Morgunblaðið - 04.10.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.10.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTOBER 1974 5 Hrafn Gunnlaugsson: Dagskrárpólitili og sjónvarpsefni MIÐNÆTURSÝNING Vikuleg miðnætur sýning á góðri kvikmynd, er einn þeirra mörgu punkta sem benda má á, þegar fjallað er um hugsanlegar betrumbætur á dagskrá íslenzka sjónvarpsins. Trúlega væri föstu- dagskvöldið atarna heppilegast og ætti þá að hefja útsendingu eftir hálf tólf. A þessum tíma kæmi til Hrafn Gunnlaugsson greina að sýna kvikmyndir sem talið er óheppilegt að börn sjái, en aðalatriðið er að bjóða fólki upp á eina góða kvikmyndasýningu á viku á þeim tima sem gjaldgengur er til skemmtanalífs. FRÆÐSLUEFNI Mestu af fræðsluefninu ætti að þjappa saman á eitt kvöld eða að senda það út á sérstökum tíma, en ekki að spreða því um alla dagskrána milli skemmti- og fréttaefnis. Nauðsynlegt er fyrir sjónvarpsstöð sem býr við kröpp kjör að raða efninu skipulega nið- ur og gefa hverju kvöldi ákveðinn svip. LITSJÓNVARP Ég hef marg oft bent á að út- sendingar í lit hafa óverulega kostnaðaraukningu í för með sér fyrir Sjónvarpið. Lang stærsti hluti kostnaðar við litsjónvarp liggur f því, að endurnýja þarf tækjaeign landsmanna. Fólk þyrfti að kaupa sér ný tæki, ef það vildi hafa litsjónvarp. Það yrði þvl hvers og eins að ákveða hvort hann bætti á sig kostnaðin- um sem litnum fylgir. Hér er þvl um valkost að ræða, en ekki verið að þröngva neinu upp á neinn. Þá er rétt að benda á í þessu samhengi að nú eru flest þau tæki, sem keypt voru til landsins, þegar islenzka sjónvarpið tók til starfa, að verða úr sér gengin, svo tíminn er I alla staði ákjósanlegur til að söðla um. SÆNSKT JARM Þótt við séum I nánu samstarfi við Nordvission, er ekki nokkur ástæða til að flytja hvert einasta einkavandamál sænskra kerlinga af báðum kynjum út hingað. Frændum Norðmanna, Svíum, er slzt gerður greiði með þessu háttarlagi islenzka sjónvarpsins og enn síður okkur löndum. VESTRAR OG ÞRILLAR Vestrinn er tvlmunalaust ein þeirra kvikmyndagreina sem náð hafa að skapa sinn eigin heim. Vestrinn er I senn þjóðsaga og ævintýri filmunnar. Til eru frábær listaverk innan þessarar greinar. Leiðin frá snillingnum John Ford til meistara Leoner löng og óteljandi sígild verk á veginum, bara svo minnst sé á mynd eins og The Ironhorse. Sjónvarpið á að sýna fastan fram- haldsvestra og minnst einn sjálf- stæðan vestra á viku hverri. Þirllana mætti bæði nota á mið- nætursýningartímanum og á venjulegri dagskrá. Til eru óteljandi þættir og kvikmyndir innan þessarar greinar. Hvers vegna ekki að spandera svolitlu og taka upp einhverja af séríum snillingsins Hitchok. tSLENZKT SJÓNVARPSSPAUG í lok hverrar viku mætti safna saman nokkrum orðheppnum mönnum I sjónvarpssal, renna I gegn bútum úr helstu frétta- myndum vikunnar og láta við- stadda spjalla þær og skoða I spé- spegli. Þessi þáttur yrði þá að mestu sendur beint, en inn I mætti skjóta frágengnum smámyndum og söngvum af skanner. Þennan þátt yrði að vinna I samvinnu milli Frétta- deildar og LSD. Utsendingartími Hluta hvers árs (vor og haust) væri hugsanlegt að fækka út- sendingardögum um einn I viku, ef efni hinna daganna yrði aukið og bætt að gæðum, auk þess sem teknar yrðu upp miðnætur- sýningar. Auðvitað hefðu sumar þessara hugmynda aukinn kostnað I för með sér, en hann mætti borga að einhverjum hluta með sparnaði á öðrum sviðum. Menntamálaráð- herra fær þakkir frá Stórstúkunni Framkvæmdanefnd Stór- stúku Islands (I.O.G.T.) hefur á fundi einróma samþykkt að flytja menntamálaráðherra, Vilhjálmi Hjálmarssyni, miklar þakkir fyrir ákvörðun hans að veita ekki áfengi á vegum ráðu- neytis slns. Þessa ákvörðun telur Stórstúkan mikilsverða af þrem ástæðum einkum: 1) hún minnkar áfengisveiting- ar og þar með áfengisneyzlu. 2) hún sýnir, að ekki er nauð- synlegt að veita áfengi til þess að gestaboð sé virðulegt og sam- boðið æðstu stofnunum þjóðar- innar. 3) þetta fordæmi er stórt spor I áttina til að mynda heilbrigt almenningsálit gegn áfengis- veitingum við sérhvert tæki- færi, þar sem menn koma saman. Þá óskar stórstúkan þess, að önnur ráðuneyti fylgi þessu fordæmi og aðrar opinberar stofnanir. VÖRUÚRVAL í ÖLLUM VERZLUNUM OKKAR NÝKOMIÐM □ PILS SÍÐ-HNÉSÍÐ □ BLÚSSUR □ KVEN- OG HERRAPEYSUR □ DRAGTIR □ KULDAJAKKAR HERRA OG DÖMU □ HERRASKYRTUR □ NÝ SNIÐ HERRAFÖT MEÐ VESTI □ STAKIR JAKKAR □ FLAUELSBUXUR — DENIMBUXUR — TERYLENE & ULLARBUXUR □ NÝTT SNIÐ KVENBUXUR MEÐ HÁUM STRENG □ KÁPUR □ SKÓR. MIKIÐ Muniðútsölumarkaðinn II. hæð Laugavegi 66 Ennþá ertil mikið úrval af allskonarfatnaði á ótrúlega lágu verði — Látið ekki happ úr hendi sleppa ALLAR VERZLANIR OKKAR OPNAR TIL HADEGIS Á MORGUN (LAUGARDAG) TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS feKARNABÆR * AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20 A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.