Morgunblaðið - 31.10.1974, Blaðsíða 36
nucivsmcRR
^£«--»22480
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1974
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SIMI: 26660 -
RAFIÐJAN SIMI: 19294
Banaslys um
bwð í rækjuhát
SKÖMMU fyrir hádegi f gær varð
banaslys um borð f Rósu HU frá
Hvammstanga, þar sem báturinn
var á veiðum í vestanverðum
Húnaflóa. Maðurinn, sem lézt,
mun hafa lent f spili bátsins og
látizt samstundis. Rósa kom með
manninn til Hvammstanga um
hádegisbilið. Maður frá sjóslysa-
nefnd er væntanlegur til
Hvammstanga f dag og mun hann
kanna orsök sfyssins.
Ekki er hægt að birta nafn
mannsins að svo stöddu, þar sem
ekki hafði náðst f alla ættingja
hans f gærkvöldi.
Byrjað á kíttisverk-
smiðjunni í vor?
Gert er ráð fyrir, að bygging
kíttisverksmiðju hefjist í Hvera-
gerði á næsta vori, en sem kunn-
ugt er af fréttum hefur nokkur
styr staðið um byggingu þessarar
verksmiðju.
Ólafur Þorgrfmsson, lögfræð-
ingur, sagði er Morgunblaðið
ræddi við hann f gær, að búið
væri að jafna landið undir verk-
smiðjuna og nú ætti aðeins eftir
að setja ákveðinn hæðarpunkt.
Gert er ráð fyrir, ef búið verður
að leysa öll umhverfsivandamál,
að bygging hússins hefjist f vor.
Verksmiðjuhúsið sjálft verður
3000 fermetrar að stærð, og að
Björgun
undirbúin
ÁHÖFNIN á vitaskipinu Árvakur
vann f gær að þvf að undirbúa
björgun togarans Port Vale, þar
sem hann er strandaður á Héraðs-
sandi. Búið er að dæla öllum sjó
úr skipinu og er nú aðeins beðið
eftir hagstæðu veðri til að draga
skipið út.
Stórstraumsflóð er aðfararnótt
sunnudags og þá eru mestar líkur
á, að togarinn náist á flot. 1 fyrri-
nótt hvessti nokkuð á miðunum
fyrir austan og þá brimaði dálftið
f kringum togarann. t gær lægði
svo aftur, og var jafnvel gert ráð
fyrir, að reynt yrði að ná togaran-
um út fyrir sunnudagsflóðið ef
veður yrði gott.
Skipverjar á Árvakri telja, að
Iftill sem enginn leki hafi komið
að skipinu enn.
auki 2ja hæða, 600 fermetra fram-
hús.
Sagði Ölafur, að þeir myndu
fara rólega af stað í sölumálum,
en fyrirspurnir hefðu nú þegar
borizt frá Evrópu. Þegar verk-
smiðjan væri komin í fullan gang,
myndi þetta þýða töluverða upp-
bót á útflutningsframleiðslu
landsins. Kíttið verður framleitt
samkvæmt einkaleyfi frá Rutland
í Bandaríkjunum, sem er ein
þekktasta verksmiðja heimsins á
þessu sviði og framleiðir yfir 50
tegundiraf kítti. Ekki erþó gert
ráð íyrir, að verksmiðjan í Hvera-
gerði framleiði nema 3—4 teg-
undir í fyrstu.
Að lokum sagði Ólafur, að sér
þætti margt undarlegt í sambandi
við byggingu verksmiðjunnar, að
Framhald á bls. 20
Afli reknetabátanna, sem stunda síldveiðar frá
Höfn í Hornafirði, hefur glæðzt síðustu daga og i
gær komu þeir með á þriðja hundrað tunnur. Að
vanda var mikill handagangur í öskjunni við söltun-
ina, eins og sést á þessari mynd, sem Hermann
Stefánsson tók.
110 faðma
nót gerð
til háhyrn-
ingsveiða
Höfn í Hornafirði
30. september.
NÚ HEFUR verið lokið við gerð
nótar, sem ætluð er til háhyrn-
ingsveiða. Er hún 110 faðma löng
og 40 faðma djúp og er úr
trollgarni. Ennfremur hefur
verið gert sérstakt búr úr sterku
girðinganeti til að setja háhyrn-
inginn í á leið til hafnar.
Þá hefur Frakkinn, sem er að
reyna ná háhyrningnum, farið
fram á, að fá að stúka smákrók af
í höfninni til þess aó geta geymt
háhyrninginn þar, þangað til að
hægt verður að fljúga með hann
beint út.
Gert var ráð fyrir, að Sigurvon
AK myndi halda til háhyrnings-
veiðanna í gærkvöldi.
Elfas.
Brauð
hækkar
VERÐ á brauði hækkar frá og
með deginum í dag og nú kostar
stykkið af rúgbrauði kr. 77, kost-
aði áður 73, franskbrauð kostar
nú 60 kr., áður 56, vínarbrauð
hækka úr kr. 14 í kr. 15 og 1 kg af
tvíbökum kostar núna 235 kr., en
kostaði áður kr. 220.
Viðræðurnar við Rússa:
Yfirdráttarheimild aukin
greiðslufrestur veittur
Ólafur Jóhannesson, viðskipta-
ráðherra, sagði f viðtali við Morg-
unblaðið f gær, að nú væri gert
ráð fyrir þvf, að Sovétrfkin
keyptu 10 þús. lestir af fiskimjöii
frá íslandi á þessu ári, en það
hefðu þau ekki gert áður. Ráð-
herrann, sem nokkra sfðustu daga
hefur' dvalið f Moskvu og átt við-
ræður við sovézka ráðamenn um
Alþingi í dag:
Forsetakjör
o g
fj árlagafrumvarp
ALÞINGI það, sem sett var f
fyrradag, mun koma saman til
framhaldsstarfa f dag kl. 2 eftir
hádegi. Þá verða væntanlega
kjörnir forsetar sameinaðs þings
og þingdeilda sem og skrifarar
þingsins. Þá verður og lagt fram
Flokksráðsfundur —
formannaráðstefna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að kalla
saman flokksráðsfund og for-
mannsráðstefnu Sjálfstæðis-
flokksins dagana 22. og 23. nóv.
n.k. Verður fundurinn haldinn f
Glæsibæ. Dagskrá verður auglýst
sfðar.
frumvarp til fjárlaga fyrir árið
1975.
Stefnuræða forsætisráðherra
mun hafa verið afhent þing-
mönnum sem trúnaðarmál sl.
þriðjudag, er þing var sett. Sam-
kvæmt þingsköpum verður
stefnuræðan ekki formlega flutt
fyrr en minnst vika er liðin frá
því að þingmenn fá hana f
hendur. Samkvæmt því verður
hún væntanlega flutt nk. þriðju-
dag og fara þá fram útvarpsum-
ræður um efni hennar.
Ekki liggur enn á lausu,
hvenær fjármálaráðherra flytur
fjárlagaræðu sína, en líkur benda
til, að það geti orðið eftir u.þ.b.
vikutíma.
skuld Islands við Sovétrfkin,
sagði, að samkomulag hefði tekizt
um verulega hækkun á yfir-
dráttarheimild frá næstu áramót-
um, og greiðslufrestur hefði feng-
izt á hluta skuldarinnar. Sagði
hann, að Rússar óskuðu frekar
eftir að fá fiskimjöl en loðnu-
mjöl, en lonumjöl kæmi sterk-
lega til greina, ef hitt fengist
ekki. Ekkert var fastákveðið um
verð á fiskimjölinu, en það verð-
ur að Ifkindum selt á heims-
markaðsverði, eins og það er á
hverjum tfma.
Viðskiptaráðherra, sem nú sit-
ur ráðherrafund E.F.T.Á. f Hei-
sinki, vildi ekki nefna neina tölu
f sambandi við yfirdráttar-
hækkunina. Hann kemur til ts-
lands á laugardag.
Morgunblaðinu barst f gær
fréttatilkynning um viðræðurnar
f Moskvu og fer hún hér á eftir:
Ólafur Jóhannesson, viðskipta-
ráðherra, dvaldi í Moskvu, dagana
27.—30. október og átti þar við-
ræður við N.S. Patolichev, utan-
rfkisviðskiptaráðherra Sovétrikj-
anna, A.N. Manzhulo, aðstoðar-
ráðherra, og fleiri sovézka ráða-
menn um viðskipti íslands og
Sovétríkjanna.
Frá því á miðju ári 1973 hefur
viðskiptahalli Islands gagnvart
Sovétríkjunum farið mjög vax-
andi einkum vegna hækkana á
verðlagi Olíu og bensíns. Þrátt
fyrir talsverða hækkun á verði
íslenzkra vara, sem seldar hafa
verið til Sovétrfkjanna, hefur
skuld íslands á jafnkeypisreikn-
ingnum farið iangt fram úr um-
saminni yfirdráttarheimild. Til að
lækka skuldina hefur Seðlabank-
inn á þessu ári greitt 1025
milljónir króna i frjálsum gjald-
eyri, en samt er skuldin orðin um
2500 milljónir króna.
Tilgangurinn með för viðskipta-
ráðherra var að ræða við sovézk
stjórnvöld um leiðir til úrbóta f
viðskiptum landanna. Var þar
einkum um að ræða aukin kaup
Sovétrikjanna á fslenskum
vörum, hækkaða yfirdráttarheim-
ild og greiðslufrest á hluta skuld-
arinnar.
I viðræðunum var gert ráð
fyrir, að Sovétrikin keyptu 10.000
tonn af fiskimjöli á þessu ári, en
fiskimjöl hefur ekki áður verið
Framhald á bls. 20
Skotland
r
vann Island
!—0. Sjá bls. 20
10 stúlkur frá Ástralíu og
Nýja-Sjálandi á Þingeyri
KVENFÓLKI á Þingeyri fjölgaði
til muna í gær, en þá komu þang-
að til vinnu 10 stúlkur, ekki úr
öðrum landsfjórðungi, heldur frá
Ástralfu og Nýja-Sjálandi. Stúlk-
urnar hafa ráðið sig til starfa hjá
Hraðfrystihúsi Dýrfirðinga næstu
6 mánuðina, en þær voru ráðnar í
Bretlandi.
Páll Andreasson, kaupfélags-
stjóri á Þingeyri, sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær, að Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna í London hefði útvegað
stúlkurnar. Þær myndu eflaust
hafa mikla þýðingu fyrir frysti-
húsið, því fram til þessa hafa hús-
mæður unnið þar að mestu og
flestar ekki getað mætt fyrir
hádegi. Við spurðum Pál hver
væri ástæðan fyrir þvi að stúlk-
urnar réðu sig til starfa á Islandi
og það yfir kaldasta tfma ársins.
Hann sagði, að stúlkurnar, sem
væru á aldrinum 20—30 ára,
hefðu undanfarið ferðazt um
heiminn, mest Evrópu, og unnið
fyrir sér um leið. Þær hefðu
þekkt nokkuð til Islands og vitað,
Framhald á bls. 20