Morgunblaðið - 08.02.1975, Side 1

Morgunblaðið - 08.02.1975, Side 1
36 SIÐUR 31. tbl. 62. árg. LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 Prentsniiðja Morgunblaðsins. Fá Tyrkir hernaðar- aðstoð frá Aröbum? Washington 7. febrúar, Reuter. BANDARlSK stjórnvöld telja að Tyrkir séu að leita fyrir sér um fjármagn frá Arabalöndunum til vopnakaupa nú eftir að hergagna- aðstoðinni frá Bandaríkjunum hefur verið hætt, að því er hátt- settir embættismenn í Washing- ton skýrðu frá í kvöld. Nánara samband Tyrkja og Araba hefði í för með sér mikla uppstokkun á viðhorfum í sambúð hervelda og kynni að skapa alvarlegt ástand ef til nýrra stríðsátaka kemur í Miðausturlöndum, segja embætt- ismenn. Áhyggjur Bandaríkja- manna eru þvl meiri vegna þess að þau tvö Arabalönd, sem Tyrkir virðast vera að leita ásjár hjá, Líbýa og írak, eru fjandsamlegust I garð Bandaríkjanna af öllum öðrum ríkjum á þessum slóðum. Óttast ríkisstjórn Fords að ákvörðun Bandaríkjaþings um stöðvun vopnaaðstoðar við Tyrki eigi eftir að bola Tyrklandi úr samtökum vestrænna þjóða. Um 100 létust 1 átökum í Perú Kyrrö að mestu komin á AP-símamynd DANMÖRK: Anker Jörgensen svarar spurningum fréttamanna í gærkvöldi fyrir utan Amalienborg eftir að Margrét drottning fól honum að reyna myndun meirihlutastjórnar fimm flokka. Buenos Aires 7. febrúar, Reuter, HERSVEITIR gengu um götur Lima, höfuðborgar Perú, f dag en ró virtist að mestu komin á eftir mikil átök á miðvikudaginn, sem hófust er hermenn brutu upp- reisn lögreglumanna á bak afturv Samkvæmt upplýsingum frá hernum, sem bárust til Buenos ' Aires I dag, létust um 100 manns f bardögunum, en talið er, að margir fleiri hafi særzt er skrið- drekar hófu skothrfð á mótmæl- endur. Hermenn og lögreglu- menn í borgaralegum klæðum voru sagðir byrjaðir að handtaka óeirðarseggi, en lögreglumenn eru mættir aftur til vinnu eftir verkfallið. Skothríð heyrðist öðru hvoru í höfuðborginni í gærkvöldi á meöan 9 klukkustunda útgöngu- bann var í gildi, en ekki varð vart við átök i dag. Tveir fréttamenn Reuters-fréttastofunnar, sem handteknir voru vegna „endur- tekinna rangfærslna" um ástandið f Perú, eins og innan- ríkisráðuneytið orðaði það, voru reknir úr landi í dag. Verkamenn voru sagðir hafa unnið að hreinsun gatna og rústa brunninna húsa, og verzlanir opn- uðu að nýju. Talsmaður stjórnar Juan Velasco Alvarado, forseta, sagði, að atburðir síðustu daga myndu ekki leiða til neinna breyt- inga á stjórninni. Jörgensen falin mynd- un meirihlutastiórnar Kaupmannahöfn 7. febrúar. Frá fréttaritara Morgunblaðsins Gunnar Rytgaard: % ANKER Jörgensen, formaður Jafnaðarmannaflokksins, verður að öllum líkindum hinn nýi Isvestija: NATO beitir Dani og Norð- menn þvingunum Moskvu 7. febrúar — NTB. YFIRSTJÓRN Atlantshafs- bandalagsins reynir að þvinga Norðmenn og Dani til að láta af hefðbundinni stefnu land- anna varðandi herstöðvar og styrkja um leið hernaðar- aðstöðu NATO í Norðursjó, segir málgagn sovézku rikis- stjórnarinnar, Isvestija, að þvf er Tass-fréttastofan hermir. Gerir blaðið harða hríð að viss- um aðilum í NATO vegna þess að þeir hafi reynt að ógna áðurnefndum löndum til að veita bandalaginu heimild til að hafa hersveitir í olíubor- unar- og olíuleitarstöðvum þeirra í Norðursjó, og láta loka stórum svæðum umhverfis fyrir skipaumferð. Yrði eitt af hlutverkum þessara nýju út- varða NATO að fylgjast meo ferðum sovézkra herskipa Norðursjó, segir Isvestija, og Framhald á bls. 20 forsætisráðherra Danmerkur. Margrét drottning fól honum í kvöld myndun meirihlutastjórn- ar fimm flokka, Jafnaðarmanna, Radikale Venstre, lhaldssama þjóðarflokksins, Kristilega þjóð arflokksins og Miðdemó- krata. Þessi flokkar hafa á bak við sig 89 þingsæti af 179 f danska þjóðþinginu, en þar af eiga Færeyjar og Grænland fjóra þingmenn, sem sumir greiða ekki atkvæði f dönskum málum. Er hann kom af fundi drottningar gaf Jörgensen í skyn, að myndun þessarar meirihlutastjórnar yrði ekki auðveld. Einkum er talið að thaldssami þjóðarflokkurinn og Kristilegi þjóðarflokkurinn eigi erfitt með að taka þátt f stjórn undir forystu jafnaðarmanna. Ef myndun þessarar meirihluta- stjórnar tekst ekki þá þurfa flokksleiðtogarnir að koma til nýs fundar með drottningu, og þar með hefst ný umferð. 0 t gær skýrði Karl Skytte, for- seti þjóðþingsins, drottningu frá þvf, að könnun hans á möguleik- um fyrir myndun meirihluta- stjórnar á breiðum grundvelli hefði verið árangurslaus, og dró hann sig í hlé. Eftir fund með Poul Hartling, fráfarandi for- sætisráðherra, f dag, kallaði drottningin flokksleiðtogana á sinn fund og urðu úrslit þau, að Anker Jörgensen var útnefndur forsætisráðherraefni af flokks- leiðtogum sem hafa meirihluta þingsæta á bak við sig. Þeir sem mæltu með Jörgensen voru jafn- aðarmenn, Radikale Venstre, Sósíalfski þjóðarflokkurinn, kommúnistar og vinstrisósfalist- ar, en Venstre, Framfaraflokkur- inn, Kristilegi þjóðarflokkurinn og fhaldsmenn bentu á Poul Hartling. Miðdemókratar réðu úr- slitum þar eð þeir mæltu með Karl Skytte. Þar með fékk Jörgensen 88 þingsæta stuðning, en Hartling 85. Danska alþýðusambandið hefur fylgzt náið með stjórnarmyndun- arviðræðunum, og vegna mikillar andstöðu við stjórn Hartlings, sem vildi grípa inn í frjálsan samningsrétt aðila vinnumarkað- arins, beitti sambandið sér gegn samvinnu milli jafnaðarmanna og Venstre-flokks Hartlings. Stjórn sambandsins sat á fundum í dag, og samkvæmt heimildum Kristi- legs dagblaðs hefur hún skýrt Jafnaðarmannaflokknum frá því, að sambandið hafi ekkert á móti stjórnarsamvinnu jafnaðar- manna, Ihaldssama þjóðarflokks- ins, og Kristilega þjóðarflokksins. En spurningin er sem fyrr seg- ir, hvort íhaldsmenn og Kristilegi þjóðarflokkurinn geti að nokkru leyti tekið þátt í ríkisstjórn undir forystu jafnaðarmanna, eftir að hafa mælt með Hartling sem for- Framhald á bls. 20 Sjálfstæði Eritreu er útilokað — segir herstjórn Eþíópíu Addis Abeba 7. febr. Reuter — AP. HERSTJORNIN I Eþfópfu sagði f harðorðri útvarpsyfirlýsingu f kvöld, að hún hefði alls ekki f hyggju að veita héraðinu Eritreu f norðurhluta landsins sjálfstæði. A.m.k. 1600 manns hafa beðið bana f bardögum undanfarna viku milli frelsishreyfingar héraðsins og hermanna Eþfópfu. t yfirlýsingunni sagði, að ein- ing Eþfópfu væri friðhelg og „samsæri" f Eritreu voru for- dæmd. Kveðst stjórnin ætla að brjóta ofbeldisverk á bak aftur, og er talið að hún hyggist upp- ræta eritrefsku frelsishreyfing- una ELF. Yfirlýsing stjórnarinnar var gefin út skömmu eftir að Meng- istu Haile Marian, majór og valda- mesti maður herstjórnarinnar, sneri aftur til Addis Abeba frá höfuðborg Eritreu, Asmara. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum fór Mengistu til Asmara á miðvikudag til að stjórna heraðgerðum þar. Hann var einnig sagður hafa unnið að lausn „agavandamála“ meðal her- manna. Framhald á bls. 20 MOTMÆLAGANGA í BON ÞRÁTT FYRIR LISSA- BANNIÐ Lissabon 7. febrúar — Reuter. 0 UM 5000 mótmælendur gengu fylktu liði gegnum miðborg Lissa- bon f kvöld, þrátt fyrir bann stjórnvalda við öllum mótmæla- aðgerðum þangað til á miðviku- dag, og beindu skeytum sfnum að Atlantshafsbandalaginu, auðvald- inu og atvinnuleysi. Mótmæla- gangan, sem stöðvaði alla umferð f borginni, var farin um leið og NATO-floti með 19 herskipum lagðist að bryggju f Lissabon, en floti þessi hefur verið að heræf- ingum undan ströndinni. Báru mótmælendur skilti með áletrun- unum „Burt með NATO“, „Drep- um kapftalista, burt með heims- valdasinna". Lögreglan gerði enga tilraun til að koma f veg fyrir gönguna. Flestir mótmælendanna köll- uðu slagorð um atvinnuleysi og lágt kaup, sem í upphafi áttu raunar að vera aðaltilefni göng- unnar. En flugmiðum var dreift um Lissabon, þar sem menn voru hvattir til að gera hetta að mót- mælum gegn NATO lfka. Verkamenn við skipasmíða- stöðvar, klæddir samfestingum og með hlífðarhjálma, gengu í 10 manna breiðfylkingarbrjósti, en foringjar með gjallarhorn gættu þess að ekkert færi úr böndunum og stjórnuðu slagorðasöngnum. Kommúnistaflokkurinn, sem á aðild að rfkisstjórninni, fordæmdi í kvöld mótmælagönguna og kall- aði hana „eins konar þvingun á stjórnmálaástandið í Portúgal“. Mario Soares, leiðtogi sósialista, kallaði gönguna ótímabæra. Báðir flokkar höfðu stutt bannið við mótmælaaðgerðum, en þriðji flokkurinn í samsteypustjórninni, Demókratíski þjóðarflokkurinn, sagði, að engin skýring hefði Ver- ið gefin á því hvers vegna eðli- legur lýðræðisréttur væri tak- markaður. Um 8000 franskir, hollenzkir, brezkir og bandarfskir sjóliðar voru væntanlegir í land i leyfi eftir að NATO-flotinn hafði lagzt að, og voru sumir þegar komnir í land í kvöld, klæddir í borgaraleg klæði, en með nöfn skipa sinna á jökkunum. Að ósk portúgalskra yfirvalda hætti NATO í dag við að ieyfa almenningi að skoða her- skipin í höfninni á morgun. Var lögregluvörður um skipin í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.