Morgunblaðið - 18.08.1974, Side 2
_2______________
Heimsókn
norrænna
atvinnu-
ljósmyndara
1 DAG, sunnud. 18. ágúst,
kemur til landsins 100
manna hópur á vegum
NORDISK FOTOGRAF-
FORBUND:
Hópurinn dvelst hér í
viku og opnar ljósmynda-
sýningu og heldur nám-
skeið í Norræna húsinu í
samvinnu við LJÓS-
MYNDARAFÉLAG ÍS-
LANDS:
Fyrirlesarar á námskeið-
unum verða feðgarnir A1
og Michael Gilbert frá
Kanada í portrettljósmynd
un og hjónin Friedel og
Magda Bollen frá Þýzka-
landi í tækniljósmyndun.
Heimsókninni lýkur með
20 ára afmælishófi
NORDISK FOTOGRAF-
FORBUND laugardags-
kvöldið 24. ágúst og verð-
ur haldið að Hótel Loftleið-
um.
Sunnudaginn 25. ágúst
fara þátttakendur heim á
leið.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGUST 1974
11hakM^
W mnjnmm wL 9U&Í i
LANDSLEIKUR
við Finna
á morgun
tslenzka landsliðið f
knattspyrnu leikur
landsleik við Finna á
Laugardalsvellinum á
morgun og hefst leik-
urinn klukkan 19.00. Er
þetta fyrsti knattspyrnu-
landsleikurinn, sem hér
fer fram í sumar, en f
júlf sl. var leikið gegn
Færeyingum í Þórshöfn
og vannst sá leikur 3:2.
Finnska liðið kom til
landsins á föstudaginn
og fer heim að nýju á
þriðjudaginn. Finnarnir
hafa skemmtilegu liði á
að skipa, sem f sumar
hefur gert jafntefli við
Dani og unnið Norð-
menn. Á föstudags-
kvöldið hélt fslenzka
landsliðið austur á
Laugarvatn, þar sem það
verður f æfingabúðum
þangað til f kvöld. RAX
tók þessa mynd áður
en landsliðsmennirnir
héldu til Laugarvatns frá
íþróttamiðstöðinni f
Laugardal.
Glæsileg landkynn-
ingarbók um ísland
komin út hjá Almenna bókafélaginu
ALMENNA bókafélagið hefur f
tilefni 1100 ára afmælis tsiands-
byggðar sent frá sér mikla land-
kynningarbók og sérlega vand-
aða. Bókin kemur hér á markað f
samvinnu við þekkt svissneskt út-
gáfurfyrirtæki — f tveimur útgáf-
um, þýzkri og enskri. Einnig er
von á bókinni f franskri útgáfu og
verið er að vinna að samningum
um að bókin komi út á sænsku.
Allar þessar útgáfur bera nafn
Islands og er þar f jallað um land-
ið, náttúru þes og þjóðlff að fornu
og nýju. Bókin er eðlilega fyrst og
fremst ætluð útlendingum.
Alls er bókin 224 bls. að stærð í
stóru broti, þar af eru auk upp-
drátta og landabréfa 100 heilsíður
með litmyndum. Það eru tveir
Þjóðverjar — Franz-Karl von
Linden og Hallfried Weyer —
sem lagt hafa til myndirnar í bæk-
urnar, en báðir hafa þeir dvalizt
hér um langan eða skamman
tíma. Von Linden starfaði um
tíma hjá Landmælingum ríkisins
en Weyer kom hingað fyrst stutt-
an tíma, heillaðist þá svo af land-
inu að hann sneri aftur árið 1973
og ferðaðist þá um landið þvert og
endilangt í þrjá mánuði. Hann
notar gjarnan sérstaka ljós-
myndatækni, þe. tvær samtengd-
ar ljósmyndavélar til töku á
hverri mynd.
Auk myndanna hefur bókin að
geyma 9 ritgerðir um ísland eftir
átta sérfróða höfunda. Þar af eru
tveir íslenzkir — forseti Islands
dr. Kristján Eldjárn og Gylfi Þ.
Gíslason. Kristján skrifar um
sögu Islands og þjóðháttu að
fornu en Gylfi um íslenzku þjóð-
ina og vandamál hennar í heimi
nútímans. Aðrir greinarhöfundar
eru þýzkir. G. Oberbeck skrifar
um náttúrufar íslands og menn-
ingarsnið, M. Schwarzbach um
landfræðilega byggingu Islands
og þróun þess, H. Englander um
fuglalíf, O. Dreyer-Eimbecke um
efnahagsmál. Von Linden um til
urð Surtseyjar og G. H. Schwabe
um landnám lífs á eynni. Enn-
Framhald á bls. 31
„Skjótum skyttunni í skil”
Vefnaðarsýning
í Hafnarstræti
t GÆR var opnuð sýning
Félags íslenzkra vefnaðar-
kennara í Hafnarstræti 3.
Á sýningunni eru verk úr
flestum greinum vefnaðar
allt frá einföldum ein-
skefta vefnaði og upp f það
flóknasta í þessari grein
listiðnaðar.
Félag íslenzkra vefnaðar-
kennara var stofnað árið 1972. Er
markmið félagsins að vinna að
útbreiðslu vefnaðar í skólum og á
heimilum, að stuðla að aukinni
menntun vefnaðarkennara, að
vinna að þvf, að handmennt verði
metin til jafns við bóklega mennt
í landinu og gæta hagsmuna
vefnaðarkennara. Sýningin I
Hafnarstræti 3 er liðúr f
kynningarstarfsemi félagsins og
er þetta í fyrsta skipti, sem félag-
ið gengst fyrir sýningu sem
þessari.
Á sýningunni eru verk víðs
vegar að af landinu og eru þau öll
unnin af vefnaðarkennurum.
Kennir þar margra grasa, þúsund
þráða hördúka, grófra brekáns-
teppa og ýmislegt þar á milli,
m.ö.o. sýnishorn af þvf, sem
vefnaðarkennarar læra og kenna.
Vefnaðarkennaradeild hefur
starfað við Myndlista- og handíða-
skóla Islands síðan 1959, en nám-
ið tekur fjögur ár, tvö í forskóla
og tvö í kennaradeild. Stjórn V.
K. í. skipa: Jakobína Guðmunds-
dóttir form., Guðlaug Snorradótt-
ir og Elínbjört Jónsdóttir. I stjórn
sýningarnefndar eru: Hanna
Ragnarsdóttir form., Margrét
Finnbogadóttir og Stefanía
Stefánsdóttir.
Kjörorð sýningarinnar er:
„Skjótum skyttunni í skil“, og eru
þau tekin úr gömlum vikivaka
sem nefnist „Vefarinn".
Sýningin stendur til 1. septem-
ber n.k. og verður hún opin frá kl.
14.00 — 22.00.
Stjórn V. K. 1. og sýningarnefndar við vefstól, sem
verður í notkun á meðan á sýningunni stendur. (Ljósm.
Mbl. Sv. Þorm.)
Knútur
Þorsteinsson:
A Þingvöllum
28. júlí 1974
Angar um lautir, brosa hraun og bali,
við bjarmaslæður hamraveggir skarta.
Og yfir hvelfist heiði töfrabjarta;
hvar mundi veröld bjóða fegri sali?
Sviptignir vellir sólar baðast flóði,
söngur f lofti, hátfð yfir landi.
Og minninganna mildur hjalar andi
máli hins liðna f sögn og dýrum óði.
Hér brann þitt hjarta heitast fslenzk þjóð,
við harm og gieði á lffs þfns mestu stundum,
ellefu hartnær alda gengna tfð.
Svo megi enn um aldir hingað slóð
tslands niðja liggja á gleðifundum,
til dýrðar Guði og lands óbornum lýð.
Ölvun
TÖLUVERÐ ölvun var í borginni
í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsing-
um miðbæjarlögreglunnar þurfti
hún að hafa afskipti af allmörg-
um mönnum, sem voru ölvaðir á
ferli í miðborginni. Voru 12 flutt-
ir f fangageymslur lögreglunnar
við Hverfisgötu.
Leiðrétting
I FRÉTT í Morgunblaðinu í gær,
þar sem rætt er við Braga As-
geirsson listmálara, stendur á ein-
um stað, að menntamálaráðuneyt-
ið hafi frómað minningu J.
Kjarvals, en á að vera grómað.
Rétt er því setningin á þessa leið:
„Ég álít persónulega að mennta-
málaráðuneytið hafi grómað
minningu Jóhannesar Kjarvals,
ef það ætlar þetta húsnæði
fötluðum börnum í stað heil-
brigðri framrás íslenzkra sjón-
rnennta."
li