Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974
11
fólk — fólk — fólk — fóík
VARLA TIMI TIL AÐ
BYGGJA VEGNA VINNU
— Rætt við Jens Mikaelsson á Hornafirði
Jens Mikaelsson
A UNDANFÖRNUM árum hefur
margt ungt fólk flutst til Hafnar f
Hornafirði og sezt þar að. Þetta
fólk hefur komið vfðsvegar að af
landinu, en það er þvf sammerkt,
að yfirleitt kann það allt mjög vel
við sig þar eystra. Einn þeirra
ungu manna og kvenna sem
þangað hafa flust eru hjónin Jens
Mikaelsson og Sigrún Friðriks-
dóttir. Jens starfar f frystihúsi
Kaupfélagsins á Höfn. Við hittum
hann að máli fyrir nokkru og
spurðum hann fyrst hvaðan þau
hefðu komið og hversvegna þau
hefðu flutst til Ilornaf jarðar.
„Við hjónin erum fædd og upp-
alin á Siglufirði, en hingað
komum við fyrir þremur árum.
Atvinnumöguleikar á Siglufirði
voru ekki mjög miklir á þeim
tfma. Ástæðan fyrir að Horna-
f jörður varð fyrir valinu, er sú, að
hér var mér boðið starf sem mats-
maður við frystihúsið, en áður
var ég búinn að vera á námskeiði
hjá fískmati rfkisins, segir Jens.
„Hvernig kunnið þið svo við
ykkur?“
„Ég verð að játa það, að hér
kunnum við einstaklega vel við i
okkur. Munurinn á þessum
stöðum er fyrst og fremst sá, að
hér sést svo til aldrei snjór. Það
hefur bæði sína kosti og galla, því
oft getur verið gaman að snjón-
um. Á hinn bóginn eru atvinnu-
möguleikar hér margfalt meiri en
þeir voru heima. Hérna geta allir
unnið eins og þeir mögulega geta,
en á Siglufirði var ástandið
þannig oft á tíðum, að maður náði
ekki alltaf 8 tíma vinnudegi og
stundum kom það fyrir, að fólkið
var sent heim áður en 8 tfmunum
varð náð.“
„Er kannski stundum of mikið
að gera hér?“
„Ekki veit ég hvað ég á að segja
um það, en vinnan er gffurleg í
frystihúsinu. Það er yfirleitt
unnið myrkrana á milli, jafnt
virka daga sem um helgar. Að
vísu þreytist maður á þessu til
lengdar. En sá góði kostur er hér,
að frystihúsinu er lokað um tíma
á ári hverju og þá taka allir
sumarfrí, jafnt sjómenn sem land-
verkamenn."
„Eruð þið kannski farin að
byggja hérá Höfn.“
„Ekki er það nú enn, en við
erum farin að hugsa til fram-
kvæmda, enda erum við ákveðin á
að setjast hér að fyrir fullt og allt.
Þar sem vinnan er svo mikil, þá
höfum við alveg eins hugsað
okkur að reyna að kaupa tilbúið,
ef tækifæri gefst.“
„Nú er þetta frystihús orðið
nokkuð gamalt, verður ekki
mikill munur við að flytja f nýja
húsið?"
„Jú því er ekki að neita. Flest
fólk við frystihúsið er fastráðið og
hyggur gott til bættra skilyrða."
„Hvernig er félagslífið á
Höfn?“
„Það situr því miður nokkuð á
hakanum, fyrst og fremst vegna
mikillar atvinnu, en þó eru
nokkrar árlegar skemmtanir og
þær reyna allir að sækja, eins og
t.d. þorrablótin."
„Er alltaf nægur starfskraftur í
frystihúsinu?"
„Vinnukraftur er oftast nægur
yfir vetrartímann, nema á haustin
þegar skólanir eru að byrja og
slátrun stendur yfir. Þó má
jafnvel segja, að fiskaðgerðar-
menn vanti yfir veturinn."
Þ.ó.
Frá höfninni á Höfn. Ljósm. Mbl.:Þórleifur Ólafsson.-
fólk — fólk — fólk — fólk
Útboð
Víkurbær, Keflavík, leitar tilboða í uppsteypu á
verzlunarhúsi við Hafnargötu í Keflavík.
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Víkurbæjar,
Hafnargötu 26, Keflavík, eða til Jóns B.
Stefánssonar, verkfræðings, Ingólfsstræti 5,
Reykjavík, gegn 10.000,- króna skilatrygg-
ingu.
Skilafrestur er til þriðjudags 5. nóvember.
Bændur
Með Bettinsson torfæruhjólunum komið þið
dráttarvélinni meira t.d. bæði í mýrum og snjó.
Við eigum einnig á lager:
Amoksturstæki fyrir Ursus C-335
Ámoksturstæki fyrir Ursus C-355
Múgavélar (á góðu verði).
Kerrur og grindur undir kerrur.
Ursus dráttarvélar 40 og 60 ha til afgreiðslu
aftur innan skamms.
Vélaborg,
Skeifan 8, sími 86680.
ÁFANGASTAÐIR BROTTFÖR:
TÚNIS: 23. NOV. 21 DES. (JÓLAFERO) 28. DES. (UPPSELT)
GAMBIA: 30. NÓV. 14. DES. (JÓLAFERO) 28. DES.
KANARÍ EYJAR VETRAR FERÐ1R
MAROKKO: VÉTRARFEROIR
LONDON: VIKUFERÐIR Á HAGSTÆÐU VERÐI
GLASGOW: 4 DAGA FERÐIR ANNAN HVERN FÖSTUDAG.
FLJÚGIÐ í FRÍIÐ MEÐ FLUGLEIÐUM OG BRITISH AIRWAYS
Férðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 Símar 11255 og 12940