Morgunblaðið - 18.01.1975, Side 36

Morgunblaðið - 18.01.1975, Side 36
LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975 Jfl0ir0ijittl>W>ií> nuGLVsmcnR ^5*-»22488 2Wor0itnX>latii8 nucivsincnR ^*-»2248B á Landssamband fslenzkra út- vegsmanna hélt fund með út- gerðarmönnum loðnuskipa f húsakynnum sfnum f Hafnar- hvoli við Tryggvagötu f gær og var rætt um loðnuvertfðina, sem nú er að hefjast. t upphafi fundarins kom fram, að þessi vertfð lofaði ekki gððu og voru menn yfirleitt sammála um það. A myndinni sést nokkur hluti fundarmanna. — Ljðsm. Mbl. Sv.Þ. Engin loðna fryst Japansmarkað? 60% verðlækkun — minna magn-strangari flokkun-betri öskjur — 15% hrognamagn SVO GETUR farið að engin loðna verði fryst fyrir Japansmarkað á tslandi f vetur. Til þess liggja margar ástæður, en fyrst og fremst mun mikil verðlækkun ráða þar miklu um. Japanir bjðða nú aðeins rúmlega 40% af þvf verði, sem þeir buðn f fyrra fyrir frysta loðnu. Þá er magnið, sem hugsanlega er hægt að semja um mjög Iftið, aðeins 10 þús. lestir og myndi það að Ifkindum skiptast niður á tsland, Noreg og Rúss- land. Þá hafa Japanir ennfremur farið fram á að fá vandaðri um- Samið við Tékka og viðræður við Rússa að hefjast búðir utan um loðnuna. Þetta kom m.a. fram f samtali, sem Morgunblaðið átti við Arna Bene- diktsson, framkvæmdastjúra hjá Sambandi fsl. samvinnufélaga, en Arni kom heim frá Japan f fyrra- dag eftir að hafa átt þar viðræður við japanska kaupendur ásamt Guðjóni B. Ölafssyni, fram- kvæmdastjóra Sjávarafurða- deildar, og tveimur mönnum frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, en þeir eru enn f Japan. Árni sagði, að útlitið væri vægast sagt afar slæmt á japanska markaðnum og færu Japanir fram á tæplega 60% verðlækkun frá því í fyrra. Þá borguðu þeir 735 dollara fyrir 1 lest af 100% hrygnu, en nú bjóða þeir um 300 dollara fyrir sama magn, af flokki sem samanstendur af 90—100% hrygnu. „Eins og málið stendur Framhald á bls. 22 VIÐRÆÐUR við Sovétmenn um sölu freðfisks þangað munu hefjast f lok janúarmánaðar og munu þá þeir Árni Finnbjörns- son, sölustjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, og Andrés Þorvarðarson, frá sjávarafurða- deild SlS, fara til Moskvu til við- ræðnanna. Þeir Árni og Andrés eru nýkomnir heim frá Prag í Tékkó- slóvakíu, þar sem þeir sömdu um sölu á 1.500 tonnum af frystum ufsaflökum. Samkvæmt upplýs- ingum Guðmundar H. Garðars- sonar, blaðafulltrúa SH, mun þessi sala vera upphaf meiri við- skipta á árinu 1975. Verðið á ufsa- flökunum er svipað og það var í fyrra. Hitaveita 27% af kostnaði við olíukyndingu: Reykvíkingar spara sér nær milljarða á ári með hitaveitu Mikill reki við Siglufjörð MIKILL rekaviður berst nú inn Siglufjorð og f gærdag fór trilla nokkrar ferðir út á fjörð- inn og safnaði saman trjá- drumbum. Kom hún inn með talsvert magn af trjávið f eftir- dragi. Siglfirðingar telja að trjáviður þessi hafi borizt frá Sovétríkjunum. Samkvæmt upplýsingum fréttaritara Mbl. I Siglufirði mun þessi reki vera talsvert hættulegur siglingum smærri skipa og sagðist hann jafn- framt hafa heyrt að hrannir af þessum reka væru út allan fjörðinn og allt að Ólafsfirði og inn Eyjafjörð. HÆKKUN verðs á gasolfu nú ný- lega hefur enn breikkað bilið f kyndingarkostnaði milli olfuhit- unar og hitunar með jarðvarma. Nú, er hver lftri gasolfu kostar 16,70 krónur er kostnaður við að kynda hús með hitaveitu aðeins fjórðungur af kostnaði olfukynd- ingar. Hins vegar liggur nú fyrir f iðnaðarráðuneytinu hækkunar- beiðni frá Hitaveitu Reykjavfkur, sem nemur 9,4% og verður þá kostnaður við að hita hús með hitaveitu 27% af kostnaði olfu- kyndingar. Samanlagt spara Reykvfkingar gjaldeyri á ári hverju, og er þá miðað við 9,4% hækkun hitaveitu, tæplega 2,9 milljarða króna. Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri sagði að á ári væri greitt fyrir hitaveitu í Reykjavík — og er þá miðað við að hækkunarbeiðni hafi verið samþykkt — um 1.070 milljónir króna, en hefði þurft að kaupa olíu til að kynda fbúðir Reykvíkinga, hefði áætlaður kyndingarkostnaður verið 3.960 milljónir króna og er því sparnað- urinn af Hitaveitu Reykjavíkur tæplega 2.900 milljónir króna. Með 9,4% hækkun á gjaldskrá Hitaveitunnar þá lætur nærri að meðalfjölskylda í Reykjavík eða á hitaveitusvæðinu greiði um 25 þúsund krónur á ári fyrir upphit- un íbúðar sinnar, en þessi tala Loðnuverðið 2.50 - 2.70 kr. YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins hélt fund um loðnuverðið f gær, en komst ekki að samkomulagi, frekar en fyrri daginn. Enn er þvf allt f óvissu um loðnuverðið, en rætt hefur verið um að það verði kr. 2.50 — 2.70 pr. kg. f byrjun vertfðar, á meðan loðn- an er feitust. Ekki er vfst að margir verði ánægðir með þetta verð, en því miður virðist útlitið ekki vera bjartara framundan f sölu- málum loðnumjöls en verið hefur og þvf rfkir mikil óvissa f þessum málum. Forsætisráðherra ræðir við Sisco og Trudeau I TILEFNI aldarafmælis byggðar tslendinga f Vesturheimi hefur Þjóðræknisfélag tslendinga þar boðið Geir Hallgrfmssyni for- sætisráðherra og konu hans, frú Ernu Finnsdóttur, til tslendinga- byggða f Manitobafylki f Kanada og að sitja 56. þing Þjóðræknis- félagsins, sem haldið verður f Winnipeg. Ráðherrahjónin hafa þegið boðið að halda af stað f ferðina 19. janúar. Forsætisráðherra mun dveljast einn dag í New York og hitta þar Joseph J. Sisco, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna, ásamt fleiri fulltrúum Bandarfkja- stjórnar, þ. á m. John Scali, sendi- herra Bandarfkjanna hjá Samein- uðu þjóðunum. Jafnframt mun hann fara til Ottawa, höfuðborgar Kanada, til fundar við Pierre Elliott Trudeau forsætisráðherra, mánudaginn 27. janúar. í fylgd með forsætisráðherra- hjónunum verður Björn Bjarna- son, deildarstjóri f forsætisráðu- neytinu. myndi vera um 93 þúsund krónur ef um olíukyndingu væri að ræða. Sparnaður á hverja meðalfjöl- skyldu eru því 68 þúsund krónur á ári. Jóhannes Zoega sagði að auðvitað væri hitakostnaður mjög misjafn og munar þar, hvort um einbýlishús er að ræða eða íbúð f fjölbýlishúsi. Eigandi einbýlis- húss getur greitt allt að 50 til 70 þúsund á ári f kyndingarkostnað á hitaveitusvæði og dæmi eru til að hitunarkostnaður í sambýlishús- um fari allt niður í 10 þúsund krónur á ári. Fjölskyldur í'. Reykjavík eru um 24 þúsund og er því meðalkostnaður hverrar tæplega 25 þúsund króhur við húsahitun. Nú er verið að leggja hitaveitu í Kópavog, Hafnarfjörð og Garða- hrepp. Aðeins hefur verið lögð hitaveita í rúmlega helming Kópavogs, en ef þessi þrjú sveitarfélög eru tekin saman þá má gera ráð fyrir að þau noti með núverandi olíuverði um einn milljarð króna á ári í olíukaup. Samkvæmt þessu munu því íbúár þessara sveitarfélaga ekki þurfa að greiða nema 270 milljónir mið- að við núverandi verðlag, er hita- veita hefur verið lögð í öll hús sveitarfélaganna. Myndu þá sparast þar 730 milljónir króna á ári. Jóhannes Zoéga sagði að um 50% Islendinga nytu nú hitaveitu eða tæplega það. Hitaveita er á Seltjarnarnesi, Hveragerði og á Selfossi. Þá er einnig hitaveita á Hvammstanga, Sauðárkróki, Ólafsfirði, Dalvík, Húsavík og í Reykjahlíð við Mývatn. Þá mun Blönduós fá hitaveitu í nágrenni framtíð. Fyrirhugað er að leggja hita- veitu um Suðurnes og rætt hefur verið um hitaveitu á Akranesi og í Borgarnesi, einnig á Eyrarbakka og á Stokkseyri. Er áætlað að allir þessir byggðakjarnar hafi fengið hitaveitu eftir 5 til 10 ár og er búizt við því að þá muni um 70% tslendinga njóta hitaveitu. Er þá að sjálfsögðu gert ráð fyrir byggð eins og hún er í dag. Starfsnefnd- ir kjörnar SAMNINGAFUNDUR milli aðila vinnumarkaðarins var haldinn f gær. Að honum loknum var gefin út sameiginleg fréttatilkynning, sem er svohljóðandi: „I dag var haldinn fundur milli Framhald á bls. 22 Smyglmálin: Kominn heim úr Kanarí- eyjaferðinni t FYRRINÓTT kom til landsins maður einn, sem grunaður var um aðild að smyglmálunum miklu, sem nýverið voru upplýst. Hefur hann dvalið á Kana- rfeyjum að undanförnu sér til hressingar. Lögreglumenn biðu hans á flug- vellinum og var hann f gær úr- skurðaður í allt að 25 daga gæzlu- varðhald af bæjarfógetanum í Keflavfk. Þremur mönnum af þeim sex, sem setið hafa í gæzlu- varðhaldi í Reykjavík vegna smyglmálanna, hefur nú verið sleppt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.