Morgunblaðið - 31.10.1974, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÖBER 1974
J6hann Briem, formaóur Njarðar, afhendir Sigurði Þorsteinssyni lyklavöldin að tveimur nýjum
bifreíðum. Ljðsm: Sv. Þorm.
Nokkrar konur úr kvennadeildinni ásamt Sigurði Þorsteinssyni formanni Flugbjörgunarsveitarinnar.
Ljósm. Sv. Þorm.
Flugbjörgun-
arsveitin fær
þrjá nýja bíla
— Fjáröflun um helgina —
UM ÞESSAR mundir er Flug-
björgunarsveitin að taka f notkun
nýjan bflakost, en f fyrradag af-
henti Lions-klúbburinn Njörður
sveitinni tvo bíla. Við sama tæki-
færi afhenti kvennadeild Flug-
björgunarveitarinnar bifreið
sömu gerðar, þannig að nú hefur
sveitin eignazt þrjá nýja farkosti.
Bifreiðarnar eru af Ford-gerð
og eru þær mjög vandaðar og full-
komnar að öllum útbúnaði. Und-
anfarin 20 ár hefur Flugbjörg-
unarsveitin notazt við gamlar bif-
reiðar frá varnarliðinu, en þær
eru nú orðnar svo lélegar, að tím-
inn, sem fór til viðhalds og við-
gerða, var orðinn allmiklu lengri
en timinn, sem bifreiðarnar voru
í notkun.
Nýju bílarnir verða notaðir til
sjúkraflutninga, og sem hjálpar-
bílar við björgunar- og ieitarstörf
Flugbjörgunarsveitarinnar.
1 fyrra ákvað Lions-klúbburinn
Njörður. að hlaupa undir bagga
með Flugbjörgunarsveitinni, og
safna fé til kaupa á nýjum bílum
fyrir sveitina, þar sem fjárfram-
lög opinberra aðila og það, sem
deildin aflar sér með eigin f járöfl-
un, hrekkur skammt.
Njörður beitti sér því fyrir
kaupum á tveimur bifreiðum, og
hefur að undanförnu verið unnið
að yfirbyggingu þeirra. I samráði
við Rauða krossinn hefur Flug-
björgunarsveitin búið bilana til
sjúkraflutninga, og hefur Rauði
krossinn styrkt sveitina til kaupa
á ýmsum nauðsynlegum tækjum í
þá.
Eins og áður sagði, hefur þriðji
nýi bíllinn nú bætzt við, en i
kvennadeild Flugbjörgunarsveit-
arinnar eru nú starfandi um 50
konur, og hafa þær aflað fjár til
bifreiðarkaupanna með ýmsum
hætti.
Mjög kostnaðarsamt er að reka
starfsemi þá, sem fram fer á veg-
um Flugbjörgunarsveitarinnar,
enda þótt þeir, sem þar starfa,
leggi fram alla vinnu endur-
gjaldslaust.
Nú um helgina verður árleg
fjáröflun Flugbjörgunarsveit-
arinnar, en á laugardaginn verða
seld merki til ágóða fyrir starf-
semina.
Daginn eftir, eða á sunnudag-
inn, verður svo kvennadeildin
með kaffisölu og basar að Hótel
Loftleiðum. Jafnan hefur verið
fjölmennt hjá kvennadeildinni.
Formaður hennar er Ásta Jóns-
dóttir.
1 Flugbjörgunarsveitinni eru
nú um 100 manns starfandi, en
formaður hennar er Sigurður
Þorsteinsson.
Flugbjörgunarsveitir eru nú
starfandi á sex stöðum á landinu,
en síðan sveitin var stofnuð í
Reykjavík árið 1950, hafa verið
stofnaðar flugbjörgunarsveitir á
Akureyri, Hellu á Rangárvöll-
um, Skógum, Vik i Mýrdal og
Varmahlíð í Skagafirði.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Rekstrarbókhald
Námskeið í rekstrarbókhaldi verður haldið 5. til
7. nóv. n.k. og hefst þriðjudaginn 5. nóv. kl.
15.30.
Fjallað verður um tengsl fjárhags-bókhalds og
rekstrarbókhalds, kostnaðarstuðla, „normal-
kalkulation" og „lágmarkskalkulation" og nota-
gildi þeirra
I venjulegu bókhaldi, fjafhagsbókhaldi, eru
viðskipti fyrirtækisins við umheiminn skráð. I
rekstrarbókhaldinu er aftur á móti skráð, það
sem gerist innan fyrirtækisins. Hlutverk rekstr-
arbókhaldsins er þrenns konar. í fyrsta lagi að
fylgjast með arðsemi ein$takra deilda fyrir-
tækisins, í öðru lagi að auðvelda verðlagningu
og í þriðja lagi að bæta eftirlit með allri
starfsemi fyrirtækisins.
Leiðbeinandi er Valdimar Hergeirsson viðskiptafræð-
ingur.
Sala
Námskeið í sölu verður haldið 11. —14. nóv.
og hefst kl. 1 5.30 mánudaginn 1 1. nóv.
Fjallað verður um
Söluráða, markaðsrannsóknir, meginatriði, sem
ráða ákvörðunum varðandi afurðaeiginleika,
verð, dreifileiðir, auglýsingar, sölumennsku
o.fl., samning áætlana um aðgerðir á sviði sölu.
Á undanförnum áratugum hafa átt sér stað
miklar tæknibreytingar. Þær hafa leitt til auk-
inna framleiðsluafkasta. Aukin framleiðsluaf-
köst valda því, að gera þarf auknar kröfur til
sölustarfseminnar. Ennfremur virðist æviskeið
vara sífellt vera að styttast, þannig að hanna
þarf nýjar vörur í ríkari mæli en áður, ef ætla á
fyrirtækjum að halda lífi. Námskeiðinu er ætiað
að auka hæfni manna til að glíma við þessi og
önnur skyld vandamál á sölusviðinu.
Leiðbeinandi er Brynjólfur Sigurðsson lektor.
Þátttaka tilkynnist í síma 82930.
Nýtl ilug-
frcyjufélag:
Safnar fé til tækjakaupa
í nýju fæðingardeildina
A SlÐASTLIÐNU vori stofnuðu fyrrverandi og nú-
verandi flugfreyjur með sér félag, og af þvf tilefni
snerum við okkur til Guðrúnar Norberg, formanns
félagsins, og Jóhönnu Sigurðardóttur, sem er vara-
formaður, til að forvitnast um markmið félagsins og
tildrögin að stofnun þess:
— Á síðastliðnum vetri komu nokkrar samstarfs-
stúlkur saman heima hjá Mörtu Mariu Hálfdánar-
dóttur til að rifja upp gamlar minningar. Okkur
fannst svo skemmtilegt að hittast aftur, að við ákváð-
um að gera þetta aftur og þá oftar, segir Guðrún. —
Svo spannst þetta eiginlega hvað af öðru, og endaði
meó því, að okkur fannst við verða að hafa þetta í
föstum skorðum. Næsta skrefið var svo stofnfundur,
sem haldinn var í mai í vor. Hann sóttu milli 50 og 60
fyrrverandi og núverandi flugfreyjur, en tilgangur
félagsins er m.a. sá, að viðhalda kynnum flugfreyja,
bæði þeirra, sem eru hættar störfum og þeirra, sem
enn eru í „loftköstum“, segir Guðrún.
— Fljótlega eftir að félagið fór að taka á sig mynd,
var farið að ræða um, að það þyrfti að hafa markmið
umfram það að félagskonur hittust og skemmtu
sjálfum sér. Þá fannst okkur liggja beinast við, að
við létum gott af okkur leiða um leið og við hefðum
ánægju af því sjálfar, segir Jóhanna.
— Hvernig hefur starfseminni verið háttað frá því
að félagið var stofnað?
— Síðan höfum við haldið kaffifundi, og skiptast
félagar á um að sjá um veitingar, sem síðan eru
seldar í fjáröflunarskyni. Af þessu höfum við haft
dágóðan hagnað, en nú erum við að fara af stað með
fjáröflun. Dr. Gunnlaugur Snædal kom og talaði á
fundi hjá okkur í haust, og ræddi hann fyrst og
fremst um viðbótina, sem nú er í undirbúningi við
fæðingar- og kvensjúkdómadeild Landspitalans. öll
tæki í þessa deild eru mjög dýr, og Svölurnar, eins og
félagið heitir, hefur mikinn áhuga á, að hún verði
sem allra bezt tækjum búin. Því höfum við ákveðið
að byrja á því að safna fé til tækjakaupa í deildina.
Hvað síðar verður, er enn ekki afráðið, heldur ætlum
við að fylgjast með því hvar þörfin er brýnust hverju
sinni, og haga okkur svo samkvæmt því, segir
Guðrún.
— Á iaugardaginn kemur verðum við með stðran
markað að Hallveigarstöðum. Við höfum verið að
safna munum að undanförnu, og hefur það gengið
margfalt betur en okkur datt í hug I upphafi. Við
höfum farið í ýmis fyrirtæki, þar sem okkur hefur
verið tekið frábærlega vel, en einnig höfum við
sjálfar útbúið hluti og safnað saman nokkru af
gömlum munum, og er nú orðið úr þessu mikið
samansafn. Það, sem á markaðnum verður, er að
iangmestu leyti nýtt, þótt einnig sé nokkuð af göml-
Jóhanna Sigurðardóttir og Guðrún Norberg.
um og notuðum hlutum. Við einsettum okkur að hafa
þetta markað, þar sem væri að finna nothæfa og
skemmtilega hluti eingöngu, segir Jóhanna.
— Hvað eru félagar margir?
— Þeir eru nú um 80, og sífellt bætist við. Fyrst
voru eingöngu Loftleiðaflugfréyjur í félaginu, en
þegar flugfélögin sameinuðust fannst okkur sjálf-
sagt að Flugfélags-freyjurnar hefðu einnig tækifæri
til að ganga I félagið.
Okkur hefur fundizt sérstaklega ánægjulegt að
með okkur eru flugfreyjur frá fyrstu árum farþega-
flugsins hér á landi, og sami áhugi er ríkjandi hjá
þeim elztu og þeim yngstu.
Eins og fyrr segir er Guðrún Norberg formaður
félagsins og Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður,
en aðrar f stjórn eru Jóhanna Björnsdóttir, gjald-
keri, Erla Ólafsdóttir, ritari, og Andrea Þorleifsdótt-
ir, Gerður Guðnadóttir og Kristín Guðlaugsdóttir,
sem eru meðstjórnendur.