Morgunblaðið - 18.01.1975, Qupperneq 1
36 SIÐUR
14. tbl. 62. árg.
LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sjónarvottar:
ÞYRLAN VIRTIST FALLA
STJÓRNLAUS TIL JARÐAR
Sjö manns fórust í þyrluslysinu á Kjalarnesi
Guðmundur E. Hannesson.
Indriði H. Einarsson.
Lúðvfk Karlsson.
Kristján S. Helgason.
•ríitin-wniiiiii"
Sigurbjörg Guðmundsdðttir.
SJÖ manns biðu bana þegar þyrla flugfélagsins Þyrluflugs hf hrapaði til jarðar
skammt frá bænum Hjarðarnesi á Kjalarnesi klukkan 10,45 f gærmorgun.
Þau sem fórust með þyrlunni voru:
Lúðvík Karlsson, flugmaður, 31 árs til heimilis að Sæviðarsundi 52 — lætur eftir
sig konu og þrjú börn.
Kristján S. Helgason, framkvæmdastjóri Þyrluflugs, 29 ára, Nesvegi 64, lætur
eftir sig konu og þrjú börn.
Indriði H. Einarsson, yfirverkfræðingur framkvæmdadeildar Rarik, 42ja ára, til
heimilis að Sólheimum 25 — lætur eftir sig konu og tvö börn.
Tómas Sigurðsson deildarverkfræðingur, 36 ára, til heimilis að Arahólum 2 —
einhleypur, en lætur eftir sig foreldra.
Stefán Ólafur Ólafsson, byggingaverkfræðingur hjá Rarik, 50 ára — til heimilis að
Sporðagrunni 14 — lætur eftir sig konu og 5 börn, þar af þrjú uppkomin.
Guðmundur Eiður Hannesson, yfirverkstjóri lfnudeildar Rarik, 41 árs, til heimilis
að Hjallavegi 18 — lætur eftir sig konu og 4 börn.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, matráðskona, 63 ára, til heimilis að Vesturbergi 81 —
hún lætur eftir sig 8 uppkomin börn.
Þau sem fórust, voru öll búsett í Reykjavík.
Á leið til
Snæfellsness
Þyrlan var af gerðinni Sikorsky
55 og bar einkennisstafina TF-
LKH. Fyrirtækið Þyrluflug hf.
festi kaup á vélinni notaðri f
Bandarfkjunum í fyrra, en hún
var nýkomin til landsins og hafði
aðeins farið í nokkrar ferðir hér
innanlands. Vélin tekur 11 far-
þega á styttri leiðum, en í hinni
örlagaríku ferð voru með í henni
5 farþegar, allt starfsmenn Raf-
magnsveitna ríkisins, og eigendur
vélarinnar, þeir Lúðvík Karlsson,
sem var flugmaður, og Kristján S.
Helgason, framkvæmdastjóri
Þyrluflugs. Var ferðinni heitið til
Vegamóta á Snæfellsnesi, þar
sem starfsmenn Rarik ætluðu að
líta á framkvæmdir og öðrum
þræði átti þetta að vera kynnis-
ferð fyrir starfsmennina, en fyrir-
hugað var að Rarik notaði þyrl-
una til margvíslegra verkefna.
Vélin lagði af stað frá Reykja-
víkurflugvelli klukkan 10,37 f
gærmorgun og mun hún hafa ver-
ið fullhlaðin eldsneyti, eða með
6—800 lítra af bensíni. Ferðin
gekk að óskum til að byrja með og
klukkan 10,44 tilkynnir flugmað-
urinn sig til flugturnsins og segist
vera yfir Kjalarnesi og vera að
yfirgefa svokallað vallarsvæði,
þ.e. umsjónarsvæði vallarins.
Einni mfnútu síðar heyrðist dauft
kall, að líkindum aðeins kall-
merki vélarinnar, en ekkert
meira. Getur það komið heim við
þann tima sem sjónarvottar
telja, að flugvélin hafi farizt.
Vélin stjórnlaus
Af framburði sjónarvotta má
ráða, að flugmaðurinn hafi misst
stjórn á vélinni þegar hún var
stödd mitt á milli bæjanna Saur-
bæjar og Hjarðarness á Kjalar-
nesi. Hefur sú tilgáta komið fram,
að sviptivindar kunni að eiga sök
á þessu mikla slysi, en á þessum
Stefán Ó. Ólafsson.
slóðum er mjög sviptivindasamt.
Einnig er hugsanlegt að bilun
hafi orðið í vélinni.
Sigríður Böðvarsdóttir, 17 ára
stúlka, til heimilis að Saurbæ,
varð vitni að slysinu. Að hennar
sögn var hún á leið í sendiferð og
var hún stödd skammt fyrir ofan
Tómas Sigurðsson.
bæinn, enda ver ferðinni heitið
upp á þjóðveginn. Hún veitti þyrl-
unni athygli þar sem hún kom úr
suðvestri og flaug skammt frá
hlíðum Esju. Sigrfði fannst þyrl-
an ekki í mjög mikilli hæð þar
sem hún flaug yfir höfði hennar
og stefndi á Hjarðarnes og allt
virtist vera í lagi. En þegar vélin
var mitt á milli bæjanna var eins
og flugstjórinn missti skyndilega
stjórn á vélinni. Hún hallaðist
fram á viðíloftinu með stéliðupp
í loftogfórþannignokkurn spöl.
Svo var eins og flugstjórinn næði
stjörn á vélinni að nýju en það
stóð ekki nema stutta stund og
brátt missti hann stjórn á henni
að nýju. Sigríði sýndist vélin
lækka flugið og brátt hvarf hún
sjónum Sigríðar. Stuttu síðar
heyrði hún daufa sprengingu og
sá eldinn blossa upp. Hún taldi,
að þetta hefði staðið yfir í 1—2
mínútur. Annað heimilisfólk á
Saurbæ var innan dyra þegar vél-
in hrapaði. Hljóp það þegar út í
glugga og þegar það sá hvers kyns
var lét það Brúarland vita um
atburðinn og fór síðan á staðinn
til að rétta hjálparhönd ef mögu-
legt væri en vegna eldhafsins gat
það ekkert aðhafst.
Þyrlan strax
alelda
Þeir Hjalti Jóhannsson og Gým-
ir Guðlaugsson voru á ferð f oliu-
bíl frá BP á þjóðveginum fyrir
ofan Hjarðarnes. Þeir voru þeir
einu sem urðu sjónarvottar að
Framhald á bls. 3.
Frá slysstaðnum. Ljósm. Mbl. Friðþjófur.