Morgunblaðið - 18.08.1974, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGUST 1974
23
og bráðlyndur maður að öllu sem
hann gekk, og var þá stundum
stórorður, ef honum var ekki
hlýtt. Hann var funi f skapi, en
sáttfús, mikill greiðamaður og
leysti hvers manns vanda, ef vel
var að honum farið. Barngóður
svo af bar. Indlana var trúkona
mikil, hógvær, kærleiksrík og orð-
vör. I kring um hana ríkti friður
og öryggi, var öllum ráðholl og
slævði oft og einatt öldur f
brjósti bónda síns með þessum
orðum: „Gættu að tungu þinni
Konsi minn, þetta er ekki Guði
þóknanlegt". Aldrei sagði hann
styggðaryrði til konu sinnar.
Konráð og Indíana eignuðust
fimm börn, fjórar dætur og einn
son, sem þau misstu á barns-
aldri. Þau urðu líka fyrir þeirri
sáru lffsreynslu að missa af slys-
förum yngstu dóttur sfna, Herdísi
Guðnýju, þrettán ára að aldri.
Övæntur og snöggur snjóbylur
varð henniaðaldurtilafráskóla á
leið heim. Þá grúfði skuggi yfir
allri sveitinni og sorgin á heimil
inu hefur hlotið að vera yfirþyrm-
andi. En fóstra mfn brást ekki
skyldunum fremur venju. Þvf
þegar helfrosnu líkinu var ekið í
hlað, kom hún á móti mönnunum
og sagði: „Látið elskuna mína inn
í skála. Svo kem ég innan stund
ar.“ Hún var ein sér litla stund.
Ég læt lesandann um hvað þar
hefur gerst. Hún hughreysti fólk-
ið meðþvíaðsegja: „Viðengan er
að sakast, þetta er Guðs vilji.“
Þessi elskulega fósturmóðir mfn
bognaði aldrei en brotnaði, eins
og aðrir dauðlegir menn, 90 ára að
aldri. Eins og áður segir, voru
fósturforeldrar mfnir vel efnum
búnir og áttu því hægara með að
mennta dætur sfnar en margir
aðrir, sem og þær fengu eftir því
sem hugurinn bauð. Það fór mikið
og gott orð af systrunum á Mýrum
fyrir myndarskap heima og heim-
an, enda var ég oft montinn sem
unglingur, þegar ég fann þann
orðasveim, að ekki væri krókur að
koma í garðshorn, enda þótt það
heimili væri langt úr þjóðbraut.
Þessi mætu hjón voru miklir
höfðingjar, enda brutu þau aldrei
þær hefðbundnu reglur að taka
vel á móti gestum og bjóða alla
velkomna bæði að nóttu sem degi.
Eftir að eldri systurnar Ólöf og
Sigrún eru giftar og gegnar úr
föðurtúni, mæddi meira á Söllu
en áður, enda gömlu hjónin þá
farin að lýjast og draga sig í skjól-
ið.
Margt er mér minnisstætt um
orð og athafnir Söllu frá þeim
tíma, enda stóð fátt fyrir henni,
svo óskiljanlegu þreki bjó hún
yfir. Ég sá hana oft færa til og
jafnvel henda 100 punda sekkjum
og bera í fangi þegar svo bar við,
að viðbættu þvf, að ekki var svo
þungur votabandsbaggi að hún
ekki léti til klakks á móti hvaða
karlmanni sem var. Aræði og óbil-
andi kjarkur fóru þar eftir. Ein
ferð hennar skal bera því vitni.
Það var í dýrðlegri síðsumarblíðu
að auglýst var símleiðis eftir
síldarstúlkum til Siglufjarðar því
mikill afli hafði borist að landi og
Sölla var búin að fá mikla leikni
við verkun sfldar og hún eftirsótt
í þá vinnu. Hún leggur af stað um
miðjan laugardag og kemur til
baka nokkru eftir miðnætti að-
fararnótt mánudags og hafði þá
staðið við síldarkassa í fullan
sólarhring og að sjálfsögðu ekki
dregið af sér fremur venju. í þá
daga var Siglufjarðarskarð farið,
sem mörgum ferðamanni fannst
hrollvekja, einkum í myrkri, og
sem leið liggur fram fyrir Mikla-
vatn, þ.e.a.s. þegar Hraunaós var
ófær eins og þá var. Daginn eftir
spurðist að Sölla hafði farið yfir
Hraunaós í náttmyrkri og úrhellis
rigningu með sjávarbrotið á aðra
hlið og Miklavatn með öllum sin-
um þunga á hina. Þetta gerði hún
þrátt fyrir aðvörun. Mamma
hennar gaf henni alvarlega
áminningu fyrir glannaskapinn,
en heimasætan svaraði því til, að
hún hefði oft farið þessa leið og
því þá ekki nú, þegar mikið l'á við
að komast heim. Hvað skyldum
við eiga margar tvítugar blóma-
rósir, sem lékju þetta eftir nú til
dags og hvað mörg stig á nútíma-
vísu? Þeir, sem kunna að lesa
LÓUBÚÐ! ÚTSALA!
ÚTSALA HEFST MÁNUD. 19. ÁGÚST.
GÓÐVARA! LÁGTVERÐ!
SÍMI LÓUBÚÐ,
13670. BANKASTRÆTI 14, II HÆÐ.
Datsun 1200 árgerð
1973
Tilboð óskast í Datsun 1200 '73 í því ástandi
sem bifreiðin er í eftir tjón. Bifreiðin verður til
sýnis í Armi h.f., 9 — 5. Skeifunni 5, á morgun frá kl.
Tilboð skilað á sama stað.
Utsala — Utsala
Mikil verðlækkun.
GLUGGINN,
Laugavegi 49.
Hágreiðslunemi
Óska eftir að ráða hárgreiðslunema.
Viðkomandi þarf að geta byrjað 1.
september næstkomandi.
HápgreiðsIaSfcoFa Upplýsingar gefnar í
, , síma 37145 eða eftir
vinnutíma
32068.
sima
. (m ('Ti
EfstalaRð 26 sfntf 37145
Kveðjudansleikur
verður haldinn í Veitingahúsinu Sigtún á mánu-
dagskvöld kl. 9, fyrirfinnsku knattspyrnumenn-
ina.
Nefndin.
HIÚTBOÐ
Tilboð óskast i að byggja 4 dreifistöðvarhús fyrir Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og 1 vagnstjóraskýli fyrir S.V.R. Útboðsgögn verða afhent
á skrifstofu vorri, gegn 3.000.— króna skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á sama stað fimmtudaginn 5. september 1 974, kl. 1 1.00 f.h.
jlNNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
í Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúr-
skurði, uppkveðnum 16. þ.m. verða lögtök
látin fram fara fyrir vangreiddum opinberum
gjöldum, skv. gjaldheimtuseðli 1974, er féllu í
eindaga þ. 1 5. þ.m.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignarskattur,
kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, slysatryggingar-
gjald vegna heimilisstarfa, iðnaðargjald slysa-
tryggingargjald atvinnurekenda skv. 36. gr. I.
nr. 67/1971 um almannatryggingar, lífeyris-
tryggingargjald skv. 25. gr. sömu laga, at-
vinnuleysistryggingagjald, launaskattur, út-
svar, aðstöðugjald og iðnlánasjóðsgjald.
Ennfremur nær úrskurðurinn til skattsekta, sem
ákveðnar hafa verið til ríkissjóðs og borgar-
sjóðs.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fram
fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessarar
auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd
innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
16. ágúst 1974.
Vandaðar Philips frystikistur
á sérstaklega hagkvæmu verði
Helztu kostir:
0 Innrabyrði úr ryðfríju stáli
41 Aflmikið hraðfrystihólf
• Alls 385 lítra rúmmál (hraðfrysting 100 lítrar)
£ Létt lok með Ijósi í
0 Læsing á loki
O Varnaðarljós fyrir rafmagn og kuldastig
A Stærð aðeins 91 x1 24x65 sm.
Lítið við strax í dag -
Það borgar sig:
philips kann tökin
á tækninni
1 heimilistæki sf
philips
SÍætún 8 - 15655 Hafnarstræti 3 - 20455.
Framhald á bls. 29.