Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.10.1974, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974 Paitilla flugvöllur í Panama. Klukkan átta að morgni. Litli biðsalurinn er fullur af fólki á ýmsum aldri að bíða flugfars með smávélum til bæja og þorpa — eða út í eyjar. Þær eru margar við strendur landsins. Ég hafði hangið þama i meira en hálftima og var orðinn heldur óþolinmóð. hef megnustu óbeit ð þvf að fara snemma á fætur — og gamlir blaðamannamagar mega illa við þvi yfirleitt að fara tómir í ferðalög. Stólarnir grjótharðir og úti á miðju gólfi, svo að hvergi var hægt að blunda við brik. Loksins var kallað, fyrst á spænsku, síðan ensku: „Farþegar til San Blas, gjörið svo vel að gefa ykkur fram, við erum tilbúnir til brottferðar." Siðan hver tilkynningin eftir aðra. Nú áttu allir að fara í einu. Við tindumst að afgreiðslunni, nokkrar syfjulegar hræður, sem ætluðum til San Blas. heilsuðumst og sögðum til okkar. Fornafn og þjóðerni er venjulegast látið nægja i svona hópi fólks, sem hittist af tilviljun til samvista einn dag og gerir ekki ráð fyrir að sjást framar. Tiu farþegar. Tveir mið- aldra karlmenn, Jack og Charles, sýnilega vel kunnugir, þvi að þeir skiptust á skensi i sifellu. Annar sagðist heimamaður, hinn frá Bandarikjunum, gamlir skóla- bræður. „Hugsið ykkur — þetta dettur inn um dyrnar hjá manni einn daginn og heimtar gistingu," sagði Jack og Charles gaf boltann til baka. „Mér datt ekki i hug að þú værir orðinn svona gamall og leiðinlegur — ella hefði ég farið á gistihús." Mexikanskur læknir, dr. Edvardo Rias-Mercadillo — Rias er eftirnafn föðurins, Mercadillo eftirnafn móður hans, þannig notar fólk í rómönsku Ameríku nöfn beggja foreldra sinna. Kona hans, Viola, litil og nett -— og fslandshvit á hörund. „Það þykir fínt að vera hvitur i Mexico," segir hún hlæjandi, „en ég er það nú aðaliega vegna þess að mér líður illa i of miklu sólskini og hef auk þess nóg að gera inni við alla daga. Börnin þeirra fjögur á aldr- inum þriggja til niu ára voru hvert öðru elskulegra og prúðara. Helen, Ijóshærður kennari frá Bandarikjunum og undirrituð frá íslandi. Rétt fyrir utan beið farkostur- inn, tveggja hreyfla Islander og að minnsta kosti tiu aðrar flugvélar, eins og tveggja hreyfla. Fólkið streymdi út úr litlu flugstöðinni og eftir um það bil fimmtán minútur rúlluðu vélarnar í runu eftir flug- brautinni — og siðan i loftið hver af annarri. Flugmaðurinn sagði, að við yrð- um tæpan hálftíma á leiðinni til San Blas. Veðrið var gott og flogið það lágt, aðvelmátti sjá landslag og byggðina, sem varð æ strjálli er lengra leið og skógarnir þéttust, unz hvergi var að sjá merki búsetu eða mannlifs. „Þetta er alger frumskógur," sagði flugmaðurinn, „regnskógar og óþolandi hiti þarna niðri." GERDU UPPREISN GEGN STJÚRN PANAMA San Blas heitir einu nafni klasi rúmlega 360 eyja i karabíska hafinu norðaustur af Panama. Eyjarnar teygja sig um 350 km meðfram ströndinni allt upp að landamærum Columbiu. Flugsam- göngur eru daglega við eyjuna El Porvenir og þaðan vél- bátaferðir fyrir ferðafólk og heimamenn til annarra eyja í klas- anum, en þrátt fyrir langvarandi samband við umheiminn hafa íbú- arnir þarna varðveitt sitt forna samfélagsform og lifsháttu svo til óbreytt frá fomu fari og hafa full- an hug á að halda þvi áfram. Spuming er þó hversu lengi þeim tekst það. eftirað þeir hafa komizt upp á lag með að lita á ferðamenn sem notadrjúga tekjulind. Eyjarnar byggja svonefndir Cuna Indiánar, sérstakur ætt- flokkur, sem áður fyrr byggði einnig hluta strandhéraðanna norðaustan til í Panama. Nú eru eyjaskeggjar sagðir um 1400 tais- ins. Tunga þeirra nefnist chipchan en margir tala einnig spænsku, einkum unga fólkið, . þvi að kennsla i skólum fer fram á þeirri tungu jafnframt chipchan. Örfáir Indíjánakonur í „mola“ blússum. Stúlkur fá ekki slíkan búning fyrr en þær eru gjafvaxta. Fleiri stykki hafa verið hengd upp til sýnis. geta einnig bjargað sér á ensku, sem þeir hafa yfirleitt lært af skiptum við íerðamenn, en obbi þeirra hsfur til skamms tima verið frá bandaríska svæðinu umhverfis skipaskurðinn i Panama. Þótt margir útlendingar leggi jafnan leið sina um Panama er landið þeim yfirleitt einungis áfanga- staður; þeir biða þar næstu flug- vélar, suður eða norður, eftir þvi hvert ferðinni er heitið. Það er fyrst á siðustu árum, sem menn hafa opnað augun fyrir þvi að ekki sé svo vitlaust að hafa þar svolítið lengri viðdvöl milli flugvéla. Á nokkrum eyjanna i San Blas- klasanum hefur verið komið upp gistiaðstöðu, m.a. á eyjunni Is- landia. Þar er hægt að leigja sér litla kofa, sem að utan lita út alveg eins og hýbýli eyjarskeggja, en eru með góðum rúmum og baðherbergjum meðfylgjandi. Á 16. öld voru Cuna Indiánar talsvert áhrifamiklir á þessum slóðum. Skiptust yfirráðin þá milli nokkurra skeleggra ættarhöfð- ingja, sem bitust að sjálfsögðu um eyjarnar og gerðu gjarnan strand- högg á eyjum annarra ættflokka. tóku þaðan fanga, sem nýttir voru sem ódýrt vinnuafl eða hreinir þrælar. Enn i dag ráða Cuna Indiánar sínum „innanrikis"mál- um algerlega sjálfir enda þótt þeir teljist til lýðveldisins Panama. Fyrir nokkrum árum gerðu þeir uppreisn gegn vaxandi afskiptum rikisstjórnarinnar og tilraunum utanaðkomandi afla til að koll- varpa samfélagsháttum þeirra. Síðan hafa þeir fengið að vera í friði að mestu leyti. Þó eru læknar og hjúkrunarkonur send þangað út öðru hverju á vegum rikis- stjórnarinnar til að sjá um bólu- setningar og almennt heilbrigðis- „Hver maður verður að gera sitt bezta jafnvel þótt það kosti hann lifið." KÓKOSHNOTIN VÍKUR FVRIR UOLLARANUM Vald ættarhöfðingja Cuna Indíána hefur frá fornu fari gengið að erfðum og gerir enn. Þó rikir þar ákveðið lýðræðisform með- fram, forystumenn einstakra eyja koma saman öðru hverju til skrafs og ráðagerða um hin ýmsu mál- efni eyjaskeggja og ræður þá meirihluti iðulega ákvörðunum ættarhöfðingjans, sem siðan sér um framkvæmdir og samskiptin við stjórnina i Panama. Eyja- skeggjar hafa sitt eigið lögreglulið og eigin dómstól og sjá sjálfir um að framkvæma úrskurði hans. Allar eyjarnar eru sameign ibú- anna, enginn getur slegið eign sinni á land og mönnum er frjálst að taka sér búsetu hvar sem er, nema að sjálfsögðu ekki i annarra manna húsum. Hinsvegar eru kókoshnetupálmarnir i eigu einstaklinga. Kokoshnotin eraðal- framleiðslu- og útflutningsvara og viðskiptin mest við Colombiu, enda þótt heita eigi bannað að verzla þannig beint við annað ríki. Verðgildi er gjarnan mælt í kókos- hnetum, — að visu hefur vaxandi snerting við bandariska ferða- menn kennt Cuna Indiánum verð- gildi dollarans og er hann óðum að leysa kokoshnotina af hólmi. Áður fyrr var nokkur málm- vinnsla á San Blas, m.a. gull- vinnsla. Hefur talsvert fundizt af haglega gerðum skartgripum úr gulli I gömlum gröfum og enn i dag bera konur á sér allan auð fjölskyldunnar, i gulli. Þær eru skreyttar armböndum og eyrna- hringjum, fingurgullum og litlum gullklemmum, sem þær setja I nasir sér — og er reglulega klæði- legt. Við flugum góðan hring yfir eyjasvæðið áður en við lentum. Mér tókst að telja saman einar tuttugu eyjar, þar sem við flugum yfir — af 360 — og minntist umræðnanna á hafréttarráðstefn- unni i Caracas um vandamál eyja- klasa. Þær fengu nú allt i einu nýtt lif i huganum; hvernig átti að draga mörk landhelgi og auðlinda- lögsögu slíkra ríkja; skyldu haf- svæðin millieyjanna teljast innhöf HUNA INDIANAR A SAN BLAS SÓTTIR Eftir magalendinguna á E1 Porvenir. eftirlit — og sjúkrahús i höfuð- borginni standa opin særðum og sjúkum ef á þarf að halda. Þar fyrir utan bjargast þeir við eigin lækna, óskólagengna en margt kunnandi i gömlum húsráðum. Þeir sulla saman lyfjum úr ýmiss konar jurtum og má heita að á hverri eyju sé einhver slikur kunn- áttumaður. Sömuleiðis eru skólar reknir af ríkisins hálfu á stærstu eyjunum og börnum á San Blas skylt að klæðast sérstökum skólabún- ingum eins og öðrum börnum i Panama. Á skólahúsunum mátti sjá skilti þar sem sagði stórum stöfum, að skyldan við föður- landið (Panama) væri öllu æðri. og tilheyra þeim einum og siðan miða landhelgis- og lögsögumörk við yztu mörk yztu eyja i klasa. Engin furða þó þetta væri ágrein- ingsmál, hér gat verið um að ræða viðáttumikið hafsvæði og i hefð- bundinni alþjóðlegri siglingaleið. Úr lofti séð virtust þessar eyjar hreinasta paradis. Sjórinn skipti litum svo undurfallega við kóral- rifin, blátt i grænt — og svo hvitur sandurinn á svo til mann- lausum ströndum. Pálmar og önnur tré bærðust fyrir golunni og grá stráþökin á kofum Indiánanna féllu svo dæmalaust fallega inn i umhverfið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.