Morgunblaðið - 18.01.1975, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANUAR 1975
hf. Árvakur, Reykjavlk
Haraldur Svainsson.
Matthías Johannassan,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn GuSmundsson.
Björn Jóhannsson.
Arni GarSar Kristinsson.
ASalstrnti 6, stmi 10 100.
ABalstrtati 6, stmi 22 4 80.
Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands.
I lausasölu 35,00 kr. aintakiS.
Útgefandi
Framkvaamdastjóri
Ritstjórar
Ritstjómarf ulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjóm og afgraiSsla
Auglýsingar
Ringulreiðin í efna-
hagsmálum þjóðarinn-
ar á síðasta ári og þær
endurreisnaraðgerðir, sem
gripið var til síðari hluta
ársins, hafa óhjákvæmi-
lega rýrt kaupmátt launa-
taxta. Hjá þessu var ekki
unnt að komast, ef halda
átti atvinnulífinu gang-
andi. Okkur hefur tekist
fram til þessa að koma í
veg fyrir það stórfellda at-
vinnuleysi sem nú hrjáir
flestar nágranna- og við-
skiptaþjóðir okkar. Á
miðju síðasta ári blasti við
algjör stöðnun í mörgum
mikilvægum atvinnugrein-
um. Með efnahagsaðgerð-
um núverandi ríkisstjórn-
ar var þessari hættu bægt
frá.
Einn þátturinn í efna-
hagsaðgerðum núverandi
ríkisstjórnar var að taka
ekki upp á ný vísitölubæt-
ur á laun, en vinstri stjórn-
in afnam þær í maímánuði
síðastliðnum. Þess í stað
voru sett ákvæði um sér-
stakar launajöfnunarbæt-
ur, þar sem það er stefna
þessarar ríkisstjórnar að
bæta fyrst og fremst hag
láglaunafólksins meðan
þjóðin er að komast yfir
efnahagsörðugleikana. Ef
ekki hefði verið gripið til
þessara ráðstafana hefði
kaupgjald hækkað um
a.m.k. um 80% á síðasta
ári, á sama tíma og við-
skiptakjör lækkuðu um
27% og þjóðartekjur um
1%. Öllum má ljóst vera að
það hefði verið hrein vit-
firring að láta málin þróast
á þann veg. Það er með öllu
útilokað að skipta meiru en
aflað er, og því hefði orðið
alvarlegur samdráttur í at-
vinnulffinu og verulegt at-
vinnuleysi, ef ekki hefði
verið gripið í taumana.
Hitt er alveg ljóst að að-
gerðir af þessu tagi hljóta
að hafa veruleg áhrif á lífs-
kjör almennings. Talsvert
áður en gengið var til við-
ræðna um þá kjara-
samninga sem gerðir voru í
febrúar sl. lýsti forseti
Alþýðusambandsins yfir
því, að hann teldi ekki vera
fyrir hendi grundvöll fyrir
almennum kauphækkun-
um. Þegar á hólminn var
komið knúði verkalýðs-
hreyfingin hins vegar fram
með aðstoð þáverandi ríkis-
stjórnar miklar kaup-
gjaldshækkanir og mest
handa þeim, er hæst höfðu
launin fyrir. Eins og for-
seti Alþýðusambandsins
hafði áður bent á var ekki
grundvöllur fyrir þessum
almennu kauphækkunum.
Af þeim sökum urðu þeir
fyrst og fremst til þess að
auka dýrtíðarvöxtinn.
Nú hefur verið á það
bent, að kaupmáttur launa
hafi að raungildi lækkað á
síðasta ári um 15% á
meðan þjóðartekjur hafi
aðeins lækkað um 1%. Hér
er um villandi samanburð
á ræða, þar sem miðað er
við kaupmátt launa daginn
sem samningarnir gengu í
gildi en breyting á þjóðar-
tekjum er meðaltalsút-
reikningur fyrir allt árið.
Ef bera á þessar tvær
stærðir saman verður að
miða við meðaltalskaup-
mátt ársins 1974. Það
breytir að sjálfsögðu
myndinni.
þróun síðasta árs kemur í
ljós samkvæmt útreikning-
um þjóðhagstofnunar, að
kauptaxtar hafa hækkað að
meðaltali um 47% að með-
töldum áhrifum launajöfn-
unarbótanna. Heildarat-
vinnutekjur hafa á hinn
bóginn aukist nokkru meir
eða um 52% og kemur þar
m.a. til aukin yfirvinna.
Talið er að ráðstöfunar-
tekjur heimilanna hafi
hækkað á síðasta ári um
53% og verðlag á vörum og
þjónustu hafi hækkað að
meðaltali um 42%. Kaup-
máttur ráðstöfunartekna
heimilanna hefur því að
meðaltali hækkað á síðasta
ári um 8% meðan þjóðar-
tekjur lækkuðu um 1%.
Ástæðan fyrir því að
ráðstöfunartekjur heimil-
anna hafa hækkað meir en
kauptaxtar er sú, að reikn-
að er með áhrifum skatta-
breytinganna og tekjutil-
færslum eins og bótum al-
mannatrygginga.
Hér er um mjög athyglis-
verðar tölur að ræða, sem
sýna ótvírætt, að þrátt
fyrir mikla verðbólgu, dýr-
tíðarvöxt og minnkandi
þjóðartekjur hafa tekjur
heimilanna aukist að raun-
gildi á síðasta ári. Hitt er
alveg ljóst, að kaupmáttur
launataxta hefur vitaskuld
lækkað miðað við það
ástand, er var þegar kjara-
samningarnir voru undir-
ritaðir um mánaðamótin
febrúar og mars. Eins og
sakir standa höldum við þó
svipuðum kaupmætti eins
og fyrir ári, áður en kjara-
samningarnir tóku gildi.
Það verður því að teljast
góður árangur míðað við
þróun efnahagsmálanna.
Mestu skiptir á hinn
bóginn að meta hvað
heimilin hafa tii ráðstöf-
unar. Þá kemur í ljós sam-
kvæmt útreikningum Þjóð-
hagstofnunar, að kaup-
máttur þeirra hefur aukist
um rúm 8%. Það er því
með öllu fráleitt að tala
um, að launaþróunin hafi
verið launþegum óhagstæð
miðað við þjóðartekjur.
Verðlagsbreytingar á
síðasta ári komu I tals-
verðum sveiflum. Fyrst
eftir kjarasamningana
hækkaði verðlag talsvert
mikið og síðan aftur í kjöl-
far gengisfellingarinnar og
annarra efnahagsráðstaf-
ana, er gerðar voru sl.
haust. Nú er á hinn bóginn
gert ráð fyrir að dragi úr
dýrtíðarvextinum og
vonir standa til að verð-
bólgan hjaðni talsvert á
þessu ári. Þjóðin er þvi til-
tölulega vel undir það búin
að mæta þeim erfiðleikum
sem við blasa, svo er fyrir
að þakka skynsamlegum
aðgerðum I efnahags- og at-
vinnumálum.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila
Pompidou stjórnaði landi sínu sár-
þjáður af völdum Kehlerssjúkdóms
„LÉZT Pompidou forseti
standandi," varð frönsk-
um útvarpsmanni að
orði, er lát Pompidous
var tilkynnt. Hann vissi
sem var, að forsetinn
hafði unnið sárþjáður
næstum fram til hinztu
stundar. Jafnvel læknir
verður að taka ofan fyrir
hugrekki franska forset-
ans, þegar ljóst er að
banamein forsetans var
Kehlerssjúkdómur, ill-
kynjað krabbamein I
beinmergnum, sem leiðir
af sér mikla verki, ósegj-
anlega þreytu, stöðugar
ígerðir og blæðingar.
Frammi fyrir öllu þessu
stóð Frakklandsforseti
æðrulaus og gengdi störf-
um sínúm heima og er-
lendis eins og ekkert
hefði í skorizt og lét
lækna sína segja, að hann
þjáðist af eftirköstum
slæmrar inflúensu, er
fólk velti því fyrir sér
hvort hann væri heill
heilsu.
Hann þyngdist
um 25 ,kg
Það er auðvelt að skilja
hversu illa haldinn forsetinn
var, er á það er litið, að
skömmu fyrir andlát sitt sagði
hann við konu sína: „Ég hélt
ekki að svo miklar þjáningar
væru til.“ Þegar Pompidou tók
Pompidou er hann tók
við forsetaembætti. Þá
var hann alheilbrigóur
og vó 78 kg.
við forsetaembætti af De
Gaulle fyrir rúmum 5 árum var
hann stálhraustur maður, sem
vó 78 kg. Er hann lézt var hann
orðinn afmyndaður af fitu og
hafði tekið á sig 25 kg á einu
ári. Auk þess var hann orðinn
svo fótaveikur, að hann hrasaði
oft og varð að styðja sig við, er
hann gekk. Brezka stórblaðið
The Times sagði, að um væri að
kenna taumlausri matarlyst
forsetans, en allir læknar sáu,
að fitan var ekki af völdum
ofáts. Það mörkuðum við á því,
að andlit fórsetans var greini-
lega bólguþrútið, sem oft vill
verða við langvarandi kortison-
meðferð, en kortison er notað
gegn ýmsum sjúkdómum, þann-
ig að ekki var af því hægt að
ráða hvað þjáði forsetann. Tals-
menn hans í Elyseéhöll sögðu,
að forsetinn fengi kortison við
liðagigt og þrátt fyrir að hún sé
alvarlegur sjúkdómur er hún
ekki banvæn. Áðurnefnt lyf er
hins vegar einnig notað gegn
ýmsum tegundum krabbameins
og með það í huga og ýmislegt
annað fannst mér líklegt, að
forsetinn þjáðist af illkynja
vexti blóðfruma. Þetta reyndist
rétt, því að það var Kehlers-
sjúkdómur, sem dró forsetann
til dauða og var endanleg
dánarorsök heilablæðing, sem
hlýtur að hafa verið mikil bless-
un fyrir hinn sárþjáða mann.
Sjúkdómur þessi er mjög ill-
kynjaður og kemur frá bein-
mergnum. 1 staðinn fyrir að
framleiða blóðfrumur framleið-
ir mergurinn krabbameins-
frumur sem geta myndað æxli
og brotið niður bein.
Uppruni sjúkdómsins er
óþekktur, en hann er sjaldgæf-
ur. Árlega fá um 24 af hverri
einni milijón íbúa sjúkdóminn
og hans verður sjaldan vart
fyrr en eftir fertugsaldur og er
algengastur hjá fólki á aldrin-
um 50—70 ára, jafnt konum,
sem körlum.
Hryggurinn brotnar
Talið er öruggt, að Kehlers-
sjúkdómur (eða Muelomatose)
geti leynzt í líkamanum um
margra ára skeið, án þess að
einkenna hans verði vert. Al-
gengt einkenní eru beinverkir,
sem aukast stöðugt. Sökum
æxlamyndunar og kalkeyðingar
í beinunum verður beinagrind
manns svo mjúk og veik, að
bein geta brotnað, án þess að
nokkurt verulegt átak komi til,
t.d. getur hryggjarliður hrein-
lega sigið niður, þannig að
sjúklingur fær kvalafulla
mjaðmarverki, eða þá að rif-
beinin hrökkva í sundur.
Sjúklingur verður smám sam-
an mjög þreyttur, leggur af og
fær hita af völdum ígerða.
Pompidou fékk hvað eftir ann-
að lungnabólgu, kvef og
inflúensu. Nýrun fara oft illa
og starfsemi þeirra hægist
mjög, þannig að þvag fer út í
blóð sjúklingsins og veldur oft
dauða.
Aðrar blæðingar
Þar sem beinmergurinn
framleiðir stöðugt minna magn
af eðlilegum blóðfrumum fer
sjúklingurinn að þjást af blóð-
skorti og tilhneigingu til blæð-
inga. Pompidou kom oft á ríkis-
stjórnarfundi með grisju í nef-
inu vegna blóðnasa. Einnig
fékk hann þarmablæðingu og
eins og áður er sagt var bana-
mein hans heilablóðfall.
Kehlerssjúkdómur er mjög
alvarlegur sjúkdómur, sem
veldur skjótum dauða ef með-
ferð kemur ekki til og mörg
dæmi eru til þess að sjúklingar
hafi látizt innan árs frá því að
fyrstu einkenna varð vart. En
sjúklingurinn getur einnig lif-
að upp í 10 ár. Ekki er hægt að
lækna sjúkdóminn, en hægt að
beita ýmsum meðulum til að
vinna bug á hinum margþættu
ígerðum, sem honum fylgja t.d.
með penecillini.
Meðferð til að
minnka kvalirnar
Meðferð sjúkdómsins er eink-
um fólgin í því að minnka kval-
eftir ERIK
MUNSTER
irnar. Notað er frumueitur,
sem ræðst gegn illkynjuðu
frumunum og kortison getur
haft mjög góð áhrif. Þá minnka
röntgengeislar einnig beinverk-
ina. Mjög mikilvægt er, að
sjúklingurinn sé sem mest á
ferli, því að leggist hann í rúm-
ið eða sitji á stól allan daginn,
eykst kalkeyðingin í beinunum.
Að þessu leyti hefur hinn starf-
sami Pompidou verið góður
sjúklingur fyrir lækna hans.
Lífsstykki geta hjálpað gegn
mjaðmarverkjunum og komið í
veg fyrir frekara sig hryggjar-
liðanna og auðveldað sjúklingn-
um að hreyfa sig.
Dauðaorsökin er oft blóðeitr-
un, er lyfin ná ekki lengur að
vinna gegn ígerð, auk nýrnabil-
unar og blæðinga, eins og áður
hefur verið skýrt frá.