Morgunblaðið - 18.01.1975, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18, JANÚAR 1975
DátCBÓK
1 dag er laugardagurinn 18. janúar, 18. dagur ársins 1975. 13. vika vetrar.
Árdegísflæði f Reykjavfk er kl. 09.45, sfðdegisflæði kl. 22.07. Sólarupprás f Reykja-
vfk er kl. 10.49, sólariag kl. 16.28. A Akureyri er sólarupprás kl. 10.52, sólarlag kl.
15.54.
Sá, sem sekan sýknar, og sá sem saklausan sakfellir, þeir eru báðir Drottni
andstyggð.
(Orðskviðirnir 17,18).
I Laugarneskirkju hafa verið
gefin saman í hjónaband af sr.
Grími Grimssyni ungfrú Ingi-
björg A. Guðlaugsdóttir og
Þorsteinn Þorsteinsson. Heimili
þeirra er að Framnesv. 65.
(Ljósm Studíó Guðmundar).
Gefin hafa verið saman af sr.
Jóhanni Hlíðar ungfrú Aldfs
Guðmundsdóttir og Bjarni
Þormóðsson. Heimili þeirra er að
Kársnesbraut 85. (Ljósm. Stúdíó
Guðmundar).
Gefin hafa verið saman í hjóna-
band af sr. Arelíusi Níelssyni
ungfrú Sigríður Kristfn Páls-
dóttir og Guðjón Sigurðsson.
(Ljósm. Stúdíó Guðmundar).
í dag verða gefin saman í
hjónaband í Dómkirkjunni
af sr. Þóri Stephensen
ungfrú Ingibjörg Eggerts-
dóttir hárgreiðslumær,
Háaleitisbraut 155, og
Hermann G. Arnviðarson
bakari frá Húsavík. Heim-
ili þeirra verður að Álf-
heimum 6.
Meðfylgjandi mynd er frá
uppfærslu nemenda Sam-
vinnuskólans á einþáttungi
Darfó Fó, Nakinn maður og
annar f kjólfötum.
Leiklistarklúbbur skólans
hefur sýnt þáttinn tvisvar í
Bifröst við mjög góðar
undirtektir.
Nemendur sáu framan af
sjálfir um æfingar undir
stjórn Kristjáns Eysteins-
sonar formanns leiklistar-
klúbbsins, en Sigurður
Karlsson leikari kom sfðar
og sá um að sviðsetja leik-
þáttinn dg búa hann endan-
lega úr garði til flutnings.
Næstkomandi sunnudags-
kvöld munu nemendur Sam-
vinnuskóians leggja land
undir fót og sýna Nakinn
mann í Borgarnesi.
t Bústaðakirkju hefur verið
tekin upp sú þjónusta við
kirkjugesti við messur þar,
að foreldrar geta komið
börnum sfnum f gæzlu á
meðan þau hlýða á messu.
Er þar vel fyrir öllu séð,
leikföng f úrvali og ungar
stúlkur úr æskulýðsfélagi
kirkjunnar annast börnin á
meðan. — Sveinn Þórmóðs-
son Ijósm. tók þessa mynd f
leikstofu krakkanna einn
sunnudaginn, en þetta fyrir-
komulag hefur mælzt vel
fyrir f Bústaðasókninni að
sögn kunnugra þar.
•SfGr^úív/D.
ír
ga ekki ailir að aera sitt til að sDara rafmaanið?
Vildu mitmaki júlaboldi og jólotrjém:
SÖGUÐU NIÐUR
JÓLATRÉ STAÐARINS
Jólairé HósavlkurbKjar varft nölinni Samt létu félagamir sig
fyrlr árás aöfaranótt laagar- ekki muna um að saga þaö
dagsins. er tveir kumpánar I niöur og hiröa m**
fylgd meö Bakkusi söguöu niöur
jólatréö. sem stóö á flöt fyrlr
framan Pósthúsiö og Lands-
bankann.
bolnum
hád'’
ást er...
n-8 -<^_l__?
... aðhverogeinn,
sem kominn er af
barnsaldri, annist
sjálfur viðhald
á plöggum sínum
TM Rog. U.S. Pat. Off.—All rights reservod
© 1974 by los Angeles Times
ÁRfNJAO
HEILLA
| KRDSSGÁTA
Lárétt: 1. ekki vinnusamur 6.
herma 7. Kvennafn 9. málmur 10.
steinstallur 12. samhljóða 13.
vaða 14. borðani 15. þræddi
Lóðrétt: 1. skemmd 2. dýr 3. á
fæti 4. svallar 5. gallar 8. á hurð 9.
mjög 11. þaggi niður í 14. ósam-
stæðir
Laun á síðustu krossgátu
Lárétt: 2. ósa 5. ám 7. má 8. saur
10. at 11. strangi 13. iu 14. menn
15. nr 16. AA 17. ári
Lóðrétt: 1. kossinn 3. skrámur 4.
'kátínan 6. matur 7. magna 9. úr
12. né
| BRIPGE
Eftirfarandi spil er frá leik
milli Bretlands og Svíþjóðar í
kvennaflokki í Evrópu fyrir
nokkrum árum.
Norður
S K-8-5
H 9-8-4-2
T A-8-5
L D-9-3
Vestur
S Á-9-4
H 10-5
T K-4-3-2
L K-G-7-6
Austur
S D-G-2
H A-K-7-3
T G-10-7-6
L A-5
Suður
S 10-7-6-3
H D-G-6
T D-9-
L 10-8-4-2
Lokasögnin var sú sama við
bæði borð þ.e. 3 grönd.
Við annað borðið var vestur
sagnhafi og þar lét norður út
spaða 5. Sagnhafi drap með
drottningu í borði, lét út tígul
gosa, suður drap með drottningu,
drepið var með kóngi heima og
norður fékk slaginn á ásinn.
Norður lét út hjarta, drepið var í
borði með ási, en þar sem N.—S.
áttu vísan slag i tígli þá vantaði
níunda slaginn, svo sagnhafi
svínaði laufa gosa og þar með
tapaðist spilið.
Við hitt borðið var austur sagn-
hafi og þar lét suður út laufa 4.
Drepið var í borði með laufa 6,
norður lét níuna og sagnhafi drap
með ási. Sagnhafi lét út tígul
gosa, suður drap með drotttn-
ingunni, drepið var í borði með
kóngi, en norður gaf!! Með þessu
tekur norður vissa áhættu, þvi
sagnhafi getur nú látið tígul úr
borði og gefi norður, þá drepur
sagnhafi með tiunni og þannig fá
N.—S. aðeins einn slag á tígul.
Sagnhafi fann ekki þessa leið,
heldur taldi rétt að reikna með að
suður hefði í byrjun átt tígul
ásinn annan og lét þess vegna
næst tígul og gaf heima og suður
fékk slaginn á níuna.
Suður lét næst spaða, norður
drap með kóngi, lét aftur spaða,
sagnhafi lét tígul, norður fékk
slaginn og lét enn spaða. Sagnhafi
drap, tók nú tígulinn og suður
kastaði hjarta, en norður kastaði
laufi, þannig að laufa drottningin
varð óvölduð. Sagnhafi getur nú
unnið spilið, en gat alls ekki látið
sér koma til hugar, að vörnin væri
svona slæm. Til að reyna að ná í 9.
slaginn þá var laufa gosa svínað
og spilið varð einn niður.