Morgunblaðið - 31.10.1974, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 31.10.1974, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER 1974 17 Gífurlegt tjón á kornupp- skeru Mexico- manna Mexico City 30. okt. — AP. □ ÓVENJULEGAR frosthörk- ur I septembermánuði virðast hafa gjörsamlega þurrkað út árangur tveggja ára tilrauna- starfsemi kornræktarrann- sóknarstöðvar Nóbelsverð- launahafans Nermans Bor- iaugh nærri Mexico City. Þá hefur kuldinn kostað Mexikó meir en háifa milljón tonna af korni. Visindamenn og sér- fræðingar rfkisstjórnarinnar haf nýiokið athugun á áhrifum frostanna 8. og 9. september í dölunum umhverfis höfuðborg- ina. Jose Guevara Calderon, forstöðumaður tryggingastofn- unar landbúnaðarins, segir, að 600.000 tonn af hveiti og nærri 100.000 tonn af rúgi hafi farið forgörðum. Elztu bændur muna ekki eftir slíkum frostum síðan árið 1917. Fór hitastigið niður í 25 gráður á Fahrenheit tvær nætur í röð, en maðalhitinn þennan mánuð er 46,4 gráður. Robert Osler, aðstoðarfor- stöðumaður rannsóknastöðvar Borlaughs, segir, að tilraunir með ræktun hveitis, sem staðið hafa í tvö ár, hafi verið eyði- lagðar og verði að byrja alveg að nýju. A hinum ýmsu rækt- unarstöðum stöðvarinnar er korntjónið frá 30% og upp í 100%: Þá varð einn af ræktunar- stöðunum illa úti vegna flóða, sem komu í kjölfar Fifi. Allt kornið eyðilagðist, og girðingar og útbúnaður sömuleiðis. Nemur tjónið hátt í hálfa milljón dollara. Heildartjón á kornuppsker- unni í Mexíkó í ár er talið milljón tonn, þar af 200.000 tonn af völdum þurrka og 200.000 tonn af völdum sjúk- dóma. Nemur þetta 10% af heildaruppskeru Mexico. Er þetta tvöfalt tjón miðað við meðalár. Er talið, að þetta leiði til þess, að mexicanar neyðist til að auka korninnflutning til Henry Kissinger hefur verið á ferð og flugi síð- ustu , vikurnar. Eftir hann hafði verið í Sovét- ríkjunum, hélt hann til Indlands og var í gær í Bangladesh. Hér sést hann á fundi með Indiru Gandhi, forsætisráð- herra Indlands. 37 menn drukkna Manila 30. október—AP. ÞRJÁTÍU og sjö manns drukknuðu þegar vatns- flaumur hreif flutningabif- reið þeirra með sér er þeir reyndu að aka yfir fljót eitt, sem var í miklum vexti suður af Manila á Filippseyjum, að því er herinn skýrði frá í dag. Aðeins 13 af farþegunum 50 í bifreiðinni komust lífs af. Vatnavextirnir áttu ræt- ur sínar að rekja til mikilla rigninga undanfarið. 2 frjálslyndir ráðherr- ar látnir víkja á Spáni Madrid 30. okt. Reuter. AP. FJÁRMÁLARÁÐHERRA Spánar, Antonio Barrera de Irimo, sagði af sér í dag, aðeins fáeinum klukku- stundum eftir að Pio Cabanillas Gallas, upplýs- inga- og ferðamálaráð- herra, hafði verið látinn víkja úr starfi. Fjármála- ráðherrann var einnig annar varaforseti landsins. Fóstureyðing- ar lögleiddar í Frakklandi? FRANSKA rfkisstjórnin fóstureyðingu nema I al- samþykkti f gær drög að varlegustu tilfellum. frumvarpi um að lögleiða Báðir voru þeir taldir fremur frjálslyndir og er litið svo á, að þetta sé sigur fyrir öfgasinna til hægri, sem vilja tefja fyrir, að nokkrar umbætur verði í frelsisátt í landinu. Forsætísráðherrann, Carlos Arias Navarro, sagði i dag, að stjórnin myndi ekki hætta við að framkvæma þær umbætur, sem I lofað hefði verið. Hann hefur skipað eftirmenn þeirra og við starfi de Irimo tekur Rafael Ca- bello de Alba, en við embætti ferðamálaráðherra Leon Herrera Estebas. Sérfræðingar segja, að Caban- illas, fyrrverandi ferðamálaráð- herra, hafi komið því i kring á ferli sinum, að ritfrelsi væri aukið ögn og f jármálaráðherrann, , De Irimó, var sagður stuðnings- maður víðtækra umbóta á ýmsum sviðum. Lausn Berlínar- vandamálsins nær Moskvu 30. okt. — Reuter HELMUT Schmidt, kanslari Vest- ur-Þýzkalands, sagði f kvöld, að viðræður hans við Leonid Brezhnev og aðra sovézka leiðtoga hefðu leitt til árangurs til lausnar deilu rfkjanna um stöðu Vestur- Berlfnar, en f gær virtist málið komið f baklás. Kanslarinn átti óvæntan fund með Brezhnev f dag, og kom af honum „kátur“ eins og vestur-þýzkir embættis- menn orðuðu það. Hefði afstaða Sovétmanna verið sveigjanlegri f dag en f gær, en þá átti Genscher utanríkisráðherra Þjóðverja ákafar viðræður við sovézka starfsbróðurinn Gromyko. Ekkert hefur þó verið látið uppi um ein- stök atriði f þessu máli, né heldur um samkomulag um efnahags- samvinnu, sem leiðtogarnir undirrituðu f dag. Schmidt sagði á blaðamanna- fundi í kvöld: „Við náðum árangri varðandi stöðu Vestur- Berlínar,“ en vildi ekki segja meir. Hann hafði frestað för sinni til Kiev vegna fundarins f dag, en hélt þangað í kvöld. Á morgun heldur hann heim til Þýzkalands. Schmidt sagði, að hann hefði boðið bæði Brezhnev og Kosygin til Vestur-Þýzkalands. V ersta mengunar- slys á Irlandi Bantry, Irlandi 30. október — Reuter. BÆÐI andlit fbúanna f hafnar- borginni Bantry og strendur þar eru nú sótsvört vegna versta mengunarslyss f sögu trlands, er 2,7 milljónir lftra af hráolfu runnu úr Whiddy-olíugeymslu- stöðinni við borgina. Andlit fbúanna urðu enn sótsvartari af reiði f gærkvöldi er Gulf- olfuféiagið, sem á geymslu- stöðina, tilkynnti nýjar og hærri tölur um það magn, sem rann f sjóinn, en upphaflega talan var 900 lftrar. „Lftið bara á þetta,“ sagði fiskimaður einn, „þetta er eintóm svört leðja, sem eyði- leggur bæði net og afla. Einhver verður að bera kostnaðinn af þessu“. Slysið varð 22. október, og upp- götvaðist lekinn ekki fyrr en rúm 2,5 tonn af hráolíu höfðu runnið í þennan fallega flóa, sem jafn- framt er stærsta hráolíuhöfn Evrópu. Tjónið er margþætt. Þetta er einn af vinsælustu ferðamanna- stöðum Irlands. Fiskveióar eru atvinna meir en 100 fjölskyldna á þessu svæði, og fuglalífi er einnig stofnað í hættu. Ferðamannatím- anum er að vfsu að mestu lokið, og fuglar höfðu flestir flogið suður f lönd, en tjón fiskimanna er mest. Varaforseti Gulf sagði f dag, að félagið ætlaði ekki að skjóta sér undan ábyrgðinni, heldur reyna að bæta skaðann. fóstureyðingar, sem hing- að til hafa. f orði verið bannaðar f Frakklandi, en hins vegar almennt stund- aðar á borði. Drögin gera ráð fyrir því, að fóstureyð- ing sé leyfð á fyrstu 12 vikum meðgöngutímans af félagslegum, fjárhagsleg- um eða siðferðilegum ástæðum, að því er heim- ildir innan stjórnarinnar hermdu. Að 12 vikum lokn- um yrði fóstureyðing aðeins leyfileg á læknis- fræðilegum forsendum. Frumvarpsdrögin verða tekin fyrir á fundi ríkis- stjórnarinnar allrar 13. nóvember og síðan lögð fram á þinginu. Þar er hins vegar gert ráð fyrir, að frumvarpið mæti mikilli andstöðu stórs hóps gaull- ista-þingmanna, sem alla tíð hafa verið mótfallnir fóstureyðingum. Núgildandi lög, sem eru frá árinu 1920, banna Grípur gullæði um sig meðal bandarísks almennings 1975? BANDARÍSKIR bankamenn eru um þessar mundir að (huga hvernig þeir eigi að bregðast við gullæðinu, sem þeir búast við að gangi yfir Bandarikin á næsta ári. Frá I. janúar næst- komandi verður almenningi ( Bandar(kjunum heimilt að eiga gullstengur, sem mörgum þykir nú lokkandi fjárfesting á okkar verðbólgutfmum. SKkt hefur ekki verið leyft í fjörutfu ár, að því er segir f frétt frá Reutersfréttastofunni frá Honolulu, þar sem ársþing bandarfskra bankastjóra fór fram f sfðustu viku. Þetta var einmitt helzta umræðuefnið á ársþinginu. Grundvallarspurningin, sem bankastjórarnir veltu fyrir sér, var hvort þeir ættu að hafa með höndum gullsölu yfirhöfuð við núverandi aðstæður. Gullið er nú almenn neyzluvara, verðlagt á frjálsum markaði og verðið hefur verið sérlega óstöðugt upp á síðkastið. Ekkert for- dæmi er fyrir gullviðskiptum við slík skilyrði, sem bankarnir geta miðað við, og því eru bankastjórarnir haldnir marg- háttuðum efasemdum. Hins vegar vilja þeir að sjálf- sögðu ekki verða af hagkvæm- um viðskiptum og taki þeir á annað borð þátt í gullæðinu hyggjast þeir hagnýta sér það eftir beztu getu. Eitt af mörgum atriðum, sem þeir velta fyrir sér, er, hvort þeir eigi að heimila notkun gulls sem lánstryggingu fyrir lausafé og hvort nota skuli lánakort (credit cards") við gullkaup. S. Wayne Bazzle, bankastjóri frá Virginíu, var einn þeirra, sem hvatti til þess, að bankar, hæfu gullviðskipti. Hann kvað bankana þurfa að taka þátt i viðleitni viðskiptavina sinna til að spyrna gegn verðbólgunni, og þeir gætu vænzt þess, að gullsala færði þeim nýja við- skiptavini. Einnig gætu bank- arnir boðið viðskiptavinum á leigu geymsluhólf fyrir guilið. Bazzle kvað bankana geta farið inn i þessi viðskipti á tvennan hátt. Annars vegar gætu þeir gerzt spákaupmenn, og náð hæsta hugsanlega gróða með þvi að taka áhættu. Hins vegar gætu þeir gerzt óvirkir þátttakendur í leiknum, og boðið viðskiptavinum þjónustu í þessum efnum, sem með góðri skipulagningu ætti að geta gefið af sér arð. Ýmislegt bendir til, að fólk i sveitum Bandaríkjanna yrðu stærri gullkaupendur en stór- borgarbúar. Athugun, sem gerð var i litilli borg í Virginíu, sýndi, að viðskiptavinir þar ætl- uðu að kaupa 5000 dala verð- mæti í gulli hver að meðaltali, sem nægir fyrir einni gullstöng upp á eitt kíló að þyngd. Bankastjórarnir voru ósam- mála um hversu mikil eftir- spurnin kann að verða, — svo og um hversu mikilli röskun þetta kann að valda á fjármála- sviðinu. Mikið veltur á þvi hvernig almenningi sýnist út- litíð í efnahagsmálum vera um áramótin. Einn bankastjóranna á árs- fundinum i Honolulu, Charles Smith, var sérstaklega von- góður um mikla eftirspurn, og kvaðst vænta gullæðis meðal al- mennings, sem aðeins stæði gullæðinu mikla i villta vestr- inu að baki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.