Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 17
• .............■■■■■■ .................. ,
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1975
Ivan
Surjak
ÞAÐ getur verið að jafnvel
þeir sem fylgjast mest og bezt
með alþjóðaknattspyrnu flaski
á nafninu Ivan Surjak. Fljót-
lega rennur þó upp Ijós fyrir
flestum og þeir minnast þess
að Surjak er einmitt ein helzta
stoð júgóslavneska landsliðs-
ins og ekki sfður hins sterka
liðs Hadjuk frá borginni Spilt.
Júgóslavneska landsliðið
vakti athygli — verðskuldaða
athygli — f heimsmeistara-
keppninni f knattspyrnu f V-
Þýzkalandi f sumar. Þá ekki
hvað minnst með frammistöðu
sinni f fyrsta leik keppninnar
gegn þáverandi heimsmeistur-
um Brasilfu. Hinn 21 árs gamli
Ivan Surjak tók þátt f öllum
leikjunum og óx með hverjum
leik keppninnar. Að henni lok-
inni hafa margir júgó-
slavnesku leikmannanna
slappað af og ekki náð veruleg-
um árangri. Þannig er þessu
ekki farið með Surjak, hann er
enn á uppleið og nú talinn
stærsta stjarna júgóslavneskr-
ar knattspyrnu.
Surjak var 18 ára gamall
þegar hann komst fyrst f aðal-
lið Hadjuk Split. Slánalegur
strákur á vinstri kantinum,
190 cm hár, en Iftið annað en
skinn og bein. Eftir þvf sem kg
urðu fleiri varð hann sterkari,
án þcss að missa snerpu sfna
og úthald, og nú er hann með
sfn 83 kg sá leikmaður Hadjuk
og landsliðsins, sem spilið er
byggt f kringum.
Mcd númer nfu á bakinu
skoraði hann tvö mörk f heims-
meistarakeppninni, gegn
Zaire og Svfþjóð. Leikmenn
eins og Bajevic og Karasi skor-
uðu báðir fleiri mörk, en rétt
er að nefna það að Surjak er
gjarnan látinn leika aftar á
vellinum en þeir félagar, vilji
menn leggja meiri áherzlu á
vörn en sókn. A miðju vallar-
ins nýtur tækni Surjaks og
skilningur hans á leiknum sfn
ekki sfður en í fremstu vfg-
lfnu.
1 landsleik Júgóslavfu og
ltalfu fyrir skömmu sfðan léku
Júgóslavarnir andstæðinga
sfna grátt, en uppi við markið
tókst þeim ekki sem skyldi.
Aðeins eitt mark var skorað f
leiknum og framlfnuleik-
mennirnir fengu skömm f
hattinn fyrir að fara illa með
marktækifæri sfn. Allir nema
Surjak, sem skoraði sigur-
markið og var vel fagnað af 40
þúsund áhorfendum.
Snillingurinn Oblak er
félagi Surjaks f Hadjuk Split
og þessir tveir leikmenn hafa
náð vel saman f leikjum liðs
sfns. Gegn liði Keflavíkur
skoruðu þeir báðir f 1. umferð
Evrópukeppninnar f haust og
gegn franska liðinu St.
Etienne f 2. umferðinni var
Surjak á meðal markaskorara
f fyrri leiknum sem Júgó-
slavarnir unnu 4:1. Sfðari
leikinn unnu Frakkarnir með
sömu markatölu og komust
sfðan áfram á marki skoruðu f
framlengingu leiksins.
P
s
V
Eindhoven
Nýtt stórlið í holl-
enskri knattspyrnu
Hollensk knattspyrna er ef til
vill sú bezta f heiminum um þess-
ar mundir og að margra áliti betri
en sú þýzka þó svo að V-
Þjóðverjar státi af heims-
meistaratitlinum f greininni. Það
lið sem vakið hefur mesta athygli
f „landi túlfpananna" á yfirstand-
andi keppnistfmabili er án efa
PSV Eindhoven. Þegar þetta er
skrifað er liðið f forystu f deildar-
keppninni og það eru lið eins og
Ajax og Feynoord, sem skipa 2. og
3. sætið. Auk þess er svo Eindhov-
en komið i 8 liða úrslit í Evrópu-
keppni bikarhafa.
Það er sérstök saga að baki
þessu nýja stórliði hollenskrar
knattspyrnu. 1 upphafi var liðið
aðeins firmalið og æfingarnar
fóru fram f matartfmum og að
vinnu lokinni hjá starfsmönnum
Philipsverksmiðjanna f Eind-
hoven. Félagið var formlega
stofnað 31. ágúst 1913 og upp á
það var haldið með tveggja daga
fþróttahátfð fyrir starfsmennina.
Félagið heitir fullu nafni Philips
Sport Verenigin Eindhoven og nú
eru meðlimir félagsins um 5000
talsins f 13 ólfkum fþróttagrein-
um.
Hver er ástæðan fyrir því að
PSV Eindhoven er allt f einu orð-
ið að nýju Ajax meðál hollenskra
knattspyrnuliða? Sérfræðingarn-
ir segja ástæðurnar vera tvær.
Fyrst og fremst hinir miklu styrk-
ir sem félagið fær frá Philips-
verksmiðjunum og einnig kaup
félagsins á sænsku knattspyrnu-
stjörnunni Ralf Edström.
Philips sér um að PSV fái þá
peninga sem félagið þarf. Hvort
heldur um er að ræða kaup á
nýjum leikmanni eða til að greiða
tap. I staðinn auglýsir félagið
fyrir fyrirtækið, ódýr og góð aug-
lýsing þegar vel gengur eins og
nú. Af þeim tæplega 200 þúsund-
um sem búa f Eindhoven starfar
fimmti hlutinn hjá Philips.
Hjá Eindhoven eru nú 16 at-
vinnumenn f knattspyrnu, en
ekki er hægt að segja að þeir séu
starfsmenn Philips þar sem félag-
ið sjálft greiðir laun leikmanna
sinna. Hins vegar greiddi fyrir-
tækið um 11 milljónir þegar Ralf
Edström var keyptur til félagsins.
Ekki mikið þegar hugsað er út I
það að Philips-verksmiðjurnar
greiða yfir 4400 milijónir króna f
auglýsingar á sfðasta ári.
Það kann að virðast ótrúlegt, en
er engu að sfður satt, að á Ieik-
velli PSV Eindhoven er ekki ein
einasta auglýsing. Talsmaður
Philips sagði fyrir nokkru um
þetta, að nóg væri af auglýsingum
frá Philips f Hollandi og það
kynni að reynast ágæt auglýsing
að hafa enga auglýsingu á vellin-
um.
Eins og áður sagði er Ralf
Edström skærasta stjarna liðsins,
en hafa verður þó f huga að hann
er aðeins einn af 11 sem mynda
geysisterka liðsheild. Edström er
mikill markaskorari og hefur það
sem af er kappnistfmabilinu skor-
að mörg mörk fyrir lið sitt. Það er
ekki sfzt hann sem hinir 20
þúsund áhorfendur koma til að
sjá á heimavelli Eindhoven og
hingað til hefur hvorki hann né
félagar hans brugðist vonum
tryggra stuðningamanna.
Það eru engin smánarlaun sem eru f boði fyrir beztu knattspyrnumennina. A.m.k. hefur Ralf Edström
góð efni á þvf að bjóða frúnni f ökuferð f glæsilegri sportbifreið, eftir að hann kom til Eindhoven.
Vilja stöðva
útflutninginn
DANSKA knattspyrnusambandið
hefur nú uppi áform um að reyna
að stöðva þann mikla útflutning
sem verið hefur á knattspyrnu-
mönnum þaðan til nágrannaland-
anna. Segja talsmenn sambands-
ins nú svo komið að beztu knatt-
spyrnumenn Dana séu nær und-
antekningarlaust keyptir til V-
Þýzkalands, Hollands, Belgfu og
Frakklands, og æ erfiðara sé að fá
þessa leikmenn lausa til lands-
leikja. Þá sé einnig ekki nægjan-
lega vel búið að þessum leik-
mönnum f mörgum tilfellum —
þeir fái of lftil laun, miðað við
það sem þeir ættu að fá.
Margir Danir leika nú með v-
þýzkum knattspyrnuliðum og
hafa náð þar góðum árangri. Sem
dæmi má nefna Allan Simonsen,
sem er nú að verða einn bezti
leikmaður hins fræga liðs,
Borussia Mönchengladbach, og
Henning Jensen, sem einnig leik-
ur með því liði. Borussia keypti
þessa leikmenn fyrir tiltölulega
mjög lága upphæð frá Danmörku,
gaf t.d. aðeins 250 þúsund dansk-
ar krónur fyrir Henning, og enn
lægri upphæð fyrir Simonsen. Nú
hefur.talsmaðurBorussia látið svo
um mælt að þessir leikmenn verði
ekki seldir frá félaginu fyrir
lægri upphæð en svarar til 1,2
milljónum danskra króna.
Dönsku leikmennirnir, sem og
margir leikmenn frá Svíþjóð,
hafa reynzt hinum ríku félögum í
V-Evrópu sannkallaðir gullfuglar.
Forsvarsmenn danska knatt-
spyrnusambandsins segja eðlilegt
að ungir knattspyrnumenn láti
freystast af boðum sem þeir fá frá
hinum fjársterku félögum, en
telja óeðlilegt að þeir renni beint
á agnið. Þeir verði að fá nokkuð
fyrir sinn snúð og geti það. Benda
þeir t.d. á samning þann sem
Hans Aabeck náði við belgískt
knattspyrnufélag, sem er mun
betri en danskir leikmenn hafa
náð við v-þýzk félög.
Henning Jensen — einn hinna dönsku knatt-
spyrnumanna, sem mest kveður að í V-
Þýzkalandi um þessar mundir.
Halldór
Bragason
HANN heitir Halldór Braga-
son, er 28 ára gamall og prent-
ari að atvinnu. Hann hefur f
mörg ár staðið í fremstu víg-
línu íþróttaflokka Þróttar, er
með 212 leiki að baki i meist-
araflokki félagsins i hand-
knattleik og 190 i knattspyrnu.
Mörkin eru ekki mörg í fót-
boltanum þar sem hann leikur
aftarlega á vellinum, en í
handknattleiknum eru þau
áreiðanlega komin yfir 1000
því Dóri Braga er ekki vanur
að skora minna en 5 mörk í
leik.
Þeir eru ekki margir titlarn-
ir sem Halldór hefur af að
státa með félagi sinu. Einu
sinni hefur hann orðið tslands-
meistari i knattspyrnu, það
var í öðrum flokki. Reykja-
víkurmót meistaiaflokks vann
Þróttur 1966. Tvisvar hefur
Þróttur unnið i 2. deild, árin
1963 og 1965. Þriðja skiptið
verður næsta sumar að því er
Halldór segir og sumarið 1976
lofar hann lengri viðdvöl í 1.
deiid en aðeins einu ári. Sigur
í 2. deild í handknattleik ætla
Þróttarar sér i vetur og vissu-
lega er margt ólíklegra en sú
von þeirra rætist.
Helztu andstæðingar Þróttar
i báðum þessum iþróttagrein-
um eru Akureyringar. — Það
verður hálfleiðinlegt fyrir
Akureyringa segir Halldór, —
og ég sem er fæddur Akureyr-
ingur.
Halldór hefur verið valinn í
úrvalslið bæði í handknattleik
og fótbolta, aldrei þó landslið,
aðeins pressulið eða Reykja-
víkurúrval. Hann hefur þó
komist í landslið á sínum
iþróttamannsferli, það var þó
hvorki I hand- eða fótbolta,
heldur í körfuknattleik. Þá
íþrótt stundaði hann með KR
og lék með þvi félagi í ötlum
yngri flokkunum og varð bæði
Reykjavikur- og Islandsmeist-
ari. — Ég var þarna með Kol-
beini Pálssyni og fleiri góðum
íþróttamönnum sagði Halldór.
er við ræddum við hann á dög-
unum. — Ég hefði ef til vill átt
að hætta í annað hvort hand-
bolta eða fótbolta, en halda
áfram í körfunni. Eg hef oft
verið að hugsa um þetta,
kannski hef ég gert vitleysu,
en það er ekki hægt að vera i
þessu öilu saman, þó það sé
gaman.