Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975 23 Gunnar G. Schram, prófessor: einnig allan innflutning samskon- ar vöru frá öllum öðrum löndum. Orðrétt er greinin svohljóðandi: „Samningsaðili skal ekki beita banni eða höftum gegn innflutn- ingi neinnar vöru frá landsvæði annars samningsaðila eða gegn útflutningi neinnar vöru til land- svæðis annars samningsaðila, nema innflutningur samsvarandi vöru frá öllum öðrum löndum eða útflutningur samsvarandi vöru til allra annarra landa sé bannaður eða háður höftum á samsvarandi hátt.“ Hér er undirstrikað að jafnvel þótt innflutningsbann kunni eða forðast þróun, er kynni að stofna i hættu hagkerfum þeirra eða hag- kerfum annarra þjóða. d) halda áfram aðgerðum sín- um til að draga úr eða afnema takmarkanir á skiptum varnings og þjónustu og greiðslum, og við- halda og auka frjálsa hreyfingu fjármagns." Hér hefur Vestur-Þýzkaland undirgengizt þá ótviræðu skyldu að forðast að framkvæma nokkuð það, sem stofnað gæti hagkerfi tslands i hættu og jafnframt skuldbundið sig til að afnema hömlur á viðskiptum með varning við aðildarríkin, þ. á m. Island. Löndunarbannið í Vestur- Þýzkalandi og lögmæti þess Svo sem kunnugt er var vestur- þýzki togarinn „Arcturus" tekinn að ólöglegum veiðum innan ís- lenzku fiskveiðilögsögunnar þann 24. nóvember siðastliðinn. Nokkr- um dögum seinna lýstu stjórnir norðvesturfylkja landsins yfir löndunarbanni á íslenzkum fiski í vestur-þýzkum höfnum og var fullt samráð haft við samtök vest- ur-þýzkra togaraeigenda um þessa ráðstöfun. Enn var hér þó aðeins um hálfopinbera ráðstöfun að ræða, þar sem vestur-þýzka sambandsstjórnin í Bonn hafði ekki látið frá sér heyra um lönd- unarbannið. En þann 3. desember sl. tjáði von Schenk, yfirmaður þjóðréttardeildar vestur-þýzka utanríkisráðuneytisins, Arna Tryggvasyni, ambassador Islands i Bonn, að vestur-þýzka rikis- stjórnin væri samþykk löndunar- banninu. Með þvi að lýsa yfir þessu sam- þykki sínu skapaði vestur-þýzka stjórnin sér þjóðréttarlega ábyrgð á löndunarbanninu, sem fram að þeim tima hafði ekki verið um að ræða í málinu. A sínum tima var ekki um slíka ábyrgð að ræða af hálfu Bretlands, er löndunarbann var sett á islenzkan fisk í brezkum höfnum á öndverðum sjötta ára- tugnum. Brezka ríkisstjórnin marglýsti því yfir, að hún stæði ekki að baki því löndunarbanni, heldur hafnarverkamenn, og gæti því ekki borið ábyrgð á því tjóni, sem það olli islenzkum aðilum. Hér er hinsvegar öðruvisi að verki staðið. Þessvegna er ekki úr vegi að kanna nokkru nánar hverjar eru afleiðingar þess að það er rfkisstjórn Sambandslýð- veldisins, sem sjálf hefur opin- berlega Iagt blessun sína yfir þessa fátiðu aðgerð i samskiptum þjóða, og þá sérstaklega hvernig þetta atferli komi heim og saman við þær alþjóðlegu skuldbind- ingar, og samningsákvæði, sem Vestur-Þjóðverjar hafa tekizt á herðar á liðnum árum. Þarf ekki lengi að lesa áður I ljós kemur að löndunarbannið brýtur gróflega i bága við ýmsa alþjóðasamninga, sem tslendingar og Vestur- Þjóðverjar eru báðir aðilar að. Af þvi leiðir að það löndunarbann, sem hafið var af hálfu vestur- þýzkra stjórnvalda í byrjun desember 1974, hlýtur að teljast fullkomlega ólögmætt og samn- ingsrof að þjóðarétti. Ákvæði hins almenna samkomulags um tolla og viðskipti (GATT) Aðild tslands að hinum alþjóð- legu viðskiptasamtökum, GATT, gekk i gildi 21. apríl 1968 og var birt hér á landi 1. júli sama ár. Vestur-Þýzkaland er einnig aðili að samtökunum. Markmið samtakanna er, svo sem það er skýrt í formála GATT- samningsins, að aðildarríkin gera gagnkvæma samninga öllum til hagsbóta, sem lækki verulega tolla og dragi úr öðrum viðskipa- hömlum og afnemi mismunun í alþjóðaviðskiptum. I 11. grein samningsins er fjallað nánar um almennt afnám viðskiptahafta, þar sem viðskipta- höft, svo sem innflutningsbann, eru lýst brot á samningunum. Orðrétt er greinin svohljóðandi: „Enginn samningsaðili skal við- halda eða setja önnur bönn eða höft en tolla, skatta eða aðrar álögur, hvort heldur sem er með kvótum, inn- eða útflutningsleyf- um eða með öðrum aðgerðum, á innflutning neinnar vöru frá landsvæði annars samningsaðila eða útflutning eða sölu til út- flutnings neinnar vöru til land- svæðis annars samningsaðila.“ Hér er lagt blátt bann við þvi að eitt samningsriki setji innflutn- ingsbann á afurðir eða vörur frá öðru samningsríki. A greinin því beinlinis við að þvi er varðar við- skiptabann Vestur-Þjóðverja. Það er tvimælalaust brot á þessu ákvæði. Að vísu er I fáeinum und- antekningartilfellum heimilt að beita innflutningsbanni, m.a. þeg- ar það er nauðsynlegt til fram- kvæmda á reglum eða fyrirmæl- um viðvikjandi flokkun, gæðaeft- irliti eða sölu vara í alþjóðavið- skiptum, eða vegna offramleiðslu. Þessi undantekningarákvæði eiga hér á engan hátt við og ótvirætt að hin almenna regla, sem lýsir innflutningsbönn ólögmæt, hefur verið brotin. I 13. grein GATT-samningsins er síðan fjallað um mismunar- lausa framkvæmd viðskiptahafta, þ.e. þeirra hafta, sem lögmætt er að beita milli samningsaðila í við- skiptum þeirra. Er þar sett fram sú meginregla að ekki skuli samn- ingsaðili beita banni gegn inn- flutningi neinnar vöru frá einu samningslandi, nema banna þá geta talizt lögmætt í vissum tilvik- um verður þó eitt yfir alla að ganga i þeim efnum — samnings- aðila er algjörlega bannað að leyfa innflutning ákveðinnar vöru frá einu samningslandi, en banna innflutning samskonar vöru frá öðru samningslandi. Bann gegn innflutningi íslenzks fisks til Vestur-Þýzkalands á sama tima og leyft er að flytja til landsins fisk frá öðrum löndum, er þvi ólögmætt og skýlaust brot á ákvæðum 13. greinar GATT- samningsins. Er það raunar grundvallarregla, sem gengur eins og rauður þráður í gegn um allan GATT-samninginn, að rikj- um skuli ekki mismunað í við- skiptum, allir skuli þar njóta sama réttar. Frá þessari megin- reglu eru i samningnum leyfðar takmarkaðar undantekningar m.a. höft til að vernda greiðslu- jöfnuð ríkisins, sem inn flytur, en ekkert þeirra undantekningartil- vika getur átt við um innflutn- ingsbann Vestur-Þjóðverja, er geri það lögmætt. Er því sú niðurstaða óhjá- kvæmileg, eftir könnun á ákvæð- um GATT-samningsins að vestur- þýzk stjórnvöld hafi brotið gegn ákvæðum hans, er þau samþykktu löndunarbannið. Samningurinn um efnahagssamvinnu- og framfarastofnunina (OECD) Samningur þessi var fullgiltur af forseta Islands 28. april 1961 og gekk I gildi 30. september 1961. Vestur-Þýzkaland er einnig aðili að samningi þessum. I 1. grein samningsins er fjallað almennt um markmið hans. Er þar eitt meginmarkmið hans til- greint á svofelldan hátt, að stofn- unin skuli: „stuðla að heilbrigðri efnahags- legri útþenslu jafnt i aðildarrikj- um sem þeim, er ekki eru aðilar, en skemmra eru á veg komin“. 1 2. grein samningsins er siðan fjallað um skyldur aðildar- rikjanna. Er þar sagt að til þess að ná markmiðum samningsins skuli aðildarríkin hvert um sig og sam- eiginlega m.a.: ,,c) fylgja stefnu, er miði að því að ná efnahagslegum vexti og innra og ytra fjárhagsjafnvægi og Verður ekki hjá þeirri ályktun komizt, að með löndunarbanninu hafi verið gróflega brotið gegn hinum tilgreindu ákvæðum OECD-samningsins. Alþjóðlegar viðskipta- yfirlýsingar 1974 Þá má enn nefna að Vestur- Þýzkaland var meðal þeirra ríkja sem gáfu alþjóðlegar viðskiptayf- irlýsingar, svonefndar „trade pledges" bæði innan OECD og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á ný- liðnu ári. Efni þessara yfirlýsinga var að ríki skyldu forðast að taka upp ný viðskiptahöft í hvaða mynd sem væri og stuðla þess í stað að auknu frjáisræði í við- skiptum og vörustreymi milli þjóða. Mun sá skilningur vart þykja langsóttur að með löndunarbann- inu hafi Vestur-Þýzkaland brotið i bága við anda og efni þessara viðskiptayfirlýsinga sinna. Ákvæði viðskipta- samninga íslands og Vestur-Þýzkalands Milli Islands og Vestur- Þýzkalands voru í gildi tveir við- skiptasamningar, sá fyrri frá 19. desember 1950 og hinn siðari frá 20. mai 1954. Neitaði vestur-þýzka stjórnin að framlengja siðari samninginn 1958 vegna landhelg- isdeilunnar, sem þá var nýbyrjuð. Fyrri samningurinn er hinsvegar enn I gildi, en hann framlengist sjálfkrafa eitt ár í senn, ef honum hefur ekki verið sagt upp af öðr- um hvorum samningsaðila. Um slika uppsögn hefur ekki verið að ræða. Fyrri málsgrein 2. greinar þessa samnings er svohljóðandi: „Hvor samningsaðila mun veita hinum beztu kjör. öll hlunnindi ivilnanir eða undanþágur, sem annar samningsaðilanna veitir, að þvi er snertir vörur, sem fluttar eru inn frá einhverju öðru landi, eða fluttar eru út til einhvers annars lands, skulu einnig gilda um allar sams konar vörur, sem fluttar eru inn frá landsvæði hins samningsaðilans eða fluttar út þangað. Þetta skal gilda um tolla, skatta og sérhver önnur gjöld, sem lögð eru á í sambandi við inn eða útflutninginn.“ Með beztukjaraákvæði þessu er greinilega fram tekið að islenzkar afurðir sem fluttar eru til Vestur- Þýzkalands, skulu ekki í neinu sæta lakari viðskiptakjörum en afurðir frá öðrum löndum. Með samningsákvæði þessu er því al- gjörlega bannað að íþyngja íslenzkum útflutningi til Vestur- Þýzkalands — hvað þá að setja innflutningsbann á íslenzkar vör- ur, en leyfa innflutning samskon- ar afurða frá öðrum löndum. stonfað til nýrra innflutnings- Fríverzlunarsamning- urinn milli Islands og Efnahagsbandalagsins Þann 1. april 1973 tók gildi fri- verzlunarsamningur milli Islands og Efnahagsbandalagslandanna. Er markmið hans að fella smám saman niður tolla og önnur höft í viðskiptum þessara landa. Segir I 1. grein samningsins að markmiði þessu skuli náð með þvi að efla með aukningu gagnkvæmra viðskipta samfellda þróun efna- hagssamskipta Islands og EBE landanna og að stuðla þannig að efnahagslegum framförum, bættum lífskjörum og atvinnu- skilyrðum, aukningu framleiðni og fjármálalegu jafnvægi á Is- landi og i Efnahagsbandalaginu. I öðru lagi að tryggja að viðskipti samningsaðilanna eigi sér stað á grundvelli eðlilegrar samkeppni og loks að stuðla þannig með afnámi viðskiptahafta að sam- felldri þróun og aukningu alþjóðaviðskipta. I 13. grein samnings þessa er svofellt ákvæði að finna: „I viðskiptum Islands og Efna- hagsbandalagsins verður hvorki stofnað til nýrra innflutnings- hafta né annarra ráðstafana, sem hafa samsvarandi áhrif.“ Að þessu leyti eru ákvæði samnings þessa hin skýrustu að þvi er varðar bann við innflutn- ingshöftum nýjum eða þá inn- flutningsbanni, í viðskiptum Is- lands og Vestur-Þýzkalands, sem er eitt meiriháttar EBE-ríkið. Hinsvegar er á það að líta, að ákvæði samnings þessa, sem fjalla um viðskipti með sjávarafurðir, (bókun 6), hafa ekki enn komið til framkvæmda sökum landhelg- isdeilunnar. Má því með nokkrum rétti segja að hæpið sé telja Vest- ur-Þjóðverja hafa brotið gegn ákvæðum samningsins, þegar um er að ræða innfluttar sjávaraf- urðir. En jafn ljóst er, að inn- flutningsbannið stríðir vitanlega almennt gegn efni og tilgangi samningsins i heild sinni. Lokaorð Hér hefur nú verið vikið að ákvæðum nokkurra alþjóðasamn- inga, sem telja verður að vestur- þýzka stjórnin hafi brotið, er hún samþykkti löndunarbannið gagn- vart Islendingum i nóvember- mánuði siðastliðnum. En spyrja má I þessu sambandi: Leysir það ekki vestur-þýzk stjórnvöld undan allri ábyrgð I þessu efni að taka vestur-þýzka togarans er umdeilanleg að þjóða- rétti og Vestur-Þjóðverjar hafa hingað til neitað að viðurkenna 50 mílna fiskveiðilögsöguna? Er það atferli þeirra að virða að vettugi framangreind samningsákvæði ekki vítalaust vegna þessa? Þessari spurningu verður að svara afdráttarlaust neitandi. Jafnvel þótt vestur-þýsk stjórn- völd hafi neitað að viðurkenna 50 milna lögsöguna og telja töku tog- arans algjörlega ólögleg^ veitir það þeim engan rétt til þess að brjóta skýlaus ákvæði bæði alþjóðlegra og gagnkvæmra viðskiptasamninga, sem þeir eru aðilar að. I samningunum sjálfum er tæmandi um það fjallað af hvaða orsökum samningsaðilar geti gripið til ákveðinna verndar eða refsiaðgjörða gagnvart öðrum samningsaðilum. Deilur um mörk fiskveiðilögsögunnar eru hvergi meðal þeirra atriða, og því alveg fráleitt að stik deila geti lög- helgað samningsbrot á vettvangi alþjóðlegra viðskiptasamninga. Deilur um landhelgismál verður að sækja á öðrum vettvangi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.