Morgunblaðið - 31.10.1974, Side 26

Morgunblaðið - 31.10.1974, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER 1974 Minnina: Finnur B. Kristjáns- son rafverktaki F. 6. marz 1913. D. 20. okt. 1974. Þegar sú sorgarfregn barst okk- ur nemendum Finns heitins við Iðnskólann í Reykjavík til eyrna, að hann hefði orðið bráðkvaddur þann 20. okt. slðastliðinn var eins og ský drægi fyrir sólu. Löng stund leið áður en nokkur mælti orð frá vörum, svo óvænt og átakanlega barst okkur þessi frétt. Við blátt áfram neituðum að trúa því, að við ættum ekki eftir að sjá hinn glaðlega og broshýra kennara ganga léttum og mjúkum skrefum inn I kennslustofuna á hverjum morgni og eiga ekki eftir að heyra hina hlýju og vingjarn- legu rödd hans, er hann bauð okkur glaðlega góðan daginn. Finnur var sérlega vinsæll kennari meðal nemenda sinna. Hann var með afbrigðum hjálp- samur og alltaf reiðubúinn að veita nemendum sínum aðstoð ef þeir lentu í vandræðum með verk- efni sín. Hann var maóur ákveð- inn og gæddur mikilli ábyrgðartil- finningu og kom ætíð fram við okkur sem jafningja. Við vottum hans nánustu ættingjum okkar dýpstu samúð. Nemendur f framhaldsdeild S/F við Iðnskólann I Reykjavfk. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á f miðvikudagsblaði, að berast f sfðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfs- formi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu Ifnubili. Kveðja frá rafverktökum. Þegar vinir og kunningjar falla frá, verður þeim, sem eftir lifa, fyrst ljóst, að þeir samfylgdar- menn, sem næstir ganga á lffsleið- inni, eru svo samgrónir hinu dag- lega umhverfi og svo sjálfsagður þáttur í tilverunni, að þeim er kannski veitt minni athygli en þeim, sem fjær standa, enda fer svo er þeir hverfa að lfkast er sem ský fyrir sólu dragi. Finnur B. Kristjánsson var einn þeirra manna, sem áttu gott með að aðlagast fólki, en skar sig úr vegna góðra hæfileika og frjáls- legrar framkomu, sem bar þess ljósan vott, að á yngri árum var hann mikill íþróttamaður og tók m.a. þátt í fimleikasýningum. Hér munu ekki rakin upp- vaxtarár Finns, enda öðrum kunnara frá að segja, fremur mun hér drepið á þau ár, er hann vann að iðn sinni og starfaði að félags- málum. Hann var við rafvirkjanám hjá Eiríki Hjartarsyni 1933—37, en þau ár voru sannarlega engin sældarár í atvinnulífi þjóðarinn- ar, einkum þó þegar þau eru bor- in saman við áratuginn, sem á eftir fór. Flestir, sem þakktu þetta tíma- bil atvinnuleysis og örbirgðar, munu hafa tekið góðu árin, sem á eftir fóru, með nokkrum fyrir- vara og ekki trúað því, að slík umskipti yrðu á högum manna, að sfðan hafi þjóðin lifað því lífi, sem aðeins bjartsýnustu menn gerðu sér vonir um að þessu lífi loknu. Þessir erfiðu tímar höfðu þó sínar björtu hliðar og vart mun sá skóli til vera, er veitt getur meiri þroska og skilning á mannlegum vandamálum, en slík lífsreynsla veitir. Kjör iðnnema voru á þessum árum á margan hátt öðruvísi en þau eru í dag, þau voru hlutfalls- lega lakari og tekjumöguleikar minni, en þá var öldin önnur og ekki til siðs að kveina og kvarta. Margar skemmtilegar minning- ar átti Finnur frá námsárunum, enda var honum tamara að halda á loft þvf góða og greinilegan hlý- hug bar hann til meistara síns, Eiríks Hjartarsonar. Námsárin voru Finni léttari en mörgum öðrum, því hann átti því óskar eftir starfs fólki í eftirtalin störf: ul AUSTURBÆR Kjartansgata, Þingholtsstræti, Skólavörðustígur, Úthlíð Laufásvegur 2 — 57, Freyjugata frá 1 —27, Grettisgata frá 2 — 35, VESTURBÆR Vesturgata 3—45. Nýlendugata ÚTHVERFI Vatnsveituvegur, Fossvogsblett- ir, Selás. SELTJARNARNES Miðbraut. Upplýsingar í síma 35408. KÓPAVOGUR Hjallahverfi ARNARNES Blaðburðarfólk vantar FLATIR Blaðburðarfólk óskast. Upp/ýsmgar í síma 52252. Seyðisfjörður Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið. Uppl. gefur Guðjón R. Sigurðsson í síma 2429 eða afgreiðslan í Reykja- vík, sími 10100. láni að fagna að hafa áður gengið í Gagnfræðaskóla Reykvíkinga og gat af þeim sökum stytt iðnskóla- námið um tvö ár, en slfkt var mikils virði í þá daga þegar setið var á skólabekk hvert kvöld að loknum vinnudegi og þvi lftill timi aflögu til annars. Þótt Finnur væri sístarfandi og f mörgu að snúast fékk hann fljót- lega áhuga á félagsmálum og þeg- ar að loknu sveinsprófi varð hann virkur þátttakandi i samtökum rafvirkja og um tíma formaður Félags islenzkra rafvirkja, en á þeim vettvangi hélt hann vel á málum stéttarbræðra sinna á sama hátt og hann hélt á málstað rafverktaka er hann settist hinum megin við samningaborðið. Sama árið og seinni heims- styrjöldin braust út, réðst Finnur til Halldórs Ólafssonar, en Halldór var virkur fagmaður, sem hafði aflað sér staðgóðrar þekk- ingar á viðgerðum tækja og véla. Með þessum vistaskiptum mun Finnur fyrst og fremst hafa haft í huga að auka við þekkingu sfna, en hjá Halldóri kom hann ekki að tómum kof anum og þar fékk hann viðfangsefni, sem voru honum mjög að skapi og lögðu grunn að þeirri þekkingu, sem varð honum nauðsynleg við þau verkefni, er hann lagði mesta rækt við sfðar, en það voru m.a. viðgerðir og við- hald tækjabúnaðar í verksmiðjum og prenthúsum. Hjá Halldóri var Finnur í þrjú ár eða til ársins 1942, en það ár gekk hann að eiga Svanhildi S. Thorlacius og verða þá greinileg straumhvörf í lífi hans, tilveran verður bjartari og fer að hafa meiri tilgang, enda voru þau hjón samhent i flestu og svo mikið hvort fyrir annað að fátítt mun vera. Svo sem vænta mátti af kapps- fullum manni, fór Finnur nú að huga að því að koma undir sig fótunum sem sjálfstæður atvinnu- rekandi, en um þetta leyti hafði atvinnuleysi gjörsamlega verið útrýmt, enda miklu til kostað þeg- ar til þurfti heimsstyrjöld og erlendan her, gráan fyrir járnum. Voru nú þau umskipti orðin, að eftirspurn eftir vinnuafli var margfalt meiri en framboð og reyndi nú á útsjónarsemi og hag- sýni við framkvæmdir, ekki fyrst og fremst til að spara peninga, heldur vinnuafl. Sama árið og Finnur kvæntist Svönu, fékk hann löggildingu Rafmagnseftirlits ríkisins, en um verktakaleyfi f Reykjavík sækir hann ekki fyrr en 1946, enda hafði hann þá i millitfðinni átt aðild að hlutafélagi um rekstur rafverktakafyrirtækis, en slík sameign var honum ekki að skapi og varð það því úr, að hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki, sem hann rak undir sfnu nafni. Heimilið og börnin voru að sjálfsögðu sá þáttur tilverunnar, sem var öllu öðru mikilvægara og fljótlega tók fjölskyldan aó stækka. Fyrst kom Marta og sfðan Kristján, Guðfinna og Kristín, en síðastur kom Þorleifur. Barnahópurinn varð nokkuð stór á nútfmamælikvarða, en sam- hugur þeirra hjóna leysti öll þau vandamál, sem stórri fjölskyldu fylgja og þegar þörf varð fyrir rúmgott heimili, reisti Finnur þeim hús að Nökkvavogi 60. Þar bjó Svana fjölskyldunni gott heimili, sem þau hjónin hlúðu að sem best þau máttu, enda var þar glaðværð og gott heim að sækja. Af félagsmáium rafverktaka hafði Finnur fljótt talsverð af- skipti. Glaðværð hans og dans- áhugi gerðu það að verkum, að hann var ómissandi skemmti- nefndarformaður um langt árabil, en auk þess voru honum falin önnur alvarlegri trúnaðarstörf, þar á meðal formennska f nefnd þeirri, er sér um sveinspróf, og mun það verkefni hafa verið hon- um mjög að skapi. Það var þó ekki fyrr en 1957, sem Finnur gaf sér tíma til að taka þátt i stjórn rafverktaka- félagsins, en þau 16 ár, sem hann sat í stjórn þess félags, vann hann að málum stéttarinnar af kost- gæfni og áhuga og lét ekki á sig fá þótt störfin væru tímafrek og reyndu á þolinmæðina. Fyrir þann tíma, er hann fórnaði í þágu stéttarbræðra sinna, eru þeir honum þakklátir og minnast hans sem góðs félaga, sem var jafn fús til að taka þátt í glaðværð og úrlausn erfiðra vandamála. Siðasta árið, sem Finnur var í stjórn Félags löggiltra rafverk- taka í Reykjavík var hann for- maður félagsins og gegndi því Amerískar Vinnufatabúðin, Laugaveg 76, sími 15425. Hverfisgötu 26, sími 28550. Hafnarstræti 5. Sendum í póstkröfu. starfi af alúð, þótt þá væri sem lífskraftur hans fjaraði út, er hann missti Svönu, sem átt hafði við mikil veikindi að stríða síð- ustu tvö árin, en hún lést I maí 1972. Finnur hafði ekki hátt um sár- sauka sinn vegna fráfalls konu sinnar, en nú átti hann einnig sjálfur við vanheilsu að stríða og skömmu eftir lát Svönu lést faðir hans, Kristján H. Bjarnason, sem orðinn var háaldraður, en hann hafði búið á heimili þeirra hjóna í mörg ár eftir lát konu sinnar, Mörtu Finnsdóttur. Á sfðastliðnu ári hætti Finnur rafverktakastarfsemi og hóf að kenna við Iðnskólann í Reykjavík og var kennslan þar honum mjög að skapi, enda átti hann þar góða samstarfsmenn, sem hann mat mikils. Við þetta starf komu honum að góðu haldi hæfileikar hans til að umgangast fólk og sú löngun, sem alltaf hafði f honum búið að hlúa að iðnnáminu, en hann hafði af miklu að miðla því fagmaður var hann góður. Finnur er ekki lengur á meðal okkar, hann kvaddi þennan heim í hópi félaga og vina í 25 ára afmælishófi Landssambands ís- lenzkra rafverktaka, sem hann hafði sjálfur átt þátt í að stofna. Þótt hann sé horfinn er svo margt, sem hann átti hlut að í sambandi við störf okkar og starfsgrein, að minning hans mun lengi lifa. — Drápsfýsn Framhald af bls. 23 vilja viðurkenna það eða ekki. Það er þessi tilfinning að sigrast á veiðibráðinni, sem fullkomnast með dauða hennar, sem gagn- tekur veiðimanninn. Þetta er sú sama frumstæða hvöt, sem f styrj- öld getur gert hermanninn að óðu villidýri. En þó að mikill munur sé á milli drápsfýsnar hermanns, sem drepur og myrðir aðra menn að nauðsynjalausu og svo rjúpna- skyttu, sem drepur fugla að nauð- synjalausu, þá er þar um stigs- mun að ræða en ekki eðlismun. En hinn morðóði hermaður hefur afsökun, styrjaldaræðið hefur ruglað allt mat hans á verð- mætum og siðalögmálum lífsins, en sportveiðimaðurinn, sem stundar hið ónauðsynlega dýra- dráp sitt i skjóli siðmenntaðs og friðsams þjóðfélags, i skjóli vel- megunar og farsældar, hver er afsökun hans? Góðir landsmenn, ég skora á ykkur að sýna hvern hug þið berið til svokallaðra sportveiði- raanna, verið ekki feimnir við að sýna þeim fyrirlitningu ykkar. Góðir bændur, bægið sport- veiðimönnunum burt frá landi ykkar og verið þess minnugir, að mikill er þar raunur á, hvort menn lóga dýrum af illri nauðsyn eða hvort menn drepa þau sér til skemmtunar. Kjartan Norðdahl. 2HoröimI)íabit> MARGFALDAR mmm MARGFALDAR IMaWM'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.