Morgunblaðið - 18.08.1974, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGUST 1974
11
bilinu. Þá væru börnin mjög góð
fyrstu og erfiðustu kvöldin og
hjálpaði það mikið til, að meiri
hluti barnanna hefði verið áður á
heimilinu og gerði það að verk-
um, að auðveldara væri fyrir
börn, sem koma í fyrsta skipti að
aðlagast. Kristín sagði einnig, að
mikill munur væri á börnunum,
þegar þau kæmu fyrst á heimilið.
Sum kynnu ekki að klæða sig eða
hátta, en þau lærðu það fljótt og
ætti þetta að sjálfsögðu aðallega
við minnstu börnin. Þegar hér var
komið við sögu var matsalurinn
að tæmast og krakkarnir á hlaup-
um niður á fótboltavöll og var
strax byrjað að skipta liði. Þau,
sem ekki höfðu áhuga á fótbolta,
fóru í leiki með fóstrunum, ýmist
„Fram, fram fylking“, „Sá er
okkar síðastur", „Skjóta fugla“
eða aðra leiki, sem gjarnan voru
heimatilbúnir. Það var mikill
leikur í krökkunum og þó svo að
mikil harka væri I fótboltaleikn-
um, þá voru sumir, sem ekki
hikuðu við að hlaupa af vellinum,
ef þeim sýndist eitthvað skemmti-
legra vera á seyði annars staðar.
Flestir krakkarnir voru sammála
um, að fótboltinn og kvöld-
vökurnar væri það skemmti-
legasta og voru ákveðin í því að
reyna að fá að koma aftur næsta
sumar. Það var ekki aó sjá að
nokkrum leiddist eða hefði heim-
þrá, þó svo að sjálfsagt hafi verið
með flesta eins og Lovísu, sem
fannst stundum gaman, en stund-
um Ieiðinlegt.
— s.th.
mm
Mjólk, kex og kringlur og rætt um atburði dagsins.
Helgi Sævar Hreinsson.
— Ég veit ekki hvað ég er búinn
að vera hérna lengi núna. Ég var
hér lfka f hitteðfyrra sumar. Mér
finnst mest gaman f fótbolta. Þeg-
ar við erum inni, erum við strák-
arnir f bflaleik eða að lita, en
stelpurnar eru f mömmuleik —
ég er Ifka stundum með f
mömmuleik. Pabbi minn er bú-
inn að selja litla bátinn og keypti
nýjan bát, sem ég veit ekki hvað
heitir og ég hef ekki séð hann
ennþá.
Kristfn Guðmundsdóttir, forstöðukona sumarheimiiisins að Hrauni.
Myndir ljósm. Mbl. Br.H.
Margrét Pétursdóttir. Til hægri á myndinni.
— Ég er búin að vera hérna öll sumrin, sem heimifið hefur starfað, en
mér finnst yfirleitt mest gaman, þegar ég er komin heim. Ég er
stundum að passa litla strákinn, hann Sölva, og finnst það voða gaman.
Mér finnst lfka gaman að leika á kvöldvökum. Eitt leikritið, sem við
lékum, heitir „Ping-pong“. Það er af þvf að þá sló læknirinn á höndina
á sjúkiingnum og sagði: ping-pang-pong og þá dó hann.
Komið við á
sumardvalarheimili
bama að Hraimi
í Grímsnesi
Það var beðið eftir að komast inn eldhúsdyramegin, enda kominn
kaffitfmi.