Morgunblaðið - 04.10.1974, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1974
15
Dregið úr fram-
lögum til Nixons
Washington, Long Beach,
3. október. NTB.
SAMÞYKKT var I fulltrúadeild
Bandarfkjaþings f gærkvöldi með
miklum meirihluta atkvæða að
minnka fjárframlag tii Richards
Nixons, fyrrverandi forseta, úr
800 þúsund dölum eins og Ford
forseti hafði lagt til f 298 þúsund
dali. Þrjú hundruð fjörutfu og
tveir greiddu atkvæði með fækk-
uninni og aðeins 47 voru á móti.
Augljóst er, að andstaða gegn
Nixon f þinginu hefur magnazt
Beðið
fyrir
hvölum
Tókíó 3. okt. AP.
ALDRAÐUR prestur f Tókfó
söng sérstaka minningarmessu
f kirkju sinni f dag, þar sem
hann bað fyrir 1.861 hval, sem
japanskt hvalveiðifyrirtæki
hefur veitt f tshafinu á sfðustu
hvalvertfð. Viðstaddir voru
320 gestir og hafði þeim öllum
verið boðið til athafnarinnar.
Vottuðu viðstaddir hinum
látnu hvölum virðingu sfna og
sameinuðust prestinum f bæn,
er hann bað fyrir sálum hval-
anna. Forstjóri hvalveiðifyrir-
tækisins, sem átti frumkvæði
að minningarguðsþjónust-
unni, lét sleppa nokkrum
tugum af hvftum dúfum fyrir
utan kirkjuna, rétt áður en at-
höfnin hófst ogskyldi það vera
tákn þess, að sálir hvalanna
væru hólpnar, svo og annarra
sjávardýra, sem veidd voru á
þessu hafssvæði á sfðasta ári.
mjög eftir náðunina og vænta má,
að fleiri fylgi f kjölfar þessarar
samþykktar.
Tilkynnt var í Long Beach f
dag, að Richard Nixon myndi fara
af Memorial-sjúkrahúsinu f viku-
lokin. Hann hefur legið þar f
nokkra daga vegna blóðtappa f
fæti og öðru lunga. Blóðþynn-
ingarlyf, sem honum voru gefin,
hafa verkað prýðilega að sögn
lækna. Aftur á móti sagði einka-
læknir Nixons, að hann hefði lagt
bann við að forsetinn fyrrverandi
færi í nokkur ferðalög næstu þrjá
mánuði og ætti hann að halda sem
allra mest kyrru fyrir. Er þar með
sýnt, að Nixon muni ekki mæta
sem vitni í Watergate-málinu f
Washington.
Lögfræðingar Nixons fóru í dag
formlega þess á leit við Sirica
dómara, að hann hefði Nixon
afsakaðan sem vitni f hinum
ýmsum Watergate-yfirheyrslum,
þar sem forsetinn fyrrverandi
hafði verið kallaður fyrir.
Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu ræðir við bandarísku öldungardeildarþing-
mennina Jacob Javits og Claiburne Pell, er þeir voru í heimsókn á Kúbu fyrir
örfáum dögum. Margt þykir gefa vísbendingu um, að samskipti Bandaríkjanna
og Kúbu muni fara batnandi á næstunni.
Þingkosningar í Grikklandi í nóvember:
KARAMANLIS HEFUR
KOSNINGABARÁTTUNA
Þjóðaratkvæði um konungdæmið í janúar 1975
Fangaskipti
Tel Aviv 3. okt. AP.
SÝRLENDINGAR létu í dag
lausa úr haldi þrjá fanga, sem
allir eru arabískir Israelar. Þeir
bjuggu f Majdal Shams f Golan-
hæðum og var rænt þaðan 6.
ágúst, er þeir voru að treysta
varnir við landamæri ríkjanna. I
skiptum fyrir mennina þrjá fengu
Sýrlendingar einn herforingja.
Aþenu, 3. okt. Reuter.
CONSTANTINE Kara-
manlis hóf kosningabarátt-
una opinberlega f kvöld, er
hann flutti sjónvarpsræðu
og hvatti þjóðina til að
sýna pólitfskan þroska f
kosningunum, sem hann
hefur ákveðið að verði
haldnir í landinu þann 17.
nóvember. Kvaðst hann
vilja leggja áherzlu á, að
þetta yrðu merkilegar
kosningar, sögulega séð, og
gætu úrslit þeirra ráðið
miklu um framtfð lands-
Engir kjarnaofnar
til Miðausturlanda?
New York3. okt. NTB.
BANDARfKJAMENN kunna að
verða tilneyddir til að draga til
baka tilboð sitt um að afhenda
Egyptum og Israelum kjarnaofna
ef löndin tvö samþykkja ekki
nauðsynlegt eftirlit með starf-
rækslu þeirra til að koma í veg
fyrir, að þeir verði notaðir til að
framleiða árásarvopn. Skýrðu
bandarfskir aðilar frá þessu í dag.
Bæði Egyptar og Israelar hafa
látið í ljós vanþóknun á tillögum
Bandaríkjamanna, þar sem fyrir-
mæli eru gefin um eftirlit með
ofnunum.
Búizt var við, að Henry Kissing-
er, utanrfkisráðherra, hafi rætt
málið við starfsbræður sfna frá
þessum löndum á tveimur fund-
um í gær. Á fundinum var hafinn
undirbúningur að ferð Kissingers
til Miðausturlanda, sem hefst á
þriðjudag.
Iranskeisari vill banda-
lag Indlandshafsþjóða
ins. Hann gaf f skyn, að það
væri hægara ort en gert
fyrir borgaralega stjórn að
taka við eftir sjö ára her-
foringjastjórn og láta eins
og ekkert hefði gerzt.
Karamanlis sagðist hafa
átt við mikla erfiðleika að
Samþykkt gerð
um CIA
Washington 3. okt. NTB
ÖLDUNGADEILD Bandarfkja-
þings samþykkti f gærkvöldi að
banna leynilegar aðgerðir CIA f
öðrum löndum, nema f þvf tilviki,
að forsetinn telji slfkar aðgerðir
nauðsynlegar vegna öryggis rfkis-
ins. Öldungadeildin felldi tillögu,
sem fól f sér algert bann við af-
skiptum CIA f öðrum löndum.
Málverkastuldur
Genúa 3. okt. Reuter.
ÞJÖFAR stálu f dag mjög verð-
mætum listaverkum úr kirkju í
Genúa í gærkvöldi. Verðmætasta
verkið er eftir hollenzka listmál-
arann Jos Van Cleve, sem var
uppi á 17. öld. Lögreglan segir, að
af ummerkjum megi sjá, að þjóf-
arnir hafi falið sig f kirkjunni og
látið loka sig þar inni til að geta
óáreittir náð myndunum niður.
etja síðan hann kom heim
til Grikklands I júlí, og
vandamálin blöstu við
hvarvetna.
óstaðfestar fréttir
herma, að óánægðir for-
ingjar innan hersins hafi
verið með valdarán i undir-
búningi og hafi átt að ráða
Karamanlis af dögum, en
ekki hefur þetta verið stað-
fest.
Karamanlis hefur einnig
greint frá því, að í janúar
1975 verði haldin þjóðarat-
kvæðagreiðsla í Grikklandi
um framtið konungdæmis-
ins í landinu. Verður þá úr
því skorið, hvort Konstan-
tín fyrrverandi konungur,
snýr heim eftir sjö ára út-
legð, eða hvort lýðveldi
verður stofnað í Grikk-
landi.
Gríski kommúnistaflokk-
urinn, sem hefur verið
leyft að starfa að nýju í
Grikklandi, eftir að hafa
verið bannaður í 27 ár,
lýsti því yfir í dag, að Kara-
manlis hefði ákveðið kosn-
ingarnar í nóvember með
alltof litlum fyrirvara. Var
gefið i skyn, að ráðamenn
mundu ætla sér að reyna
að falsa úrslit kosning-
anna, væri þess nokkur
kostur.
Þetta verða fyrstu kosn-
ingar í Grikklandi í tíu ár.
EBE leggur
fram 150
milljónir
Luxemburg3. okt. AP Reuter.
Þróunarmálaráðherrar EBE-
landanna samþykktu á fundi sín-
um í-Luxemburg í dag að veita
150 milljónir dollara til Samein-
aða neyðarsjóðsins til að aðstoða
þróunarlöndin, sem verst hafa
orðið úti vegna oliuverðhækkun-
arinnar. Pierre Abelin þróunar-
málaráðherra Frakklands skýrði
frá þessu í dag og sagði, að féð
yrði afhent fyrir lok þessa árs. Fá
Sameinuðu þjóðirnar 30 milljón
dollara til ráðstöfunar, en af-
gangnum verður varið til aðstoðar
við Indland, Bangladesh og Sri
Lanka.
Nokkuð hefur dregizt að taka
þessa ákvörðun, einkum vegna
þess að Bandaríkjamenn hafa
ekki enn gefið nein ákveðin lof-
orð um framlög i sjóðinn, sem
stofnaður var af SÞ og er mark-
miðið að safna í hann einum millj-
arði dollara til að taka aðeins kúf-
inn af óhagstæðum viðskiptajöfn-
uði fátæku landanna, meðan ver-
ið er að skipuleggja aðstoðina við
lönd þriðja heimsins.
Nýju Delhi 3. okt. AP.
IRANSKEISARI hvatti I dag til
þess, að þjóðir, sem eiga lönd á
Indlandshafi, sameinist í því að
stofna öflugt varnar- og efnahags-
bandalag til að draga úr áhrifum
Sovétmanna og Bandaríkjamanna
á þessu svæði. Iranskeisari er i
opinberri heimsókn í Indlandi og
flutti hann ræðu þessa efnis I dag.
Hann sagði, að markmiðið væri
að þessi lönd gætu sameinazt á
þessu sviði, svo að þau þyrftu
ekki að vera háð stórveldunum
tveimur og gætu með stofnun
slíks bandalags orðið mun öflugri
og sjálfstæðari en þau væru nú.
íranskeisari sagði, að tillaga hans
í þessa átt hefði fengið góðar
undirtektir meðal ráðamanna,
sem hann hefði hitt á ferð sinni
til Singapore, Ástralíu, Nýja
Sjálands og Indónesfu en þaðan
kom hann síðan til Indlands.
Enn eitt
jafnteflið
Moskva 3. okt. AP.
ANATOLY Karpov og Viktor
Korchnoi sömdu í dag um jafn-
tefli í biðskák sinni frá í gær-
kvöldi. Leiknir voru tfu leikir.
Karpov hefur enn 2 vinninga, en
Korchnoi engan, þar sem jafntefli
eru ekki talin með. Níunda ein-
vígisskákin verður tefld á morg-
un, föstudag.
Viðræðum PAN AM og
TWA miðar nokkuð
New York 3. okt. Reuter
TALSMAÐUR bandaríska flug-
félagsins Trans World Airlines
sagði í dag, að viðræðum við Pan
American um hugsanlega sam-
vinnu eða jafnvel einhvers konar
samruna félaganna miðaði nokk-
uð áleiðis. Bæði félögin eiga við
mikla fjárhagsörðugleika að
stríða, en Pan Ám þó öllu meiri.
Bandaríska ríkisstjórnin neitaði
fyrir nokkru beiðni frá Pan Am
um fjárstuðning.
PAN AMERICAN hefur átt við
slfka erfiðleika að glíma síðustu
fimm ár og TWA félagið sér fram
á gífurl'egt tap á þessu ári. Þann
5. september s.l. voru því hafnar
viðræður fulltrúa þessara tveggja
stóru félaga um, hvort unnt gæti
verið að leysa vandann með auk-
inni samvinnu þeirra í milli.