Morgunblaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.12.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1974 11 Ódýrar, skemmtilegar og f róðlegar bækur FAÐIR MINN VJArUn (MtUr-MM'MMtiKM oy 'uwin Ixkno. »kra«:r sf bðnnito fcónro. t:>» )x*>a mot.n my:i4n9u« oasm • lr <« nvKtor *ds:tr, — inefr ur'k. liýklíaaf.oivrsonor J**-- Faðir minn — Læknirinn Bjarni Jensson — Skúli Árnason — Sigurður Magnússon — Guðmundur Hannesson — Ólafur Finsen — Ólafur Thorlacius — Ingólfur Gislason — Þórður Sveinsson — Matthias Einarsson — Ólafur Ó. Lárusson — Guðmundur Thoroddsen — Helgi Tómasson — Har- aldur Jónsson — Gisli Pálsson. — Lesið þessa skemmti- legu læknabók. Þeir urðu margir þjóðsagnapersónur þegar t lifanda Itfi, þessir læknar. W Jakobína Sigurðardóttir: Lifandi vatnið Skáldsagan, sem mun verða talin skáldsaga ársins 1974. Gnæfandi tindur á skáldskaparferli höfundarins, bók. sem enginn unnandi fslenzks skáldskapar getur látið fram hjá sér fara ólesna. — Svona er hægt að skrifa ef maður kann til þess. JAKOBlNA sigurdardOtttr ■ , i > ... . RAG N H EI Ð U R BRYNJÓLF S DÓTTIR FRÁ MIOILSSAMBANOI GUOR0NAR Sl GU RÐAR DÓTTUR Ragnheiður Brynjólfsdóttir II. bindi Frá miðilssambandi Guðrúnar Sigurðardóttur frá Akureyri Bókin um Ragnheiði Brynjólfsdóttur varð metsölubók sfðasta árs þrátt fyrir óvenjulegt og ósmekklegt nið ákveðins ritdómara. Sfðara bindið er að allra dómi enn skemmtilegra en hið fyrra og sala þess stefnir beint á tindinn. — Hefur þú eignast síðara bindið af Ragnheiði? Ef ekki, þá frestaðu ekki að kaupa þessa óvenjulegu bók, hún gæti hæglega selst upp fyrir jólin. Elínborg Lárusdóttir: Leit mín að framlífi Fjölþættar frásagnir af dulrænni reynslu höfundarins, sýnum hennar og dulheyrn. Hér segir einnig frá óvenju- legri reynslu hennar á sérstæðum miðilsfundum, fágætri trúarvissu og staðfastri sannfæringu um fagurt framlff að jarðvist lokinni. Þetta er fögur bók og einlæg frásögn mikillar trúkonu. LEITMIN ftÐ. FRAMLIFI ELÍNBORG L/\RUSDOTTIR VALGI'.IK SIGURDSSON h í ÆM Valgeir Sigurðsson: Ef liðsinnt ég gæti Fimmtán viðtöl við landskunna menn og aðra minna þekkta. „Stundum leitaði ég eftir æviatriðum manna og lýsingu á horfinni tið. . . Sumir ræddu um tómstunda- vinnu sfna og hugðarefni, aðrir töluðu um vandamál og viðfangsefni líðandi stundar. Hér er jafnvel sagt frá vísindalegri starfsemi", segir höfundurinn í formála. — Þessi bók eykur viðsýni og skilning, hún er stórf róðleg og skemmtileg. Ragnar Ásgeirsson: Skrudda I—III Nú er lokabindið af Skruddu komið, fjölbreytt að efni og skemmtilegt. Skrudda geymir sögur, sagnir og kveðskap úr öllum sýslum landsins, skráðar á fögru máli, þvi Ragnar var smekkmaður á fslenzkt mál, sjófróður og skemmtilegur sögumaður. í þessu bindi er bókarauki: bernskuminningar Ragnars vestan af Mýrum, sýnishorn af Ijóðabréfum hans og lausavísum og ritgerð um Ragnar eftir Guðmund Jósafatsson frá Brandsstöðum, auk ítar- legrar nafnaskrár yfir öll bindin. Úlfar Þormóðsson: r Akæran. Sóknarnefndin gegn séra Páli „Ákæran getur minnt á Kristnihald undir Jökli: biskup i Reykjavík, prestur í þorpi úti á landi. Frásagnaraðferðin er hins vegar nær Gunnari og Kjartani Vésteins Lúðvíks- sonar..." — Erlendur Jónsson í Morgunblaðinu. — Þessi bók vekur umtal og kann jafnvel að hneyksla suma. Eruð þérá bandi prestsins eða sóknarnefndarinnar? ÚLFAB ÞORMÓOSSON ÚLFAR ÞOftMÓDSSON / ÁKÆRAN SÓKNARNEFNDIN GEGN , SÉRA / PÁLI ' Oscar Clausen: Sögn og saga III í þessu lokabindi þessa sagnaflokks segir m.a. frá hestum höfundarins, en hann var mikill hestamaður og hestaunn- andi og hafði samband við marga með sömu áhugamál. Auk þess eru hér ýmsir aðrir fróðlegir og skemmtilegir þættir vfðsvegar að af landinu. — Bók hestamanna og þeirra, sem þjóðlegum fróðleik unna. f ínénrsm Mftn n { Itttlií 8C llíllfW. SlGVALDl HJALMARSSON • TUNGLSKIN i TRJANUM ■Skonuoiiloit og i’rMleir fotðabAk fráhuuiiiuvbtnðnuioa. IMIUkiU og lovfcitýr»leg frtoogi: urn undra- | hrlin*, furður oif InýTldonlóra* SKU6GSJÁ Sigvaldi Hjálmarsson: Tunglskin í trjánum Enginn íslendingur þekkir Indland og Indverja eins og Sigvaldi, sem hefur ferðast um landið þvert og endilangt, rölt um þorp og byggðir, rætt við krakka og karla, helga menn og vitringa, hlýtt á skarkala stórborgarlffsins og gefið sig þögninni á vald með hinum þöglu. Þetta er heillandi ferðabók. sem opnar sýn inn i töfrandi undra- heim. INGÓLFUR JÓNSSON 5 -1 FRÁ PRESTSBAKKA IjÖíkiaC- ^oqrár Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka: Þjóðlegar sagnir Hér kveður við nýjan tón í sagnasöfnun, margar sögurnar eru sérstæðar og óvenjulegar og sumar meinfyndnar. Höfundur hefur víða leitað fanga, mest þó meðal alþýðu- fólks, en helztu sögumenn hanseru Steinunn Guðmunds- dóttir á Stóru-Hvalsá f Hrútafirði, Ingibjörg Guðmunds- dóttir á Efri-Brunná f Dalasýslu og Jón Guðlaugsson á Vopnafirði. Peter Freuchen: Æskuár mín á Grænlandi Ný og vönduð þýðing Andrésar Kristjánssonar fyrrum ritstjóra. Þessar Grænlandsminningar Freuchens eru meðal skemmtilegustu ferðaminninga, sem skráðar hafa verið. Þeir, sem ekki hafa kynnst frásagnarsnilld hans og sérstæðri og djarfri kímnigáfu og eiga þessa bók ólesna, eru öfundsverðir, þvf bókin er í einu orði sagt: óviðjafnan- leg. Jón Gíslason: Úrfarvegi aldanna II Hér er sagt frá fyrirhleðslunni miklu á Brúnastaðaflötum og koma þar margir merkir og stórhuga menn við sögu, en hæst ber nafn Gisla búfræðings Gfslasonar frá Bitru, sem gerði áætlun um verkið og stjórnaði því. Sagt er frá byggingu Þjórsárbrúarinnar, gagnmerkum áfanga I sam- göngumálum þjóðarinnar, þáttur er um loðnusilunginn í Úlfsvatni og annar um kálfinn f Gegnishólum og eru þeir báðir sérstæðir og furðulegir. Loks er frásögn af spá- dómsgáfu fugla og eggjasöfnun. JÓN GÍSLASON ® TJR PARVEGI i AST OC v ''W'; ÆTTA R BÖNO Theresa Charles: r Ast og ættarbönd Roberta var orðin liðlega tvítug þegar Maynie sagði henni söguna af ógnum Kelpiesloch og því, hvernig hún rændi henni sem ungu barni og hratt barnavagni hennar út í vatnið. Hún var að hefna sín á gamla jarlinum og konunni, sem hafði náð eiginmanni hennar frá henni. En yrði sögu Robertu trúað, þegar hún kom sem væntan- legur erfingi, eða gat hún átt von á að verða næsta fórnarlamb vatnsins? — Æsispennandi ástarsaga. FARSÆLDAR RÍKIÐOG MANNGILDIS STEFNAN Kristjánffiðriksson Krístján Friðriksson: Farsældarríkið og manngildisstefnan Karl Kristjánsson fyrrum alþingismaður segir um bókina: „Tillögur hans eru grundvallaðar á þeirri Iffsskoðun, að hver maður hafi skyldur að ynna eftir því, sem hann hefur getu til frá skapara sfnum, en eigi jafnframt heimtingu á að njóta réttlætis, mildi og mannhelgi. Bókin er höfundi til mikils sóma. Manndómlegt framlag mikils Iffsáhuga- manns. ." — Þetta er bók fyrir áhugamenn um félagsmál og pólitík. Þeir verða e.t.v. ekki sammála Kristjáni, en þeir verða að lesa bókina. Barbara Cartland: Týndir töfrar I skóginum hjá sveitarsetri sfnu hittir Alton lávarður unga konu. Hún er fögur og leyndardómsfull og neitar að skýra f rá hver hún er. En þegar hún trúir honum fyrir því að hún sé skyggn. biður hann hana að líta inn f framtfðina fyrir sig. Hún segir honum að kona muni leggja fyrir hann snöru, að hann eigi að leita að persónu, sem hann finni ekki og að framundan sé myrkur og blóð, — mikið blóð. . . — Saga full af leyndardómum og spennu. @rirrlan<J Jljráir íofrar íslendinga sögur með nútíma stafsetningu Nú eru allar islendinga sögur og þættir komnar út f 8 bindum á því máli, sem við ritum og tölum í dag. Er þetta eina heildarútgáfa sagnanna á nútfmamáli og geta þvf allir ísiendingar, jafnt ungir sem aldnir, notið sagnanna til fulls. ...ritháttur skiptir f raun og veru máli — það fer ekki hjá þvi að hinn gamli, samræmdi ritháttur var fráhrind- andi að ýmsu leyti. ekki sízt ungu fólki", segir Árni Bergmann f ritdómi. ÍSLKNZKAK FORNSÖGUR ÍSL^Þin^A Ult Skuggsjá — Bókabúð Olivers Steins — Hafnarf irði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.