Morgunblaðið - 18.08.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. AGÚST 1974
7
Kvi K3
Eftír Bjö
tiyndir
j^^ígní Sígurpálsson
S Ú var tíð, að ýmsir kvik-
myndaframleiðendur i Hollywood
voru kóngar í ríki sinu Þá
blómstruðu menn eins og Gold-
wyn og Mayer, De Mille, Zanuck
og Zukor, svo að einhverjir séu
nefndir. En eftir því sem árin liðu,
fór að halla undan fæti í Holly-
wood, kvikmyndaveldið gekk úr
greipum jöfranna i samræmi við
versnandi fjárhagsstöðu þeirra og
kvikmyndafélögin urðu flest hver
risafyrirtækjum að bráð. Þessum
framleiðendum, sem höfðu alla
þræði i höndum sér, fór fækkandi.
og nú er Holtywood ekki nema
svipur hjá sjón I þessu tilliti. Fram-
leiðendur Hollywood nú á dögum
eru engir seðlabankastjórar lengur
— riki I ríkinu — heldur eins og
hverjir aðrir framkvæmdastjórar
—r á mála hjá risafyrirtækjunum.
I þessum hópi er þó einn kyn-
legur kvistur, sem þegar hefur lát-
ið talsvert að sér kveða og á
sennilega eftir að gera það I rikara
mæli I framtíðinni. Robert Evans
heitir sá og er einn af fram-
kvæmdastjórum Paramount um
leið og hann er með athafna-
samari framleiðendum Hollywood-
borgar. Hann á ekki svo Iftinn þátt
I umtalsverðri velgengni Para-
mount á sfðustu árum, auk þess
sem hann var sjálfur framleiðandi
að segja sér meira, en Towne
sagði: „Það er allt og sumt —
Chinatown". Evans sagði: „Það er
bara eitt orð." Svo lét hann
Towne hafa 25 þúsund dollara og
sagði honum að skrifa handrit að
mynd, er héti Chinatown. Towne
skrifaði sögu um einkaspæjara á
fjórða áratugnum, sem fæst við
skilnaðarmál mestmegnis, en
lendir svo allt I einu I máli, sem er
töluvert viðameira en skitnaðar-
mál. Sagan gerist ekki einu sinni I
Chinatown.
Samt kalla þeir Bob Towne
núna Cina Towne. Þetta er fyrsta
handritið sem hann fær skráð á
sig I Hollywood og hefur hann þó
áður komið mikið við sögu ýmissa
handrita sem siðar urðu að fræg-
um myndum. Hann átti drjúgan
þátt I handritinu að Bonny and
Clyde og slðar að handritinu að
Codfather. Hans var þó hvergi get-
ið. f þetta sinn vann hann sam-
fleytt I 1 8 mánuði að Chinatown.
Þá sendi hann uppkastið til Evans,
sem lá flatur fyrir þvl, eftir að hafa
lesið það einu sinni yfir. Hann
sendi það áfram tii Jack Nichol-
son, helzta kvikmyndaleikara
Bandarlkjanna um þessar mundir,
og hann féll fyrir þvi á augabragði.
Þeir sendu handritið svo áfram til
og höfuðpaurinn bak við annálað-
ar peningamyndir, svo sem Love
Story, Godfather, The Great
Gatsby og nú siðast Chinatown.
Innan skamms er svo von á Got-
father tvö. Þær tvær fyrstnefndu
hafa slegið öll aðsóknar- og gróða-
met kvikmyndanna, tvlsýnna er
um Gatsby, en Chinatown stefnir
hraðbyri á tindinn.
R obert Evans hefur reynt sitt
af hverju um ævina og er flestum
hnútum kunnugur I skemmti-
iðnaðinum. Barn að aldri lék hann
I útvarpsleikritum, 17 ára lék
hann í framhaldsmyndaflokki fyrir
sjónvarp, á Miami varð hann
yngsti plötusnúður, sem sögur
fara af, og á Kúbu var hann settur
til að stjórna fjárhættuspilum I
spilavlti. Norma Shearer kom hon-
um inn í kvikmyndaheiminn — sá
hann vappa á sundlaugarbarmi
ungan og vörpulegan og fannst
sem hann minnti á eiginmann
hennar sáiuga — Irving Thalberg.
Darryl Zanuck gerði hann siðan
skjólstæðing sinn og samdi við
hann. Nokkrar kvikmyndir fylgdu I
kjölfarið, en Evans varð ekkert
ágengt sem leikara. Hann sagði þá
skilið við kvikmyndirnar og hóf
störf hjá fjölskyldufyrirtæki sínu,
er framleiddi gallabuxur. En árið
1966 bauðst honum staða hjá
Paramount, sem hann þáði þrátt
fyrir úrtölur gömlu mannanna hjá
fyrirtækinu, er staðhæfðu að hann
myndi ekki endast þar nema hálft
árið. Evans hefur hins vegar stað-
ið allt af sér og núna — 44 ára að
aldri — hefur hann lengstan
starfsaldur að baki af yfirmönnum
fyrirtækisins.
Evans hitti á óskastundina,
þegar hann ákvað að kvikmynda
Love Story. Ali McGraw (siðar
eiginkona hans, nú fyrrverandi
eiginkona) kom honum á sporið.
Love Story var handrit, sem lengi
hafði legið i fórum þeirra Para-
Jack Nicholson F Chinatown
mountmanna, en enginn vildi lita
við, — nema Ali McGraw. Eric
Segal, höfundur handritsins, var
þá i þann mund í ganga frá sög-
unni i bókarformi og bandariskt
bókaforlag hugðist gefa það út í 6
þúsund eintökum. Þetta var ekki
nóg til þess að vekja áhuga al-
mennings, svo að Evans hét for-
laginu 25 þúsund dollurum, ef
þeir vildu gefa hana út í 25
þúsund eintökum. Það nægði til
þess að vekja áhuga almennings
og allir þekkja framvinduna. Siðan
kom Godfather og allir vita,
hvernig henni vegnaði. Þá var það
The Great Gatsby og með aldeilis
ægilegri auglýsingaherferð ætlaði
Evans að tryggja henni sama sess
í kvikmyndasögunni, en eins og
nú horfir virðist1 honum ætla að
bregðast bogalistin af einhverri
ástæðu.
0 hinatown er svo síðasta
afsprengi Robert Evans. Að-
dragandi hennar er i hæsta máta
óvenjulegur, segir Evans sjálfur.
Flestar stórmyndir nú til dags eiga
rætur sinar i metsölubókum eða
leikritum. Chinatown á hins vegar
rætur sir ir f einni setningu.
Þ annig stóð á, að Evans sat
að snæðingi með Bob nokkrum
Towne, rithöfundi, í Los Angeles
og sagði: „Ég þrái að fá reglulega
góða Mann/konu sögu til að
mynda". Towne svaraði: „Ég er
með svolítið I takinu, sem ég kalla
Chinatown." Evans hvatti hann
Þessa dagana er verið að
frumsýna Chinatown um viða
veröld, þar sem áhorfendur jafnt
sem gagnrýnendur liggja kylliflatir
fyrir henni. Friðfinnur i Háskóla-
bió væri svo sem vís með að
bregða skjótt við og gefa okkur
kost á sama atlæti innan tiðar.
Hver veit? Polanski segir, að hér
sé á ferð hefðbundin spæjarasaga
í nýstárlegum búningi. Hún er i
ætt við Möltufálkann hans John
Hustons og einnig liggja þræðir til
Hitchcock, því að Polanski bregð-
ur á leik og birtist sjálfur á einum
stað i myndinni, sem gefur auðvit-
að Jack Nicholson færi á smellnu
tilsvari i myndinni: „Hvar grófstu
upp dverginn?"
B æði Poianski og Nicholson
fá frábæra dóma fyrir framlög sin
til myndarinnar, svo og Fay Duna-
way. Evans getur þannig horft
stoltur um öxl, en framundan biða
hans ný verkefni Paramounts: The
Gambler undir stjórn Karel Reisz,
Day of the Locust undir stjórn
John Schlesinger, sem greint var
frá hér á dögunum, Litli prinsinn
undir stjórn Stanley Donen, að
ógleymdum Guðföðurnum númer
tvö.
Roman Polanski, sem var F
Evrópu. Hann neitaði að lesa það.
Polanski les ekki handrit, hann vill
móta hina bókmenntalegu kveikju
eftir eigin höfði. Evans hafði hins
vegar gott tak á Polanski frá þvi
að þeir unnu saman að Rose-
mary's Baby og þó að Evans væri
ekki alltof hrifinn af ýmsu þvi,
sem Polanski hafði gert siðar,
fann hann, að hér var eitthvað við
hæfi Pólverjans. Svo að hann
sendi Polanski skeyti, bað hann
að koma yfir til sín og lesa hand-
ritið. Polanski tók næstu flugvél,
settist hjá Evans og las handritið.
Þar með var hann unninn.
Til SÖlu
Peugeot Pick-Up árg. 1 972.
Vald Poulsen h.f.,
Suðurlandsbraut 10,
simi 38520.
Citroen d special 1 971
Til sölu og sýnis hjá umboðinu.
Upplýsingar i sima 37279.
Timbur til sölu
Til sölu er ónotað timbur 2x8 ca.
220 m, 4—6 m langt og 2x4 ca.
350 m, 4 — 6 m langt.
Uppl. i sima 28581.
Sextugan kall
vantar 2ja herbergja ibúð.
Upplýsingar í sima 82873.
Volkswagen 1300 ' 73
til sölu. Upplýsingar í síma
84734.
íbúð til ieigu
Til leigu 5 herb. ibúð í fjölbýlis-
húsi. Upplýsingar í sima 34973.
Klinikstúlka
á tannlækningastofu óskast hálfan
daginn (eftir hádegi). Eiginhandar-
umsókn, er greini aldur og fyrri
störf, sendist Mbl. merkt: „1076"
fyrir 23/8.
íbúð til leigu
1 35 fm sérhæð i tvibýlishúsi efst i
Hliðarhverfi til leigu. Tilboð send-
ist afgr. Mbl. merkt: „5342".
Húsnæði í boði
Ókeypis herbergi i Hlíðunum
stendur til boða allt skólaárið fyrir
barngóða námskonu/stúlku, gegn
2—3 tima barnagæzlu í 3 mán.
(1. sept. — 1. des.).
Upplýsingar i sima 22793 eftir kl.
21.
Brotamálmur
Kaupi allan brotamálm langhæsta
verði. Staðgreiðsla.
NÓATÚN 1 7,
simi 25891.
Cortina 1 300 L árg. '71
til sölu. Bíll í sérflokki. Uppl. i
síma 72804.
Fyrstadagsumslög
Til sölu safn allra fyrstadagsum-
slaga, frá stofnun lýðveldis til og
með þjóðhátiðarútgáfu 1974.
Selst á tækifærisverði. Sími
15548.
Atvinna óskast
19 ára skólastúlka óskar eftir lif-
legu hálfsdagsstarfi i vetur. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir 23. ágúst
merkt: „1077".
Til sölu
mótorhjól. Kawasaki 900 Z1. Ekið
4600 km. Upplýsingar i sima 99-
5640 eftir kl. 7 á kvöldin.
Volvo 144 árg. 1972
til sýnis og sölu að Safamýri 93.
niðri, sirii 36654.
Vél úr Rússajeppa
til sölu, tekin úr nýjum bil.
Upplýsingar i Málmtækni s.f., sími
36910, 84139.
Tannlækningastofan
verður opnuð aftur eftir sumarleyfi
mánudag 1 9. ágúst.
Úlfar Helgason,
tannlæknir.
Grindavík — íbúð
Til leigu stór ibúð i Grindavik.
Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt:
„962".
Málverk
Olíumálverk eftir Jóhannes S. Kjarval 50x92
cm til sölu.
Uppl. í síma 8101 0 í dag (sunnudag).
árg. 1973 Volvo
sjálfskiptur.
árg. 1973 Volvo
árg. 1973 Volvo
árg. 1973 Volvo
árg. 1972 Volvo
144 Grand Luxe,
142 Grand Luxe.
144 De Luxe.
145 De Luxe.
145 De Luxe með
aukasæti.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
árg.
1972 Volvo 1 44 De Luxe.
1971 Volvo 164.
1971 Volvo 144 De Luxe.
1971 Volvo 1 44 Evrópa.
1971 Volvo 142 Grand Luxe.
1971 Volvo 142 Evrópa.
1970 Volvo 142 Evrópa.
1969 Volvo 144.
1969 Volvo Duett.
1968 Volvo 1 44 S, sjálfskiptur
1967 Volvo 144.