Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 15 umdeilanlegt og biði síðari tíma með aukinni vitneskju um lífs- skilyrðin í heild. En þó við get- um sameinast um þetta, þá kemur sannarlega „an po silla“ eins og norsararnir höfðu að orðtæki á sinum sokkaband- sildarárum hér. Erfiðasta verkefnið Eins og meðfylgjandi kort sýnir, er uppeldisslóð urig- þorsks allt i kringum landið nema rétt fyrir Suðurlandinu vestanverðu. Stórfiskurinn á leið sinni bæði af og á hrygn- ingarslóðirnar hlýtur að bland- ast smáfiskinum á sömu slóð- um. Það er ekki um neinn veru- legan aðskilnað að ræða, nema á sjálfum hrygningarslóðunum, og kannski þegar Grænlands- fiskurinn er að ganga upp á miðin fyrir Vesturlandinu. Endranær og á allri annarri slóð er um sambýli að ræða. Það má að visu benda á ein- stakar slóðir, þar sem smá- fiskur heldur sig meir en annars staðar á merktu slóðinni á kortinu, en hann rásar mikið til líkt og fullorðni fiskurinn i leit að æti, líkt og búfénaður rásar milli bithaga á afréttum okkar. Það er sannar- lega erfiðleikum bundið fyrir okkur að finna haldgóðar for- múlur fyrir fiskimenn okkar til að vinza smáfisk frá stórfiski í veiðunum. Hugsanleg aðferð Ég hef litla trú á að hægt sé að kvía smáfiskinn af á slóó- inni, með því að draga ferninga í kort og texta með dagsetning- um í reitina: „á þessari slóð er smáfiskur á tímabilinu.... og því allar veiðar á þeirri slóð stranglega bannaðar... “ stinga síðan kortinu niður í skúffu og geyma það þar, þangað til minnisblokkin á skrifborðinu sýnir að smáfiskurinn eigi að vera horfinn af slóðinni. Það veróur að fylgjast með veiðunum, því að það er stað- reynd að smáfiskur hnappast misjafnlega mikið saman tíma- bundið á einstökum svæðum, og með því þarf að fylgjast. Togari, sem hefði þvi hlutverki að gegna, að færa sig um alla slóðina á veiðunum, taka til- raunahöl hér og þar um alla slóðina, eftir því, sem ástæða þætti til, væri máski nothæf aðferð til að eftirlitið gæti orðið raunhæft. Þegar togarinn bæði af eigin raun og eins af kynnum sínum af afla skipa á tiltekinni slóð, sæi að smáfiskur innan 5 ára væri oróinn almennt svo og svo mörg prósent af aflanum þá ræki hann flotann af slóðinni. Hvert flotinn ætti svo að fara þaó veit ég ekki. Þaó vita þeir kannski, sem keyptu alla togarana. ENDUR'S'KINS Látum hrossaþjófnað verða okkur aðvörun A undanförnum árum hafa oft komist á kreik sögur um hrossaþjófnað en þessar umræður hafa ekki leitt til þess að niðurstaða hafi fengist utan þess hvað í haust voru hand- teknir tveir menn grunaðir um hrossaþjófnað. Við yfirheyrslur játuðu þeir að hafa stolið 9 hrossum og lógað fjórum þeirra, einnig játuðu þeir þjófnað á ýmsum smáhlutum, aðallega úr vinnuvélum. Rannsókn þessa máls var i höndum rannsóknarlögregl- unnar í Hafnarfirði og bárust henni nær 30 tilkynningar um hross, sem horfið höfðu. Nokk- ur þessara hrossa eru nú fund- in en sum hafa ekki enn komið í leitirnar. Að sögn Guðmundur L. Jóhannssonar, fulltrúa bæjar- fógetans i Hafnarfirði og sýslu- manns i Gullbringusýslu, var mál þessara tveggja manna sent rikissaksóknara 14. janúar s.l. til ákvörðunar um hvort höfða bæri mál á hendur þeim. Sé litið til þess hversu alvarleg brot þessara manna eru, þykir fullvíst að höfðað verði mál gegn þeim. Þá sagði Guðmund- ur, að eigendur hrossanna, sem stolið var, og hinna ýmsu hluta hefðu þegar lagt fram kröfur um bætur. Það að þetta mál hafi verið upplýst hefur það óneitanlega vakið hestamenn til umhugs- unar um á hvern hátt megi í stórum hópi hrossa getur oft reynst erfitt að finna hið rétta. koma í veg fyrir að svona nokkuð endurtaki sig. Senni- lega verða lengi til staðar i sam- félagi okkar einhverjir, sem til- búnir eru til þess að fremja þann ljóta verknað, sem hrossa- þjófnaður óneitanlega er. Ekki er með þessu verið aó halda því fram, að framhald verði á hrossaþjófnuðum. En hesta- menn verða að sýna árvekni og fylgjast vel meó hrossum sinum. Með vaxandi fjölda þátt- takenda í hestamennsku og fleiri hrossum færist mjög í vöxt að fólk þekki ekki hross sín. Eru til fjölmörg dæmi um að hross hafi verið tekin af mis- gáningi í stað annars og jafnvel hefur þetta gengið svo langt að búið hefur verið að taka hross á hús, þegar komið hefur í ljós að viðkomandi hafði tekið rangt hross. I framtíðinni hlýtur þvi að verða nauðsynlegt að gera ein- hverjar þær ráðstafanir, sem stemma stigu vió að fólk ruglist á hrossum og horfa menn þar sérstaklega til frostmerking- anna. Verður innan tíðar gerð grein fyrir þeim hér i þætt- inum. En þess má geta að á siðasta ársþingi Lands- sambands hestamannafélaga var samþykkt að beina því til Búnaðarfélags íslands að hrinda í framkvæmd i sam- vinnu við samtök hestamanna frostmerkingum svo fljótt sem auðið er. Þegar hefur verið unnin nokkur undirbúnings- vinna að þessu verki. Ljóst er að enn líður nokkur tími áður en frostmerkingar verða almennar, því skal hér bent á nokkur atriði, sem gætu orðið hestamönnum til hjálpar við að þekkja hross. Mikill hluti hrossa á islandi er markaður með eyrna- mörkum. Er nauðsynlegt fyrir hestamenn að setja á sig mörk hrossa sinna. Þekki þeir ekki sjálfir mörk, er gott að fá markafróðan mann til aó lýsa markinu. Hafi eigandi ekki sett á sig mark hross en það týnist, væri reynandi að hafa samband við fyrri eigendur og þá ekki síst heimafólk á þeim bæ, sem hrossið er frá, sé það úr sveit. Oftast er það á haustin, sem menn eiga i mestum erfiðleik- um með að þekkja hross sín. I lok ágústmánaðar og í septem- ber fara hrossin að skrýðast vetrarfeldinum og verða mjög loðin, auk þess sem litur þeirra getur breyst töluvert. Þetta er breyting, sem margir eiga erfitt með að átta sig á. Rétt er því að festa sér vel í minni útlit hrossa á haustin, þegar þau eru klædd vetrarskrúðanum. Vilji menn reyna að tryggja það að þeir þekki hross sin, þegar þeir ætla að taka inn á haustin er ráðlegt að klippa merki i hrossin. En merki þessi má ekki klippa fyrr en hrossin hafa hárgast eitthvað og gæti t.d. farið saman að draga undan hrossunum og klippa þessi merki í þau. Merkin gætu verið bókstafir og tölustafir. Þess verða menn að minnast að merki, sem klippt er á vorin í snögg hross, eins og algengt er, endast aðeins þar til hrossið byrjar að verða loðið. Að einu atriði ættu hesta- menn að gefa gaum i þessu sambandi en það er svipmót og hátterni hrossa. Hvert hross hefur sin sérstöku einkenni, ef vel er að gáð. Oft geta einnig ýmsir þættir í byggingu hrossa s.s. lögun höfuðs og lengd háls orðið mönnum til leiðbein- ingar. Þó gefa megi ýmsar ráðlegg- ingar verða hestamenn að hafa í huga að mikilvægt er að fylgj- ast vel með hrossunum. Alltaf geta girðingar brostið eða önnur óhöpp hent, þar sem mannshöndin þarf að koma til hjálpar. — t.g. umsjón: TRYGGVI GUNNARSSON Fræðslufundur hjá Fáki Næstkomandi fimmtudag. 13. janúar, heldur Hesta- mannafélagið Fákur fræðslu- fund í félagsheimilinu við Elliðaár. A fundinum ræðir Brynjólfur Sandholt, dýra- læknir, um fóðrun hrossa og hrossasjúkdóma, einnig svarar hann fyrirspurnum. Þá fjallar Pétur Behrents, tamningamað- ur, um reiðbúnað s.s. beisla- búnað og meðferð unghrossa. Að lokum verður svo sýnd myndin TÖLT, sem þeir Ernst Káttler, Þrándur Thoroddsen o.fl. gerðu. Myndin er gerð til kynningar á fslenska hestinum á erlendri grund. 1 henni er sýnd reiðmennska í íslensku landslagi og gangtegundir og litir hestanna eru sérstaklega skýrðir. Við þetta má svo ba'ta því, að fyrsti áfangi hins nýja félags- heimilis Fáks á Víðivöllum var tekinn í notkun síðastlið- inn sunnudag. t þessum áfanga, sem í framtíðinni á einvörðungu að verða fyrir hreinlætisaðstöðu, hefur nú verið innréttuð kaffistofa auk salerna. Verða nýja félags- heimilið og eldra félags- heimilið við Elliðaár bæði op- in framvegis á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14 til 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.