Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1975 13 HÉR FER A EFTIR KJARA- MALAALYKTUN SAMBANDS- STJÖRNAR ASl eins og hún hef- ur borizt Morgunblaðinu, en f lok er getið athugasemdar, sem tveir stjórnarmenn, Guðmundur H. Garðarsson, formaður VR, og Pét- ur Sigurðsson, ritari SR, gerðu við tillöguna á sambandsstjórnar- fundinum: Kjaramálaályktun sambands- stjórnarfundar. Gífurlég verðbólga hefur skoll- ið yfir íslensku þjóðina á yfir- standandi ári. Á 10 fyrstu mánuð- um ársins hækkaði framfærslu- vísitala um nálægt 100 stig eða 43%. Því fer samt fjarri, að á þessari þróun sé nokkurt lát, sem marka má m.a. af því, að a.m.k. 20 stiga hækkun framfærsluvísitölu er fyrirsjáanleg á næstu vikum. Verður þá heildarhækkun hennar á rúmu ári orðin um 50%. Samhliða þessari ógnvekjandi verðbólguþróun hafa verið settar lagaskorður gegn því, að laun hækkuðu i einhverju samræmi við verðlagshækkanir, svo sem kjarasamningar kveða á um. Afleiðing .þessa hefur orðið sú, að raunlaun hafa farið sílækkandi frá 1. marz sl., er launþegar fengu síðast ákveðnar verðlagsbætur samningum samkvæmt. Þróun kaupmáttar frá þeim tíma hefur orðið sú, að hann hefur lækkað um 12% frá þeim tima miðað við þá, sem hafa allra læfstu iaun og njóta því hæstu „jafnlaunabóta", en um 20% hjá þeim, sem ekki njóta þeirra bóta. Sé miðað við, að framfærsluvísi- tala hækki i 358 stig, sem örugg- lega verður innan skamms, er lækkun kaupmáttar frá 13% til 22%. Eru þá að sjálfsögðu ótaldar þær verðhækkanir sem enn mundu bætast við fram til 1. júní n.k. og engar verðlagsbætur koma fyrir, ef kaupbindingarlögunum yrði ekki hrundið fyrir þann tíma. Af framangreindu má ljóst vera, að launamálum hefur með stjórnvaldaaðgerðum verið þrýst inn í kerfi, sem er þeirrar gerðar að kaupmáttur launa hlýtur að fara sílækkandi, og færir gífur- legt fjármagn frá launafólki til atvinnurekanda. Sú hlýtur raunin að vera, þar til þessu kerfi verður hrundið með nýjum kjarasamn- ingum. Auk þess hafa starfsaðferðir stjórnvalda verið þær, að slá, með lagaboði, striki yfir lögmæta kjarasamninga aðila vinnumark- aðarins gegn eindregnum mót- mælum annars aðila þeirra, þ.e. verkalýðssamtakanna. Þessu mót- mælir Sambandsstjórnarfundur ASl enn eindregið, og fordæmir þá aðferð alla, sem hér hefur ver- ið við höfð. Réttur verkalýðssam- taka til þess bæði að gera kjara- samninga fyrir umbjóðendur VELA-TENGI EZ-Wellonkup^lun(( Conax PlanoxVulkan Doppelflex Hadeflex. STURLAUGUR JÓNSSGm & CO. Vesturqötu 1 6, Sími 13280. sína, og rétturinn til að tryggja að þeir séu hafðir í heiðri, er grund- vallarréttur í lýðræðisþjóðfélagi, sem verkalýðshreyfingin mun aldrei þola að skertur verði eða af numinn. Að frumkvæði miðstjórnar Al- þýðusambands Islands hefur að- gerðum stjórnvalda til að rifta einhliða kjarasamningum frá 26. febr. þ.á., og færa almenn launa- kjör verulega niður fyrir það kjarastig, sem gilti fyrir samn- inga, þegar verið svarað með upp- sögnum kjarasamninga, sem ná til um 40 þús. félagsmanna innan ASt. Sambandsstjórnarfundurinn telur, að staða verkalýðsfélag- anna í þeim samningum, sem af þessum sökum hljóta brátt að stand fyrir dyrum, sé nú svo vax- in, að þeim beri að koma fram í þeim sem ein órjúfanleg heild, með eina meginstefnu og einn sameiginlegan vilja. Þvi samþykkir fundurinn að kjósa samninganefnd, sem ætlað sé það hlutverk að freista samn- inga við samtök atvinnurekenda og verða fulltrúi verkalýðssam- takanna gagnvart ríkisvaldinu, meðan á samningum stendur, eft- ir þvi sem tilefni verða til. Leiti nefndin hið fyrsta eftir umboði frá verkalýðsfélögunum til að fara með samningamálin með venjulegum fyrirvörum. Með tilliti til þess, að kjara- samningar hefðu flestir gilt til 1. apríl 1976, ef þeim hefði ekki verið rift með lagasetningum og miklum gengisbreytingum, svo og með hliðsjón af óhagstæðri efna- hagsþróun, telur fundurinn ekki vera efni nú til almennrar kröfu- gerðar varðandi kaupgjald utan þeirra marka, sem kjarasamning- arnir frá I febrúar s.l. settu, held- ur, að nú verði miðað við, að verkafólk nái sem fyrst þeim kjörum, sem þeir samningar ákváðu. I þeim samningum, sem í hönd fara, hafi full verðtrygging launa almenns verkafólks algeran for- gang, eða launa- og kjarabreyting- ar, sem svara til þess, að umsamd- ar verðlagsbætur væru í gildi. Þá er samninganefndinni falið að knýja á um óyggjandi yfirlýs- ingar stjórnvalda og atvinnurek- enda um, að yfirlýsingar þessara aðila um húsnæðismál, skattamál og verðtryggingu lffeyrissjóð- anna, sem gefnar voru í febrúar s.l., verði áfram í fullu gildi. Þá telur fundurinn, að málefni bótaþega almannatrygginga sé eðlilegt verkefni í viðræðum við stjórnvöld, með þvi markmiði, að kaupmáttur tryggingabóta verði ekki skertur. Knútur Bruun hdl. ( Lögmannsskrifstofa « ' Grettisgötu 8 11 h Simi24940 Þrýstimælar Hitamælar STURLAUGUR JÓNSSON & CO Vesturgötu 16, sími 13280. Kjaramálaályktun ASI: Snúizt verði við öfugþróun í atvinnumálum í tæka tíð Fundurinn lýsir áhyggjum sín- um yfir því, að launalækkana- og samdráttarstefnan, sem nú er fylgt af stjórnvöldum, kunni að leiða til öryggisleysis í atvinnu- málum og jafnvel atvinnuleysis, Er í því sambandi rétt að minna á, að verulegs hluta tekna almennra launþega er aflað með yfirvinnu, þannig að hætt er við, að samdráttur atvinnulífs þrengi afkomu launþega löngu áður en beins atvinnuleysis fer að gæta. Leggur fundurinn því þunga áherzlu á, að við öfugþróun í atvinnulífi sé snúist i tæka tið og með víðtækum ráðum og aðgerð- um. Þessi hætta virðist einna mest, að því er varðar heima- markaðsgreinar iðnaðar og ýmsar þjónustugreinar, þar sem öflug kaupgeta er forsenda þess, að eftirspurn verði næg til þess að þær greinar fái þrifist. Mikilvæg- ast er í þesSu tilliti, að haldið verði uppi eðlilegri bygginga- starfsemi um land allt. Er samn- inganefndinni og miðstjórn sér- staklega falið að bera fram kröfur verkalýðssamtakanna í þessum efnum, og jafnframt þá grund- vallakröfu þeirra, að fullri at- vinnu verið uppi haldið. Frá þeirri grundvallarkröfu verður ekki vikið af hálfu verka- lýðssamtakanna. Við atkvæðagreiðslu um álykt- un sambandsstjórnar ASl gerðu Guðmundur H. Garðarsson, for- maður Verzlunarmannafélags Reykjavikur, grein fyrir afstöðu sinni á svohljóðandi hátt: „Ef ekkert er að gert til þess að stöðva og draga úr verðbólgunni eins og henni er lýst í upphafi ályktunar sambandsstjórnar ASl er fyrirsjáanlegt, að atvinnurekst- ur mun fljótlega stöðvast með þar af leiðandi atvinnuleysi og kjara- skerðingu. Með tilliti til þessa munum við taka afstöðu með bráðabirgðalögum um launajöfn- unarbætur o.fl., ef þau verða lögð fyrir Alþingi, en megintilgangur þessara laga og annarra tengdra aðgerða er að koma á jafnvægi í atvinnu- og efnahagsmálum og tryggja fulla atvinnu. I ályktun ASI er þessari aðferð mótmælt. Með tilliti til þessa, getum við ekki greitt þessari ályktun jákvæði okkar, þótt við séum sam- þykkir flestum atriðum hennar. Við áréttum grundvallarafstöðu okkar til frjáls og óskerts samn- ingsréttar, en lítum jafnframt svo á að Alþingi beri skylda til að gera nauðsynlegar neyðarráðstaf- anir til að forða þjóðarheildinni frá því mikla og óbætanlega tjóni, sem er fylgifiskur óðaverðbólgu". TQYOTA AÐALUMBOÐ HÖFÐATÚNI 2 REYKJAVlK SiMAR 25111 & 22716 UMBOÐIÐ Á AKUREYRI BLÁFELL SÍMI 21090 TOYOTA 2ja dyra, tviskipt hurð að aftan. Burðarmagn: 500 kg. Vél: 155 ha. 3878 cc. Framdrifsskipting með segulrofa. 15" felgur. Minnsta hæð frá jörðu er 21 cm. Billinn er 7 manna og nú með stólum frammí. 4ra dyra. Burðarmagn: 800 kg. Vél: 155 ha. 3878 cc. Framdrifsskipting með segulrofa. Nu stærri felgur, 16", minnsta hæð frá jörðu er 23 cm. Billinn er 9 manna og klæddur að innan. Japanskur frágangur. TRAUST TOYOTA LAIMD CRUISER - HARD T0P LAND CRUISER - STATION WAGON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.