Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974 Fa jl itii.iv 'AiAjm LOFTLEIÐIR BILALEIGA f CAR RENTAL n 21190 21188 SERVERSLUN MEÐ SVÍNAKJÖT SÍLD & FISKUR Bergstoóastræti 37 sími 24447 margfaldor markad vöar Sr. BOLLI GÚSTAFSSON í Laufási: ndinn llfgar! Hljómar sú fullyrðing ekki dálftið ankannalega á yfirstandandi tímum, þegar efnið virðist skipta þessa þjóð mestu máli. Hvað varðar okkur um anda, þegar steypu- vélarnar snúast nótt og nýtan dag, virka daga sem helga. Nýir veggir rísa, hús af húsi, nýtt byggðahverfi hér og annað hverfi þar. Það er efnið sem blífur og naumur timi fyrir andann. Ekki fyrr en þessari feikna- miklu uppbyggingu landsins lýkur og allir hafa hvílt sig eftir steypuveizluna miklu. Kannske fer nú að styttast í það, segja þeir, sem eru vantrúaðir á efnahagsleiðsögn landsfeðranna. En þegar steypuvélarnar þagna og kranarnir hætta að emja af áreynslu við regintök og jarðýturnar stanza og fella tennur; hvert hvarflar hugurinn þá? Sagan hefur skýringu á reiðum höndum, þegar þessi spurn er fram borin: Hvers vegna hafa íslendingar farið sér svona óðslega undanfarna áratugi? Hvers vegna hefur allt snúizt um efnið, peninga, bíla, dýrar byggingar og hvf þurfa þessar framkvæmdir að gerast f einu vetfangi? Um langan aldur höfðu staðið skelfileg hús í þessu landi; lfk því dapurlega hreysi, sem Laxness lýsir að verið hafi að Reyn á Akranesi á ofanverðri 17. öld. Hreysið þar sem snærisþjófurinn Jón Hreggviðsson bjó, sá sem fyrst kom auga á samhengi hlut- anna, þegar Jón nokkur Marteinsson sýndi honum óhófsdýrð islandskaupmanna úti i höfuðstað Danaveldis. Myndin er sönn, þótt f skáldverki sé upp dregin, en ekki nákvæm lýsing í þurru sagnfræðiriti. Aldalöng niðurlæging, rótgróin fátækt og kúgun eru helztar ástæður fyrir æðinu. Það verður lfkt og þegar stórgripir komast óvænt í fóður- blöndu og éta þar til þeir blása upp eins og Steypu- veizlan mikla loftbelgir með voveiflegum afleiðingum. Þannig eru margir Islendingar á ofanverðri 20. öld. En þeir eru menn, yfirleitt vel gerðir, og þeir finna oft til þessa taum- leysis, minnast óhikað á það, átelja jafnvel sjálfa sig, gera sér grein fyrir eigin tauga- veiklun og spennunni margnefndu. En kannske gera þeir sér sfður grein fyrir vanrækslunni við andann og óhlýðninni við konung konunganna, sem kallar okkur til brúðkaups (sbr. guðspjall dagsins, sem er dæmisaga Jesú um brúðkaup konungs- sonarins, Matt. 22, 1—14). Það er ekki nóg að slaka á. Þá finna margir til ónotalegrar tómleikatilfinningar, verða hræddir við kyrrðina, grípa til óyndisúrræðis, drekka sig ölvaða, veikja og rugla siðgæðisskyn sitt. Aðrir hætta sér út á þá flughálu braut, er liggur inn í annarlega kynjaheima annarra eiturefna og endar í flestum tilvikum með ólýsanlegri skelfingu. — Stytting vinnu- tfmans hefur einmitt valdið mörgum félags- málafrömuðum þungum áhyggjum, vegna þess að fjöldi manna sýnist alls ekki undir það búinn að nota sér tómstundirnar á þann veg, að þær verði ekki skaðvænlegar og mönnum sé þá betra að vinna en hlaupa á sig í hugsunarleysi, fremja mistök sér og sínum til sárustu raunar. — Dæmisaga Jesú um brúðkaup konungssonarins höfðar til þess aldaranda, sem hér er við lýði, þegar alltof margir telja sig ekki hafa tíma til að ganga beint til móts við Krist. Þeim virðist nóg að vera af honum í ákveðinni f jarlægð á meðan þeir eru uppteknir við fjölbreytt hugðarefni, til þess þá að geta gripið f klæðafald hans, ef eitthvað alvarlegt ber að höndum. En þá reka þeir sig á þann vanda, að brúðkaupsklæðin eru ekki á vísum stað, þegar til þeirra skal gripið og síðan haldið til fundar við konunginn. Þá skortir þá nauðsynlegu þekkingu, sem andinn veitir; sá lífgefandi, heilagi andi, sem Jesús Kristurgaf postulum sinum fyrirheit um og veitti sfðar þeim og kirkjunni á stofndegi hennar. Sá andi lifir enn í kirkjunni og vegna hans er hún til. Þar sem tveir eða þrír eru samankomnir í nafni Jesú Krists til guðsþjónustu, þar er og heilagur andi. Já, það skiptir raunar engu, hvort þar eru hundrað eða presturinn og einn áheyrandi. — Trúarlíf manna krefst tfma og alúðar. Það má ekki vera hornreka i dagsins önn. Trú, sem ekki tekst á við efasemdir og hvers kyns vandamál, er til lítils nýt og sjái hún ekki sífellda nauðsyn guðsþjón- ustunnar, bæði í einrúmi og f samfélagi kristinnar kirkju, einmitt til þess að safna kröftum til þeirra átaka, þá bilar hún og visnar. Orð Guðs, bænin, lofgjörðin, hin heilögu sakramenti. Ekkert þessara dýr- legu mæta megum við vanrækja, þótt há- reysti steypuveizlunnar miklu sé magn- þrungin og kref jandi. Minnum hvert annað á, að eitt er nauðsynlegt. Guði séu þakkir fyrir heilagan anda, sem býrí kirkju Krists. Göngum til fundar við hann f Jesú nafni. Amen. Frá Bridgefélagi Akureyrar. Nú er lokið þremur umferð- um af fjórum f tvfmennings- keppninni. Alfreð Pálsson og Guðmundur Þorsteinsson hafa nú tekið forystu í keppninni með 704 stig — en mörg pör koma ennþá sterklega til greina með að vinna keppnina. Staða efstu para er annars þessi: Dísa Pétursdóttir — Rósa Sigurðardóttir 695 Grettir Frfmannsson — Ævar Karlesson 687 Soffía Guðmundsdóttir — Páll Pálsson 681 Ármann Helgason — Jóhann Helgason 678 Magnús Aðalbjörnsson — Gunnl. Guðmundsson 670 Sveinbjörn Sigurðsson — Stefán Ragnarsson 665 Angantýr Jóhannsson — Friðfinnur Gfslason 641 Meðalskor er 216. Næsta keppni félagsins verð- ur sveitakeppni. XXX Frá Bridgefélaginu Asarnir f Kópavogi. Þegar tveimur umferðum af þremur er lokið í tvímennings- para 270 252 252 246 234 231 230 224 keppninni er staða efstu þessi: Lúðvfk og Sigursteinn Haukur og Valdimar Helgi og Ragnar Gestur og Vilhjálmur Garðar og Jón Þorlákur og örn Ölafur og Lárus Sæmundur og Trausti Meðalskor er 216. Næsta keppni félagsins verð- ur sveitakeppni. Spilað er I Félagsheimili Kópavogs á mánudögum kl. 20. XXX Bridgefélag kvenna: Eftir 3 umferðir f tvímenningskeppni félagsins eru eftirtalin pör efst: Júlfana Isebarn — Margrét Margeirsdóttir 616 Helga Bachmann — Ragn- heiður Einarsdóttir 596 Halla Bergþórsdóttir — Kristjana Steingrímsdóttir 567 Laufey Arnalds — Ása Jó- hannsdéttir 551 Ingunn Hoffmann — Ólaffa lónsdóttir 548 Guðríður Guðmundsdóttir — Kristín Þórðardóttir 534 Rósa ívars — Sigriður Sig- geirsdóttir 530 Ingibjörg Halldórsdóttir — Ósk Kristjánsdóttir 527 Meðalskor: 495 stig. XXX Knattspyrnufélagið Vfkingur hefur ákveðið að starfrækja bridge í félagsheimilinu við Hæðargarð í vetur. Spilað verð- ur einu sinni f viku, á mánu- dagskvöldum. N.k. mánudag, 28. október, hefst tveggja kvölda tvfmenningskeppni klukkan 19,30 stundvíslega. Þátttökutilkynningar eiga að berast i sfma 72449, 86029 eða 71438. Allir eru velkomnir. Stjórnin. XXX Frá Bridgefélagi Hveragerðis. Aðalfundur Bridgefélags Hveragerðis var haldinn þriðju- daginn 1. okt. 1974. 1 stjórn voru körin: For- maður Kjartan Kjartansson, gjaldkeri Lfney Kristinsdóttir og ritari Svavar Hauksson. Vetrarstarfið hófst síðan með bæjarhlutakeppni milli austur og vesturbæjar miðvikudaginn 9. okt. og lauk henni með sigri vesturbæjar. Miðvikudaginn 16. okt. hófst sfðan 5 kvölda tvímennings- keppni með þátttöku 16 para. Röð 8 efstu para eftir 1. um- ferð: Svavar Hauksson og Haukur Baldvins 118 Sigurjón Skúlason og Jón Guðmundsson 108 Kristófer Þorvarðarson Dagbjartur Gfslason 104 Þórður Snæbjörnsson Kjartan Kjartansson 100 Tómas Antonsson og Niels Busk 93 Oddgeir Ottesen og Páll Þor- geirsson 92 Sigmundur Guðmundsson og Jytte Michelsen 89 Birgir Pálsson og Bjarni Kristinsson 88 A.G.R. og og t » é • « f mm»

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.