Morgunblaðið - 18.01.1975, Page 13
13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975
ÞAU mistök urðu i síðasta þætti,
að myndir af þremur hæstu verð-
gildum hinna nýju færeysku fri-
merkja urðu viðskila við þáttinn.
Um leið og lesendur eru beðnir
afsökunar á þessu, eru hér birtar
myndir af merkjunum, en þvi
miður verða þær aðeins svipur hjá
sjón. Um lýsingu frimerkjanna vís-
ast að öðru leyti til þáttarins 4.
janúar.
Úr því að enn er minnzt á
færeysku frímerkin, er rétt að það
komi fram, að upplag þeirra er
óákveðið, þar eð þau verða endur-
prentuð eftir þörfum. Af þvi leiðir
aftur, að ekki verður hægt að
gerast áskrifandi að færeyskum
frímerkjum.
Þættinum hefur borizt bréf frá
ungum frimerkjasafnara með
mikinn áhuga, eins og hann orðar
það. Hann getur hins vegar ekki
nafns sins, en slikt er bæði sjálf-
sagt og nauðsynlegt. ef taka á
fullt mark á aðsendum bréfum.
Bið ég væntanlega bréfritara að
hafa þetta í huga, en dulnefni geta
menn svo kosið, ef þeir vilja síður
láta nafn sitt koma fram i þættin-
um. Þá er ekki heppilegt að varpa
fram of mörgum spurningum i
einu, því að það verður til þess
eins, að sumar spurningar verða
að bíða siðari þátta. Eins verða
spurningar að vera þess eðlis, að
menn geti búizt við svari hér i
þættinum. Þrátt fyrir ýmsa form-
galla að þessu leyti i téðu bréfi, vil
ég svara fáeinum atriðum I þetta
sinn.
Spurt er, hvar hægt verði að fá
sérstimpilinn í Vestmannaeyjum
23. jan. n.k. og hvað hann kosti.
Því er til að svara, að menn geta
vitaskuld sent árituð og frimerkt
umslög til pósthússins í Vest-
mannaeyjum og óskað eftir þess-
um stimpli á þau þennan ákveðna
dag. Eins og tilkynnt hefur verið,
verður þessi sérstimpill notaður i
Vestmannaeyjum 23. janúar ár
hvert um óákveðinn tima. Þar sem
sérstök Vestmannaeyjaf rímerki
koma út 23. jan. — eða á fimmtu-
daginn kemur—, er eðlilegast, að
þau verði notuð við þessa sér-
stimplun i Eyjum. Hitt má svo
aftur vera öllum Ijóst, að menn
geta notað hvaða frimerki sem er,
ef þess er gætt, að burðargjaldið
sé rétt, 23 kr. fyrir lokuð bréf og
18 kr. fyrir prentað mál.
Bréfritari spyr um væntanleg
færeysk frimerki og hvar verði
hægt að fá þau og eins fyrstadags-
umslög. Þvi miður barst bréfið svo
seint I minar hendur, að svar mitt
kemur að litium notum úr þessu.
Pantanir áttu að berast, færeysku
póststjórninni fyrir 6. þ.m., og i
samræmi við það tóku frimerkja-
verzlanir hér i Reykjavik á móti
pöntunum til 28. des. Sagt er, að
eftirspurnin sé gífurleg, eins og
fram hefur komið hér í þættinum
áður. Er þvi ekki vist, að þessi
umslög verði svo sjaldséð á fri-
merkjamarkaði, þegar fram líða
stundir. Vafalaust reyna frimerkja-
kaupmenn hér á landi að tryggja
sér eitthvað af þeim til sölu í
verzlunum sinum, en um verð
þeirra verður ekkert sagt að sinni.
Nýstárleg
fyrstadagsumslög.
Að þvi var vikið í þætti 10. des.
sl„ að i vændum væri útgáfa á
sérkennilegum, en að margra
dómi vafasömum fyrstadagsum-
slögum, þar sem saman fer frí-
merki og minnispeningur á einu
og sama umslagi. Ætlun min var
sú að segja nánar frá þessari út-
gáfu, áður en hún hæfist, og ræða
i þvi sambandi um ýmsa þá hluti,
sem hæpnir eru i söfnun almennt.
Ekki hefur getað orðið af þessu
fyrr en nú, og þegar lesendur fá
þennan þátt i hendur, hefur fyrsta
umslagið væntanlega séð dagsins
Ijós. Engu að siður er málið þannig
vaxið, að ástæða er til að minnast
á það og hugleiða.
f nóvemberblaði Svensk Fila-
telistisk Tidskrift (SFT) birtist aug-
lýsing og greinargerð um fyrsta-
dagsumslög. sem Alþjóðasamband
póstmeistara i Genéve i Sviss er
að hefja útgáfu á. Þykir mér rétt
að rekja hér hið helzta, sem um
útgáfuna segir, um leið og birt er
mynd af fyrsta umslaginu, en
stærð þess er 157 X 114 mm.
Hinn 15. jan. 1975 gefur
Alþjóðasamband póstmeistara út
fyrstadagsumslag með minnis-
peningi — hið fyrsta sinnar
gerðar i heiminum og upphaf
að verðmætri safnaraseríu, eins
og það er orðað. Þessi sögu-
lega útgáfa er til að heiðra
minningu dr. Alberts Schweitz-
ers á 100 ára afmæli hans.
Er þetta upphaf flokks eða
seríu alþjóðlegra fyrstadagsum-
slaga með minnispeningi til þess
að minnast áhrifamanna eða staða
og sögulegra atburða um heim
allan. Mun sambandið velja eitt
merki i mánuði af öllum þeim
frímerkjum, sem út koma I
heiminum, — hið fremsta m. t.t.
myndar, gerðar og safnaragildis.
Þegar frimerki mánaðarins hefur
verið valið, heiðrar sambandið
þann mann, stað eða atburð, sem
fram kemur á merkinu. á þann
hátt að veita heimild til útgáfu
sérstaks minnispenings úr skiru
silfri (sterling), að stærð 39 mm i
þvermál. Segir í tilkynningunni,
að þetta verði sérslátta, en við
útlit hennar kannast lesendur af
sérsláttu Seðlabanka islands á
siðastliðnu ári.
Þá er tekið fram, að bæði frí-
merki og peningur verði sameinað
eftir JÓN AÐAL-
STEIN JÓNSSON
í sérstöku minningarumslagi, sem
verði stimplað handa hverjum ein-
stökum viðtakanda á útgáfudegi
merkisins á því pósthúsi landsins,
sem annast fyrstadagsútgáfuna.
Og nú kemur það agnið, sem á að
fá bæði frímerkja- og myntsafnara
til að bita á og hélzt kokgleypa.
Orðrétt segir svo í blaðinu: Þessi
alþjóðlegu bréf með minnispen-
ingum verða gefin út i mjög tak-
mörkuðu upplagi og einungis
handa þeim, sem gerast áskrifend-
ur. Heildarupplag hvers fyrsta-
dagsbréfs með minnispeningi tak-
markast nákvæmlega við þá tölu
pantana, sem berast og eru póst-
stimplaðar seinast þann dag, sem
ákveðinn verður síðasti pöntunar-
dagur. Engin umslög verða gerð
fram yfir þessa tölu og aðrar fyrri
útgáfur verða ekki fáanlegar nema
frá upprunalegum áskrifendum.
Svo mörg eru þau orð, en siðan
er enn hnykkt á til þess að örva
safnarana og bent á, að það skipti
fyrir sér að geta myndað fullkomið
safn af þessum merkilegu umslög-
um! Þá á hver áskrifandi að fá sér
að kostnaðarlausu fallegt albúm
bæði til þess að geyma dýrgripina
( og eins til að geta sýnt öðrum þá.
Ja, haldið þið að það sé munur!
Þá er getið um væntaniegar
aðrar útgáfur á þessu ári, en ég
sleppi hér að rekja það. En ekki
verður þvl neitað að þetta Ktur allt
mjög glæsilega út. En þeir eru
fleiri en ég, sem finna eitthvert
óbragð af þessu öllu saman.
í grein I Financial Times 23.
nóv. sl. segirfrá þessari útgáfu, og
talar greinarhöfundur þar m.a. um
skrum og eitt hið mesta, sem
fram hafi komið á fr(-
merkja- og myntmarkaðinum
siðustu 12—18 mánuði. Eins
talar hann um, að fyrir-
tæki þetta sé einkennilegt, en
boðið sé áhugavert, þv( að það
geri bæði frimerkja og myntsöfn-
urum fært að fá sömu kökuna —
og éta af henni. Er orðalag
greinarinnar allt þess eðlis, að
höfundur virðist hafa heldur litla
trú á fyrirtækinu og efast um til-
ganginn.
INTERNATIONAL SOCIETY OF POSTMASTERS
OFFICIAL COMMEMORATIVE ISSUE
ASSOCIATION INTERNATIONALE DES
RECEVEURS DE LA POSTE
EMISSION COMMEMORATIVE OFFICIELLE
UKUTED EDITION PROOF • STERLINO SILVER
EMISSION LIMITEE EPREUVE ■ AROENT STERUNO
mestu máli, að þeir. sem sendi
pantanir við þetta fyrsta tækifæri,
verði einu safnararnir, sem hafi
möguleika á að mynda fullkomið
safn af þessum sögulegu fyrsta-
dagsbréfum — frá fyrstu byrjun.
Ekki verður þvi svo sem neitað, að
það er mikið gefandi fyrir það, en
bitinn kostar lika nokkuð, lesend-
ur góðir. Samkv. auglýsingunni í
SFT átti að senda pöntun fyrir
útgáfuna 15. jan. til fyrirtækis i
Stokkhólmi, og varð að póstleggja
hana í síðasta lagi 30. nóv. 1974.
Fyrsta bréfið átti að kosta 110
sænskar krónur eða um 330 isl.
krónur — með söluskatti. Hins
vegar er þvi heitið, að þeir, sem
gerast áskrifendur að allri útgáfu
næstu þriggja ára, fái hvert um-
slag án söluskatts — eða fyrir
93,50. Engu að siður er hér um að
ræða 3 þús. króna útgöld á
mánuði — eða 36 þúsund krónur
á ári.
Tekið er fram, að áskrifendur
hafi rétt til að hætta við allt
saman, hvenær sem er með 30
daga fyrirvara. En um leið má
segja, að þeir séu hræddir til að
halda áfram, þegar þeir hafa einu
sinni ánetjazt, því að vinsamlega
er bent á, að geri menn slikt, sé
um alla eilifð búið að eyðileggja
___________________________________
Því verður vitanlega ekki
neitað. að söfnurum er i sjálfsvald
sett. hvort þeir hlaupa eftir slíkum
gylliboðum eða ekki. En min
skoðun er sú, að þeir skuli gjalda
varhuga við mörgu af þvi, sem
boðið er upp á, og hugsa vel ráð
sitt, áður en hlaupið er upp til
handa og fóta og bitið á agnið. Ég
hef spurzt fyrir um þetta Alþjóða-
samband póstmeistara meðal
ráðamanna ísl. póstmála. Sam-
bandið mun vera til, en ekki eru
islendingar aðilar að því. Þá er
Ijóst, að sambandið hefur falið
ákveðnu fyrirtæki i Stokkhólmi
dreifingu og sölu væntanlegra um-
slaga um Norðurlönd a.m.k. Hef
ég i höndum órækan vitnisburð
um, að það visar öllum fyrirspurn-
um um útgáfuna til þess. Verður
hver að dæma fyrir sig. hvort slík
aðferð er beinlínis til þess að auka
traust manna á þessari útgáfu-
starfsemi.
Sannleikurinn er sá, að allt, sem
einstaklingar, samtök eða jafnvel
póststjórnir gera til að spila á
söfnunarfýsn manna, er þess
konar, að það verður tæplega talið
til eðlilegrar söfnunar. Ég lit svo á,
að frimerkjasöfnun eigi fyrst og
fremst að vera söfnun þeirra
hluta, sem hafa haft og hafa póst-
gildi i einhverri mynd. Þar verða
frimerkin sjálf aðalatriðið, en
siðan auðvitað ýmis afbrigði, sem
fram hafa komið við gerð þeirra.
Fyrr á árum gátu frimerki gilt
óbreytt að ytra útliti um áratugi
og voru þá endurprentuð eftir
þörfum. Við það komu fram frávik
um lit, pappír, vatnsmerki og
tökkun, og eftir þessu slægjast
sérsafnarar. Þetta vil ég kalla hina
réttu „filateliu", því að hér hefur
ekkert verið búið til einungis
vegna söfnunar, hetdur orðið til
við eðlilegar aðstæður á hverjum
tima. Um hitt má svo vitaskuld
deila, hversu langt menn skuli
halda á þessari braut. Þar verður
hver að vega og meta fyrir sig.
Hitt er svo alkunna, að póst-
stjórnir margra landa hafa fyrr og
síðar farið inn á þá braut að gefa
út frímerki og yfirprentanir þeirra
einungis fyrir safnara og að því er
bezt verður séð til þess að seilast
ofan í pyngju þeirra. Mætti nefna
mörg dæmi sliks, þótt það verði
ekki gert að sinni.
Söfnun jólamerkja er hliðar-
grein frímerkjasöfnunar, og hefur
hún aukizt mjög siðustu áratugi.
Hér á landi hóf Thorvaldsens-
félagið útgáfu jólamerkja fyrir
rúmum 60 árum. En nú er tala
þeirra aðila, sem gefa út slik
merki, orðin svo há, að þar kann
ég engin skil á. Ekki verður amazt
við þessari útgáfustarfsemi, enda
flest gert i góðgerðarskyni. En
þegar jafnframt er farið að gefa
slik jólamerki út i alls kyns litaraf-
brigðum og svokölluðu prófprenti
— og selja dýrum dómum, þá
finnst mér skörin færast upp i
bekkinn. Hér ber allt að sama
brunni. Safnarar vilja eiga sem
fullkomnust söfn, og þá er erfitt
að neita sér um að kaupa þessa
hluti, þar eð annars verða eyður i
söfnunum. Þessa hugsun þekkja
þeir lika vel, sem búa agnið til, og
verður oft vel ágengt. Én ég spyr
lesendur: Er ekki fulllangt gengið
með þess konar „tilbúning" og
þörf á að spyrna við fótum?
Enda þótt áhyggjuefnin séu
mörg að þessu leyti meðal isl.
frimerkjasafnara, eru þau sizt
minni meðal isl. myntsafnara, og
hygg ég, að siðastliðið ár hafi
orðið þeim þungt í skauti. Ég ætla
mér ekki að svara fyrir þá, en tel
sizt vanþörf á, að þeir íhugi vel sitt
ráð og þá ekki sízt, þar sem er-
lendir aðilar eru að ryðjast inn á
islenzkan markað — og að margra
dómi eftir fremur ósmekklegum
leiðum.
Um allt þetta mætti skrifa miklu
lengra og ákveðnara mál en hér
hefur verið gert, en ég vildi
einungis vekja alla safnara til um
hugsunar um þennan vanda, sem
að þeim steðjar, og ekki sízt
benda ungum söfnurum á hann,
svo að þeir geti gætt sin á þeim
tálbeitum, sem alit of oft eru á
ferðinni og eiga i reynd ekkert
skylt við eðlilega söfnun.
Að endingu eru lesendur svo
minntir á fyrstu islenzku fri-
merkin, Vestmannaeyjafrimerkin,
sem koma út 23. þ.m. Um aðrar
útgáfur á Norðurlöndum hefur
þátturinn enga tilkynningu fengið,
en vonandi verður hægt að geta
nýrra frimerkja innan skamms.
margfaldar
morkad uðar
r
Utgerðarmenn
60 tonna bátur til leigu í mjög góðu ásigkomu-
lagi. Nýjar vélar og nýlegt hús, nýr lúkkar
ásamt öðrum endurbótum. Tilbúin til veiða.
SKIPA & FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Adalstrætl 9 Midbæiarmarkadinum
simi 17215 heimasimi 82457
Hártízkusýning '75
verður haldin í Sigtúni á morgun sunnudag kl.
3 — 5. Tízkufatnaður frá Verðlistanum. Miðar
seldir í Permu Garðsenda til kl. 7 í dag og við
innganginn á morgun.
Samband hárgreidslu og hárskerameistara.