Morgunblaðið - 07.01.1975, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1975
Wjl II í11I llf’t -V
MJA IAlt"
22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
tel 14444 • 25555
mmim
BlLALEIGA CAR RENTAL
BILALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
B
= ;
FERÐABILAR h.f.
Bilaleiga, sími 81260.
Fólksbílar — stationbílar —
sendibílar — hópferðabílar.
H. U TBOÐ S AMNINGAR
Tilboðaöflun — samningagerð.
Sóleyjargötu 17 — slmi 13583.
SJO- OG LENSI-
DJELUR
saiaa ©ága,®®
'iádrh
STURLAUGUR
JÓNSSON
& CO.
Vesturgötu 16,
Sími 13280.
Alþýðublaðið
snýr við blaði
Þórarinn Þórarinsson, rit-
stjóri Tímans, heldur áfram að
fletta ofan af fyrri afstöðu Al-
þýðubandalagsins gagnvart
gegnislækkun, vísitöluskrúfu
og málmblendiverksmiðju i
blaði slnu sl. sunnudag. Þar
segir m.a.:
„Forkólfar Alþýðubandalags-
ins eiga nú t.d. ekki nógu sterk
orð til að fordæma gengisfell-
inguna, sem gerð var á síðastl.
sumri. Fyrir áramótin 1972
stóð Alþýðubandalagið að
þeirri gengisfellingu, sem þá
var gerð, og á síðastl. sumri var
Alþýðubandalagið fylgjandi
verulegri gengisfellingu, þegar
rætt var um endurreisn vinstri
stjórnar. Það stendur þannig
ekki á Alþýðubandalaginu, að
viðurkenna nauðsyn gengisfell-
ingar, þegar það er f stjórn,
þótt hljóðið sé allt annað í
Þjóðviljanum, þegar það er
utan stjórnar.
Forkólfar Alþýðubandalags-
ins látast nú mjög andstæðir
sérhverri skerðingu á dýrtlðar-
uppbótum samkvæmt vísitölu.
Meðan þeir sátu f vinstri stjórn-
inni, voru þeir hins vegar fylgj-
andi ýmsum aðgerðum, sem
gengu f þá átt, en ekki komust
fram vegna andstöðu Björns
Jónssonar. Á sfðasl. vori stóðu
þeir svo að setningu bráða-
birgðalaga, sem skerti verulega
vfsitölubæturnar. Þegar rætt
var um endurreisn vinstri
stjórnarinnar f sumar, stóð
ekki á þeim að fallast á að þessi
kaupskerðing yrði a.m.k. fram-
lengd f nokkra mánuði.
Þannig mætti halda áfram að
rekja þetta. Núverandi ríkis-
stjórn hefur til þessa ekki beitt
neinum öðrum úrræðum til að
tryggja atvinnureksturinn og
atvinnuöryggið en þeim, sem
var beitt af vinstri stjórninni
undir líkum kringumstæðum
og Alþýðubandalagið var þá
ekki aðeins fúst til að fallast á,
heldur taldi réttmæt og sjálf-
sögð. Þessa ábyrgu afstöðu, sem
Alþýðubandalagið sýndi meðan
það var í ríkisstjórn, ber yissu-
lega að viðurkenna, en hún
undirstrikar jafnframt þann al-
gera snúning, sem orðinn er f
málflutningi þess.
En það er ekki aðeins í sam-
bandi við efnahagsmálin, sem
Alþýðubandalagið hefur snúið
við blaðinu. Það má t.d. nefna
mál eins og hina fyrirhuguðu
málmblendisverksmiðju í
Hvalfirði. Það mál var undirbú-
ið af Magnúsi Kjartanssyni og
hafði nær óskiptan stuðning
þiugmanna Alþýðubandalags-
ins méðan það tók þátt f ríkis-
stjórn. Nú á Þjóðviljinn ekki
nógu sterk orð til að lýsa and-
stöðu við þetta fóstur Magnúsar
Kjartanssonar."
Efnahagskreppa
Enginn getur lokað augum
fyrir þeirri staðreynd, að
kreppuvottur setti mark sitt á
þróun atvinnu- og efnahags-
mála vfða um hinn vestræna
heim á sl. ári og að batamerki
eru fá f sjónmáli á hinu nýbyrj-
aða ári. Atvinnuieysi er nú víð-
ast meira en verið hefur um
árabil. Efnahagslff þjóðanna í
dag er það samslungið, að
óhjákvæmilegt er að þessi þró-
un komi fram hérlendis með
einum eða öðrum hætti, enda
Islendingar háði verulegum
innflutningi sem og verðþróun
á útflutningsframleiðslu sinni
á erlendum mörkuðum. Olfu-
kreppan, þverrandi auðlindir
heims og mikil fólksfjölgun er
sá bakgrunnur, sem þessi
kreppuvottur hefur, og útlitið
er allt annað en björgulegt.
Að sjálfsögðu veltur á rniklu
hvern veg við verður brugðizt,
ekki aðeins af fslenzkum
stjórnvöldum, heldur af öllum
almenningi. Hófsemi f kröfu-
gerð, rekstrargrundvöllur fyrir
atvinnuvegina, er fyrirbyggi at-
vinnuleysi, sem og frekari nýt-
ing innlendra orkugjafa, eru
forsendur þess, að okkur takist
að mæta vandanum, án veru-
legrar lffskjaraskerðingar
þjóðarinnar.
Bjartsýni er þjóð sem Islend-
ingum nauðsynleg. En hygg-
indi og rétt mat á aðstæðum
þurfa og til að koma. Við skul-
um vona að sú svartsýni, sem
speglast f orðum eins þing-
manns Alþýðubandalagsins,
Stefáns Jónssonar, er hann við-
hafði um það bil þingmenn
tóku sitt jólafrf, sé ekki raun
sönn framtfðarmynd, aðeins
tfmabært fhugunarefni. Þing-
maðurinn hafði þetta að segja
um framtfð iandsmanna:
„Lffsgæðakapphlaupinu er
að Ijúka vegna þess að gæðin,
sem keppt var um, eru að
þrjóta og við blasir ekki bein-
línis skemmtikapphlaup, held-
ur barátta um nauðþurftir, þar
sem til verður að kosta miklu
þreki til að þess að nýta gæði
lands og lagar á sem ódýrastan
hátt, og munu þurfa til að koma
e.t.v. bæði fjallagrös og söl um
það er lýkur til þess að brauð-
fæða íbúa þessa lands.“
Verðbólgan veldur sársauka í bifreiðaiðnaði
xt á 1 * á 1 ' O meðalstórri aerð oa veaa um 2 óseldir. Það hnfnr h
Hvarvetna samdrattur 1 fram-
leiðslu og uppsagnir starfsfólks
9 Olíukreppan og versnandi ástand efnahagsmála I heiminum hefur
hvarvetna skapað vandamál fyn. bifreiSaiðnaSinn. Eftir framleiðslumet
1973, hefur þriðjungi starfsmanna bifreiðaverksmiðja I Detroit annað
hvort verið sagt upp eða fengið vinnutíma sinn styttan. Fimm af sex
verksmiðjum Chrysler var lokað i desember fram yfir nýár.
0 í Vestur Evrópu hefur meir en 300 þúsund starfsmanna bílaverksmiðja
verið sagt upp eða þeir orðið að sætta sig við þriggja til fjögurra daga
vinnuviku. Evrópskir bilaframleiðendur sitja nú uppi með 800 þúsund
óseldar bifreiðir af árgerð 1974, sem samsvarar helmingi af allri bifreiða-
framleiðslu Breta á liðnu ári. Framleiðendur eru svartsýnir á að bilasala
aukist á þessu ári, og ef svo verður ekki, getur það haft alvarleg áhrif á
atvinnulíf i Vestur-Evrópu, þar sem eitt að hverjum tiu heimilum á afkomu
sina beint eða óbeint undir bifreiðaiðnaðinum.
0 Samdrátturinn í sölu nýrra bifreiða er mjög svipaður i Evrópu og i
Bandarikjunum, þar sem hann er á milli 20 og 25% á meðan hann er
aðeins um 10% i Japan. Forráðamenn hins ört vaxandi bifreiðaiðnaðar
Japana hafa þó brugðist fljótt við og fjöldi manns hefur misst vinnu sina.
0 Astæðan fyrir þessu er fyrst og fremst hin vaxandi verðbólga.
Kaupmáttur launa hefur minnkað um leið og lánsfjárskortur hefur aukist,
eldsneyti hækkað og ekki sizt, framleiðslukostnaður hefur rokið upp úr
öllu valdi. Frá ársbyrjun 1973 hefur verð á nýjum bilum því hækkað um
50% að meðaltali og ekki loku fyrir það skotið að svipuð hækkun verði
þetta ár.
Bandarikin
bESSA dagana er hljótt yfir fimm
af sex bilaverksmiðjum Chryslers i
Bandarikjunum. Þeim var lokað i
nóvemberlok fram yfir nýár og
70.000 af 86.700 starfsmönnum
var sagt upp timabundið eða
endanlega.
En það er ekki aðeins Chrysler,
hinn veikasti risanna þriggja, sem
þjáist. General Motors varð að
segja upp 65.000 starfsmönnum
fyrir áramót eftir að Ijóst var að
hagnaður á þriðja fjórðungi 1974
hafði lækkað um 94%. Vöruðu
yfirmenn fyrirtækisins jafnframt
við þvi að fleiri kynnu að missa
vinnuna á nýja árinu.
Einnig Ford hefur orðið að
fækka mjög starfsfólki, þrátt fyrir
góða sölu smábíla í olíukreppunni
i byrjun siðasta árs.
Samtals hafa um 200.000 eða
þriðjungur starfsmanna bifreiða-
verksmiðja i Detroit fengið að
kenna á einn eða annan hátt á
erfiðleikum iðnaðarins. Árið 1973
voru framleiddir í Detroit 11,4
milljónir blla sem er meira en
nokkru sinni fyrr, en nú stendur
borgin frammi fyrir mestu sölu-
minnkun á þessari helztu fram-
leiðsluvöru sinni, síðastliðin 15
ár. Tölur, sem birtar voru fyrir
þrem vikum siðan, sýna að i
nóvember siðasta árs féll bilasala
um 35% miðað við sama mánuð
árið áður og ekkert bendir til að
bilasala ársins 1974 hafi orðið
meiri en 8,9 milljónir bila, sem er
22% minna en áriðáður.
Um mitt sl. sumar höfðu minni
gerðir bila náð 50% af bandaríska
markaðnum. Ford, GM og
Chrysler litu þvi svo á að breyting
hefði orðið á smekk hins banda-
riska borgara og voru í óða önn að
breyta verksmiðjum sínum frá þvi
að smiða stóra bila til að framleiða
litla. Daufar viðtökur almennings
á nýju módelunum (8 af hverjum
10 voru litlir bilar) þegar þau
komu i sýningarglugga í septem-
ber, komu þess vegna á óvart.
Þær eru þó á engan hátt óskiljan-
legar.
Meðal annars vegna afnáms
verðstöðvunar stjórnar Nixons
urðu nýju árgerðirnar mun dýrari
en þær, sem þær komu i staðinn
fyrir. Sem dæmi má nefna að Ford
bilar hækkuðu að meðaltali um
900 dali. Meira að segja smábill
eins og Ford Pinto, sem litið hefur
breytzt frá því að hann kom fyrst á
markað hefur hækkað um 1000
dali frá árinu 1970. Um leið og
orðrómur komst á kreik í ágúst
um þessar hækkanir dreif fólk sig í
að kaupa alla bila af árgerð 1974.
sem fáanlegir voru. Ágúst, sem
venjulega er daufur mánuður i
sölu nýrra bila, varð þess vegna
bezti sölumánuður ársins. Þegar
svo nýju árgerðirnar komu var eft-
irspurnin mettuð.
Af meginástæðum, sem gefnar
hafa verið fyrir minnkandi eftir-
spurn, eins og hækkandi verði,
minni kaupgetu almennings og
hærra verði á bensini (það hefur
hækkað um 100% frá þvi að oliu-
sölubanninu var aflétt), virðist sú
siðastnefnda skipta minnstu máli,
ef dæma má eftir siðustu tölum.
Þær sýna að sala á smábilum hef-
ur dottið niður og að ást
Amerikana á drekunum hefur
vaknað á ný. I Cadillac-
verksmiðjunum I Detroit hafa
starfsmenn orðið að vinna eftir-
vinnu og samkvæmt Ward's Auto-
motive Report eru fimm bezt
seldu bilarnir af stærstu eða
meðalstórri gerð og vega um 2
tonn.
Þetta hefur vakið vonir hinna
stóru þriggja bilaframleiðenda, sér
í lagi Chryslers. sem á I mestum
erfiðleikum, en jafnvel þó að þessi
þróun haldi áfram þá leysir hún
ekki hin brýnu vandamál dagsins í
dag.
Vestur-Þýzkaland
Siðasta ár var likast martröð
fyrir vestur-þýzka bif reiðaiðnað-
inn, sem undanfarin ár hefur verið
driffjöður i vestur-þýzku efnahags-
lifi Sölur minnkuðu samtals um
20% frá 1973. Aðeins Volks-
wagenwerk AG mun að líkindum
tapa allt að 18 milljörðum kr.
í örvæntingarfullum tilraunum
til að laga framleiðslumagn að
eftirspurn hefur fyrirtækið á sið-
asta ári margsinnis þurft að segja
timabundið upp 50.000 starfs-
mönnum og 10.000 hefur verið
sagt upp endanlega.
Framleiðsla Bayerische
Motoren Werke AG — BMW _________
hefur dregist saman um 10% á
meðan sala á Audi hefur minnkað
um 30%.
Dótturfyrirtæki General Motors,
Opel, hefur þurft í hverjum
mánuði sfðasta árs að segja starfs-
mönnum upp timabundið. í haust
var framleiðslan 38% minni en
árið áður. Þýzka Ford fyrirtækið.
mun i þessum mánuði hefja
greiðslur til 10% starfsmanna
sinna í þvi skyni að fá þá til að
segja upp af fúsum viija. Mun
framleiðsla Ford á siðasta ári hafa
minnkað um 40%.
Eina undantekningin er
Daimler-Benz. Framleiðslan á
Mercedes Benz hefur heldur
aukist á liðnu ári. Telja sumir að
velgengni fyrirtækisins stafi af
einhverju leyti af því að stjórn
Kuwait keypti nýlega 14% hluta-
bréfa þess.
Ítalía
Á ítaliu er ástandið einna verst.
Fiat, stærsta einkafyrirtækið á
Ítalíu, situr nú uppi með 300.000
óselda bila. Starfsmenn Fiat og
dótturfyrirtækisins Lancia sem
þegar voru farnir að vinna aðeins
þrjá daga vikunnar féllust á að
leggja niður vinnu i 25 daga í
desember og samþykktu aðra
lokun i vor með þvf skilyrði að
vinnuvikan yrði lengd og að þeim
yrði tryggt atvinnuöryggi allt
þetta ár.
Sölur á Fiat bílum hafa dregist
saman um 50% heima fyrir og
20% erlendis, þó að sala i Banda-
ríkjunum hafi aukist eitthvað.
Svipaða sögu er af ríkisfyrir-
tækinu Alfa-Romeo að segja. Þó
að fyrirtækið hafi getu til að fram-
leiða 400.000 bila á ári, voru
aðeins 204.000 bilar smiðaðir sið-
asta ár og þar af eru 40.000
óseldir. Það hefur hjálpað fyrir-
tækinu að útflutningur hefur
aukist og starfsmenn munu senn
taka 40 daga aukafrí, og á það að
geta minnkað lagerinn um
helming.
Svíþjóð og Spánn.
Sviunum Volvo og SAAB hefur
gengið betur en flestum
evrópskum keppinautum þeirra og
er þar fyrst og fremst góðæri í
sænsku efnahagslífi að þakka.
Heldur fór þó að draga úr sölu á
heimamarkaði um miðjan desem-
ber vegna hækkunar á virðisauka-
skatti.
Stærsti bifreiðaf ramleiðandi
Spánar, SEAT, á I miklum erfið-
leikum og situr uppi með mikinn
fjölda óseldra bila. Erfiðleikar á
vinnumarkaðnum hafa valdið þvi
að fyrirtækið á bágt með að auka
hagkvæmni með uppsögnum eða
styttingu vinnutima.
Frakkland
Franskir bif reiðasmiðir fengu
frestað vandanum fram á sumar
með þvi að auka hlutfall sparneyt-
inna smábíla í framleiðslunni og
að auka áhersluna á útflutning til
Afríku, Miðausturlanda og
Amerikurikja. Heildarsala Peugeot
féll því um 11,5% fyrstu níu mán-
uði 1974, en útflutningur jókst
um 6%. Renault jók hins vegar
heildarframleiðslu sina og sölu á
sama tímabili.
i nóvember féll sala á frönskum
bilum hins vegar um næstum 40%
miðað við sama mánuð árið áður.
Renault, Peugeot, Citroen og
Chrysler hafa þvi uppi áætlanir
um að segja upp starfsfólki.
Þriðji stærsti framleiðandinn,
Citroen, varð verst úti. 3. desem-
ber sl. tilkynnti franska stjórnin
að hún ætlaði að lána fyrirtækinu
tæplega 24 milljarða kr. og jafn-
framt að endurskipuleggja bif-
reiðaiðnaðinn. Lánið á að gera
Citroen kleift að greiða upp skuld-
ir sinar, en síðan mun næst
stærsti framleiðandinn, Peugeot,
taka við stjórn þess.
taka viö stiö
Bretlana
Brezkir bilaframleiðendur eru í
erfiðri en þó ekki vonlausri stöðu.
Verkföll drógu úr framleiðslunni,
jafnvel meir en 1973, sem þó var
eitt versta verkfallsár i sögu bif-
reiðaiðnaðarins þar i landi. Út-
koman varð sú að bilaverksmiðjur
eiga i erfiðleikum með að mæta
eftirspurninni, sem þó hefur snar-
minnkað.
Fram til þessa hefur aðeins
2.400 skrifstofumönnum verið
sagt upp hjá Ford og Chrysler, en
British Leyland og Vauxhall hafa
haldið óbreyttum starfsmanna-
fjölda. Það sem veldur fyrir-
tækjunum mestum erfiðleikum er
hin mikla minnkun á framleiðslu-
magni, sem var vegna verk-
Framhald á bls. 33