Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1975 TVEIB YFIRBIIRÐASIGRAR ÍSLENZKU LANDSUÐSKVENNANNA ISLAND sigraði Bandaríkin f tveimur kvennalandsleikjum um síðastliðna helgi. Voru þetta fyrstu landsleikir bandarísku stúlknanna og greinilegur byrjendabragur á leik þeirra. Eigi að sfður verður ekki annað sagt en að þær byrji sfna lands- leiki betur en bandarfska karla- landsliðið er það kom fyrst hingað til keppni fyrir ekki svo mörgum árum og lék þá hand- knattleik, sem mun meira var f ætt við körfuknattleik en hand- bolta. Það er erfitt að dæma fslenzka liðið eftir þessum tveimur leikj- um, mótstaðan var ekki nógu mik- il til að stúlkurnar þyrftu að taka virkilega á honum stóra sfnum. Eigi að sfður er greinilegt að fs- lenzka liðið er nokkuð vel samæft og f þessum landsleikjum sást ýmislegt sem ekki sést f leik fs- lenzkra félagsliða f kvennahand- knattleik. 1 fyrri leiknum tókst liðinu til að mynda mjög vel að opna fyrir ifnuleikmennina og meira en helmingur marka liðsins kom eft- ir slfkar opnanir. 1 sfðari leiknum tókst þetta ekki eins vel og f báð- um leikjunum oliu langskytt- urnar nokkrum vonbrigðum. Varnarleikur liðsins var góður f báðum leikjunum og sömuleiðis markvarzlan. Sóknarleikur þeirra bandarfsku var heldur ekki sá beittasti, sem hér hefur sézt, né skotin þau föstustu. BARNINGUR 1 BYRJUN FYRRI LEIKSINS, EN SlÐAN 21:8 Það vantaði ekki stríðsöskrin hjá þeim bandarisku áður en fyrri leikurinn hófst í Laugardals- höllinni á föstudagskvöldið. Að þeim loknum hófst leikurinn og til að byrja með var nokkurn veg- inn jafnt á með liðunum. Til að mynda var staðan 4:3 eftir 11 mfn- útna leik. öll fjögur mörk ís- lenzka liðsins hafði Guðrún Sigur- þórsdóttir skorað á svipaðan hátt af línunni. Þá fyrst fór hinn hluti islenzka liðsins í gang og staðan breyttist í 8:3 og síðar 11:5 áður en hálfleiknum lauk. I síðari hálfleiknum skoraði bandariska liðið aðeins þrjú mörk gegn 10 mörkum þess islenzka og úrslitin urðu þvi 21:8. I seinni hálfleiknum gætti talsverðrar ónákvæmni í leik íslenzku stúlkn- anna. Vissulega óþarfrar, en þó afsakanlegrar ónákvæmni, því það er vissulega ekkert gaman að leika gegn svo mun lakari and- stæðingum sem þær bandarisku vissulega voru. I fyrri leiknum var það einkum Guðrún Sigurþórsdóttir, sem átti góðan leik, en engin hinna stóð sig heldur illa. Björg Jónsdóttir gerði t.d. margt mjög laglegt í leiknum og Arnþrúður gerði tvö gullfaileg mörk úr hornunum. Markverðirnir stóðu báðir vel fyrir sínu og einkum þó Gyða Ulfarsdóttir í FH. Mörk bandarfsku stúlknanna gerðu þær Lillis (4), Eckert (2) og Forest (2) voru þær jafnframt beztar í liðinu og í rauninni þær einu sem almennilega drógu að markinu. Mörk islenzka liðsins gerðu: Guðrún 7, Björg, Sigrún og Arn- þrúður 3 mörk hver, Guðbjörg 2, Erla, Hansína og Oddný 1 hver. Leikinn dæmdu þeir Björn Kristjánsson og Öli Olsen ágæt- lega. SEINNI LEIKURINN: MJÖG GÓÐUR FYRRI HÁLFLEIKUR, LEIKI.EYSA 1 ÞEIM SlÐARI Það er sjaldgæft að lið nái að halda marki sinu hreinu í nær því heilan hálfleik i handknattleik. Sú varð þó raunin í seinni leik Islands og USA sem fram fór i Iþróttahúsinu í Njarðvíkum á sunnudaginn. I heilar 23 minútur skoruðu bandarisku stúlkurnar ekki mark, meðan þær íslenzku sendu knöttinn 9 sinnum i netið að baki bandaríska markvarðar- ins. þá loks kom að því að gest- irnir skoruðu sitt fyrsta mark og sannast sagna kom það með nokkuð sorglegum hætti. Sigrún Guðmundsdóttir varði ágætt bandarískt skot i vörninni, breytti stefnu knattarins og Þórdís í markinu var ekki nógu snögg að átta sig á breyttri stefnu knatt- arins. Var þetta eina mark bandariska liðsins í fyrri hluta leiksins og í — Svona engin læti, ég er með boltann, gæti Sigrún hafa sagt við pa bandarfsku, sem lætur sér þó ekki segjast og reynir hvað hún getur til að ná knettinum. hálfleik var staðan 10:1. Hafði íslenzka liðið leikið vörnina mjög vel, en í sókninni hins vegar gert of mörg mistök til að hægt sé að hrósa liðinu fyrir þann hluta leiksins. 1 síðari hálfleiknum héldu þær bandarisku í við íslenzka liðið lengi vel. Var það fyrst og fremst vegna skipulagsleysis í leik ís- lenzka liðsins og stóðu sóknar- loturnar flestar aðeins í fáar sek- úndur. Um miðjan seinni hálf- leikinn breytti þó um til hins betra og munurinn jókst á ný. Urslitin urðu 19:5 — yfirburða- sigur. Bestan leik í íslenzka liðinu að þessu sinni áttu þær Erla Sverris- dóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Þórdís Magnúsdóttir stóð í mark- inu lengst af leiktímanum og varði vel, en að visu ekki um erfið skot að ræða. Guðbjörg Jónsdóttir úr 2. deildarliði IBK kom undir- rituðum á óvart í leikjunum tveimur og sýndi að hún á fylli- lega heima í landsliðinu. Það vakti athygli í síðari leiknum að Guðrún Sigurþórsdóttir, sem hafði skorað 7 mörk í fyrri viður- eigninni skoraði ekki eitt einasta mark. Sömu sögu er að segja um Arnþrúði Karlsdóttur, en hún var reyndar lítið notuð. Mörk bandaríska liðsins í leikn- um á sunnudaginn skoruðu Clant- on og Eckert tvö hvor og Forest 1. Mörk Islands gerðu: Sigrún 5, Erla 4, Björg og Oddný 3 hvor, Hansína, Svanhvít og Guðbjörg 1 hver. Það er ekki úr vegi að bæta því við hér að lokinni upptalningunni um markaskorara að íslenzka lið- ið misnotaði hvorki meira né minna en 29 upphlaup í leiknum. 19 upphlaup nýtt, 29 misnotuð, slæm nýting það stúlkur! Leikinn á sunnudaginn dæmdu Karl Jóhannsson og Hannes Þ. Sigurðsson og gerðu ekki mikið af mistökum. — áij. Það eru ekki blíðar móttökur sem Björg Jónsdóttir fær hjá bandarfsku handknattleiksstúlkunum, að henni er sótt úr öllum áttum (Ijósm. Friðþjófur). TOLVA NOTUÐ VWAÐ VEUA LIÐIÐ Handknattleikur er Iþrótt, sem ekki hefur verið iðkuð I mörg ár í Bandarfkjunum. Kvennahandknattleikur hefur verið enn minna iðkaður en handknattleikur karla og landsleikir bandarlsku stúlkn- anna við þær íslenzku voru fyrstu landsleikir þeirra. Árangurinn var hvorki betri né verri en við var búist, þær eiga mikið ólært en eru greini- lega á réttri braut. Bandarfska liðið er valið á nokkuð sérstakan hátt, en ef til vill ekki svo vitlausan. 1 haust var nokkrum þúsundum bandarfskra íþróttakennara kvenna sendur spurningalisti þar sem þær voru spurðar hinna ólíklegustu spurninga. Tölva vann svo úr þessum svör- um og að tölvuúrvinnslunni lokinni var valinn nokkuð stór hópur til æfinga með fyrsta kvennalandsliðið USÁ f hand- knattleik. Hópur þessi æfði síðan saman f tvær vikur áður en endanlegt lið til Islands- ferðarinnar var valið. Með þessu móti fá forystu- menn handknattleiksmála í Bandaríkjunum tvennt. Þeir fá stúlkur til að iðka hand- knattleik, sem þegar hafa áhuga fyrir íþróttum og eru ekki algjörir byrjendur í iþróttum. 1 öðru lagi glæða þeir áhuga hjá íþróttakennur- um sem svo er lagið að koma íþróttinni inn f skólana. — áij Sigrún sló landsleikjametið Sigrún Guðmundsdóttir, handknattleikskona úr Val, lék á sunnudaginn sinn 18. lands- leik. Sló hún þar með met það sem Rut Guðmundsdóttir, markvörður úr Ármanni, átti og var orðið nokkurra ára gamalt, hún lék 17 landsleiki. Þá lék Hansfna Melsted, fyrir- liði kvennalandsliðsins, á sunnudaginn sinn 17. leik og jafnaði þar með met Rutar. Islenzka liðið f leikjunum tveimur var skipað eftirtöldum stúlkum: Gyðu Ulfarsdóttur, FH, Jónínu Kristjánsdóttur, KR, Þórdísi Magnúsdóttur, Víkingi, Sigrúnu Guðmunds- dóttur, Val, Erlu Sverrisdóttur, Ármanni, Guðrúnu Sigurþórs- dóttur, Armanni, Hjálmfrfði Jóhannsdóttur, KR, Hansfna Melsted, KR, Ragnheiði Blöndal, Val, Björgu Jónsdótt- ur, Val, Svanhvíti Magnúsdótt- ur, FH, Oddnýju Sigsteinsdótt- ur, Fram, Árnþrúði Karlsdótt- ur, Fram, Guðbjörgu Jónsdótt- ur, lBK, Jóhönnu Halldórsdótt- ur, Fram. GEGN BANDARISKUM BYRJENDUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.