Morgunblaðið - 27.10.1974, Page 3

Morgunblaðið - 27.10.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974 3 úr verinu EFTIR EINAR SIGURÐSSON ÍBORG PALMANNA Tilgangur ferðalagsins vestur var að sitja aðalfund Coldwater, sem haldinn er einu sinni á ári f Bandaríkjunum, þar sem öll stjórnin kemur saman, en f henni eru 8 frystihúsamenn búsettir á Islandi, forstjórinn og bandarísk- ur lögfræðingur búsettir f Ameríku. I leiðinni er svo ætlunin, að við þrir höldum til Japans til þess að líta eftir fyrirtæki Sölumið- stöðvarinnar þar. En þvf er verið að segja frá þessu, að ætlunin er að staldra við i San Fransisco í Kaliforníu, fjölmennasta ríki Bandaríkjanna. Þar fannst gullið forðum, sem ýtti mikið undir bú- setu. Þar dafnar mikil menning, og þar er til að mynda kvik- myndaiðnaðurinn, sem kynnt hef- ur Bandaríkin utan síns heima- lands meira en nokkuð annað, bæði að illu og góðu. Þar er allt milli himins og jarðar, sem hugur- inn girnist. En það var ekki ætlunin að fara að telja upp gull og gersemar Kalifornfu, heldur að skýra frá, af hverju leiðin lá um San Francisco. Þegar komið var alla leið til New York, var orðið stytzt að fara vestur yfir þvera Amerfku til Japans. Auðvitað mátti fljúga þetta í einum áfanga og þá helzt einhvers staðar yfir pólinn, en það flug tekur 15 klukkustundir, og þegar manni fannst nú orðið nóg um að hafa 6 tíma áfanga frá Reykjavík til New York, sem urðu 12 með öllu, sem í kringum ferð- ina er, varð það að ráði að hafa ekki öllu lengri áfanga en Atl- antshafið, en leiðin yfir þvert meginland Ameríku er álfka. Svo er ætlunin af sömu ástæðu að skipta því sem eftir er í tvo áfanga með viðkomu í Honolulu á Hawaii, sem verða álfka áfangar. Um ferðina heim frá Japan er svo ekkert ráðið. En þetta eru nú allt mála- lengingar, en kannski ekki alveg ónauðsynlegar fyrir þá, sem kynnu að leggja á sig að lesa þessa pistla. Eins og hinir ferðaþyrstu Is- lendingar vita nú flestir orðið, er 4 tfma munur á klukkunni á Islandi og í New York, hvað hún er seinni, og 3 tímar komu í við- bót, þegar komið var til San Francisco. Þetta átti eftir að halda svona áfram, þar til við höfðum tapað heilum degi. Þetta reyndi Filfus Fog á sinni 80 daga hnattreisu hjá Jules Verne. Allir sem ferðast með flugvél yfir stóru löndin verða strax þreyttir á að horfa út um glugg- ana, akurlendi og skógar, borgir og þorp, allt hvað öðru líkt, nema óbyggðirnar. Þær eru alltaf jafn- stórkostlegar, þar sem náttúran er ósnortin frá örófi alda. Og meginland Amerfku er engin undantekning í þeim efn- um, en það verður að bíða betri tíma að lýsa því. En eitt þarf að minnast á, af því að það er hvatn- ing til að gera betur heima, en það er einfaldleikinn við af- greiðslu vélanna, þessara ferlfkja, sem taka 500 manns. Þegar leigubifreiðin nemur staðar við flugstöðina, stendur þar maður, setur miða með núm- eri á farangurinn, og farþeginn snertir hann ekki með minnsta fingri. Enginn burður, engin vigt- un, farmiðanum er svipt úr heft- inu og sætisnúmerið stimplað með vél á útgönguspjaldið. Hand- farangur er látin á færiband, um leið og maðurinn sjálfur labbar „í gegn“ og geislar gá að, hvort nokkuð sé járnkyns, sem nota mætti sem vopn. Þetta gengur jafnhratt og farþeginn gengur. En það lfður sjálfsagt nokkur tími, þangað til sami háttur verð- ur hafður á fluginu heima á lslandi. Islendingar þurfa alltaf að flytja svo mikið með sér og kaupa svo mikið. I millilanda- reisum eru þetta leifar frá inn- flutningshöftunum og tollmúrun- um. En nú ætti þetta að fara að breytast og er sjálfsagt að því smátt og smátt. Það er ekki mikið hægt að sjá af 750.000 manna borg á einum degi og margra milljóna á helzta ferða- mannatímanum. Bezta leiðin til þess að sjá sig um er að fara í skoðunarferðir með „Gráa hund- inum“, en hann er um öll Banda- ríkin og er ekkert óáþekkur nýj- ustu langferóabílunum heima, tslendingar eru þar komnir nokkuð langt. Þó að menn skilji ekki allt, sem leiðs'ögumaðurinn segir, nema þá þeir, sem eru mjög góðir í ensku, ná þeir þræðinum eins og í ensk- um kvikmyndum, og það er nóg, því að sjón er sögu ríkari, og það er líka ómögulegt að melta þau ósköp af byggingum, minnis- merkjum, frægum stöðum, menningarverðmætum og svo ótal mörgu. Líklega er Golden gate brúin —„Gullna hliðið“— eitthvert frægasta undur San Francisco. Þar getur að líta mestu fjarlægð milli brúarsporða í heiminum. Skyldi Borgarfjarðarbrúin hans Halldórs slá hana út? Það eru margir dásamlegir staðir í þessari fjölbreytilegu borg. Geysilegur hæðarmunur er á lægsta hluta hennar og þeim hæsta. Það vekur f urðu manns, að bílar skuli geta ekið þar. Jafn- framt þvf fara um borgina spor- vagnar, sem ganga fyrir raf- magni, engin loftnet, heldur aðeins rafmagnsgeymar. Fólkið situr og snýr út að götunni og skoðar sig um. Sumir vagnarnir gætu verið 100 ára, svogamaldags eru þeir, en þeir eru ávallt fullir af ferðamönnum, sem fara með þeim upp þessa snarbröttu vegi. Það væri hægt að skrifa heila bók um San Francisco, því að þar er sagt, að séu að sumarlegi 2 milljónir ferðamanna. Eitt það dásamlegasta f borg- inní eru 2 undurfagrir garðar. Þar eru gysilega stórar og fagrar byggingar, og má minnast á hin gríðarstóru ferðamannahótel. Lyfturnar fara milli tugi hæða og eru í gangi allan sólarhringinn. Þær eru allar úr gleri, utan á hótelunum, og gengur öflugur stálteinn upp úr miðri lyftunni. Utsýnið er dásamlegt. Lyfturnar nema staðar á neðstu hæð, þar sem’ selt er allt milli himins og jarðar f svonefndum drug-shops eða apótekum. Þetta er ólíkt eða heima á Islandi, þar sem lyfjafræðingarnir eru á hjól- um. Ég spurði um piilur við þursabiti, sem séra Jes A. Gísla- son í Vestmannaeyjum hafði þýtt svo meistaralega danska orðið hekseskud. I þessu apóteki fékk ég belgi — pain — og sagðí lyfsal- inn, að ég skyldi taka 2 til að byrja með. Verkurinn var horfinn eftir 2 daga. Stúlka við borðið afgreiddi mig og benti mér á E-vítamín, sem voru í pundsdósum. Þetta var mikil sölukona og hafði þennan formála fyrir E-töflunum: „Hús- bóndi minn er þrígiftur og býr nú með 4. konunni og á 3 ástkonur. Boxin eru með 200 styrkleika ein- ingum, 400 og 1000. Þetta eiga að vera náttúruefni. Húsbóndinn tekur 1000 eininga belgi á hverj- um degi.“ Fram hjá okkur gengur flug- kafteinn með 4 borða á ermunum. Hann lítur glaðlega til okkar, ung- frúarinnar og mín, og segir glað- klakkalega: „Ég nota 1000 ein- inga pillu daglega". Umhverfi borgarinnar er undurfagurt og urmull af villtum fuglum líkt og komið væri til Vestmannaeyja. Brim er við kiett- ana. En samt sækja ferðamenn- irnir f fisk og safna þeim i poka. Fiskurinn er að sjálfsögðu veiddur á stöng. Niðri við höfnina er aragrúi sportbáta, sem veiða fisk. Iðulega fara bátarnir fullir af ferðamönn- um með veiðistengur til þess að svala sport- og veiðilöngun þeirra. Þarna eru allar gerðir báta, og eru þeir ýmist einkabátar eða leigubátar. Með fram aðalgötunni við sjó- inn er urmull verzlana, sem selja ferðamönnum matreiddan fisk. Rétt ofan við aðalstrandgötuna er margra hæða „niðursuðuverk- smiðja", sem breytt hafði verið í stórt matsöluhús. Áfast og út af stærstu bryggjunni er stórglæsi- legt matsöluhús, og er það mörg- um sinnum snyrtilegra og meira aðlaðandi en fiskmatstaðir heima, og þarna biðu ferðamenn f 40 mínútur til þess að komast að. Það er svo margt, sem hægt er að segja um San Francisco og fisksölu Coldwater þar, en ein- hvers staðar verður að Iáta staðar numið við að lýsa borg pálm- anna, garðanna og fegurðarinnar. Við höfnina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.