Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 1
4. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Þannig var umhorfs í kauphöllinni f Chicago kl. 1 mfnútu yfir tólf á miðnætti 31. des., er nýtt gullæði
átti að hefjast í Bandarfkjunum. Reyndin hefur orðið önnur og áhugaleysi Bandarfkjamanna hefur
orðið til þess að stórlækka gullverð. A hinni myndinni sézt bandarfsku uppboðshaldarinn George
Jamieson lesa tilboð f gull á uppboði Bandaríkjastjórnar f gær.
Verðágulli
lækkar enn
TILtíOÐ AÐEINS í HELMING
MAGNSINSI WASHINGTON
Washington 6. janúar.
Reuter, NTB—AP.
FLEST bendir til, að bandarfsk
yfirvöld nái þvf takmarki sínu að
lækka gullverð með þvf að bjóða
til sölu á frjálsum markaði 2
milljónir gullúnsa. Er tilboð voru
opnuð f Washington f dag,
reyndist aðeins boðið f 956
þúsund únsur, eða tæpan helming
alls magnsins. Tilboðin, sem voru
209 að tölu, hljóðuðu allt frá
einum dollar fyrir únsuna upp f
188 dollara, sem var þó aðeins
fyrir Iftið magn. Er talið að
meðalverðið sé undir 160 doll-
urum fyrir únsuna. Stærsta til-
boðið kom frá v-þýzka Dresdner-
bankanum f 402 þúsund únsur og
230 þúsund tonn af olíu
í strönduðu risaskipi
var verðið frá 155 dollurum í 174
dollara. The Republic National
Bank of New York bauð frá 145
dollurum upp f 165 dollara f um
200 þúsund únsur og svissneskur
banki bauð frá 160—173 dollara f
52 þúsund únsur, önnur tilboð
voru miklu minni.
Það hefur nú komið í ljós, sem
fæstir bjuggust við, að almenn-
ingur í Bandaríkjunum er lítið
hrifinn af gulli sem fjárfestingu
og hefur hinn litli áhugi þar í
landi, frá þvi að gulleignarréttar-
lögin tóku gildi 31. janúar sl.
orðið til þess að verð á gulli hefur
lækkað um 24—25 dollara per
únsu á þeim tíma. Gullverð í
London við lokun markaðarins í
dag, sem var áður en uppboðið í
Washington hófst, var 173 dollara
fyrir únsuna, en var 198 dollarar
um áramótin. Er gert ráð fyrir að
verðið falli um 5—7 dollara, er
opnað verður í fyrramálið.
Singapore 6. janúar. Reuter.
JAPANSKT risaolfuskip, Showa
Maru, með 237 þúsund lestir af
hráolfu strandaði rétt sunnan við
Singapore í dag og runnu við það
um 5000 lestir af olíu í sjóinn,
sem myndaði um 4,6 km breiða
olíubrák, sem hreyfðist f átt til
beztu baðstranda Singapore.
Mikil skelfing hefur gripið um
sig meðal ráðamanna f Singapore
vegna strandsins og
tilhugsunarinnar um hvað gæti
gerzt ef skipið brotnaði f sundur
með svo gffurlegt olfumagn
innanborðs.
Hins vegar sagði skipstjóri
skipsins, Masaru Harada að nafni,
i simtali við dagblað í Singapore,
að olian hefði aðeins runnið úr
þremur tönkum og að lekinn
hefði nú stöðvazt. Sagði
skipstjórinn einnig, að engin
hætta væri á að skipið brotnaði i
sprengingu eða að hætta væri á að
meiri olía færi i sjóinn.
Yfirvöld og sérfræðingar eru
„Islendingar tilbúnir,” segja Þjóðverjar —
„Ekkert gerzt,” segja íslenzku ráðherramir
Bonn, 6. janúar AP.
RtJDIGER von Pachelbel, tals-
maður v-þýzku stjórnarinnar,
sagði á fundi með fréttamönnum
f Bonn f dag, að v-þýzka stjórnin
teldi nú, að rfkisstjórn Islands
hefði sama áhuga og hún á að
hefja á ný viðræður til að setja
niður fiskveiðideilur landanna.
Einar Agústsson, utanríkisráð-
herra sagði í viðtali við Mbl. í
gær, að ekkert hefði gerzt í milli
rfkisstjórna Islands og Vestur-
Þýzkalands, sem hvetti til þess að
viðræður yrðu teknar upp að nýju
í landhelgismálinu.
Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, sagði, að sér væri
ekki kunnugt um að neinar þreif-
ingar hefðu farið fram á milli
ríkisstjórnanna. Hins vegar sagði
ráðherrann, að því væri ekki að
leyna, að ýmsir menn væru oft og
einatt að spyrjast fyrir um málið,
en ekkert hefði farið fram á milli
stjórnanna opinberlega í málinu.
Kvað hann heldur ekkert útlit
fyrir það enn.
Talsmaðurinn sagði þetta, er
hann hafði neitað að láta í ljós álit
sitt á fregnum frá Islandi, um að
íslenzka ríkisstjórnin undirbyggi
útfærslu fiskveiðilögsöguna í 200
mílur á þessu ári. Sagði tals-
maðurinn, að v-þýzka stjórnin
hefði ekkert verið látin vita um
þennan ásetning og því gæti hann
ekkert um það sagt, auk þess sem
V-Þjóðverjar álitu að hafréttar-
ráðstefna S.þ. ætti að afgreiða
slíkt mál.
Von Puchelbel sagði stjórn V-
Þýzkalands telja það jafnmikil-
vægt og áður, að sem fyrst hæfust
Framhald á bls. 35
hins vegar ekki jafn bjartsýn,
einkum er á það er litið, að skipið
liggur á strandstað með skutinn
mun hærri upp úr sjó en stefnið.
Oliubrákin var aðeins um 4,5 km
frá ströndum Senatosaeyju, sem
yfirvöld í Singapore hafa kostað
gifurlegu fé til, til að gera það að
nýtízku ferðamannastað. Þá
hefur oliubrák einnig sézt um 20
km frá sa-strönd Singapore undan
Katong. Yfirvöld i Singapore
lýstu i kvöld yfir neyðarástandi á
þessu svæði og hafa allir
slökkviliðsbátar og skip frá
olíufélögunum verið send á
staðinn til að sprauta efnablöndu
á brákina, til að gera tilraun til að
sökkva henni, en hún er um 5 sm
þykk. Showa Maru var á leið frá
Persaflóa til Japans, er óhappið
varð og liggur skipið nú á einni
fjölförnustu siglingaleið heimsins
við sa-enda Malaccasunds, sem er
um 75 km breitt á þessum slóðum.
Lægsta
verðí
20 ár
London 6. janúar.
Reuter.
VERÐBRÉFAMARK-
AÐURINN í Lundúnum
skráði í dag lægstu
hlutabréfaverð á sl. 20
árum. Verðbréf lækkuðu
mjög vegna orðróms um
yfirvofandi gjaldþrot
ýmissa fyrirtækja og
versnandi horfur í efna-
hagsmálum. Meðal-
verðið á verðbréfaskrá
Financial Times féll
niður í 146,2 stig og
hefur ekki verið lægri
síðan í maí 1954.
Vinstri spáð 20—30 sæta
fylgisauknmgu á finuntudag
Nýtt þing verður að taka afstöðu á ný til þinghelgissviptingar Glistrups
Glistrup
Kaupmannahöfn, 6. jan.
Frá fréttaritara Mbl.
Jörgen Harboe.
SENN líður að lokum
kosningabaráttunnar {
Danmörku, þar sem gengið
verður að kjörborði nk.
fimmtudag. Kosningabaráttan
hefur verið ( daufara lagi,
kosningafundir fáir en þeim
mun meira um ræðuhöld og
umræður f útvarpi og
sjónvarpi. A hinn bóginn
benda skoðanakannanir til
þess, að kosningarnar hafi í för
með sér verulegar breytingar í
dönskum stjórnmálum.
Sú er skoðun margra, að
sá stjórnmálaflokkur, sem
stærstur hefur verið i
Danmörku í meira en fjörutíu
ár, Sósialdemókratar, verði að
lúta í lægra haidi fyrir
núverandi stjórnarflokki,
Vinstri, sem telst frjálslyndur
flokkur.
Nýlega skýrði siðdegisblaðið
BT frá reynslukosningum, sem
það hafði gengizt fyrir á
dönskum vinnustöðum, og
þóttu úrslit þeirra renna
stoðum undir þessa afstöðu.
Framhald á bls. 35