Morgunblaðið - 18.01.1975, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.01.1975, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1975 IÞROITAFRETTIR MORCUniBLAÐSINS móti, aö FH-ingar myndu freista þess að stöðva slíkar sóknir Þjóð- verjanna í fæðingu, og sennilega leika FH-ingar 4—2 vörn i leikn- um í dag. Er líklegt að slíkt bjóði upp á mikil átök og spennu, og er vonandi að FH-ingum takist að stöðva sóknarlotur Þjóðverjanna í tíma, þar sem varia þarf að óttast að FH-ingar skori ekki mörg mörk í leiknum — það gera þeir nær undantekningarlaust. Þegar Þjóðverjarnir ræddu við blaðamennina kom fram hjá þeim, að þeir hafa heyrt að íslenzkir áhorfendur styðji vel við bakið á sínum mönnum og óttast Islendingana ekki sízt þess vegna. Og víst er um það, að íslenzkir áhorfendur hafa oft fleytt íslenzk- um liðum yfir erfiðan hjalla á tvísýnum augnablikum. • % V.#' Er vonandi að svo verði einnig í dag. ÁFRAM FH þarf að hljóma kröftug- lega. Hafnfirðingarnir eiga skilinn stuðning áhorfenda, fyrir frækilega frammistöðu sína til þessa, og í dag ríður á. Allir sem á leikinn í Höllinni koma þurfa að vera þátttakendur í leiknum, og þá er aldrei að vita — ef til vill verður það liðið sem fyrirfram er talið lakara sem vinnur sig- ur. Geir Hallsteinsson — er nú að komast f sitt allra bezta form, og reynist vonandi Þjóðverjunum erfiður f leiknum f dag. I DAG fer fram fyrri leikur íslandsmeistara FH og a- þýzku meistaranna í hand- knattleik, Armeesportklub Vorwárts Frankfurt Oder, í Laugardalshöllinni. Er leikurinn liður í Evrópu- bikarkeppninni í hand- knattleik meistaraliða, — átta liða úrslit, en þetta er í annað sinn, sem FH-ingar komast svo langt í keppn- inni, og út af fyrir sig er það mjög glæsilegur árang- ur hjá þeim. Leikurinn hefst kl. 15.00, og er búizt við fullu húsi áhorfenda. Dómarar í leiknum verða norskir: Bolstad og Larsen, þeir hinir sömu og dæmdu leik SAAB og FH í Laugardals- höllinni í fyrstu umferð keppninnar. Öhugsandi er að geta sér til um úrslit I þessum leik. Þó er óhætt að fullyrða að a-þýzka liðið er Einn reyndasti leikmaður þýzka liðsins er Hans Engel, en hann lék f a-þýzka landsliðinu sem var hér á dögunum og skoraði mikið af mörkum. geysilega sterkt og leikur skemmtilegan handknattleik, sennilega mikið byggðan upp á „taktik“. Sögðu þjálfarar liðsins á fundi með fréttamönnum I fyrra- kvöld, að liðið léki „taktik" eftir því sem mótherjarnir leyfðu hverju sinni. Birgir Björnsson, þjálfari FH-inganna, sagði aftur á Lið FH og ASK Vorwárts, sem leika í Laugardalshöllinni í dag, verða þannig skipuð: Nr. 1 Hjalti Einarsson Nr. 1 Wolfgang Pötzsch Nr. 16 Tíirgir Finnbogason Nr. 12 Stefan Schurer Nr. 2 Geir Hallsteinsson Nr. 2 Dietrich Glásmann Nr. 3 Guðmundur Á. Stefánsson Nr. 3 Joachim Pietzsch Nr. 4 Viðar Símonarson Nr. 4 Wilfried Weber Nr. 5 Gils Stefánsson Nr. 5 Josef Rose Nr. 7 Árni Guðjónsson Nr. 6 Dietmar Schmidt Nr. 9 Jón Gestur Viggósson Nr. 7 Hans-Joachim Engel Nr. 11. Tryggvi Harðarson Nr. 8 Wolfgang Volter Nr. 13 Gunnar Einarsson Nr 9 Wilfried Fiedrich Nr. 14 Ólafur Einarsson Nr. 10 Harald Muller Nr. 15 Þórarinn Ragnarsson Nr. 11 Rolf Meier Nr. 13 Hans-Georg Beyer Nr. 14 Rainer Westphal Nr. 15 Dietmar Riedel Þjálfari: Birgir Björnsson Þjálfari: Valdemar Pappusch Dómarar: Bolstad, Noregi Larsen, Noregi Hljomsveit o Þorsteins Guðmundssonar frá Selfossi. leikur á fyrsta dansleik ársins Rándýrt miðaverð — hreint okur FELAGSHEIMILIÐ FESTI Grindavík ADir þurfa að taka þátt í leiknum og hjálpa FH gegn sterku þýzku liði Hlj ómskálahlaup EINS og undanfarin sex ár mun Iþróttafélag Reykjavfkur gangast fyrir hlaupum fyrir börn og ungl- inga og hefjast þau að þessu sinni með Hljómskálahlaupi félagsins, hinu fyrsta á þessum vetri, sunnudaginn 19. janúar. Hlaupið hefst kl. 14.00 og það byrjar og endar eins og áður við Hljómskálann, nánar tiltekið við styttu Jónasar Hallgrfmssonar. Hlaupið er einn hringur, um það bil 800 metra langur, og er leiðin óbreytt frá undanförnum árum. Hlaupið er öllum opið, sem vilja spreyta sig og verður keppt til verðlauna og i flokkum eftir fæðingarári og kynjum. Þátttakendur í þessum hlaup- um félagsins hafa á undanförnum árum verið geysilega margir og til þess aö forðast þrengsli á síðustu stundu eru væntanlegir þátttak- endur beðnir að mæta til skrá- setningar og númeraúthlutunar helzt eigi síðar en kl. 13.30 og er það mikilvægt nú við fyrsta hlaup ársins að svo sé gert. Enda þótt hlaupið sé fyrst og fremst fyrir börn og unglinga eru allir ungir í anda, sem vilja vera meö, boðnir velkomnir til hæfi- Iegrar hreyfingar. (Frétt fráíR)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.