Morgunblaðið - 04.10.1974, Page 10

Morgunblaðið - 04.10.1974, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÖBER 1974 Páll Pálsson Söngvari Jóhann Þórisson Ólafur H. Helg Bassi, söngur Trommur Lilla og Blómi fara f skóla! LEIKFELAG Hafnarf jaröar var endurvakið til lífsins fyrir einu ári og stóðu að þeirri við- reisn nokkrir ungir leikarar og áhugamenn um leikhús. Fyrsta verkefni félagsins var barnaleikritið „Sannleiksfest- in“, sem félagsmenn L.H. sömdu sjálfir að öllu leyti, nema hvað þeir höfðu stuðn- ing af gömlu ævintýri. Var leikritið sýnt alloft f Bæjar- bfói f Hafnarfirði og munu undirtektir áhorfenda hafa verið góðar, a.m.k. héldu ungu leikararnir ótrauðir áfram og settu á svið sænskt leikrit um vandamál unglinga, „Leifur, Lilla, Brúður og Blómi“ hét það og var frumsýnt í júnf- mánuði sl. Eftir tvær sýningar í Hafnarfirði lagði Leikfélag Hafnarfjarðar land undir fót og sýndi verkið f félagsheimil- um á Austurlandi og Norður- landi. Slagsfðunni lék forvitni á að vita, hvort Leikfélag Hafnar- f jarðar hefði lifað sumarið sól- rfka af eða ekki, og þvf var hringt f Þóru Lovísu Friðleifs- dóttur, helztu driffjöðrina í starfsemi félagsins hingað til. Þóra hló, þegar hún heyrði spurninguna og svaraði, að það væri nú annað hvort. Félagið væri nú að hefja að nýju sýn- ingar á leikritinu um Leif, Lillu, Brúði og Blóma, og væri ætlunin að fara með leikritið f skölana. Yrði fyrsta sýningin f Menntaskólanum f Hamrahlfð einhvern næstu daga og þang- að yrði boðið skólastjórum, svo að þeir gætu sagt til um það, hvort þeir vildu fá verkið f skóla sfna eða ekki. Sagði Þóra, að ætlunin væri að bjóða leikritið til sýningar börnum allt niður f 10 ára aldur, en ekki yngri börnum. Þá hefur verið ákveðið að sýna verkið f Flensborgarskóla í Hafnar- firði og e.t.v. verða einnig sýn- ingar f fleiri skólum þar f bæ. Leikarar eru þcir sömu og f sumar, þ.e. Þóra Lovfsa, Hörð- ur Torfason, Gunnar Magnús- son og Sigrfður Eyþórsdóttir. Leikstjóri er Kári Halldór. Slagsfðan spurði Þóru Lovfsu um leikferð félagsins út á land sl. sumar. „Ferðin gekk ágætlega, engin óhöpp eða neitt slfkt og veðrið var alveg Ijómandi," sagði hún. „En hins vegar kom þetta ekki vel út fjárhagslega. Aðsóknin var góð, miðað við fólksfjölda á stöðunum, en ekki nægilega góð til að þetta bæri sig. Ég sé ekki, að unnt sé að fara f slfka leikför án einhverra styrkja." Og að lokum spurði Slagfðan um önnur verkefni á komandi vetri. Þóra kvað ekkert annað verkefni verða tekið fyrir fyrr en eftir áramót, en ætlunin væri að taka eingöngu fyrir fslenzk verkefni frá áramótum og sennilega yrðu þau ný af nálinni, þótt ekki væri hægt að skýra frá þvf, hver þau væru að svo komnu máli. Nikulás Róbertsson Píanó, saxófónn Kjartan Eggertsson Gítar,.söngur Rúnar Þórisson Gítar, söngur DÖGG er hljómsveit sem hávaðalftið en jafnt og þétt hefur verið að skapa sér sess f hljómsveitabransanum. Róðurinn hcfur ekki verið sérlega auðveldur, þvf hljómsveitin er óvenju mannmörg, og Iftið lagt brennivfnsmúsikkina fyrir sig. En um þessar mundir cr DÖGG eins árs gömul, og farin að sjá árangur erfiðisins. 1 tilefni afmælisins býður hljómsveitin til hátfðar f Tónabæ á laugardaginn, þar sem hún mun leika stanzlaust f tvo og hálfan tfma nýtt prógramm, þ. á m. talsvert af nýju frumsömdu efni. Gerir DÖGG ráð fyrir að þcssi lög komi út á plötu upp úr áramótunum, og mun Magnús Kjartansson sjá um upptökuna. Ný- lunda er það, að DÖGG hefur látið smfða fyrir sig sérstakt Ijósa„show“ sem vfgt verður í Tónabæ á afmælishátfðinni. Nýlunda er það einnig, að gestir fá sérstaka litmynd af hljómsveitinni, ásamt upplýsing- um um hana. Slagsíðani

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.