þegar náttúran skartar sfnu fegursta kveður hann þennan heim eftir 6 mánaða stranga baráttu við erfið- an sjúkdóm, sem þrátt fyrir þekk- ingu færustu lækna virðist ekki vera hægt að vinna bug á, en öll verðum við fyrr eða sfðar að lúta valdinu mikla — valdi dauðans. Hann lét ekki mikið á sér bera í lífinu hann Sigurður. Hann var að eðlisfari hlédrægur maður, nán- ast feiminn, en því traustari og tryggari. Hans heimur var heimil- ið, það var honum allt, konan hans, einkadóttirin og dóttur- dóttirin, eina afabarnið. A þær lagði hann alla sfna ást og umhyggju á sinn hógværa og hljóðláta hátt og fyrir þær hefði hann viljað fá að lifa og starfa lengur, en enginn flýr örlög sín. Missir ykkar mæðgnanna er mikill, en þið getið huggað ykkur við minninguna um óvenjulega góðan og traustan eig- inmann og föður, sem allt vildi gera fyrir ykkur. Þið gerðuð líka allt, sem í ykkar valdi stóð, til að létta honum sjúkdómsbyrðina, önnuðust hann og hjúkruðuð hon- um heima eins lengi og kostur var, því að heima þráði hann að vera framar öllu. 1 mörg ár hefi ég komið á heimili ykkar daglega, stundum oft á dag og þakka Sigurði góð kynni, hlýja brosið hans og góðlátlegu glettnina. Hann var ekki margmáll, en bros- ið sagði oft meira en mörg orð, þar sem hann var gekk góður maður. Ég veit, að það var ekki að skapi Sigurðar að um hann væri skrifað langt mál að honum látn- um, en þetta eru aðeins örfá fátækleg kveðjuorð frá mér og manninum mínum með þökk fyrir góð kynni og gott nábýli í mörg ár. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Ragnheiður Guðmundsdóttir Guðlaug Vilhjálms- dóttir - Minningarorð F. 27.5.1907 D. 22.7.1974 DAGUR og nótt eru óaðskiljanleg hugtök, á sama hátt lffið og dauð- inn. Fólk virðir fyrir sér og dáist að sólaruppkomu og sólarlagi, blessar nýtt líf, er fæðist, en staldrar við og syrgir sárt, er dauðinn knýr á dyr. Nú stöldrum við við og syrgjum, því að Guð- laug Vilhjálmsdóttir lézt að heim- ili sfnu að kvöldi 22. júlf. Guðlaug fæddist f Vestmanna- eyjum 27. maí 1907 og var oft kennd við Múla þar í bæ, enda ólst hún þar upp með foreldrum sinum og systkinum. Liðlega tví- tug fluttist hún til Reykjavíkur og gíftist Guðmundi Runólfssyni, en hann lézt 20. maí 1961. Þau byggðu sér heimili að Nönnugötu 3 og eignuðust þrjú börn, Kjartan, Svölu og Guðbjörgu. 1 hlýlegu húsi, vingjarnlegu um- hverfi og meðal góðra nágranna bjó Guðlaug á sama stað í röska fjóra áratugi. Þar átti hún sínar | mestu gleðistundir og þar bar hún sína þyngstu harma. Þar lifði hún og þar lézt hún. Guðlaug var mörgum góðum kostum búin. Hún var hæglát kona og hógvær. Orðvör og alltaf reiðubúin að taka upp hanzkann fyrir aðra. Hún skammaðist ekki heldur útskýrði. Hún var nægju- söm og glæddist yfir litlu, en bar harm sinn með reisn. Hún sóttist ekki eftir veraldlegum auðæfum heldur útdeildi andlegum auði. Hún var rólynd og tók öllu mót- læti með festu og ró. Undanfarin ár átti hún við heilsubrest að stríða og hefði vissulega mátt búast við fráfalli hennar hvenær sem var, en samt erum við alltaf óviðbúin, enda bar dauða hennar mjög brátt að. Tæpri klukku- stundu áður en hún kvaddi virtist ekkert vera að, en hlutskipti sínu tók hún með þeirri ró, sem henni einni var eiginleg, lagðist út af frá því verki, sem hún var að ljúka við, og beið þess, er verða vildi. Við, sem eftir stöndum, kveðjum hana með djúpum trega og söknuði, en við gleðjumst jafn- framt hennar vegna, að nú skuli hún vera komin til fyrirheitna landsins, til mannsins, sem hún eiskaði, en missti svo fljótt, til tengdasonarins, sem henni þótti svo vænt um, en fórst svo ungur, já, til þeirra allra, sem á undan henni fóru. Við vitum það, að dauðinn er aðeins þrep til þessa fyrirheitna lands. Við erum þakk- lát fyrir að hafa fengið að dvelja með henni þennan tíma, því að margt gátum við lært af Guðlaugu og allt gott. Barnabörnin þakka henni sam- fylgdina og góðar móttökur, þeg- ar þau heimsóttu ömmu á Nönnugötu. Hvernig sem á stóð voru viðtökurnar jafnar, sama hlýja og sama umburðarlyndið. Alltaf átti hún jafn létt með að breyta gráti í hlátur og leiða í gleði. Ég kveð tengdmóur mína með söknuði og bið Guð að varðveita hana og blessa og alla, sem hjá henni eru. Hún átti virðingu allra, sem kynntust henni. Björt minning um góða konu mun eiga eftir að lýsa okkur og ylja um ókomin ár. Tengdasonur. HUN elsku amma mfn er látin og á morgun kveðjum við hana í hinzta sinn. Mig langar að nota þetta tækifæri til að skrifa nokkur kveðju og þakkarorð, fyrir allt það sem hún hefur gert fyrir mig. Ég geri mér það ljóst að þetta verða mjög fátæklegar lín- ur, samt sem áður á hún það skilið af mér, að ég minnsta kosti reyni. Arin eru ekki mörg, sem við höfum átt saman, aftur á móti hafa þau verið mér minnisstæð, vegna hennar ástúðar og hlýleika til min, sem ég þakka af heilum hug. Ég mun sakna heimsókn- anna á Nönnó, þar sem birta og ylur ætíð streymdi á móti öllum er f heimsókn komu. Ég veit, að á leið hennar til fyrirheitna landsins, til ástvin- anna sem farnir eru á undan, mun henni lfða vel. Bæði afi sem ég fékk aldrei að sjá og pabbi sem dvaldist svo stutt hjá mér, munu taka vel á móti henni og ég veit að hún mun ekki verða einmanna með þá við hlið sér. Vertu ætfð blessuð, guð veri með þér og varðveiti þig. Þökk fyrir allt og allt. Iris Lana.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.