Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975 27 konu og dóttur og veiti þeim styrk í þeirra sáru raun. En sú er hugg- un harmi gegn. Minningin um ást- kæran maka og föður er bíður þeirra á ströndinni handan lífs og dauða. Arnþrúður og Einar Reynis. Ragnar Jóhannesson var fædd- ur að Hólum í Öxnadal 16. maí 1905. Foreldrar hans voru Jóhannes Sigurðsson bóndi á Engimýri Mikaelssonar, Árna- sonar skálds á Skútum á Þela- mörk, Sigurðssonar og Guðný Jónsdóttir, sem lengi bjuggu á Engimýri í öxnadal, þar sem Ragnar ólst upp í stórum syst- kinahópi. Þann 30. april 1933 gekk Ragnar að eiga Margréti Jósefs- dóttur, Björnssonar, fyrrv. skóla- stjóra á Hólum í Hjaltadal. Lifir hún mann sinn ásamt einkadóttur þeirra, Brynhildi. Ragnar réðst til Sambands ísl. samvinnufélaga 2. desember 1955. Þar vann hann síðan til dauðadags. I verðlagningardeild Sambandsins unnum við saman siðustu árin. Það hefur verið siður í Sam- bandinu sl. tuttugu og átta ár, að starfsmennirnir hafa komið sam- an á aðfangadag jóla að afloknu starfi til þess að minnast sameiginlega fæðingar frels- arans. Forstjórinn hefur þá lesið jólaguðspjallið og flutt jólahug- leiðingu og við höfum sungið jóla- sálma. Starfsmenn Sambandsins hafa notið þessarar einföldu og einlægu helgistundar. Siðastliðinn aðfangadag kom- um við saman að loknu starfi, samkvæmt venju. Ragnar lék þá undir sálmasönginn, eins og svo oft áður. Einhvern veginn fannst mér undirspilið óvenjulega hug- ljúft í þetta sinn. Ég hafði orð á þessu við Ragnar á eftir, um leið og við kvöddumst með jólaóskum. Mér fannst, að ég þyrfti að þakka honum sérstaklega fyrir þetta núna. Ekki vissi ég þá, að þetta yrði síðasta kveðjustundin okkar á þessari jörð. Ragnar var að mörgu leyti óvenjulegur maður. Honum var svo margt til lista lagt. Eiginlega fannst mér hann hafa flesta þá kosti til að bera, sem einn mann mega prýða. Hann var mjög góður hagyrðingur. Hagmælskan var honum i blóð borin. Hann var bæði fljótur og vandvirkur. Aldrei stóð á svari, ef til hans var beint stöku, og tafði það þá ekki fyrir honum, þótt dýrt skyldi kveðið. Söngeyra átti hann afar næmt, lék á hljóðfæri, samdi lög og var ágætur söngmaður. Ragnar var góður smiður og lék allt í höndum hans. Hann var og ágæt- ur skrifstofumaður, samvisku- samur og traustur. Á heimili þeirra Margrétar og Ragnars, að Móaflöt 21 i Garðahreppi, var gott að koma. Þar bar allt vott um sérstaka smekkvísi þeirra hjóna, úti sem inni. Þar ríkti gestrisni og hlýhugur. I daglegri umgengni var Ragnar hvers manns hugljúfi. Alis staðar, þar sem hann kom, vakti hann ánægju og gleði með sinni léttu og græskulausu gamansemi. Ég minnist sérstak- lega morgunstundanna, þegar hann kom inn til min og tyllti sér niður með kaffibollann sinn. Þá birti í herberginu. Við litum upp frá vinnunni stutta stund og röbbuðum saman. Oft flutu þá vísur með. Og eitt er vist, að aldrei fór hann svo út frá mér, að hann skildi ekki eftir birtu og yl, sem entist mér það sem eftir var dagsins. Ég veit, að ég mæli fyrir munn allra samstarfsmanna Ragnars I Sambandinu og fleiri, þegar ég segi: Hafi hann kæra þökk fyrir samstarfið og allt gott á liðnum árum. Þótt hann sé nú farinn frá okkur, munum við ætíð geyma i þakklátum huga ljúfar minningar um góðan dreng. Við hjónin vottum ykkur, Margrét og Brynhildur, og öðrum vandamönnum, okkar dýpstu samúð. Megi góður Guð blessa ykkur og styrkja. Björn Guðmundsson. „Vinir minir fara fjöld — “. Svo kvað Hjálmar og reynir það hver sá, er háum aldri nær. Og ekki þarf aldraður maður að undrast, þótt jafnaldrar hverfi honum einn og einn á bak við tjaldið, sem heimana skilur að. Engu að síður verður honum oft bilt við hel- fregnina. Þannig fór mér, er ég siðasta jóladag frétti lát fermingarbróður míns, Ragnars Jóhannessonar, sem þann hátíðis- dag kvaddi jarðlífið skyndilega. Hann hafði farið til vinnu sinnar að morgni aðfangadags og unnið þar til hádegis, og um kvöldið var hann heima með f jölskyldu sinni án þess að kenna sér meins. Eng- an grunaði, hvað beið við næsta leiti. Við sjáum litið fram. Guði sé lof fyrir það. Við Ragnar kynntumst fyrst, er við gengum til fermingarundir- búnings til séra Theódórs Jóns- sonar á Bægisá, en betur þó tveim árum síðar, þegar við vorum sam- an á 8 vikna skóla eða námsskeiði hjá Bernharð Stefánssyni al- þingismanni á Þverá í öxnadal. Þessi æskukynni nægðu til þess að vináttuböndin slitnuðu aldrei, þó að siðar á ævinni liðu oft ár milli samfunda. En fleira studdi það, m.a. kenndi ég dóttur hans i barnaskóla á Akureyri og einnig síðar hér í Reykjavik. Ragnar Jóhannesson var fædd- ur og uppalinn i öxnadal, gegnt Hraundranga. Faðir hans, Jóhannes Sigurðsson, var og bor- inn Öxndælingur. Hann er dáinn fyrir allmörgum árum, en móðir Ragnars er enn á lifi 94 ára að aldri. Hún heitir Guðný Jónsdótt- ir og er ættuð úr Eyjafirði. Hún var náskyld Stefáni Bergssyni, föður Bernharðs alþm. og alin upp hjá honum og konu hans, Þorbjörgu Friðriksdóttur. Þau hjónin áttu þrjú börn: Rann- veigu, Steingrím og Bernharð. Voru þau sem systkin Guðnýjar og minntist hún þeirra, er hún skyldi velja syni sínum nafn, þeim er hér er sagt frá. Hann hét fullu nafni: Ragnar Bernharð Steingrímur. Foreldrar Ragnars hófu búskap að Hólum, og mun Ragnar vera fæddur þar, en fluttust síðar eina bæjarleið að Engimýri og bjuggu þar nær 30 ár. Engimýri stendur rétt fyrir framan hólana og er nú efsti eða fremsti bær í Öxnadal, en svo var ekki á uppvaxtarárum Ragnars. Þá munu hafa verið 24 bæir byggðir i dalnum, nú eru þeir 12. Engu að síður mun afrakstur þessara fáu búa vera meiri nú en af helmingi fleiri byggðum bólum fyrir hálfri öld. Hitt er augljóst, að félagslif innan þessarar litlu sveitar er með öðru móti og fátæklegra. Þeim Engimýrarhjónum fædd- ust alls 10 börn, og náðu 7 þeirra fullorðinsaldri. Engimýri er í þjóðbraut og var jafnan gest- kvæmt á heimilinu — oft nætur- gestir. Norðurlandspóstur átti leið þar um og fór ekki framhjá, oft gisti hann þar á vesturleið. Venjulega voru einhverjir í fylgd með póstinum. Ekki gátu foreldrar Ragnars talizt efnaðir, en þó bjargálna. Barlómur átti þar ekki athvarf, heimilislífið var frísklegt — var oft glatt á hjalla í litlu, tvíhólfuðu baðstofunni. Systkinahópurinn var samstæðurf mannvænlegur, glaðsinna. Húsbóndinn var ágæt- ur hagyrðingur og kastaði oft fram vísum við ýmis tækifæri, gerði á þann hátt oft gaman úr alvörumálum. Fengu sum börnin hans þar einhvern arfahluta, en Ragnar áreiðanlega drýgstan. Hann var vel skáldmæltur, en lít- ið bar á því framan af ævinni. Á seinni árum var oft leitað til hans, ef senda þurfti vel orðað skeyti eða henta þótti að láta ijóð fylgja tækifærisgjöf, og brást hann þá jafnan vel við. Söngtexta samdi hann stundum, ef þörf var á, t.d. er eftir hann erindið „Manstu ekki, vina, okkar fyrsta fund?“, sem Smárakvartettinn á Akureyri syngur. Það er ekki á allra færi, þótt hagyrðingar kallist, að yrkja góðar sléttubandavísur. Hér er ein af þeirri gerð eftir vin minn, Ragnar: „Getur þíða sunnan senn sönginn víða borið. Vetur stríðan eftir enn yljar blíða vorið“. Tónlistarhæfileikar komu einn- ig fram hjá þeim Engimýrarsyst- kinum. Er mér tjáð, að þá megi rekja fremur til móður en föður. Þar náði Ragnar einnig lengst eins og i hagmælskunni. Hann var ekki gamall né hár í lofti, er hann lék á harmóniku fyrir dansi. Seinna lærði hann að spila á orgel m.a. hjá hinum kunna organleik- ara og söngstjóra, Magnúsi Ein- arssyni á Akureyri, en löngu siðar naut hann tilsagnar Páls Isólfs- sonar. Þó að þröngt væri setinn bekk- urinn i Engimýri, var hægt að koma þar fyrir orgeli, og eftir að það kom á heimilið, var það ekki látið ónotað, og fóru fleiri hönd- um um nótur þess en Ragnar einn. Er hann kvæntist, lagði kon- an píanó í búið, og voru þá tvö hljóðfæri á heimilinu um tima. Orgelinu var síðar fargað, en án hljóðfæris gátu þau hjónin ekki hugsað sér heimilið. Ragnar tók talsverðan þátt i sönglífi, söng m.a. í kórum á Akureyri og viðar. Kirkjuorganleikari var hann við tvær kirkjur um nokkur ár er hann átti heima á Vatnsleysu í Skagafirði. Mörg lög samdi hann og skrifaði niður, en ekki veit ég til þess að gefið hafi verið út nema eitt, Hallarfrúin (textinn eftir Davíð Stefánsson). Ragnar Jóhannesson var maður fjölhæfur, kom það fram víðar en í hagmælsku og tónlist. Hann var smiður svo góður, að ekki sér mun á mörgum þeim hlutum, sem hann smiðaði, og verkum full- lærðra smiða margra. Fyrir 8 árum keypti hann fokhelt ein- býlishús á Móaflöt 21. Innan- hússmíði i þvi húsi er að miklu leyti hans verk, þar á meðal eldhúsinnréttingin, og hef ég ekki séð nokkur missmíði þar á. A heimilinu má einnig sjá ýmsa smáhluti smekk- lega og haglega gerða af honum. Mér er kunnugt um, að föður- frændur Ragnars sumir voru lag- hentir menn, sem kallað er, en ekki veit ég tii þess, að hann hafi fengið kennslu í smíðum utan það, sem kann að hafa verið kennt i bændaskólanum á Hólum, þegar hann var þar. Hann sá jafnan svo um, eftir að hann eignaðist eigin íbúðir, að einhvers staðar i hús- rýminu væri staður, þar sem hann gæti haft aðstöðu til smiða. Þau hjón voru samvalin um fágun og snyrtimennsku á heimili bæði innan húss og utan. Tvisvar hafa þau fengið verðlaun fyrir ræktun og umgengni á lóðum sínum. Sjálfur var Ragnar jafnan snyrtilegur í háttum og klæða- burði. Smár var hann vexti en svaraði sér vel. Svipur hans var bjartur og yfirbragð hressilegt. Hann var liðlega vax- inn, enda góður leikfimimaður og gliminn þegar á ungum aldri. Var gaman að sjá hann verjast sér miklu stærri og sterkari mönnum. Starfsævi Ragnars var í sam- ræmi við fjölbreytta hæfiieika hans. Hann gekk þar ekki alltaf eina og sömu götu. Eins og áður getur, stundaði hann nám við bændaskólann á Hólum og siðan í íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar i Haukadal. Að þvi loknu gerðist hann kennari i leikfimi við Hóla- skóla, en mun reyndar hafa kennt þar eitthvað fleira. A þeim árum kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Margréti, dóttur Jósefs Björnssonar, hins þjóðkunna kennara og skólastjóra á Hólum. Þau giftust árið 1933 og hófu þá búskap á föðurleifð konunnar, Vatnsleysu, og ásamt með foreldr- um hennar. Eftir 8 ára búskap þar brugðu þau ráði sínu og flutt- ust til Akureyrar. Þar fékk Ragn- ar þegar starf hjá Kaupfélagi Ey- firðinga, en siðasta árið rak hann eigin verzlun, sem hann gaf nafn- ið Drangey. Eftir 13 ára dvöl á Akureyri lá leiðin til Reykjavikur. Ragnar réð sig þar til skrifstofustarfa hjá SlS, og þar vann hann til hinzta dags. Siðasta verk hans var að leika jólalög á hljóðfærið fyrir starfsfólkið. Það var fyrir hádegi á aðfangadag. Þannig kvaddi hann vinnustað og samstarfsfólk. Þá var ekki annað eftir en að aka heim og halda jóiin með konu og dóttur. Það urðu stutt jól, en ég veit, að stundin hefur verið björt og hlý. Ég hef nefnt dóttur þeirra hjóna en ekki getið nafns hennar. Hún heitir Brynhildur og er ein- birni. Hún hefur alla tíð fylgt foreldrunum og haldið heimili með þeim í seinni tíð. Ég þekki hana vel og veit, að móðurinni er að henni mikill styrkur. Ég flyt þeim mæðgum báðum innilega samúð mina og bið Guð að gefa þeim sólarsýn. Einnig sendi ég móðurinni öldnu fyrir norðan og systkinum Ragnars öll- um samúðarkveðjur. Eirikur Stefánsson frá Skógum. Á jóladagsmorgni er Ragnar Jó- hannesson á heimili sinu að Móa- flöt 21 í Garðahreppi, en skjótt skipast veður í lofti, því skyndi- lega fer hann á Landspitalann vegna bióðtappa og lézt þar nokkrum klukkustundum siðar, 69 ára aldri. I dag þriðjudaginn 7. jan. kl. 13.30 fer fram útför hans frá Fossvogskapellu. Ragnar fæddist að Hólum í Öxnadal, en fluttist ungur með foreldrum sín- um, Jóhannesi Sigurðssyni og Guðnýju Jónsdóttur, að Engimýri í sömu sveit. Þar ólst hann upp í hópi sjö systkina, en þrjú dóu í bernsku. Þau sem upp komust voru: Stefán, dáinn fyrir mörgum árum, Jóhannes, sem lengi bjó á Vindheimum í Þelamörk, er nú á Akureyri, Björg húsfrú á Bakka í Öxnadai, Sigurður, gjaldkeri hjá Vita- og hafnarmálaskrifstofunni í Reykjavík. Maria, húsfrú á Akureyri, og Tryggvi bifreiða- stjóri á Akureyri. Ragnar nam í Hólaskóla og lauk þaðan búfræðiprófi árið 1930. Næsta vetur stundaði hann nám við Iþróttaskólann í Haukadal og útskrifaðist þaðan með kennara- prófi i leikfimi, eins og það var kallað þá. Glímumaður var hann svo góður, að hann var valinn annar maður til glímusýningar á Þingvöllum 1930. íþróttakennari við Bændaskóiann á Hólum 1931—34, þá flyzt hann ásamt konu sinni, Margréti Jósefsdóttur að Vatnsleysu í Viðvíkursveit. Þar bjuggu þau í félagsbúi með foreldrum Margrétar, þeim Hildi Björnsdóttur og Jósef Björnssyni, sem hættur var störfum fyrir aldurssakir, sem skólastjóri á Hól- um. Ragnar og Margrét giftu sig 30. apríl 1933 og eignuð- ust eina dóttur, Brynhildi að nafni, sem nú býr með móð- ur sinni. Frá Vatnsleysu flytur Ragnar og fjölskylda 1942 til Akureyrar, þar sem hann stundaði skrifstofu- og verzlunar- störf, lengst af hjá K.E.A. eða til ársins 1955 að f jölskyldan flyzt til Reykjavíkur og Ragnar verður skrifstofumaður Sambands is- lenzkra samvinnufélaga, þar sem hann vann til hinztu stundar. Réttum sólarhring áður en hann var burt kallaður úr þessum heimi, lék hann á slaghörpuna og söng sálma með vinnufélögum sínum, eins og hann hafði gert sl. 20 ár, er þeir komu saman til helgistundar fyrir jólaleyfi. En þessi helgistund varó um leið hans kveðjustund og það verður að teljast táknrænt fyrir hann að kveðja sína vinnufélaga með hljóðfæraslætti og söng. Þeirri gáfu var hann gæddur i ríkum mæli og veitti öðrum úr þeim listabrunni af sinni ljúfmennsku. Frá því í mai 1967 hefur Ragnar og fjölskylda átt heima að Móaflöt 21 í Garðahreppi, friðsæll og fag- ur staður, þar sem fer saman mikil gestrisni og elskulegt við- mót húsbændanna, þar eru og góðir nágrannar, sem nú reynast þeim mæðgum vinir á rauna- stundu. Hjá Ragnari fór saman hagleikur til handa og fegurðar- skyn, þvi hann smíðaði mikinn hluta af innréttingu íbúðarinnar og ýmsa muni heimilisins i frí- stundum sinum. Sem dæmi má nefna, um fegurð i fari og um- hverfi þessarar fjölskyldu, að I. fegurðarverðlaun fékk garðurinn hjá þeim 1974 og sams konar við- urkenningu fengu þau á Akureyri að Helgamagrastræti 21. Fegurð í umhverfi og fegurð i sál, þvi fögur voru kvæðin og vís- urnar, sem hann orti enda hlaut hann oft viðurkenningu og sigur- laun í ljóðakeppni í sinum vina- hópi. Nokkur af kvæðum hans eru landskunn, t.d. „Manstu ekki vina“, sem Smárakvartettinn á Akureyri syngur á hljómplötu. Lausavísur Ragnars eru margar velþekktar og hafa birzt í blöðum og timaritum og hans ljóðagerð öll ber vott um hlýhug og góðvild blönduð glettni, sem auðkenndi hans dagfarsprúðu framkomu og vart leið sá dagur, að hann gerði ekki vísu um viðhorfin, þó ekki væru þær allar skráðar, en eitt- hvað mun nú vera til uppskrifað af tækifærisvísum og kvæðum. Ekki átti Ragnar langt að sækja hagmælskuna, því faðir hans, Jöhannes frá Engimýri, var kunn- ur hagyrðingur og eftir hann eru margar landfleygar visur og gamankvæði, sem sungin eru enn i dag, eins og „Ég fer i sparifötin mín og fer svo ballið á o.s.frv.", en lífsgleðina og dugnaðinn erfði hann ekki sízt frá móður sinni, sem er nú 94 ára gömul og hefur fram að þessu tekið þátt i gömlu dönsunum á Akureyri, ef svo ber undir. Það sem gerir Ragnar Jóhannesson hvað mest ódauðleg- an meðal samtíðar og framtíðar eru tónlistarhæfileikar hans. Ungur að aldri fékk hann tilsögn í orgelleik hjá prestfrúnni á Framhald á bls. 35 Söngskglinn í Reykjavík The Reykjavik School of Singing Loufósvegi 8 -Reykjavik - lcebnd '^|r Telephone 21942 Vegna húsfyllis á síðustu tónleikum og fjölda áskoranna verða tónleikar Söngskólans í Reykjavík endurteknir í Háteigskirkju í dag, sunnudag 5. jan. kl. 1 8.00 (kl. 6). Flutt verður: Missa in Angustiis (Nelson messan) eftir Haydu fyrir 4 einsöngvara, kór og hljómsveit. Stjórnandi Garðar Cortes. Aðgöngumiðar við innganginn. Málaskóli DANSKA, ENSKA, ÞÝZKA, FRANSKA, SPÆNSKA, ÍTALSKA OG ÍSLENZKA FYRIR ÚTLENDINGA. KVÖLDNÁMSKEIÐ. SÍÐDEGISTÍMAR. INNRITUN DAGLEGA. KENNSLA HEFST 13. JANÚAR. SKÓLINN ER TIL HÚSA í MIÐSTRÆTI 7. SÍÐASTA INNRITUNARVIKA. 2-69-08, Halldórs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.