Morgunblaðið - 18.01.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.01.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975 Tal og Beljavsky sigurvegarar á skák- þingi Sovétríkjanna Nú er lokið keppni i 1. deild á Skákþingi Sovétríkjanna og urðu úrslit þaú að þeir M. Tal, fyrrvetandi heimsmeistari, og A. Beljavsky, heimsmeistari unglinga 1973, urðu efstir og jafnir með 9,5 v. úr 15 skákum. önnur úrslit urðu sem hér seg- ir: 3.—4. R. Vaganjan og L. Polugajevsky, 5.—8. L. Alburt, M. Dvoretsky, og O. Romanisch- in og J. Balashov, 8,5 v., 9. G. Kuzmin 7,5 v., 10.—11. E. Vasjukov og V. Zveschkovsky 7 v„ 12. V. Savon 6,5 v„ 13,—15. K. Grigorjan, B. Gulko og M. Taimanov 6 v. og 16. V. Kuprej- itsch 3,5 v. Eins og sjá má af þessari upp- talningu var þetta mjög sterkt mót og baráttan afar hörð, þar sem ekki munar nema 3,5 v á 1. og 15. manni. Tal tók forystuna í byrjun og hélt henni allt fram Skák eftir JÓN Þ. ÞÓR undir lok mótsins. 1 næstslð- ustu umferð mætti hann Belj- avsky og hefði þá getað tryggt sér sigur með því að vinna skákina. En við skulum sjá hvað gerðist. Hvftt: M. Tal Svart: A. Beljavsky Tarrasch vörn I. c4—c5, 2. Rf3—Rf6, 3. Rc3—Rc6, 4. e3—e6, 5. d4—d5, (Upphafsstaða Tarraschvarnar- innar; hér standa hvítum ýmsir góðir leikir til boða, auk þess, sem hann velur, t.d. 6. cxd5 eða 6. dxc5). 6. a3 — a6, (Aljekín lék hér gjarnan 6. — Re4). 7. b3 — Bd6, 8. Bd3 — 0-0, 9. 0-0 — b6, 10. Bb2 — cxd4, (10. — Bb7 hefði hvítur svarað með 11. dxc5 — bxc5, 12. cxd5 — exd5, 13. Dc2 og síðan Ra4 og hvítur stendur betur) II. exd4 — Bb7, 12. Hel — Hc8, (Ekki 12. — Ra5 vegna 13. c5!). 13. cxd5 — exd5,14. Re5(?) (Hér er Tal helzt til fljótur á sér. Sterklega kom til greina að leika hér 14. Hcl, ásamt Bbl og Dd3). Mikhail Tal. 14. — Rxd4! (Nú tryggir svartur sér bisk- upaparið og varanlegt frum- kvæði. 15. Bxh7+ — Rxh7, 16. Dxd4 — Bc5, 17. Dd3 — d4,18. Re2?! (Betra var 18. Re4 þótt svartur stæði að vísu öllu betur eftir 18. — Rg5, 19. Rxg5 — Dxg5, 20. Rf3). 18. — He8, 19. Rg3 (19. Rxf7 hefði svartur svarað með 19. — Df6). 19. — Dd5, 20. Rf3 — Rg5, 21. b4 — Bf8, 22. Rh4 (Auðvitað ekki 22. Bxd4 vegna 22. — Hed8). 22. — Hxel+, 23. Hxel — Re6, (Sterkara en 23. — Dxg2+, 24. Rxg2 — Rh3+, 25. Kfl — Bxg2, 26. Ke2 — Rf4 + , 27. Kd2 — Rxd3, 28. Kxd3). 24. Hdl — a5, 25. bxa5 — bxa5, 26. Re2? (Hvíta staðan var mjög erfið, en nú nær svartur óstöðvandi sókn). 26. — Dh5!, 27. Rf3 — Bxf3, 28. gxf3 — Rg5, 29. Rg3 (Eða 29. Rxd4 — Rh3+, 30. Kfl — Rf4 og vinnur). 29. — Rxf3+ 30. Kg2 — Rh4+, 31. Kh3 — Dh6, 32. De4 — Rg6+, 33. Kg2 — d.3!. 34. Bd4 — Hc4, 35. Bxg7 (Tal reynir I örvæntingu að flækja stöðuna, en það kemur fyrir ekki). 35. — Df4, 36. Da8 — Dg4! (Nú tapar hvítur a.m.k. manni). 37. h3 — Dxdl, 38. Bxf8 — Rxf8, 39. Dd5 — Hcl, 40. Dg5+ — Rg6 og hvftur gafst upp. M0B6VHBUS19 fyrir 50 árum Brjefa- og verðpóstur, sem sendur var með „Merk- úr" til Vestmannaeyja í þessari ferð, komst ekki í land í Eyjum. Stormur og snjór var svo mikill við Eyjarnar, að póstinum varð ekki komið á land. Skipið fer með hann út, og skilar honum þegar það kemur aftur, ef engin ferð fellur fyr. Sú sorglega slysafregn hefir borist hingað suður, vestan af Snæfellsnesi, að tvö börn hafi orðið úti frá Flysjustöðum í Kolbeinsstaðahreppi. Fylgir það frjettinni, að börnin hafi verið að gæta hesta. Síminn er enn bilaður vestur þar, svo nánari fegnir hafa ekki borist af þessum sorglega atburði. NÝJA BÍÓ — Hættulegur aldur, sjónleikur i 7 þáttum, leikinn af First Nationál. Aðalhlutverk leikur: Levis S. Stone. Kvikmynd þessi fjallar um eitthvert mesta vandamál af öllum. Einhvern- tima kemur sú stund í lifi allra hjóna, að sól er hæst á lofti, og úr því fer hún lækkandi. Ennþá verma geislar hennar, en úr þvi geyma þeir ekki sama Ijós og hitamagn og áður. Allur Ijómi rómantiskunnar hverfur. Draumsýnirnar hverfa. Menn lita á alt i köldu Ijósi — virkileikans. Mynd þessi er ómissandi fyrir hjón og hjónaefni að sjá. MATSEDILL VIKUNNAB Umsjón: Hanna Guttormsdóttir MÁNUDAGUR Fiskbakstur (sjá uppskrift), tatarasmjör, skyrsúpa. ÞRIÐJUDAGUR Kjöt í karrý, soðin hrísgrjón, spergilsúpa. MIÐVIKUDAGUR Soðin lúða, ítalskt salat (sjá uppskrift), eggjamjólk. FIMMTUDAGUR Pylsuvafningur (sjá uppskrift), grænmetisjaf ningur, sítrónusúpa. FÖSTUDAGUR Fiskur í móti soðinn I skrift), hrátt salat, eplagrautur. sósu (sjá upp- LAUGARDAGUR Plokkfiskur á pönnu, hrlsgrjónagrautur með rúslnum. SUNNUDAGUR Glóðað lambslæri (sjá uppskrift), hrátt salat, vaniljuís með súkkulaðisósu. FISKBAKSTUR 750 g fiskflök 80 g smjörlíki 80 g hveiti 6 dl mjólk 'á tsk. múskat salt 3 egg Verkið fiskinn og flakið. Skerið hann I smábita. Bakið upp þykka, hvíta sósu úr smjörlíki, hveiti og mjólk. Kælið og bland- ið eggjarauðunum og hráum fiskinum saman við. Blandið kryddi og stlfþeyttum eggjahvltum saman við. Leggið I smurt eldfast mót og bakið við 200°C I 'á—3/4 klst. TATARASMJÖR 125 g smjör 1 msk. klippt steinselja 'á tsk. sykur 2 tsk. sítrónusafi Hrærið allt saman. Berið fram með fisk- bakstrinum. ÍTALSKT SALAT 150 g soðnar gulrætur 100 g soðnar grænar ertur 25 g makkarónur 2 dl majunes (oliusósa) sinnep salt og pipar, Skerið gulrætur og makkarónur i litla bita og blandið I ollusósuna ásamt græn- um ertum. Kryddið með sinnepi, salti og pipar. PYLSUVAFNINGUR 6 pylsur 12 þunnar flesksneiðar (beikon) Vefjið flesksneiðunum utan um pyls- urnar (2 sneiðum á hverja pylsu), og steikið þær á pönnu, þar til fleskið er stökkt. Steikið, ef vill, pylsurnar I ofni, — ofnhiti um 200°C. FISKUR 1 MÓTI SOÐINN 1 SÓSU 'á kg fiskflök, 1 tsk, salt, 1 sl^emmtur karrýsósa, sítrónusósa, sveppasósa eða tómatsósa, rifinn ostur, ef vill Skerið flökin úr roðinu, og skerið þau 1 bita. Leggið þá I smurt eldfast mót. Stráið salti yfir. Sjóðið fiskbein, og notið soðið I sósu. Hellið sósunni yfir fiskinn, og stráið rifnum osti yfir, ef vill. Bökunartlmi um 30 mín., ofnhiti um 200 °C. GLÓÐAÐ LAMBSLÆRI 1 lambslæri 2 tsk. salt Ví tsk. pipar 'á tsk. hvltlaukssalt Til að pensla með: 2 msk. vínedik 6 msk. matarolia 1 tsk. salt 'á tsk. pipar 'á tsk. pipar 'á tsk. hvitlaukssalt 'á tsk. paprika 1 tsk. sinnep Takið beinið úr Iærinu og kryddið að innan með salti, pipar og hvítlaukssalti. Vefjið það þétt með bandi. Glóðið á teini og penslið öðru hvoru með kryddblönd- unni. Glóðartlmi a.m.k. 1V6 klst. Kryddleginum má sleppa, en nota meira af salti, pipar og hvltlaukssalti og nudda kjötið að utan með þvl áður en það er glóðað. Skolið skúffuna með soði, sjóðið upp á þvl og berið með kjötinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.