Morgunblaðið - 04.10.1974, Blaðsíða 14
14
M.ORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÖBER 1974
Stúlka velti bíl:
15 ára réttinda-
laus og undir
áhrifum áfengis
LAUST fyrir klukkan 2 í fyrri-
nótt valt Volkswagenbfll á mótum
Hverfisgötu og Rauðarárstígs.
Endaði ferðin á grindverki, sem
er við Rauðarárstfg á Hlemm-
torgi. Fernt var í bflnum og
meiddist farþegi í aftursæti,
ungur piltur sem brákaðist á
hryggjarlið. Aðra f bflnum sakaði
lftið, þar á meðal ökuþórinn
sjálfan, sem reyndist vera 15 ára
stúlka, réttindalus og að Ifk-
indum undir áhrifum áfengis.
Upphaf Málsins er það, að
fólkið í bifreiðinni hittist við
Þórscafé í fyrrakvöld. Um nóttina
var haldið að Hótel Esju. Þar
geymdi bíleigandinn bíl sinn.
Hann var eitthvað undir áhrifum
áfengis, og því brá hann á það
ráð, að fá stúlkuna til að aka
bílnum. Stóð eigandinn í þeirri
trú að stúlkan væri allsgáð og með
ökuréttindi. Hóf stúlkan nú
aksturinn og ók niður Laugaveg,
allt þar til hún kom að gatna-
mótum Hverfisgötu og Rauðarár-
stígs. Þá beygði hún til suðurs inn
Rauðarárstíg, sem reyndar er
bannað. Var bifreiðin á heldur
mikilli ferð og missti stúlkan
stjórn á honum með fyrrgreind-
um afleiðingum.
Nafn féll
niður
I minningargrein um Guðmund
Sigurðsson, er birtist í Mbl. í gær,
féll niður nafn dóttur hins látna,
en hún heitir Þorbjörg og er gift
Baldvin Ársælssyni prentara.
ökumaður slapp lítið meiddur,
eigandinn, sem sat í framsætinu,
sakaði ekki, sömuleiðis stúlku,
sem sat í aftursæti, hins vegar
slasaðist piltur, sem sat við
hliðina á henni. Bíllinn er talinn
ónýtur en hann var með R
númeri.
Leiðrétting
KVENNADEILD Slysavarnarfé-
lags Islands f Reykjavfk hefur
vetrarstarf sitt á laugardaginn
með svo nefndum happamarkaði,
sem Ifkist hinum vfðfræga flóa-
markaði sem verið hefur vinsæll
á höfuðborgarsvæðinu undan-
farin ár. Mjög mikið vöruval er á
happamarkaðnum, sem haldinn
verður f Slysavarnarfélagshúsinu
á Grandagarði og er ákveðið að
hann verði einnig á sunnudaginn.
Mun markaðurinn verða opnaður
kl. 14 báða dagana.
Á fundi, sem stjórnarmenn
Kvennadeildarinnar boðuðu til
ásamt þeim Gunnari J. Friðriks-
syni, forseta félagsins og Hannesi
Hafstein, framkvæmdastjóra
þess, kom fram, að til þessa hefur
deildin ávallt haldið hlutaveltu á
haustin. Nú er hinsvegar svo
komið, að ekki hefur fengizt nógu
stórt og hagkvæmt húsnæði fyrir
hlutaveltuna, svo vinsæl var hún
orðin.
Vöruúrvalið á happamarkaðn-
um er gífurlegt, og skipta gef-
endur, sem eru bæði fyrirtæki og
einstaklingar, hundruðum. Mest
ber á fatnaði, en allskyns annan
varning er þar að finna. Það þarf
vart að taka fram, að allur þessi
varningur selzt mjög ódýrt, og
raunar hlægilega ódýrt miðað við
núverandi verðlag.
Kvennadeild S.V.F.l. í Reykja-
vik hefur haldið hlutaveltu i 45
ár, en alls eru í deildinni á milli
1200 og 1500 konur. Innan vé-
banda Slysavarnarfélagsins víða
um land eru 12 þúsund konur. Sjá
þær um allskonar fjáröflun og fer
yfirleitt allt það fé, sem þær
safna, til kaupa á björgunartækj-
um eða til að reisa ný björgunar-
skýli, en þau eru nú orðin 92.
Fyrirlestrakvöld
um uppeldis-
vandamál
markað á morgun og sunnudag
I FRÉTT Morgunblaðsins í gær
um undirskriftasöfnunina Frjáls
menning misritaðist heimilisfang
skrifstofunnar — hún er að Skip-
holti 37, en ekki 27, eins og stóð í
blaðinu. Eru lesendur beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Gunnar J. Friðriksson forseti Slysavarnarfélagsins virðir vaminginn fyrir sér ásamt slysavarnarkonum.
Ljósm. Mbl.: Öl.K. M.
Kvennadeild S.V.F.I. með happa-
Jólabækurnar:
Ferðabókin stærsta verk-
ið frá Erni og Örlygi
ÞEGAR Morgunblaðið leitaði
fregna hjá Bókaútgáfunni Örn og
Örlygur um væntanlegar bækur á
þessu hausti, gaf Örlygur Hálf-
dánarson eftirfarandi upplýs-
ingar.
Okkar mesta verk að þessu
sinni og raunar allt frá stofnun
fyrirtækisins, er Ferðabók
Eggerts Olafssonar og Bjarna
Pálssonar um ferðir þeirra á Is-
landi árin 1752—1757, í þýðingu
Steindórs Steindórssonar frá
Hlöðum. Bókin átti að vera komin
út fyrir tveimur mánuðum en
prentaraverkfallið fyrr á árinu
tafði. Bókin er í tveimur bindum,
á spássíum eru gömlu koparstung-
urnar hafðar til skrauts, en frum-
myndirnar, sem fengnar voru að
láni frá Vísindafélaginu danska,
eru prentaða á 56 blöð og þeim er
skipt nokkuð jafnt milli bind-
anna. Gerður hefur verið gull-
skreyttur kassi utan um bindin.
Það er óhætt að fullyrða, að
Ferðabókin verður mikill kjör-
gripur.
Við höfum ætíð gefið eitthvað
út um trúmál og að þessu sinni
verður það fróðleg bók, sem við
nefnum Leiftur frá liðnum
öldum. Þetta er uppsláttarrit,
efni hennar er raðað niður eftir
stafrófinu og mætti e.t.v. kalla
bibliuhandbók. Þýðandi er séra
Magnús Guðjónsson. Við erum
raunar með aðra bók, sem snertir
trúmálin, hún heitir Jesús
Kristur í dálestrum Edgars
Cayce. Þetta verður fjórða bókin,
sem við gefum út og byggð er á
dálestrum þessa mikla miðils og
sjáanda.
Guðlaugur Guðmundsson vakti
á sér athygli er hann gaf út bók
sína Reynistaðarbræður. Hætt er
við, að athyglin beinist að honum
enn frekar en áður fyrir bók þá,
er við gefum út eftir hann og
nefnist Enginn má undan líta.
Hún fjallar um morðmálin í
Húnaþingi á öldinni sem leið. I
bókinni koma fram ný viðhorf og
afstaðan til tilfinninga og kennda
þess fólks, sem við söguna kom,
um leið og hún varpar birtu á lif
og kjör almúgafólks á fyrri
öldum. Ekki má gleyma því, að
bókin kollvarpar þjóðsögunni um
örlög fanganna, sem fluttir voru
til Kaupmannahafnar.
Hin unga og landskunna skáld-
kona, Snjólaug Bragadóttir frá
Skáldalæk, gefur þriðju bók sinni
nafnið Allir eru ógiftir f verinu.
Annað ungt og upprennandi
skáld ber einnig að dyrum hjá
Islendingum að þessu sinni, þ.e.s.
Einar Guðmundsson frá Hergils-
ey. Hann nefnir bók sína Blærinn
í laufi en sviptibyljir mannlegra
ástríðna og hin sterka taug átt-
haga- og æskuástar er undiralda
þessa rammíslenzka verks.
Sjötta bindi björgunar- og sjó-
slysasögu Islands, Þrautagóðir á
raunastund, er með nokkuð
öðrum hætti en hin fyrri. Bókin
er rituð af Lofti Guðmundssyni og
fjallar hún um þrjá forvígismenn
á sviði slysavarna, séra Odd
Gíslason, Sigurð Sigurðsson frá
Arnarvatni og Jón Bergsveinsson.
Loftur lætur sér ekki nægja
eina bók á okkar vegum, hann er
enn á ferðinni með þeim viðfræga
manni Þórði frá Dagverðará.
Bókin nefnist Náttúran er söm
við sig undir Jökli og það má með
sanni segja þeim, er lásu fyrri bók
þeirra félaga, að þeir eru samir
við Sig í þessari. Ég gleymdi að
geta þess, að það er Dagur Þor-
leifsson, sem þýðir bókina um
Jesú Krist í dálestrum Cayces, en
hann þýðir einnig þriðju bók
Erich von Dánikens, sem nefnist
Gersemar guðanna. Höfundur
heldur áfram að rannsaka for-
tíðina með sínum sérstæða hætti.
Skýrt og skorinort er
áreiðanlega réttnefni á bók Helga
á Hrafnkelsstöðum. Helgi er
aldrei myrkur I máli og ástæðu-
laust er að kynna hann í löngu
máli. Það er dr. Jónas Krist-
jánsson, sem fylgir Helga úr
hlaði.
Colin Forbes, stríðssagna- og
njósnabókahöfundur, hefir hlotið
vinsældir hér á landi. Fjórða bók
hans nefnist Návígi á norður-
slóðum og er óbeint tengd hinu
mikla skákeinvígi þeirra Fischers
og Spasskys. Það er Björn
Jónsson, sem þýðir að vanda.
Tvær bækur um lönd og land-
könnuði munum við gefa út í sam-
vinnu við erlend forlög. Önnur
þeirra er helguð hinum mikla sæ-
fara og landkönnuði, Magellan, og
er hún þýdd af Kristínu R.
Thorlacíus, en hin er þýdd af
Steindóri Steindórssyni frá Hlöð-
um. Hún fjallar um ákveðin tíma-
bil og heimshluta. Báðar þessar
bækur eru ríkulega myndskreytt-
ar og upphaf að stórum bóka-
flokkum.
Að venju gefum við út allmarg-
ar barna- og unglingabækur, þar á
meðal nokkrar, sem prentaðar
eru erlendis, má þar til nefna
Risinn og skógardýrin, en það er
án efa hæsta bók, sem gefin hefur
verið út á Islandi. Þá eru tvær
bækur með grammófónplötum,
sem hægt er að spila I bókunum
sjálfum eða bregða á grammófón.
A plötunum koma fram raddir
viðkomandi sögupersóna, sem
leiknar eru af Margréti
Guðmundsdóttur og Bessa
Bjarnasyni. Fleira mætti upp
telja en ætli þetta verði ekki að
vera nóg að sinni.
Þrír fyrirlestrar um uppeldis-
vandamál verða haldnir I
Norræna húsinu dagana 8., 9. og
10. október. Fyrirlesarar eru tveir
Danir, Reimer Jensen, prófessor I
klfniskri sálarfræði við Kennara-
háskóla Danmerkur, og Rona
Petersen, uppeldisfræðingur frá
sömu stofnun. Þau eru hér f boði
Háskóla Islands og Norræna húss-
ins.
Fyrirlestrarnir verða sem hér
segir:
Þriðjudaginn 8. október kl. 20:30
— Vandi í uppeldismálum.—
Miðvikudaginn 9. október kl.
20:30 — Hvernig bregðast for-
eldrar við uppeldisvanda—
Fimmtudaginn 10. október kl.
20:30 — Aðstæður unglinga í nú-
tíma samfélagi.—
Prófessor Reimer Jensen hefur
um langt skeið verið starfandi sál-
fræðingur og hefur auk fjölda
greina skrifað bókina „Klinisk
börnepsykologi". Ásamt Ronu
Petersen hefur hann skrifað tvær
bækur: „Der er börn f skolen —
men er skolen for börn?“ og
„Observationsundervisning —
synspunkter og erfaringer."
Fyrirlestrarnir eru einkum
ætlaðir kennurum og foreldrum.
Tækifæri gefst til spurninga og
umræðna í sambandi við fyrir-
lesturinn.
Nýtt verð á fiskúrgangi
A FUNDI yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins í gær var ákveðið
eftirfarandi lágmarksverð á fiskbeinum, fiskslógi og heilum fiski til
mjölvinnslu frá 1. september til 31. deseniber 1974:
a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðvum til fiskimjölsverksmiðja:
Fiskbein og heill fiskur, annar en sild, loðna,
karfi og steinbítur, hvert kg ............................... kr. 1,15
Karfabein og heill karfi, hvert kg .......................... — 2,95
Steinbítsbein og heill steinbftur, hvert kg ................. —0,75
Fiskslóg, hvert kg........................................... — 0,52
b) Þegar heill fiskur er seldur beint frá fiskiskipum til fiskimjölsverk-
smiðja:
Fiskur, annar en síld, loðna, karfi og
steinbfur, hvert kg.......................................... kr. 1,00
Karfi, hvert kg ............................................. — 2,57
Steinbítur, hvert kg ......................................... — 0,65
Verðið er miðað við, að seljendur skili hráefni í verksmiðjuþró.
Karfabeinum skal haldið aðskildum.