Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975 Verzlanir með listiðnað Sýrubrendir glervasar frá Múranó, Feneyjum. LOFA skal þaó, sem vel og smekklega er gert og i þessum pistli vil ég benda á ýmislegt, sem til framfara gæti horft í verzlunum meö listhannaða vöru. Ég tek að þessu sinni aðallega tvær verzlanir fyrir, en það eru Kúnígúnd í Hafnar- stræti og nýopnuð verzlun á listhönnuðum glervörum, aðal- lega frá Múranó í Feneyjum, að Skólavörðustíg 6. — Fyrir nokkrum árum skrífaði ég pist- il í syrpu varðandi Heimilis- iðnaðarbúðina í Hafnarstræti, sem mér þótti til mikillar fyrir- myndar og þykir enn, sem ég undirstrika og tel því ekki ástæðu til að endurtaka hér þótt verzlunin sé af sama flokki. Ekki er ýkjalangt síðan slíkar verzlanir tóku að skila arði, þ.e. verzlanir sem vilja eingöngu vera með listræna vöru á boð- stólunum.þjóðlegar sem alþjóð- legar. — Ágæt tilraun til að sameina myndlist og hönnun var „Sýningarsalurinn“ sálugi á horni Hverfisgötu og Ingólfs- strætis, en tilraunin var því miður fyrirfram dæmd til að mistakast þar eð fólk kunni ekki að meta slíka nýjung á þeim tíma og rekstrarfé skorti. Menn sem leggja út í slíka starfsemi geta búizt við að tapa verulegu fé áður en árangur næst, en eftir það er hagnaður- inn hinsvegar varanlegur og óháður hvers konar sveiflum og tízkufyrirbærum, en mikill gróðavegur verða slíkar verzl- anir sjaldnast. Hinsvegar er ánægjan af að miðla góðri og menningarlegri vöru atriði, sem ekki má yfirsjást og margra peninga virði, Islendingar, sem selja úr List og hðnnun eftir BRAGA ÁSGEIRSSON landi frábærar gæðavörur og fá þær greiddar i formi vöru- skipta, mega vera kröfuharðari um þá vöru sem þeir fá í stað- inn. Enginn talar um gæðamat á innfluttum varningi þó að fulltrúar þeirra þjóða, sem kaupa af okkur, heimti hæstu gæðaflokka og láti ósjaldan í staðinn lélegan iðnvarning. Við þurfum að koma í veg fyrir slíkt, því að þetta eru óheil-, brigð skipti og gjaldeyririnn okkur dýrmætur. Verzlunin Kúnigúnd var í upphafi sameign nokkurra áhugamanna og kvenna um innlendan listiðnað og var þá til húsa á Skólavörðustígnum, en nú mun Haukur Dór Sturluson leirkerasmiður m.m. vera aðal- eigandi. Aðallega er þar á boð- stólum verk Hauks Dórs, en hann er vafalítið sérstæðasti íslenzki leikkerasmiðurinn um þessar mundir. Verk hans nálg- ast ósjaldan skúlptúr í formi en slík skúlptúrkeramík getur ver- ið mjög skemmtileg og nautn fyrir augað. Auk annars í verzl- uninni má nefna athyglisverða leðurvinnu, vefnað, kertastjaka úr járni, og Keramikvörur eftir Tove Kjarval/Lökken. Verzlun- inni er mjög vel og snyrtilega fyrir komið, og er þannig að öllu leyti til fyrirmyndar hvað auglýsingu á íslenzkri hönnun snertir. — Það er Helgi Einarsson, sem áður var velþekktur hús- gagnasmiður og einstakur smekkmaður á því sviði, sem stendur hér að glermunaverzl- uninni. Hér er eingöngu verzl- að með erlendan iðnvarning, enda glervara ekki framleidd hérlendis. Heigi hyggst sér- hæfa sig með glervöru, a.m.k. fyrst í stað, og mun vafalitið vera sá fyrsti sem slikt gerir hérlendis. Áður var og er enn misjafnlega valinn glervarning- ur víða til sölu ásamt öðrum varningi, og er mestur menn- ingarbragur að finnska glerinu hjá Kristjáni Siggeirssyni á Laugavegi. Af glerinu hjá Helga líst mér bezt á fram- leiðsluna frá Múranó, enda hafa Feneyingar löngum verið einna fremstir í gerð ýmiss kon- ar glerja, einkum eru sýru- brenndu hlutirnir margir ákaf- lega jarðneskir í áferð. Ég minnist þess, að er ég var ytra fyrir skömmu, varð mér sem oftar reikað inn á listiðnaðar- safnið í Kaupmannahöfn og sá þar m.a. í glerskáp skál frá Múranó, og eru það ekki svo lítil meðmæli. Það ber að vona að aukning verði á jafn skemmtilegu fram- taki og þvi sem hér hefur litil- lega verið vikið að, því að það ætti að vera metnaður sem flestra höndlara að komast í þennan gæðaflokk og stuðla þar með að betri formsmekk almennings, sem jafnframt yrði sjálfvirk lyftistöng íslenzkri hönnun, sem á í vök að verjast og þarf að öðlast sérkenni og komast á alþjóðlegan markað, sem vel gæti opnað möguleika fyrir álitlegar gjaldeyristekjur svipað og hjá frændum vorum á Norðurlöndum með sinn heims- þekkta listiðnað. Þess skal að lokum getið að skartgripaverzl- anir hér eru margar með tölu- verðum menningarbrag, og slíkt hefur lengi verið og fjöl- breytni listhannaðra gripa hef- ur aukizt til muna á undanförn- um árum. Þjóðleikhúsið: Kaupmaður í Feneyjum eftir William Shakespeare KAUPMAÐUR 1 FENEYJ- UM EFTIR WILLIAM SHAKESPEARE Þýðing: Helgi Hálfdanar- son [[] Tónlist: Þorkell Sigurbjörnsson [[] Leik- myndir: Sigurjón Jóhanns- son [J Búningar: Else Duch Q Leikstjórn: Stefán Baldursson og Þórhallur Sigurðsson JÖLALEIKRIT Þjóðleikhússins að þessu sinni er Kaupmaður í Feneyjum eftir W. Shakespeare, að líkindum vinsælasta leikrit hans ásamt Hamlet. Það hefur verið sýnt hér áður i Iðnó fyrir einum 30 árum við afbragðsundir- tektir. Kauþmaðurinn sem talinn er saminn um 1596 er langt frá því að vera með bestu verkum höfundar, en engu að síður merk- ur áfangi á þróunarferli skálds- ins: í fyrri verkum þykir oft gæta ofhlæðis, höfundur gefur skáld- iegum innblæstri um of lausan tauminn á kostnað framvindu leikjanna, það er ljóð- skáldíð en ekki leikritahöf- undurinn sem ræður ferðinni. 1 þessu verki er nokkurn veginn jafnvægi milli þessara tveggja þátta þó siðar ætti hann eftir að gera stórum betur i þessum efn- um sem öðrum. Leikfléttan i Kaupmanninum er tvíþætt: annars vegar sagan um Portsíu og biðlana þrjá sem þurfa að velja rétt skrín til þess að fá hennar, hins vegar sögnin um auðugan gyðing sem lánar kristnum manni fé og krefst punds af holdi hans að veði verði lánið ekki greitt á tilsettum tíma. Hvorttveggja eru þetta gömul minni sem rekja má langt aftur i ýmsum gerðum og nægir að nefna til Gesta Romanorum (14. öld), safnrit þar sem þau er bæði að finna. Upphaflega er sá sem holdsins krefst hvorki kaupmað- ur né gyðingur, en verður það fyrst í ensku kvæði, Cursor mundi, frá 14. öld, enda var þá mikið um gyðingaofsóknir. Blómaskeið þessa yrkisefnis verð- ur á Englandi á 16. öld. Varðveist hafa a.m.k. tvö þjóðkvæði frá þeim tima, við þekkjum titla á tveimur leikritum fra' síðara hluta aldarinnar og enn er til leikrit Christophers Marlowes, Gyðing- urinn frá Möltu (1589). Af nógu var að taka þegar Shakespeare samdi Kaupmanninn og sumir fræðimenn hafa gengið svo langt að halda því fram að Shakespeare hafi ekki gert annað en endur- bæta eidra leikrit. Ennfremur hefur verið bent á að finna megi í Kaupmanninum skirskotun til þess atburðar er dr. Roderigo Lopez, portúgalskur gyðingur og líflæknir drottningar, var tekinn af lífi fyrir landráð árið 1594. í augum okkar nútimamanna er bygging leiksins afskaplega losaraleg og órökræn, enda fylgdu elízabetönsku leikskáidin lítt þeirri reglu sem síðar varð rikj- andi með klassisismanum að framvindan ætti að vera ein og útúrdúralaus. Samtímamenn Shakespeares hafa litið þetta allt öðrum augum og fyrst og fremst séð í leikritinu snilldarlega sagða sögu, skemmtilégt melódrama við allra hæfi (hér er orðið melódrama alls ekki notað í niðr- andi merkingu eins og oft er gert nú á dögum). Og er leikritið nokk- uð annað? Þó hefur oft verið reynt að fara aðrar leiðir við upp- færslu verksins, gera það að tragí- kómedíu eða sálrænu drama og skiptir þá mestu túlkunin á þeim andstæðingum gyðingnum Sælokk og hinum kristna kaup- manni Antóníó. Einu átökin i leiknum eru þeirra á milli. Gyð- ingur Mariowes var af einum toga spunninn, grimmur og mis- kunnarlaus, án allra blæbrigða. Sælokk Shakespeares er aftur á móti oft á tióum mannlegur, við fáum samúð með honum þrátt fyrir ágirnd hans, hatur og hefni- girni. Hann er eina persóna leiks- ins sem hefur einhverja dýpt til að bera, hegðun hans á sér sál- rænar og þjóðfélagslegar skýring- ar. Lengi vel var þó Sælokk leik- inn sem hlálegur, ofstækisfullur grimmdarseggur sem að lokum fær makleg máiagjöld og það var ekki fyrr en á 18. og þó einkum 19. öld að farið var að draga fram hans manneskjulegu hliðar. Og orðið gyðingur, skyldi það ekki vekja með okkur aðrar tilfinning- ar nú en fyrir daga nasisimans og stofnun Israelsríkis? I uppfærslu Þjóðleikhússins hefur verið valin sú leið að sýna leikritið sem melódrama og síst af öllu skal ég lasta það, en óþarf- lega mikið ber á veikleikunum i byggingu leiksins og vegur þar skáldskaparmál höfundar hvergi nærri upp hallann, það þeim mun fremur sem það kemst ekki alltaf nógu vel til skila. Höfuðpersónur eru hér í rauninni engar ogdregið er úr átökunum milli Sælokks og Antóniós eins og unnt er, m.a. sleppt atriðinu þar sem Sælokk fer með Antónió í fangelsi. Þetta verður til þess að hið vanþakkláta hlutverk Antóníós verður enn veigaminna en efni standa til, hann er eiginlega ekki nema einn hinna feneysku iðjuleysingja, að- eins örlitið eldri og daprari i bragði og vinátta þeirra Bassaníós lítt skiljanleg. Erlingur Gíslason fer vel með hlutverk Antóníósog Guðmundur Magnússon er ungur og glæsilegur elskhugi en fram- sögn er oft ábótavant. Sælokk er leikinn af Róberti Arn- finnssyni. Eins og þessari svið- LelKIISt eftir EMIL H. EYJÓLFSSON setningu er háttað verður hlut- verk hans ekki jafnmikilvægt, og þegar aðaláherslan er lögð á hatur, hefnigirni og niður- lægingu gyðingsins. Róbert sýnir nú eins og svo oft áður hversu öruggur og mikilhæfur leikari hann er og i mörgum atriðum er leikur hans magnaður, en hersiu- muninn vantar á til þess að úr verði eftirminnilegt leikafrek. Helga Jónsdóttir leikur Portsiu, aðalkvenpersónu leiksins, og tekst vel að lýsa hinni ungu ást- föngnu konu en mætti stundum vera myndugri, einkum í dóms- atriðinu. Um önnur hlutverk er ástæðulaust að fjölyrða, flestir gera þar sem af þeim verður kraf- ist nema hvað framsögnin mætti vera skýrari og eðlilegri eins og áður er að vikið. Innkomur þeirra Flosa Ólafssonar og Bjarna Stein- grímssonar vekja kátinu, og minnisstæð er mér Anna Kristín Arngrímsdóttir í litlu hlutverki Jessíku, dóttur Sælokks. Leikmyndir Sigurjóns Jóhanns- sonar eru smekklegar og haglega gerðar og leikstjórunum tekst prýðilega að notfæra sér mögu- leika sviðsins. Það er heildarsvip- ur yfir sýningu þeirra og hraðinn oft með ágætum. En hvað er það þá sem á vantar, hvers vegna hreifst ég aldrei alveg með? Er textinn orðinn okkur of fjarlæg- ur? Varla. Ég held að það hafi þurft meira fjör, meiri gáska, meiri léttleika, ómengaðra melódrama. Og hvers vegna ekki að lífga hrynjandina með fjöl- breyttari og rómantiskari tónlist. Ég er ódómbær á tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar sem slika, en sem sviðstónlist fyrir Kaupmaður í Feneyjum finnst mér hún óhæf með öllu. Búningar Elsu Duch eru hinir fegurstu sem ég hef séð hér á sviði hingað til. Ekki varð annað heyrt en þýðing Helga Hálfdanarsonar væri með þeim ágætum sem við eigum að venjast. Atriði i Kaupmanni i Feneyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.