Morgunblaðið - 27.10.1974, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER 1974
45
Evelyn
Anthony:
LAUNMORÐINGINN
Jöhanna v
Kristjönsdöttir
þýddi /
33
FJÖRÐI KAFLI
Huntley Cameron hafði byggt
höll sína á fyrstu árum heims-
kreppunnar miklu. Hann hafði
aldrei notið vinsælda, að baki sér
átti hann hvimleitt skilnaðarmál
og hann hafði orð á sér fyrir að
vera óvæginn og harðsvíraður.
Þegar Freemont var byggt lá við
að allt færi á annan endann. Sam-
tímis því að efnahagur Bandaríkj-
anna var í molum og milljónir
manna gengu um atvinnulausir
og kvöldust af sárustu fátækt,
hafði einn af ríkustu mönnum
landsins gengið í berhögg við alla
sómatilfinningu og byggt sér höll,
sem fór fram úr öllu, sem áður
hafði þekkzt í íburði.
Pólitískir samherjar Huntley
Camerons gátu heldur ekki afsak-
að byggingu Freemont, og óvinir
hans og andstæðingar höfðu gert
á hann miklar og harðar árásir.
Skemmdarverk og spjöll voru
unnin á byggingunni, að lokum
varð að hafa öflugt lögreglulið til
að standa vörð um húsið. Huntley
Cameron var úthrópaður og hat-
aður.
Freemont var ekki aðeins hús,
það var kannski ekki einu sinni
fullnægjandi að kalla það höll.
Það var kastali, hver steinn í það
innfluttur af Huntley, þegar hann
kom úr þriðju brúðkaupsferð
sinni og byggt í fallegu umhverfi
tuttugu mílur fyrir utan Boston.
Þúsundum tonna af jarðvegi
hafði verið bylt til að búa til
Velvakandi svarar i sima 10-100
kl 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi
til föstudags
0 Heilaþvottur?
Ása S. Stefánsdóttir, Tómasar-
haga, skrifar:
„Kæri ásjáandi, sem ert á móti
Keflavíkursjónvarpinu.
Þú tekur ekki tillit til þess, að
það er eldra fólkið, sem hefur
haft það lengst. Ég sem er að
verða sjötug, er búin að hafa sjón-
varp í 10—11 ár, og veit ekki
betur en þá hafi verið leyft að
flytja inn sjónvarpstæki, sem
maður borgaði svo sinn toll af.
Síðan breyttu sjónvarpsvirkjar
þessum tækjum til að við gætum
notið Keflavíkursjónvarpsins.
1 hverju liggur þá þessi „sjón-
svipting"?
Er hún byrjunin á heilaþvotti
þessarar litlu þjóðar, sem er inn-
stillt á þrautseigju, þolinmæði og
fórnfýsi?
Ég vona, að þið, þessar fáu ver-
ur, sem eruð á móti fjöldanum,
látið af þröngsýni ykkar. Þið sem
eruð á móti þvl, að hægt sé að
velja, sjáið ekki hlutina í réttu
ljósi.
Ég átti ekki nema uppkomin
börn þegar ég fékk fyrst sjón-
varp. Þá var ég ein og hafði mikla
ánægju af þvi. Ég hef siðan haft
það, þar til Einar Agústsson gat
túlkað fyrir Bandaríkjamönnum,
að þjóðin vildi ekki hafa þá á
myndfleti sínum.
Þar held ég, að hann hafi hlaup-
ið eftir sínum eigin geðþótta.
Getur einhver svarað í hverju
meinið liggur?
Ég veit, að það er einskær
hræsni, ef nokkur heldur því
fram, að þar i liggi ótti gagnvart
spillingu Islenzkrar tungu.
Asa S. Stefánsdóttir,
Tómasarhaga."
0 Sfðast Austur-
landsáætlun
Sigurður Magnússon, Hrafnhól-
um 2, Reykjavík, skrifar:
„Velvakandi góður.
Það virðist venja, þegar minnzt
er á fjórðungaframkvæmdir eða
dálítið fjall, sem kastalinn gæti
trónað á, þrjú þúsund tré voru
gróðursett umhverfis til að veita
skjól og auk þess reist rafmagns-
girðing umhverfis kastalann.
Þriðja eiginkona Huntleys var tal-
inn eiga mestan þátt 1 tilurð
Fremonts, hún hafði verið mynd-
uð I bak og fyrir með ægistóran
demantshring á fingri og sagt var
að hún hefði heimtað að fá gull-
slegið baðkar i húsið. Hún og
Huntley höfðu búið á Waldorf
Astoria hótelinu fyrsta árið, sem
þau voru gift og meðan verið var
að reisa kastalann. Þeim hafði
báðum verið hótað lffláti, blöð
sem ekki voru í eigu Huntleys
skýrðu frá því að hún yrði að taka
róandi lyf og væri hrædd við að
fara út fyrir dyr. Hvort sem hún
bar ábyrgð á þessum kastala eða
ekki var aldrei vitað, enginn
dirfðist að spyrja Huntley að þvf
og reyndin varð sú, að hún bjó þar
aldrei, vegna þess að hann skildi
við hana, áður en höllin var til-
búin.
Þessi kastali var gimsteinn
Huntleys og eftirlæti. Þangað dró
hann sig líka þegar hann þurfti á
hvfld að halda frá stöðugum þræl-
dómi sfnum við að afla sér fleiri
milljóna og auka vald sitt á öllum
sviðum. Hann var ekki málverka-
safnari og gekk ekki upp í að
prýða heimilið menningargripum.
Þær þrjár konur, sem hann gekk
að eiga næstu tuttugu árin fengu
aldrei að hengja upp eina einustu
mynd né heldur var þeim leyft að
velja efni í gluggatjöld.
Garðarnir við Freemont voru
kapftuli út af fyrir sig. Huntley
áætlanir, að þá sé Austurland
alltaf í 4. sæti.
Varla gildir þó sú regla, að talið
sé sólarsinnis, því að hingað til
hefur blessuð sólin komið upp í
austri.
Framkvæmdir samkvæmt fjórð-
ungsáætlunum byrjuðu með Vest-
urlandsáætlun, siðan kom Norð-
urlandsáætlun og síðast Austur-
landsáætlun. Um Suðurlandsáætl-
un þarf ekki að ræða, því þar
virðist allt hafa forgangsrétt.
Nú geta menn sagt, að hring-
vegurinn nýi yfir Skeiðarársand
sé þó snar þáttur i samgöngu-
málum Austurlands, og því er
ekki að neita. Hann var nú einnig
gerður I þágu allra landsmanna,
en ekki dugir að láta þar við sitja.
Vegirnir á Austurlandi verða þá
að geta tekið við þeirri auknu
umferð, sem hringvegurinn hefur
i för með sér. Þar vantar nú mikið
á.
Nú er i gildi framkvæmd Aust-
urlandsáætlunar. En hvernig er
svo að henni staðið í framkvæmd?
Sl. sumar var unnið þar að sam-
göngumálum. Mjög lítið var unnið
við veginn yfir Fjarðarheiði, og
allmikið dregið úr framkvæmdum
við Oddsskarð. Fátt var um vega
framkvæmdir annars staðar í
fjórðungnum.
Vitað var, að vegna efnahags-
aðstæðna þurfti að draga úr ýms-
um framkvæmdum hér hjá okkur
íslendingum. En kom sá sam-
dráttur réttlátlega niður? Um það
má eflaust deila.
# 1 anda byggöa-
stefnunnar?
Ég hygg, að Sunnlendingafjórð-
ungur hafi orðið þessa samdráttar
minna var en aðrir landsfjórð-
ungar.
Gjábakkavegurinn var lagður,
þótt dýr væri og hefði mátt bíða
að ýmissa dómi. Svo voru og mikl-
ar framkvæmdir á vegum austan-
f jalls og á Reykjanesskaga. Allt er
gott um þetta að segja, og vafa-
laust eru þetta nauðsynlegar
framkvæmdir.
Reykjavík er I algjörum sér-
flokki, enda höfuðborg landsins.
En er þetta nú í anda byggða-
stefnunnar? Á suðvesturhornið
að hafa forgangsrétt til allra
framkvæmda og halda þannig
var mikið fyrir fjölbreytni, þar
ægði saman ótrúlegustu tegund-
um blóma og runna, þar var risa-
stórt gróðurhús með öllum
hugsanlegum tegundum hita-
beltisblóma. Hann hafði komið
fyrir tjörn sem í var lax og svo var
auðvitað geysilega stór sundlaug
úr marmara byggð inni í miðjum
kastalanum.
Elisabeth þekkti Freemont svo
vel orðið, að koma hennar þangað
vakti ekki með henni þá reiði sem
gerðist hjá venjulegum gesti þar.
Þetta var hluti af Huntley
Carmeron — þar féll ekkert í
hennar geð, allt bar vott um gróf-
an og ruddalegan smekk Huntley
Camerons og vitnaði um algera
fyrirlitningu hans á öllum öðrum
en sjálfum sér.
Hún hafði einu sinni heyrt móð-
ur sína láta þau orð falla að Free-
mont væri mesti glæpur gegn góð-
um smekk, sem Huntley hefði
nokkurn tíma gert sig sekan um.
Elisabeth hafði verið sammála
henni, en þá hafði það ekki skipt
hana neinu meginmáli. Freemont
var eins og Huntley sjálfur,
ómælanlegur á kvarða venjulegs
fólks: viðbjóðslegur og ómót-
stæðilegur f senn.
Huntley var ekki kvæntur nú.
Hann bjó með stúlku og hafði gert
það síðustu þrjú árin. Hann vildi
ekki giftast henni, fyrr en hún
væri orðin frambærilegri að hans
dómi. Hún hét Dallas Jay og hafði
verið söngkona í næturklúbbi f
Los Angeles. Enginn vissi, hvar
eða hvernig hún hafði komizt í
kynni við Huntley, því að hann
fór aldrei á næturklúbba. En einn
áfram að soga til sin fólkið utan af
landsbyggðinni?
Á Austurlandi eru svo mörg og
mikil verkefni óleyst, að full þörf
er á, að þar verði unnið af fullum
krafti á næstu árum — svo sem
efnahagur frekast Ieyfir.
# Samgöngu- og
orkumál brýnust
Fyrst og fremst á ég þá við
samgöngubætur og orkumál. Um
mörg þessara verkefna hefur ver-
ið ritað og rætt, en minna hefur
orðið úr framkvæmdum.
Tvö verkefni langar mig til að
nefna, en þau hefi ég lítið eða
ekki heyrt minnzt á. Það er að
byggð verði brú yfir Jökulsá á
Dal, hjá Sleðbrjóti I Jökulsár-
hlíð, eða þar sem bezt væri brúar-
stæði þarna í úthlíðinni. Svo má
lika minnast á jarðgöng undir
Hellisheiði, milli Vopnafjarðar og
Jökulsárhiiðar. Þau mundu gjör-
breyta samgöngumálum Vopn-
firðinga.
# Snjóholts- eða
Eiðaflugvöllur
Eitt sinn heyrði ég háskóla-
tflenntaðan Reykvíking segja, að
sér tjefði einhvern veginn aldrei
fundi^t Austurland vera hluti af
IsIandí.iSvo fjarlægur var honum
þessi landsfjórðungur. Ef slíkur
hugsunarháttur er hér ríkjandi
að nokkru ráði, þá held ég að
byggðastefnan muni eiga sér
erfitt uppdráttar.
Nú er rætt um að byggja nýjan
flugvöll á Egilsstöðum, en þess þó
jafnframt getið, að hann verði
byggður á Snjóholtssöndum eða í
um 10 km fjarlægð frá Egiisstöð-
um, og í annarri sveit, þ.e.a.s.
Eiðaþinghá, skammt frá mennta-
setrinu að Eiðum.
Hví þá ekki að nefna flugvöll-
inn Snjóholts- eða Eiðaflugvöll?
Sigurður Magnússon."
# Jarðeplin
Hafnfirðingur skrifar:
„Það er ekki lengur hægt að
taka þvi þegjandi og án aðgerða,
að neytendur á Reykjavikursvæð-
inu fá ekki ætar kartöflur eftir
einhverja beztu uppskeru I
manna minnum. Það rauða rusl,
góðan veðurdag fluttist hún inn
til hans 1 Freemont og hann
klæddi hana í minkakápur og gaf
henni gull og gimsteina og réð
henni sérstaka þjónustustúlku.
Við rúmið hennar var sérstök
bjalla og þegar Huntley þóknaðist
að vilja njóta hennar, þrýsti hann
á bjölluna, sem bendingu um að
nú ætti hún að koma til sin. Élisa-
beth hafði ekki séð Dallas í nokkr-
ar vikur, því að hún hafði verið
farin til Florida áður en hún og
Eddi King héldu til Beirut.
Huntley lagði engar hömlur á
Dallas, hún gat farið allra sinna
ferða, en léti hún sjá sig með
manni, yrði henni sparkað tafar-
laust. Og á þeim þremur árum,
sem liðin voru, síðan samband
þeirra hófst hafði Dallas aldrei
gert sig seka um slfka ósvinnu.
Élisabeth hægði ferðina, þegar
hún nálgaðist rafmagnsgirðing-
una. Vörðurinn þekkti bílinn og
hana og hleypti henni inn. Eng-
inn fékk að fara inn um hliðið,
nema Huntley Cameron hefði
áður lagt blessun sína yfir það og
því var simasamband úr varð-
skúrnum við vistarverur Hunt-
leys í Freemont. Hún ók eftir
breiðum veginum og lagði honum
fyrir framan kastalann. Þegar
hún sté út minntist hún allt f einu
orða Kellers: „Hver er þessi
frændi þinn? Ég hef aldrei heyrt
getið um hann.“ Slíkt myndi eng-
inn dirfast að segja við Huntley.
Hann gekk út frá því sem gefnu,
að allir könnuðust við hann og
vissu á honum deili. Það myndi
aldrei hvarfla að honum, að heim-
urinn væri fullur af mönnum eins
sem neytendum er boðið upp á, er
varla hæft sem dýrafóður. Auk
þess er fjöldi neytenda sem vill
gular kartöflur og það hlýtur að
vera skylda Grænmetisverzlunar-
innar við framleiðendur, fyrst
hún hunzar neytendur, að bjóða
þá vöru sem selst sjálfkrafa, en er
ekki neydd ofan f fólk, þar sem
annað fæst ekki.
1 Velvakanda fyrir skömmu lét
forstjóri Grænmetisverzlunarinn-
ar svo ummælt, að ekki væri hægt
að selja gular kartöflur þar sem
þær hefðu verið settar innst I
geymslurnar. Hvað er að heyra?
Á niðurröðun í birgðageymslur
að ráða því, hvað er á borðum
manna og hvort hægt sé að fá
ætan mat? A kannski að borða
rauðar kartöflur fyrst í vetur og
gular það sem eftir er. Ætli aðdá-
endur þeirra rauðu verði ekki
orðnir brúnaþungir með vorinu?
Forstjórinn segir ennfremur,
að kaupmenn hafi ekki óskað
eftir gulum kartöflum. Á að trúa
þvf að óreyndu að kaupmenn beri
hag viðskiptavina sinna á engan
hátt fyrir brjósti? Margt ljótt
hefur verið sagt um kaupmenn.
En þetta eru brigzlyrði sem kaup-
menn hljóta að reka ofan i for-
stjórann. Nema þeir séu orðnir
hundleiðir á þvi að berjast gegn
einokunarfyrirtækjum land-
búnaðarins og hafi gefizt upp.
Um langt árabil hafa lesenda-
dálkar blaðanna verði uppfullir af
kvörtunum út af kartöflunum.
Þessar kvartanir hafa alltaf verið
hunzaðar. En hvar eru öll þessi
samtök sem þykjast bera hag
neytendanna og húsmæðranna
fyrir brjósti? Hvar eru kvenna-
samtökin, sem einu sinni mót-
mæltu hækkun á búvöruverði?
Þau verða að grípa til sinna ráða.
Neytendasamtökin eru bara léleg-
ur brandari og flækjast fyrir.
Verði óskir neytenda enn einu
sinni hunzaðar um ætar kartöflur
þá er ekki annað að gera en að
allir þeir, sem kvartað hafa
undanfarin ár yfir þessari með-
ferð, taki sig saman um stofnun
neytendasamtaka til að berjast
gegn Grænmetisverzluninni og
krefjast þess að kartöflusala verði
gefin frjáls, svo tryggja megi
neytendum þá vöru, sem þeir
óska.
— Hafnfirðingur."
VELVAKAIMDI
Páll V. Danícls-
son skrifar frá
Hafnarfirði
Hin miklu
kalsár
ÞAÐ ER gjarnan ofar í huga okk-
ar að finna að þvf sem miður er
en þakka það sem vel er gert. En
nú fer ekki hjá þvf, að við sem
höfum áhyggjur af vaxandi
áfengisneyzlu með öllu þvf böli
sem henni fylgir viljum minnast
þess sem vel hefur verið gert.
Þegar Vilhjálmur Hjálmarsson
tók við starfi menntamálaráð-
herra lýsti hann þvf yfir, að
áfengi mundi ekki verða veitt f
veizlum á vegum sfns ráðuneytis.
Yfirlýsing þessi sýnir kjark og
dug til að rfsa gegn þeirri útlendu
eftiröpun að geta ekki komið
saman án þess að ailt fljóti f
áfengi. Fordæmi ráðamanna get-
ur sannarlega verið mikils virði í
baráttunni gegn áfengisbölinu og
á menntamálaráðherra skilið
þakkir og virðingu allra góðra
manna fyrir afstöðu sína.
Þá er vissulega þakkarvert, að
stjórnvöld skyldu sýna þjóðinni
þann sóma að loka vfnbúðum sfn-
um fyrir þjóðhátfðina á Þingvöll-
um og hafa ekki áfengisveitingar
þar um hönd. 1 þvf fólst gott for-
dæmi svo og skilningur og samúð
gagnvart þeim, sem eiga við
áfengisböl að búa.
Það hefur almennt vakið
ánægju fólks, hvað þjóðhátfðar-
samkomur hafa fariö vel fram og
til þeirra vandað. Eitt var þeim
sameigninlegt og þótti sérstak-
lega fréttnæmt, en það var hvað
lftið bar á ölvun á hátfðunum.
Hins vegar elur það ugg f brjósti,
að svo skuli komið að það teljist
til frétta en sé ekki sjálfsagður
hlutur, að samkomur sé hægt að
halda f friði fyrir ölvuðu fólki.
Þegar svona er komið er þá
ekki ástæðatilað taka ámálum
þessum af fullri alvöru og festu
og útrýma ósómanum? Það gæti
verið verðugt ræktunarefni að
græða upp þau kalsár ofdrykkj-
unnar, sem 11 alda byggðasaga
hefur ekki megnað að kenna okk-
ur. Ennþá er áfengið sami mein-
vætturinn, sama eyðingaraflið,
sem stórum kalskellum veldur f
mannlffinu sjálfu og brýtur braut
hverskonar böli, óhamingju og
tortfmingu.
Ef forystumenn f þjóðfélaginu
færu að fordæmi menntamála-
ráðherra mundu hinir glæstu sal-
ir veitingahúsanna ekki verða
eins breiður vegur á leiðinni f
göturæsið.
AUGLÝSINGATEIKNISTOFA
MYNDAMÓTA
Aðalstræti 6 sími 25810