Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 19
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975
19
Leikir
1 janúar
Fæöing nýrrar mótaskrár
HSÍ — þ.e.a.s. fyrir þann hluta
íslandsmótsins sem eftir er
viröist ganga heldur erfiðlega,
enda víst örugglega hægt að
segja þaö með sanni að annað
en spaug sé að koma hinum
mikla leikjafjölda fyrir í þau
fáu hús sem rúma handknatt-
leikskeppni á höfuðborgar-
svæðinu.
Á sunnudaginn birti móta-
nefnd niðurröðun sína á leikj-
um fram til 22. janúar n.k., en
fyrir þann tíma er ætlunin að
koma út endanlegri mótaskrá.
Verða leikir í meistaraflokki
sem hér segir:
é'
v
I. DEILD:
Miðvikudagur 8. janúar.
Hafnarfjörður:
Kl. 20.15: Grótta — Víkingur
Kl. 21.30: FH — Fram
Sunnudagur 12. janúar —
Laugardalur
Kl. 20.15: Armann — Haukar
Kl. 21.30: Valur — IR
Miðvikudagur 15. janúar —
Laugardalur:
Kl. 20.15: Víkingur — Fram
Kl. 21.30: Ármann — IR
Sunnudagur 19. janúar —
Hafnarfjörður:
Kl. 20.15: Grótta — Valur
Kl. 21.30: Haukar — Fram
Þriðjudagur 21. janúar —
Laugardalur:
Kl. 20.15. IR — FH
Kl. 21.30: Víkingur — Ármann
# ♦
II. DEILD:
Miðvikudagur 8. janúar —
Laugardalur:
Kl. 20.15: Fylkir — IBK
Kl. 21.30: KR — UBK
Laugardagur 11. janúar —
Akureyri
Kl. 15.30: Þór — KA
Laugardagur 11. janúar —
Garðahreppur:
Kl. 17.15: Stjarnan — Fylkir
Sunnudagur 12. janúar —
Njarðvík
Kl. 17.00: IBK — Þróttur
Miðvikudagur 15. janúar —
Garðahreppur:
Kl. 20.00: Stjarnan — KR
Sunnudagur 19. janúar —
Garðahreppur:
Kl. 17.05: Stjarnan — ÍBK
Miðvikudagur 22. janúar —
Laugardalur:
Kl. 20.15: KR — Stjarnan
Kl. 21.30: Fylkir — UBK
• *
V#
I. DEILD KVENNA:
Miðvikudagur 8. janúar —
Hafnarf jörður
Kl. 19.15: FH — Fram
Laugardagur 11. janúar —
Laugardalur:
Kl. 15.30: Víkingur — Þór
Kl. 16.30: KR —Ármann
Sunnudagur 12. janúar —
Garðahreppur:
Kl. 14.00: UBK — Þór
Sunnudagur 12. janúar —
Laugardalur:
Kl. 19.15: Valur — Fram
Þriðjudagur 21. janúar —
Laugardalur:
Kl. 19.15: Ármann — Valur
Stefán Gunnarsson hefur fengið sendingu inn á línuna frá Ólafi H. Jónssyni, en fær óblíðar viðtökur hjá Jens Jenssyni. Aðrir á myndinni eru Jón Astvaldsson (nr. 8), Björn Jóhannesson (nr. 4),
Hörður Kristinsson, Hreinn Halldórsson og Steindór Gunnarsson.
Gí sli kom V alsvélinni í gang
og Ármann átti enga möguleika
Valsmenn brugðu upp spari-
andliti sínu, er þeir mættu Ár-
menningum í 1. deildar keppni
Islandsmótsins í handknattleik í
LaugardalshöIIinni á sunnudags-
kvöldið. Allt frá upphafi leiksins
til enda var það Valur sem valdið
hafði, og miðað við gang leiksins
var níu marka sigur liðsins,
22—13, sízt of stór. Þessi munur
er sá mesti sem orðið hefur í leik
liða það sem af er keppnistíma-
bilinu, og mun stærri en flestir
áttu von á. Skýringin á því liggur
í tvennu: Valsmenn léku nú betur
en þeir hafa gert í mótinu til
þessa, og Ármenningar voru ekki
nema svipur hjá sjón, miðað við
það hvernig þeir hafa verið þegar
þeim hefur tekizt bezt upp.
Það sem öðru fremur breytti
svip Valsliðsins í þessum leik var
afturkoma Gísla Blöndal á fjalirn-
ar, en hann hefur verið lengi frá
vegna meiðsla. Þótt Gísli sé ekki
búinn að ná sér fullkomlega, olli
hann gífurlegum usla í Ármanns-
vörninni, og auk þess að skora
mörk opnaði hann hvað eftir ann-
að vel fyrir félaga sína með
ógnunum. Það sem helzt hefur á
skort í leik Valsmanna i vetur er
meiri ógnun í sóknarleiknúm —
raunar hefur það verið Ölafur H.
Jónsson sem hefur verið eini leik-
maður liðsins sem verið hefur
verulega hættulegur, og hefur
það auðveldað andstæðingunum
mjög vörnina. Núna þurftu
Ármenningar að hafa sig alla við
til þess að reyna að stöðva Ólaf og
Gísla og opnaðist vörn þeirra oft
illa, er komið var út á móti þeim
félögum. Auk þess var svo miklu
meiri baráttukraftur í Valsliðinu
í þessum leik en verið hefur, —
hreyfanleikinn var góður bæði í
sókn og vörn, og það sem liðið
ætlaði sér að gera tókst greinilega
hvað eftir annað. Komu sum Vals-
markanna í þessum leik, eftir
mjög skemmtilegan undirbúning,
en slík mörk setja jafnan mikinn
svip á leikina, og eftir þeim hefur
verið beðið í hinum fremur svo
tilbreytingarlitla handknattleik
sem íslenzku liðin hafa sýnt í vet-
ur.
Nái Valsmenn að halda því
striki sem liðið virðist komið á, er
óhætt að spá því að það verði i
baráttunni um Islandsmeistara-
titilinn í ár, jafnvel þótt stigin sex
sem liðið hefur tapað verði því
erfiður þrándur í götu.
Ármannsliðið náði sér aldrei á
strik í þessum leik. Sennilega hef-
ur hraöi Valsmanna og ógnun
þegar í upphafi leiks, komið
Ármenningum í opna skjöldu, og
þeir náðu aldrei þeim hreyfan-
leika í vörn sina, sem öðru fremur
hefur fært liðinu þau stig sem það
hefur þegar krækt í. Leik-
mennirnir virtust fremur þungir,
og strax og Valsmenn höfðu náð
góðri forystu virtust þeir missa
móðinn að verulegu leyti. Hvað
eftir annað létu þeir Valsmennina
blekkja sig illa, þannig að vörnin
galopnaðist, og oftsinnis voru
Ármenningar líka sekúndubrot-
inu of seinir að hindra skot Vals-
mannanna. Við þetta bættist svo
að Ragnar Gunnarsson, markvörð-
ur liðsins, sem sýnt hefur mjög
góða leiki með liðinu það sem af
er keppnistímabilinu, var greini-
lega ekki í sínu bezta formi.
Vissulega átti hann í vök að verj-
ast i þessum leik, þar sem Vals-
mennirnir komust oft í góð færi,
og langskot þeirra voru bæði föst
og leiftursnögg.
Það var helzt þegar líða tók á
leikinn að Ármenningar náðu sér
svolítið á strik, mest þó vegna
þess að þá hægðu Valsmenn ferð-
ina, og fóru að gera ýmsa hluti,
sem ekki sást til þeirra meðan
forskotið var að skapast.
Sem fyrr greinir áttu þeir Ólaf-
ur og Gísli mjög góðan leik að
þessu sinni, en þeir Jón Breið-
fjörð, Stefán Gunnarsson og
Gunnsteinn Skúlason komust
einnig vel frá leiknum. Gunn-
steinn er nú greinilega að ná sér á
strik, eftir greinilegt leikleiða-
tímabil og munar um minna en
þegar hann kemst í sitt bezta
form. Jón Karlsson, leikmaðurinn
sem skaut FH í kaf á dögunum,
var hins vegar lítt áberandi í þess-
um leik. Virðist Jón einhvers
konar jó-jó í Valsliðinu. Á öðru
hverju algjöra stjörnuleiki, en
dettur þess á milli niður í meðal-
mennskuna, og vel það.
I STUTTU MÁLI:
islandsmótið 1. deild
Laugardalshöll 5. janúar
URSLIT: VALUR — ARMANN
22—13 (14—5)
Gangur leiksins:
Mín. Valur Ármann
5. Jón K. 1:0
6. Ólafur 2:0
10. ólafur 3:0
11. Ólafur 4:0
11. 4:1 Kristinn
12. Stefán 5:1
12. 5:2 Jens
14. Ólafur 6:2
18. 6:3 Hörður H
20. Ólafur 7:3
21. Gfsli 8:3
23. 8:4 Hörður K.
23. Gfsli 9:4
25. Ólafur 10:4
26. Gunnsteinn 11:4
27. Gísli 12:4
29. Gísli 13:4
30. Stefán 14:4
30. 14:5 Björn
Hálfleikur
31. 14:6 Hörður K.
31. Gfsli 15:6
37. Steindór 16:6
40. 16:7 Pétur (v)
41. Geir 17:7
42. Steindór 18:7
46. Gunnsteinn 19:7
LIÐ VALS: Jón B. Olafsson 3, Karl Jónsson 1, Gísli Biöndal 4,
Jón Karlsson 1, Geir Þorsteinsson 1, Gunnsteinn Súlason 2,
Bjarni Guðmundsson 2, Stefán Gunnarsson 3, Steindór
Gunnarsson 2, Óiafur H. Jónsson 4, Jón P. Jónsson 1, Ólafur
Guðjónsson 1.
LIÐ ÁRMANNS: Ragnar Gunnarsson 1, Olfert Naabye 1, Björn
Jóhannesson 1, Ragnar Jónsson 1, Hörður Harðarson 2, Pétur
Ingólfsson 2, Jón Astvaldsson 2, Jens Jensson 1, Hörður
Kristinsson 3, Kristinn Ingólfsson 1, Skafti Halldórsson 2,
Hreinn Halldórsson 1.
46.
47. Jón J.
52.
54.
54.
55. Bjarni
56.
57. Gunnsteinn
19:8 JónA(vfti)
20:8
20:9 Björn
20:10 Jón A
20:11 Hörður K.
20:12 Jón A (v)
21:12
21:13 Pétur
22:13
Mörk Vals: Ólafur H. Jónsson 6,
Gísli Blöndal 5, Gunnsteinn
Skúlason 3, Stefán Gunnarsson 2,
Jón H. Karlsson 1, Geir Þorsteins-
son 1, Jón P. Jónsson 1.
Mörk Ármanns: Hörður
Kristinsson 3, Jón Ástvaldsson 3,
Björn Jóhannesson 2, Pétur
Ingólfsson 2, Jens Jensson 1,
Kristinn Ingólfsson 1.
Brottvísanir af velli: Gisli
Blöndal og Jón H. Karlsson, Vai í
2 mín. Olfert Naabye, Ármanni í 2
min.
Misheppnuð vftaköst: Ragnar
Gunnarsson varði vítakast frá
Jóni Karlssyni á 18. min., Skafti
Halldórsson varði vítakast Bjarna
Guðmundssonar á 60. mín. Jón
Breiðfjörð varði vítakast Harðar
Harðarsonar á 15. mín., og víta-
kast frá Pétri Ingólfssyni á 45.
mín. Gísli Blöndal átti vitakast í
stöng á 52. mín.
Dómarar: Björn Kristjánsson
og Óli Olsen. Þeir dæmdu leikinn
mjög vel.
Gísli Blöndal lék nú aftur með Valsliðinu eftir nokkurt hlé, og komst
mjög vel frá leiknum. Þarna er hann að skora eitt marka sinna.
Grótta marði sigurinn
í skotkeppni við ÍR
ÞAÐ duldist engum sem horfði á
viðureign ÍR og Gróttu f 1. deild-
ar keppni lslandsmótsins í hand-
knattleik f Laugardalshöllinni á
sunnudagskvöldið, að þarna voru
á ferðinni botnliðin í deildinni.
Það eina sem þessi leikur hafði
við sig var það, að hann var allan
tfmann mjög spennandi, og þó
aidrei eins og undir lokin. Fór svo
að Seltjarnarnesliðið vann sigur
25—24, og sitja iR-ingar þar með
einir og yfirgefnir á botninum í
deildinni, hafa aðeins eitt stig
hlotið, og því náðu þeir raunar
gegn því liði sem hingað til hefur
tapað fæstum stigum í keppninni:
Fram.
Mörkin 49 sem skoruð voru í
þessum leik segja sína sögu um
hvernig hann var, en þó ekki alla,
þar sem ótal skot fóru forgörðum
á báða bóga. Var oft um hreina
skotkeppni milli liðanna að ræða.
Strax og komið var að vörninni
var reynt og margsinnis stóðu
sóknirnar ekki nema nokkrar
sekúndur í leiknum. Verður að
virða liðunum það til vorkunnar
þótt margvísleg skot væru reynd,
þar sem varnarleikurinn var i al-
gjörum molum og markvarzlan
slík, að skot sem voru ekki fastari
en venjulegar sendingar höfnuðu
í markinu. Var i þessu fullkomið
jafnræði með liðunum.
Ef undan er skilinn kafli i fyrri
hálfleiknum hafði Grótta betur i
leiknum. Þó var staðan 21—21,
þegar 8 mínútur voru til leiks-
loka, og fengu ÍR-ingar þá gullið
tækifæri til þess að ná forystunni
er Gunnlaugur Hjálmarsson
„fiskaði“ vítakast. En Vilhjálmi
brást bogalistin í vitakastinu og
fór skot hans i stöng og út, og í
næsta upphlaupi náði svo Grótta
að skora. Einu marki munaði
þegar 3 mínútur voru til leiksloka
og fengu iR-ingar þá tvivegis
tækifæri til þess að jafna, en
misstu þau fyrir furðulegt bráð-
læti sitt og þegar Atli Þór Héðins-
son skoraði 24. mark Gróttu mín-
útu fyrir leikslok með skoti úr að
því er virtist algjörlega vonlausu
færi, voru úrslit leiksins ráðin, og
fyrsti sigur Gróttu i 1. deildar
keppninni i höfn.
Sennilega er þetta slakasti
leikur beggja liðanna á þessu
keppnistímabili, og sérstaklega
gerðu iR-ingarnir sig seka um
mistök á mistök ofan. Hefur liðið
valdið miklum vonbrigðum í vet-
ur. Flestir áttu von á því að það
myndi blanda sér í baráttuna á
toppnum, undir stjórn hins ágæta
þjálfara Þórarins Eyþórssonar, og
liðið hóf einnig æfingar fyrr en
sum hinna 1. deildar liðanna. En
ÍR-ingar hafa aldrei náð verulega
vel saman í vetur, nema í fyrri
hálfleiknum á móti Fram, er liðið
sýndi einu sinni hvers það er
megnugt. Má mikið vera ef mót-
lætið er ekki farið að fara alvar-
lega á sinni leikmanna liðsins, svo
Staðan
Staðan í 1. deild ! karla er nú
þessi:
Haukar 6 4 0 2 117:105 8
Fram 5 3 2 0 84:76 8
FH 6 4 0 2 120:112 8
Valur 6 3 0 3 104:97 6
Víkingur 5 3 0 2 92:86 6
Ármann 6 3 0 3 99:109 6
Grótta 6 114 116:125 3
IR 6 0 14 114:129 1
Markahæstu leikmenn 1.
deildar eru eftirtaldir:
Hörður Sigmarsson, Haukum56
Björn Pétursson, Gróttu 43
Viðar Sfmonarson, FH 26
Stefán Halldórsson, Víkingi 25
Jón Karlsson, Val 24
Einar Magnússon, Víkingi 23
Geir Hallsteinsson, FH 23
Pálmi Pálmason, Fram 23
sem oft vill verða þegar öðru vísi
gengur en ætlað er. Og þrátt fyrir
allt er mjög ótrúlegt að það verði
ÍR-ingar sem falla í 2. deild í
vetur. Liðið hlýtur að taka sig á
fyrr eða síðar, en ein aðalfor-
senda þess að svo geti orðið er að
leikmennirnir verði svolítið ró-
legri en þeir hafa verið til þessa,
og vandi sig betur, bæði i sókn og
vörn. Var stundum í þessum leik
næstum því broslegt að sjá hvað
var reynt, sérstaklega í sóknar-
leik liðsins, og gegn betri and-
stæðingum en Gróttu, er hætt við
að IR-Iiðið hefði, með sömu
frammistöðu, hlotið stóran skell.
Tveir einstaklingar bera
Gróttuliðið algjörlega uppi. Eru
það þeir Björn Pétursson og Árni
Indriðason, og er hlutverk þeirra
mjög mismunandi í liðinu. Árni
er gífurlega sterkur varnarleik-
maður, og gerir hvað hann getur
til þess að binda vörn liðsins eins
mikið saman og unnt er, en Björn
er sá leikmaður liðsins sem mest
lætur að sér kveða í sóknarleikn-
um, og skorar jafnan langflest
mörk Gróttumanna. Aðrir leik-
menn liðsins eru fremur slakir,
en hafa oft bætt það upp með
baráttunni sem á kunnáttuna
skortir. En víst er að ekkert lið
hefur efni á því að vanmeta
Gróttuliðið. Þegar liðinu tekst að
gera það sem það getur — nýta
möguleika sína og mannskap, get-
ur það verir erfitt viðureignar og
augljóslega vex því stöðugt fiskur
um hrygg með meiri leikreynslu.
Það er ekkert vafamál að tölu-
verður munur er fyrir lið að leika
i 2. deild og í 1. deild, þar sem
allir leikir eru efiðir, og það þarf
því engan að undra þótt Gróttulið-
ið næði ekki að sýna verulega
góðan handknattleik i vetur.
Aðalkeppikefli liðsins hlýtur að
vera að halda sér í deildinni, og
sigurinn gegn IR á sunnudags-
kvöldið var mikilsverður áfangi i
þeirri baráttu sem engan veginn
er þó lokið ennþá. Grótta hefur
náð betri leikjum i Iþróttahúsinu
í Hafnarfirði en í Laugardalshöll-
inni, og er ekki ólíklegt að þar
takist liðinu að krækja I nokkur
stig til viðbótar og getur það tekið
þau af hvaða liði sem er.
ISTUTTU MÁLI:
Islandsmótið 1. deild
Laugardalshöll 5. janúar
URSLIT: ÍR — GRÓTTA 24—25
(12—13)
Gangur leiksins:
Mfn. f R Grótta
4. 0:1 Árni
5. 0:2 Georg
6. Vilhjálmur (v) 1:2
8. Ágúst 2:2
9. 2:3 Björn (v)
9. Brynjólfur 3:3
11. 3:4 Georg
12. Ágúst 4:4
13. Brynjólfur 5:4
14. 5:5 Björn
14. Jóhannes 6:5
14. 6:6 Björn (v)
15. Ágúst 7:6
16. Hörður Á 8:6
16. Brynjólfur 9:6
18. 9:7 Björn
21. 9:8 Halldór
22. Ágúst 10:8
23. 10:9 Björn (v)
23. Bjarni 11:9
24. 11:10 Björn (v)
25. Ágúst 12:10
26. 12:11 Björn
27. 12:12 Magnús
30. 12:13 Sigurður
Hálfleikur
32. Ágúst 113:13
35. 13:14 Átlí
36. 13:15 Átli
37. Ágúst 14:15
38. 14:16 Björn
39. Vilhjálmur 15:16
40. 15:17 Björn
41. 15:18 Halldór
42. Vilhjálmur (v) 16:18
43. Brynjólfur 17:18
44. . 17:19 Magnús
45. Ágúst 18:19
47. 18:20 Halldór
48. 18:21 Magnús
49. Þórarinn 19:21
50. Jóhannes 20:21
52. Þórarinn 21:21
55. 21:22 Magnús
55. 21:23 Halldór
57. Bjarni 22:23
59. 22:24 Átli
60. Þórarinn 23:24
60. 23:25 Árni
60. Hörður Á 24:25
Mörk IR: Ágúst Svavarsson 8,
Brynjólfur Markússon 4, Þórar-
inn Tyrfingsson 3, Vilhjálmur
Sigurgeirsson 3, Hörður Árnason
2, Jóhannes Gunnarsson 2, Bjarni
Hákonarson 2.
Mörk Gróttu: Björn Pétursson
9, Magnús Sigurðsson 4, Halldór
Kristjánsson 4, Atli Þór Héðins-
son 3, Árni Indriðason 2, Georg
Magnússon 2, Sigurður Pétursson
1.
Brottvísanir af velli: Vilhjálm-
ur Sigurgeirsson, Ágúst Svavars-
son og Hörður Árnason, ÍR í 2
mín. Halldór Kristjánsson í 2x2
mínútur.
Misheppnuð vftaköst: Vilhjálm-
ur Sigurgeirsson átti vítakast í
stöng á 54. min.
Dömarar: Jón Friðsteinsson og
Kristján Örn Ingibergsson og
dæmdu þeir yfirleitt ágætlega.
— stjl.
LIÐ IR: Hákom Arnórsson 1, Hörður Hákonarson 1, Steinn
Öfjörð 1, Brynjólfur Markússon 2, Bjarni Hákonarson 2, Þórar-
inn Tyrfingsson 2, Ágúst Svavarsson 3, Hörður Árnason 2,
Gunnlaugur Hjálmarsson 2, Vilhjálmur Sigurgeirsson 1,
Jóhannes Gunnarsson 2, Guðmundur Gunnarsson 1.
LIÐ GRÓTTU: Ivar Gissurarson 1, Kristmundur Ásmundsson 1,
Magnús Sigurðsson 2, Björn Pétursson 3, Sigurður Pétursson 1,
Atli Þór Héðinsson 2, Halldór Kristjánsson 2, Grétar Vilmund-
arson 1, Arni Indriðason 3, Georg Magnússon 2, Guðmundur
Ingimundarson 1.
Agúst Svavarsson átti nokkur ágæt skot f leik IR og Gróttu, og þarna hefur Árni Indriðason verið aðeins
of seinn fram á móti honum.