Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1975 24 Járnsmiðir — rafsuðumenn Óskum að ráða nokkra plötusmiði og rafsuðumenn. LANDSSMIÐJAN Trésmiðir Geta bætt við sig verkefnum. Meistara- réttindi. Símar 73598 og 40368. Stúlka vön afgreiðslustörfum óskast strax. Uppl. á Sæla Café Brautar- holti 22 kl. 10—4. Sími 19480 og 19521. Stúlka óskast í mötuneyti Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12, sími 86133. Viðgerða- og varahlutaþjónusta Volkswa§en bíllinn yðar þarf minni athugnnar við en aðrir bílar, og minna viðhald og það sem skiptir ef til vill meira máli, er að við getum nú boðið yður fljóta og örugga viðgerðarþjónustu, framkvæmda af fagmönn- um, með fullkomnustu tækjum og Volkswagen varahlutum, sem trygg/r yður betri endingu og viðheldur verðgildi Volkswagen bí/sins yðar. HEKLA hf. Laugavegi 170—172 — Sími 21240._ Hilmar Haraldsson húsasmiður - Minning Þeir atburðir gerast, er minna okkur á, svo að við verðum felmtri slegin, hve lítils við megn- um gegn náttúruöflunum, þegar orka þeirra leysist úr læðingi og synir og dætur þessa lands láta lífið án þess við verði ráðið. Og þetta gerist á sama tíma og næst- um yfirnáttúrleg tækniþróun á sér stað og aflmikil orka er beizluð I þjónustu mannsins. Og þrátt fyrir hina miklu tækni og visindi verðum við að horfa ráðþrota á lífsþyrst ungmenni, sem á þá ósk heitasta að fá að lifa og búa eiginkonu sinni og börnum gott heimili og athvarf, kveðja þetta líf. Engin þekking reyndist nógu mikil til hjálpar ungum manni til þess að sigrast á löngum og erfiðum sjúkdómi og lífsþrótt- urinn þvarr með styttingu daganna. Hilmar Haraldsson húsasmiður andaðist 29. des. 1974 eftir langa og erfiða legu. Hann var fæddur 13. júlí 1944 og var því liðlega 30 ára er hann lézt. Hilmar fæddist að Laufási í Vogum, sonur hjón- anna Sigurbjargar Kristjánsdótt- ur og Haralds Teitssonar, er þar voru búsett. Hann ólst upp hjá foreidrum sínum en þó má segja að hann ætti annað heimili að Höfða í Kirkjuhvammshreppi hjá föðursystur sinni, Jakobínu Teits- dóttur, og manni hennar Páli Guðmundssyni. Hjá þeim var Hilmar á hverju sumri frá 4 ára aldri og fram yfir fermingu. Þegar Hilmar hafði aldur til hóf hann nám í blikksmíði og lauk því árið 1965. Vann við þá iðn næstu árin en fór síðan í húsasmíðanám og lauk því árið 1970. Og prófi frá meistaraskólanum lauk hann s.l. vor, enda þótt hann þá þegar væri um nokkurt skeið búinn að stríða við þann sjúkdóm, sem leiddi hann til dauða. Hilmar kvæntist 26. febrúar 1966 Margréti Þorláksdóttur frá Arnardranga i Landbroti, Vestur- Skaftafellssýslu, og lifir hún mann sinn ásamt fjórum börnum þeirra á aldrinum 3ja til 12 ára. Vil kaupa góðan vinnuskúr Upplýsingar í síma 21030. 1. vélstjóra vantar á 250 tonna loðnuskip. Upplýsingar í síma 74265. 1UN3 Kennt verður: Barnadansar Táningadansar Stepp Jazzdans Samkvæmis- og gömlu dansarnir Jutterbug og rokk Innritun stendur yfir í síma 74260 frá kl. 10-7 Kennum yngst 2ja ára. Síðasti innritunardagur. Skólinn hefst 7. janúar. Kennslu- staðir: Safnaöarheimili Langholtssóknar Ingólfskaffi Lindarbær, uppi Rein, Akranesi Samkomuhúsiö Borgarnesi D.S.I. Ung stofnuðu þau Hilmar og Margrét heimili sitt. Abyrgðin, sem því fylgdi, krafðist þess að hart væri lagt að sér. Og það var gert óhikað. Hilmar var góður og dugmikill starfsmaður, fylginn sér og ósérhlífinn. Vinnudagur- inn var oft langur, bæði vegna öflunar tekna og skólanáms. Hverja stund þurfti því að nota til hins ítrasta. Og Hilmar var einn þeirra manna, sem átti erfitt með að neita, þegar hann var beðinn um hjálp og vildi það æði oft ganga út yfir hvildartímann, þegar hann var að leysa annarra vanda. Þau hjónin voru að byggja sér íbúðarhús að Hlaðbrekku 6 í Kópavogi. Voru þau flutt í kjaliara hússins en hæðin var í smiðum. Vann Hilmar þar þær stundir, sem hann mátti og lagði hart að sér til þess að koma byggingunni áfram meðan heilsan entist. Naut stuðnings samhentrar eiginkonu, sem reyndi að vinna utan heimilis hverja stund sem hún gat komið því við. Og nú er önnur máttarstoð heimilisins að Hlaðbrekku 6 brostin. Þungur harmur er kveð- inn að eiginkonu og börnum, foreldrum og tengdaforeldrum og öllum öðrum, sem tengdir voru f jölskyldu- og vinaböndum hinum hógværa og geðprúða látna manni. Við skiljum ekki slík örlög og eigum erfitt með að sætta okk- ur við, þegar heilsteypt og dug- andi fólk er kallað í burtu frá miklu verkefni löngu fyrir aldur fram. Það er sárt, er sterkir lífs- þræðir slitna og sá sársauki væri óbærilegur, ef við í sorginni fynd- um ekki nálægð þeirrar almættis- handar, sem svo mikið gaf og gef- ur. Við minnumst góðs drengs og biðjum honum og þeim, sem hon- um þótti vænt um blessunar guðs. Páll V. Daníelsson FélM5líf I.O.O.F. Rb. 4 = 124178'/2 — □ Hamar 59751 78 — Frl. Aðalfundur Fimleikadeildar KR verður haldinn mánudaginn 13.1 I félagsheimili KR kl. 8.30. Kvenfélag Árbæjarsóknar Fundur verður þriðjudaginn 7. janúar í Árbæjarskóla kl. 20:30. Spilað verður bingó. Allar konur velkomnar. Stjórnin. Kvenstúdentar Munið opna húsið að Hallveigar- stöðum, miðvikudaginn 8. janúar milli kl. 3 og 6. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Kvenfélag Kópavogs Leikfimin hjá kvenfélagi Kópavogs byrjar aftur 9. janúar kl. 8 á sama stað. Uppl í síma 41 853 — 41726. Nefndin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.