Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 11 Hvað varð um Línu langsokk ? ÞAU eru vlst ófá blessuð börn- in á ýmsum aldri, sem setjast við sjónvarpið klukkan hálfsjö á laugardögum til að horfa á stelpuskottið hana Linu lang- sokk, sem er sterkust af öllum, gerir allt, sem henni sýnist, og getur keypt upp heilu sælgætis- búðina af þvi, að hún á kistil fullan af gullpeningum. Kannski krakkarnir hafi þá líka af því eitthvert gaman að glugga í eftirfarandi frásögn af Línu — það er að segja stelp- unni, sem fór með hlutverk hennar, en það birtist fyrir nokkru i einu dönsku dagblað- anna. ,,Hér sérðu Linu langsokk — koma hlaupandi að marki keppinautanna og — skot að marki — en — markvörðurinn ver. Áður en hann nær að kastla boltanum aftur frá sér, er Lína löngu komin á sinn stað, — því að Lina er sko bak- vörður og veit, að hennar stað- ur er i vörninni. Já, hún Lina langsokkur getur lika leikið handbolta, að minnsta kosti, þegar hún er Inger Nilsson, sænska stelpan, sem varð heimsþekkt af kvik- myndunum og sjónvarps- þáttunum um stelpuna lang- leggjuðu með kálfsfæturna, rauðhærða og freknótta með tíkarspena, sem stóðu beint út í loftið. Þá hét Inger Larsson sem sagt Lina langsokkur. Nú er Inger — eða Lina — eða kannski við köllum hana bara Inger — Línu — nú er hún fimmtán ára unglingur, sem farinn er að hugsa af alvöru til framtíðarinnar. Hún ætlar kannski í menntaskóla næsta vetur — siðan í leikskóla, því ekki hefur hjá því farið, að kvikmyndirnar og sjónvarpið hafi haft sín áhrif á áhugamál hennar. Tikarspenarnir eru horfnir — hún fékkst þó til að taka utan um hárlubbann og stilla sér fyrir framan myndavélina með þykjustu tíkarsepna. Annars vill Inger helzt gleyma þessum árum í bili, hún vill miklu heldur tala um hestana sina tvo, sem eru þó tengdir Línu-hlutverkinu, þvi að fyrir peningana, sem hún fékk fyrir þátttöku sína í sjónvarpsþátt- unum, gat hún keypt hestana. I bókum Astrid Lindgrens á Lína sér þá ósk heitasta að eign- ast hest og Inger segir: „Hefði ég ekki leikið I Línumyndun- um, hefði ég kannski aldrei fengið áhuga á hestum." Pabbi Inger-Línu er auðvitað ekki skipstjóri einhversstaðar langt í burtu og mamma hennar er ekki engill á himnum. Inger- Lina og fjölskylda hennar, pabbinn, mamman, Lasse, stóri bróðir, sem er átján ára, og sá litli, Anders, sem er ellefu, búa í skemmtilegu húsi í bænum Kisa á Austur-Gotlandi. I Kisa búa aðeins um 4000 manns og það eru 55 kilómetrar til næsta stórbæjar, sem er Lindköping. Þið finnið hann, ef þið farið með járnbrautarlestinni frá Stokkhólmi til Malmö. Pabbi hennar Inger-Linu er ritstjóri og stjórnmálamaður í heimabæ sínum, hann veit allt um Kisa og það, sem þar hefur gerzt, því að þar hefur fjöl- skylda hans lengi búið, — pabbi hans, afi og langafi. Inger-Lína segist lika gjarnan vilja eiga alltaf heima f Kisa, — nema hvað þar er ekki hægt að gera ýmislegt, sem hana Iangar til, svo sem að fara I mennta- skóla og leikskóla. Til þess verður hún að fara burt. Inger — Lina fimmtán ára Inger-Lina hafði lofað að segja okkur frá því, hvernig lif hennar gengi fyrir sig nú orðið — en fyrst varð hún að ljúka handboltaleiknum í síðasta tíma í skólanum, kl. 2—3. Strákarnir i bekknum hvöttu stelpurnar óspart — og það var glöð Inger-Lína, sem hentist út eftir að hafa farið i sturtubað, — bekkurinn hennar hafði unnið 1:0 og komizt í úrslit í skólakeppninni. Hún trúir okkur fyrir þvi, að hún sé ekki alltaf með í liðinu, þvi að hún taki ekki þátt í auka- æfingum utan skólatíma. Hún hefur nefnilejga meiri áhuga á hestunum. Við förum með Inger-Línu í hesthúsið, það er á eyðibýli að- eins fimm mínútna akstur frá heimili hennar. Hún hefur tekið hesthúsið á leigu ásamt vinkonu sinni og þær hafa þar þrjá hesta; vinkonan, sem er dóttir bakarans á einn og Inger- Lina tvo, Mirabellu Josefinu, sem hún uppnefnir Tjejen og Meastoso Boy. Inger-Lína rekur hestana í hús, það er að byrja að skyggja, en það tekur dálftinn tima, þvi að þeir stríða henni og hlaupa nokkrum sinnum umhverfis húsið. Þeir láta ekki undan fyrr en hún freistar þeirra með fötu- fylli af höfrum. Þær vinkonurnar skiptast á um að hjóla í hesthúsið og gefa en Inger-Lína er þar næstum daglega, þó hún eigi ekki hest- húsvakt. ,,Ef ég kemst ekki inn á leikskóla," segir hún, „vil ég vinna eitthvað í sambandi við hesta. Annaðhvort verða reið- kennari eða vinna á dýra- spítala." Hún segir, að Tjejen eigi von á folaldi í vor. Pabbi hennar er hræddur um, að þá fari fólk að flykkjast að, foreldrar og börn, sem vilja sjá folaldið hennar Línu langsokks og jafnvel kaupa það. Þeim í Kisa er enn í fersku minni, þegar pósturinn kom með allt upp i 175 bréf á dag frá börnum víðsvegar um heim’. Og oft skrifuðu þau ekki annað utan á en „Til Linu lang- sokks". En það er nú kannski engin furða, þó fólk nemi staðar stundum, — ekki er erfitt að finna húsið, þvi að úti i garðinu er stór líkneskja af doppótta hestinum hennar Línu. Styttuna gerði afi Inger- Línu — hann er múrari. Bertil Nilsson, pabbi Inger- Línu, gerði sér líklega litla grein fyrir því, sem í vændum var, þegar hann kvöld eitt hjó eftir þvi að sjónvarpið væri að auglýsa eftir börnum til að leika í myndaflokk um Línu langsokk. „Langar þig til að leika í þessari mynd? kallaði ég til dóttur minnar," — segir Bertil — „hún var þá sjö ára og nauðalik persónunni í bók Astrid Lindgrens. Eg var ein- mitt nýbúin að lesa bókina fyrir elzta strákinn, en Inger var þá ekki enn komin á bragðið. I ljós kom, að 8.300 sænskir krakkar, stelpur og strákar vildu fá hlutverkið, og eftir að hafa reynt að spreyta sig, féll það i hlut Inger. Síðan varð hún að fara til Gotlands og til Stokk- hólms í upptökur og fleira stúss, já og til útlanda, alla leið til Barbados, þvi að Lína er forfrömuð lítil dama. „Þetta var ógurlega gaman," viðurkennir Inger, „við urðum að hafa sérstakan kennara með- ferðis, því að ekki máttum við vanrækja nárnið." En svo varð Inger leið á Línu. Allar þessar frumsýningarferð- ir hingað og þangað, innan lands og utan, allar þessar veizl- ur, allar þessar myndir, sem þurfti að taka. Hún kom líka víða fram og söng lögin úr myndinni. — Og Inger syngur enn. Hún stundar söngnám í söngskólan- um í Kisa og á að taka þátt í óperettu í vor. Inger þykir gaman að lesa, en þar sem hún hefur svo margar námsgreinar i skólanum (hún er duglegust I ensku, frönsku og efnafræði) hefur hún ekki tima til að lesa annað — nema helzt hestabækur. Hún er hætt að horfa á barna- tímana i sjónvarpinu, auðvitað nema á Andrés önd á annan jóladag. En hún horfir á ýmsa þætti fyrir fullorðna og leikrit. Uppáhaldsleikkonan er Liv Ullman (sem leikur i Vestur- förunum). „Ég gæti vel hugsað mér,“ segir hún að lokum, „að leika í sjónvarpsmyndum aftur." Hún stingur upp i sig þriðja súkkulaðibitanum. Hún borðar kannski ekki 18 kiló af súkkulaði á dag, eins og Lína átti til, en súkkulaði er þó enn það bezta, sem hún fær. KLUBBFUNDUR Heimdallur S.U.S. heldur klúbb- fund í Útgarði, Glæsibæ, laugar- daginn 8. febrúar n.k. kl. 12.00. Gestur fundarins verður Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra. Mun hann ræða um stjórnmála- viðhorfið og svara fyrirspurnum fundarmanna. Félagar eru hvattir til að fjöl- menna og taka með sér gesti. Stjórnin. LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — n I H > < cc LLt > < UTSALA m 33 I r* —J I Stórkostlegur afsláttur á málningu. H > < m cc LJU > penslum o.fl. I -J I 20%- 25% afsláttur r* H > I QC Þetta gerum við þeim til hagræðis, sem eru að byggja, breyta eða bæta. m 33 > < H Þetta er sannkallað Litavers —kjörverð. r* -J I Lítiö viö í Litaveri — LÍtSVGrjr H > < m QC LLl > < (— það hefur ávallt borgað sig. Qrensásvegi 18. 33 I Zj LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — r~ H

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.