Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974 7 STRAUKAR Morning og Narrow Road to the Deep North — var komið annað hljóð t strokkinn og leikdómarar komu sér saman um að þarna hefði mikill efnismaður sætt órétt- mætri gagnrýni. Þetta endurmat haslaði sér svo endanlega völl þegar Lér konungur var frum- sýndur árið 1971, máttugt til- brigði við frásögn Shakespeare og var hælt á hvert reipi sem meistaraverki. En lof gagnrýnenda hlaut ekki samsvörun áhorfenda Royal Court. Lér var sýndur fyrir tómu húsi kvöld eftir kvöld og viðfeldinn gamanleikur hans með melankólskum undirtóni — The Sea — hlaut ekki nema miðlungi BOND PLUS SHAKESPEARE = BINGO eftir BJÖRN VIGNI SIGURPÁLSSON BINGO Edward Bonds er vafalttið það leikrit er mesta athygli hefur vakið f brezku leikhúslífi f haust. Sýningum á því er nýlokið hjá Royal Court leikhúsinu ! London og hefur það sannast sagna verið óvenju langlfft þar á sviði af leik- ritum Bonds að vera. Undirtektir gagnrýnenda við þessu verki hafa verið ákaflega misjafnar og er það Ifklega umdeildasta verk Bonds nú f seinni tfð. Þótt sýningum á þvf hafi nú verið hætt er ekki að efa að leið þess eigi eftir að liggja á svið vfðar á Vesturlöndum. Þess vegna er vert að gera það hér að umræðuefni, bæði vegna frum- legra efnisaðfanga höfundar og spurninga sem það hefur vakið um framvindu þess fræga leikhúss — Royal Court. Royal Court leikhúsið hefur verið vagga brezkrar nútfma leik- ritunar allt frá þvf að þar var frumsýnt Horfðu reiður um öxl eftir Osborne árið 1 956. í sumar stóð leikhúsið á krossgötum, þvf að þá lét Oscar Lewenstein af störfum sem leikhússtjóri og örvæntingafull leit hófst að heppi- legum eftirmanni hans. Ekki veit ég hvernig þeirri leit lyktaði, en sagt er að á meðan leitinni stóð hafi farið fram heitar umræður um það að tjaldabaki, hvers konar arf- taka Lewensteins leikhúsið þarfn- aðist, manns er mundi halda áfram á sömu braut velgengni og Lewenstein, sem byggði stefnu sína á þvf að fá stórleikara f verk helztu hirðskálda leikhússins, s.s. David Storey. Christopher Hamp- ton, Osborne, og flytja þau sfðan áfram yfir f West End þar sem peningavonin er meiri. Eða þarfn- aðist það manns er tæki upp hina upphaflega áhættustefnu leik- hússins: ný nöfn, nýja leikkrafta og leikskáld fremur en viður- kennda leikara? Þessi tvö andstæðu sjónarmið voru mjög f brennidepli hjá Royal Court nú sfðsumars vegna sýningarinnar á Bingo og áttu rætur sfnar f þvf hversu sérstæðan feril Edward Bond á innan brezks leikhússlffs. Virtust gagnrýnendur Bretlands eru nú yfirleitt sam- dóma um að Bond sé f fylkingar- brjósti þess hóps brezkra leik- skálda, er kom f kjölfar Osborne og samtiðarmanna hans á sjöunda áratugnum. Þegar leikrit hans Hjálp (er Leikfélag Reykjavíkur sýndi ekki alls fyrir löngu) kom fyrst fram á sviði Royal Court árið 1965 var það nánast hrópað niður vegna ofbeldisins er f þvf birtist. Þremur árum sfðar, þegar það var tekið upp að nýju ásamt tveimur öðrum leikritum Bonds — Early góða aðsókn f fjórar vikur á sfð- asta ári. I nýlegri blaðagrejn um Bingo veltir Ronald Bryden,' leikritaráð gjafi Royal Shakespeáre Comp- any, vöngum yfir þessu sam- bandsleysi milli Bonds og leikhús- gesta. Hann segir, að enginn geti álasað leikhúsinu fyrir þá tryggð, sem það hefur sýnt Bond á liðnum árum, en hitt sé jafn augljóst að þvf hafi mistekizt að laða áhorf- endur að þessu leikritaskáldi, sem vlða erlendis sé talinn fremstur þeirra er nú rita fyrir leikhús f Bretlandi. Þess vegna vakni sú spurning hvort Royal Court hafi ekki um of látið stjórnast af tfzku- viðhorfum f undangegnu verk- efnavali sfnu og þar með gert áhorfendur sfna ófæra um að með- taka Bond, sem sé dýpri en svo f þemum sfnum og að gæðum að hann geti talizt aðgengilegur. Bryden vildi jafnvel meina, að Bingo væri prófsteinn á brezkt leikhúslff. Nyti leikritið velgengni mætti ef til vill líta svo á, að Royal Court hefði nú loks uppskorið árangur fyrir tryggð sfna við Bond ellegar sem sigur fyrir sjónarmið West End leikhúsin, að aðgöngu- miðar seljist einungis út á nöfnin yfir titlinum. Hið sfðarnefnda vfsar til framlags John Gielgud f sýning- leikari, sem farið hefur með aðal- hlutverk f flestöllum leikritum Shakespeare, fór þar með hlut- verk Shakespeares sjálfs og fór á kostum. Sennilega er það ekki nema rök- rétt afleiðing að eftir Lér skyldi Bond litlu sfðar snúa sér að höf- undi Lér konungs og leiða hugann að þvi hvernig maðurinn sem reit þessa vægðarlausu könnun á mannlegri grimmd og óréttlæti, gat sjálfur dregið sig í hlé og gerzt góðborgari i Stratford, borið uppi og verið borinn uppi af auðvalds- þjóðfélagi, sem þá var i birtingu f sinni gráðugustu mynd? Hvernig gat skáldið, sem afhjúpaði svo eftirminnilega misindi f hvers kyns mynd, sjálfur gerzt „máttarstólpi" f litlu sveitarsamfélagi, afskipta- laus landeigandi er lifði á leigu- liðum sfnum og stuðlaði með þögn sinni að óréttlátri landskiptingu og lélegri löggjöf, löggjöf sem olli þvi að fjöldi almúgafólks fór á vergang og mátti draga fram Iffið á betli. Bond svarar þvi til, að hann hafi ekki getað það; að Shakespeare, sá er átti hundruð ekra lands rétt utan við Stratford, hafi þraukað með þvf að deyða f sjálfum sér hinn mikla mannlega Shakespeare leikritanna. Bond bregður upp hryggilegri mynd af manninum f garði sfnum f Stratford, þar fer magnþrota og þurrausinn vera vegna ofbeldis þess er eðli hans sætir í daglegri IFfsbreytni. Hann er þjakaður af sektarkennd gagn- vart konu og fjölskyldu er hann hafði yfirgefið fyrir framavonina f London og til að bæta fyrir van- ræksluna verður hann þátttakandi f áformum um að svipta leigulið- ana rétti þeirra — af þeirri þörf að sjá fjölskyldunni öruggan farborða með eignum sfnum. Þessi steinrunni maður er einn- ig útbrunnið skáld. Örsjaldan ber hann það við að koma f orð Ijóð- rænum fmyndum, líkt og „Bells love silence" eða „A swan flying downstream like a woman in a white dress running down an empty street" — annars ræðir hann aðeins viðskiptamál, með þurru og andstyggilegu málfari þess manns er notar merkingar- laus orð yfir ógeðfellda hluti. Ekki er honum þó alls varnað. Eitt sinn heimsækir hann helzta keppinaut sinn Ben Johnson f London og hefur þaðan á brott með sér flösku af eitri og fremur sjálfsmorð með nokkrum tilþrifum f svefnherbergi sfnu. Meðan þvf fer fram hamrar dóttir hans Judith á læstri hurðinni, skelfingu lostin yfir tilhugsuninni að þessi óút- reiknanlegi brjálæðingur, sem hún á auð sinn undir, breyti erfða skránni á sfðustu stundu og gefi fátækum allar eigur sfnar. Sjálfur getur Shakespeare ekki fyrirgefið sér að leikrit hans skuli ekki hafa breytt veröldinni á neinn hátt til hins betra, hvað þá Iffi hans sjálfs og hann tuldrar í sifellu: „Was anything done . . . Was anything done?" Til sölu vörubifreið Ford D — 800 árg. '66 með 18 feta góðum palli og sturtum. Góð dekk. Uppl. ! sima 33551. SKODA S-110-LS 1974 til sölu. Grænn, ekinn 5 þús. km. nýr bill. Kostar 100 þús kr. minna en nýr Skoda. Skoðið bílinn hjá: Aðal Bilasölunni. • Skúlagötu 40. Sími 15014. Óska að ráða stúlku frá 1. nóvember. Veitingastofa Nonna, Stykkishólmi. Simi 93-8355. fbúð í sérflokki Til sölu i norðurbænum i Hafnar- firði 76 fm 2ja herb. endaibúð á efstu hæð. Þvottaherbergi á hæð- inni. Suðursvalir. Upplýsingar i sima 53097 eftir kl. 7 e.h. Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grisaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, simi 35020. Keflavík Ung hjón með eitt barn, óska eftir 2ja—3ja herb. ibúð á leigu frá mán. mótum. nóv.—des. Vinsamlegast hringið i síma 1 542 eftir kl. 5 e. h. Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt í hálfum skrokk- um tilbúið i frystikistuna. 397 kr. k9 . Kjötmiðstöðin, simi 35020. Teppahreinsun — Þurrhreinsun Látið hreinsa teppin. Þau endast lengur. Fullkomnar vélar. Vanir menn. Kr. 75.00 hver fm. Uppl. i sima 71072 — 72398. Hús til sölu Húseignin Miðtún 25, Höfn Hornafirði er til sölu. Nánari upplýsingar veitir Þórir Jónsson, í sima 81 47 eftir kl. 1 9.30. Stúlka vön afgreiðslu- störfum óskast i marvöruverzlun. Tilboð sendist Mbl. fyrir 30. þ.m. merkt: ..Áreiðanleg 4640" Skrifstofuhúsnæði 2 skrifstofuherbergi við Hafnar- stræti til leigu nú þegar. Leigjast sameiginlega eða sitt i hvoru lagi. Tilboð leggist inn á Mbl. 30. okt. merkt: Hafnarstræti — 5358. Brotamálum Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27. sími 25891. Gullarmband tapaðist 13. þ.m. sennilega á Flóa- markaðnum i Landakoti. Skilvis finnandi hringi i sima 38933. Vantar vinnu Reglusamur miðaldra maður. sem er ný kominn heim til íslands. vantar góða vinnu Tilboð leggist á afgr. blaðsins fyrir 30. okt. merkt: ,,Öllu svarað 6538 '. Hafnarfjörður Einbýlishús til leigu. Upplýsingar i sima 51341. Moskvich '71 til sölu með nýrri vél, i góðu standi. Skipti á sendiferðabil koma til greina. Simi 1 6289. Kaupi frímerki islenzk og frá öðrum löndum, bréf- spjöld og bréf, háu verði. F. rektor R. Rosén, 87030 Nodingrá, SVERIGE. Fiat 127 1972 mjög góður og litið keyrður bill til sölu. Samkomulag með greiðslu. 1 —2ja ára fasteignatryggt skulda- bréf kemur til greina. Simi 16289. Hestamenn ath: Bleik hryssa 6 vetra, tamin til sölu. Uppl. i sima 32694 milli kl. 6—8 á kvöldin. Tapast hefur seðlaveski með ávisunarhefti frá Verzlunarbankanum, pening- um og skilrikjum sennilega við Bílanaust, Bolholti. Finnandi hringi i sima 16819. Fundarlaun. Merzedes Benz 250 Ný innfluttur Benz 250 árg. '71. til sölu. Litað gler og fl. aukahlutir. Uppl. i sima 30877. Til sölu kvíga sem á að bera i febrúar. Upplýs- ingar i sima 66111 milli kl. 1 6 og 1 9 i dag. Sauðárkrókur Hjón með eitt barn óska eftir ibúð Upplýsingar i síma 91.28967 kl. 1 9.00 á kvöldin. 3ja herb. vönduð teppalögð ibúð til leigu, strax. Reglusemi áskilin. Upplýs- ingar i sima 51 1 64. Sauðárkrókur Hjón með eitt barn óska eftir ibúð. Upplýsingar i sima 91-28967 eft- ir kl. 1 9.00 á kvöldin. 9 —10 ára gömul telpa óskast til að gæta 2ja ára telpu ca 1 Vi tíma á dag við Nýbýlaveg. Uppl. í síma 43063. CITROEN GS —1220 Club Station 1974 Nýr bíll til sölu. Grænn. Ekinn 3 þús. km. Skoðið bilinn. Aðal Bilasalan Skúlagötu 40. Simi 15-0-14. 2W0r0tmt>Iafci& mnRCFRLDRR mÖGULEIKR VORR Vinnuvélaleiga! Til allra jarðvegsframkvæmda nýjar, afkasta- miklar Broyt Z28 gröfur, jarðýtur og traktors- gröfur. iZiarðvinnslan sf Síðumúli 25, símar32480 — 31080.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.