Morgunblaðið - 18.08.1974, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. AGtJST 1974
Stundum |>ykir mér ganian, en stundum
Að Hrauni f Grímsnesi hefur
undanfarin 6 ár verið starfandi
sumardvalarheimili fyrir börn á
aldrinum 6—8 <• ’a. Það er Sjó-
mannadagsráð, se n rekur heimil-
ið og er það starfrækt f 10 vikur á
sumri, frá 19. júní til 27. ágúst, og
eru þar nú 60 börn, aðallega úr
Reykjavfk og Hafnarfirði og svo
að segja eingöngu börn sjómanna.
Mjög mikil aðsókn hefur verið að
heimilinu, en þau börn hafa for-
göngu, serti eru munaðarlaus eða
búa við erfiðar fjölskylduaðstæð-
ur. Hraun er í Hraunkotslandi,
sem Sjómannadagsráð keypti fyr-
ir rúmlega 10 árum og var þá f
eyði að sögn Péturs Sigurðsson.r
formanns Sjómannadagsráós
Gamla íbúðarhúsið var á sfnum
tfma lagfært og stækkað og f kjall-
aranum var útbúið baðherbergi
og þvottaherbergi. Á fyrstu hæð-
inni er matsalur og eldhús og á
annarri hæð er svefnloft fyrir
hluta starfsfólksins. Þá hafa verið
reistir svefnskálar fyrir börnin og
innréttuð f þeim vistleg herbergi.
Við komum að Hrauni um dag-
Guðmundur Rúnar Guð-
mundsson.
— Ég er hér 1 fyrsta skipti f
sumar. £g ætlaði einu sinni að
strjúka, en það var bara af þvf
að ég var f vondu skapi. Ég var
f vondu skapi, af þvf að við
urðum óvinir tveir, en nú er
allt f lagi. Við erum að smfða
kofa, þar sem við getum verið
þrfr innf og svo ætlum við að
smfða annan kofa — miklu
stærri.
— Ég heiti Magnea og er köll-
Uð Lovfsa og er Magnúsdóttir.
Mér þykir stundum gaman, en
stundum leiðinlegt.
Bragi Kristján Guðmundsson.
— Alltaf gaman — mest gam-
an að smfða. Stundum eru við
með sverð að skylmast, en við
stingum bara voða laust. Það
eru stundum læti þegar við
erum að fara að sofa — þá
berjumst við.
Aðrir voru ekki alveg eins lystug-
ir.
inn og þegar við höfðum ekið í
hlað, furðuðum við okkur á þvf,
að ekki var barn að sjá úti, þó svo
að veður væri hið besta. Þá heyrð-
um við eitthvert skvaldur bak við
hús. Við gengum á hljóðið og sá-^
um hvar krakkarnir stóðu í hnapp
við eldhúsinnganginn og biðu eft-
ir að komast inn, enda kominn
kaffitími og þau orðin svöng eftir
útivistina. Þegar krakkarnir voru
komnir inn og farnir að gæða sér
á kexi og kringlum, náði ég tali af
Kristínu Guðmundsdóttur, sem
veitir heimilinu forstöðu. Sagði
Kristín, að yfirleitt þyrfti ekki að
kalla á krakkana á matmálstfm-
um, þvf sama væri hve upptekin
þau væru af leik, þá fyndu þau
alftaf á sér, hvenær þau ættu að
koma í mat. „Og þá taka þau svo
vel til matar síns, að það liggur
við, að þau haldi áfram þar til
sagt er: „Verði ykkur að góðu.“
Við heimilið starfa 15 manns og
þar af eru 9 fóstrur og einn ráðs-
maður, sem reyndar er eini karl-
maðurinn á staðnum.
„Hér verðum við að sæta lagi
eftir veðri og vindum, hvað gert
er á daginn," sagði Kristín. „Það
er heldur engin föst dagskrá. Þeg-
ar veðrið er gott, eins og það
hefur reyndar verið í sumar, eru
sumir, sem vilja dunda sér við
smíðar í búinu, en aðrir vilja vera
í fótbolta eða öðrum leikjum. Þá
er farið í gönguferðir, þó ekki sé
hægt að labba langt, því börnin
eru ekki það stór, og einu sinni á
sumri förum við f sund niður að
Sólheimum og er þá venjulega
tekið vel á móti okkur þar. 2—3
sinnum á hverju sumri er farið f
Sigfrfður Sigurðardóttir.
— Við erum mikið á fótbolta-
vellinum f fótbolta við strákana.
Það er bara skipt einhvern veginn
f lið. Ég man ekki hvað ég er búin
að vera lengi, en ég held að ég
eigi eftir að vera f 27 daga. Ég
hlakka svolftið til að fara heim.
Pabbi fór ekki á sjóinn f sumar,
en mamma er þerna á MánafossL
kirkju að Minni-Borg, en það gild-
ir jafnt um kirkjuferðir og sund
ferðir, að selflytja þarf
börnin, því ekki er
nema einn bíll á staðnum og
þarf þá að fara 6—7 ferðir. Það
hefur þó hjálpað mikið til, að
foreldrarnir koma stundum f
heimsókn um helgar og hjálpa
þeir þá til við að aka börnunum
milli staða. Þegar veður leyfir
ekki, að verið sé úti, er setið inni
og litað með þekjulitum,
skreyttar flöskur eða annað, sem
fundið er upp á.“ Einu sinni í
viku eru kvöldvökur og er þá
sungið og leikið. Yfirleitt eru það
börnin, sem leika sjálf í leikritum
Sumir tóku vel til matar síns ...
og eins og einn strákurinn sagði
mér, þá eru það aðallega stelpurn-
ar. Á kvöldvökunum er sælgætinu
skipt milli barnanna, en sá háttur
er hafður á, að vilji foreldrar
senda börnum sfnum sælgæti
verða þeir að senda það mikið, að
nægilegt sé handa öllum og er þá
sett í sameiginlegan sælgætissjóð.
Þá eru líka bíósýningar einu sinni
í viku og eru aðalhetjurnar á
þeim sýningum Gög og Gokke og
Abott og Costello. Varðandi
spurningu um heimþrá hjá
börnunum sagði Kristín, að ótrú-
lega lítið væri um það, jafnvel þó
svo, að foreldrarnir kæmu í heim-
sókn nokkrum sinnum á tíma-