Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.02.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1975 21 Þingsályktunartillaga: Endurskoðun laga um iðju og iðnað Þingfréttir í stuttu máli Gunnar J. Friðriksson (S), Friðjón Þórðarson (S) og Jón Árnason (S) flytja þingsálykt- unartillögu um endurskoðun laga um iðju og iðnað. Gerir ályktunin ráð fyrir því að rikisstjórnin láti endurskoða viðkomandi lög og leggi frumvarp til nýrra iðnaðar- laga fyrir næsta reglulegt Al- þingi. Til þess að vinna það verk skal ríkisstjórnin skipa fimm manna nefnd. Skulu fjórir nefndarmanna skipaðir sam- kvæmt tilnefningu eftirtalinna aðila: Fél. ísl. iðnrekenda, Lands- sambands iðnaðarmanna, Lands- sambands iðnverkafólks og sam- taka iðnsveina. Einn nefndar- manna skal skipaður án tilnefn- ingar. I greinargerð segir að núgild- andi iðnaðarlöggjöf sé að megin- stofni frá árinu 1972, þó síðar hafi verið gerðar nokkrar breytingar á þeim. Löggjöfin hafi í upphafi verið sniðin eftir norskum lögum frá árinu 1913. Það gefi auga leið að nauðsyn beri til að endurskoða þessa 50 ára löggjöf og færa til samræmis við viðhorf breyttra Gunnar J. Friðriksson tima og aðstæður iðnaðar í dag. Ör þróun í iðnaði geri raunar þessa endurskoðun óhjákvæmi- lega. Orkumál Norðurlands — Laxárvirkjun Oddur Ólafsson alþingismaður hefur lagt fram á Alþingi eftirfar- andi fyrirspurnir til iðnaðarráð- herra, varðandi orkumál á Norð- urlandi: 1. Er það rétt að íbúar Norður- landskjördæmis eystra eigi i heimabyggð niðursetta rafmagns- framleiðsluvél, er gæti fullnægt orkuþörf kjördæmisins næstu árin ef hún væri fullnýtt, og að til fullnýtingar þurfi aðeins nokk- urra metra háan stíflugarð í Laxá, stíflugarð er reisa mætti á fáum mánuðum og mundi ekki kosta meira en olían á dísilvélar svæðis- ins næsta ár? 2. Sé svo, er þá ekki hugsanlegt að hið breytta viðhorf i orkumál- um ásamt margvíslegum örðug- leikum íbúa svæðisins vegna orkuskortsins hafi skapað grund- völl fyrir endurskoðun samninga um stíflubyggingu, jafnvel stíflu er væri opin að nokkru eða öllu leyti frá vori til hausts, eða stiflu er skyldi rifin niður er hinni heilsuspillandi orkukreppu Norðurlands lýkur með rekstri Kröfluvirkjunar? Sparnaður í notkun eldsneytis Steingrímur Hermannsson (F) o.fl. hafa flutt þingsályktunartil- lögu, þess efnis, að ríkisstjórnin skipi nefnd sérfróðra manna, er geri hið fyrsta tillögur til ríkis'- stjórnar um aðgerðir til þess að draga úr notkun á eldsneyti, eink- um oliu og bensíni. Framleiðslueftirlit sjávarafurða Sjávarútvegsnefnd efri deildar Framhald á bls. 20 Fóstru vantar að Leikskóla Hveragerðis 1. apríl n.k. Upplýsingar í síma 99—41 51. Góður tannsmiður óskast. Gull- og plastvinna. Framtíðar- starf. Tilboð merkt: „Tannsmiður — 9628" sendist augl.d. Mbl. Innheimtumaður óskast Sí/c/ og fiskur, Bergstaðastræti 3 7. Málarar Kísiliðjan hf. við Mývatn vill komast í samband við málara sem gæti tekið að sér málningu og umsjón með vinnuflokki við málun á byggingum, leiðslum og tækjum kísilgúrverksmiðjunnar í 2 — 3 mánuði á komandi sumri. Aðeins reglusamir og vanir menn koma til greina. Þeir, sem áhuga kynnu að hafa, sendi nöfn sín skriflega til frkvstj. fyrirtækisins fyrir 1 . marz n.k. KÍS/L/ÐJAN HF. Reykjahlíð, S. Þing. Sími 96—41270 Hafnarfjörður — brunavörður Starf brunavarðar við slökkvilið Hafnar- fjarðar er laust til umsóknar. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 21—30 ára og hafa meirapróf og véla- þekkingu. Umsókn skal fylgja hegningarvottorð, læknisvottorð um andlegt og líkamlegt heilbrigði svo og starfsorku ásamt upplýs- ingum um menntun og fyrri störf og meðmæli ef fyrir hendi eru. Upplýsingar um starfið veitir slökkviliðs- stJ°rL Bæjarritarinn í Hafnarfirði. Stýrimann, II. véistjóra og háseta vantar á Mb. Stapafell frá Ólafsvík. Upp- lýsingar í síma 93 — 6383 og 6319. Skíðakennarar Skíðakennari óskast nú þegar á Seyðis- fjörð. Stór hópur áhugasamra nemenda. Upplýsingar veitir Þorvaldur Jóhannsson í síma 97-2293 og 97-2414. Bæjarstjórinn. Byggingartækni- fræðingur Akraneskaupsstaður óskar eftir að ráða bæjartæknifræðing, er hafi yfirumsjón með verklegum framkvæmdum bæjarins og annist byggingareftirlit. Umsóknarfrestur er til 20. febrúar n.k. Umsóknum skal skilað til bæjarstjórans á Akranesi, sem veitir allar nánari upplýs- ingar. Bæjarstjórinn á Akranesi. Fjölþætt framtíðarstarf Stofnun, sem hefur fjölþætt umsvif, innanlands og utan, óskar að ráða stúlku til skrifstofustarfa. Viðkomandi þarf að hafa staðgóða þekk- ingu á færslu bókhalds og góða æfingu í vélritun og bréfaskriftum á íslenzku og ensku. Lipur og alþýðuleg framkoma er mikilvægt skilyrði. Starfið býður fjölbreytt og lifandi verk- efni, sem oft þarfnast skjótrar úrlausnar. Umsóknir, með uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist Mbl. merkt: „Framtíðarstarf 8568", fyrir 17. febrúar n.k. Sendill óskast á afgreiðsluna fyrir hádegi. Upplýsingar í síma 10100 eða Skeifunni 19 Morgunblaðið. Verkamenn óskast Sími 44460. Aðalbraut h. f. Vinnuveitendur athugið! Ég gæti verið maðurinn sem þið leitið að. Hef meira próf á bíl og er vanur akstri og viðgerðum. Einnig vanur sölumennsku og fleiru. Ég er að leita að góðu starfi á kjörum sem okkur báðum líkar. Allar nánari upplýsingar fúslega veittar í sima 37242. Skrifstofustúlka Óskum að ráða stúlku til almennra skrif- stofustarfa. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist skrifstofu okkar fyrir 12. þ.m. Endurskoðunarskrifstofa N. Manscher & co, Borgartúni 2 1. Ritari — framtíðarstarf Óskum að ráða ritara til þess að annast vélritun, umsjón með fjarrita, aðstoð á bókasafni og önnur skrifstofustörf. Auk vélritunarkunnáttu þarf umsækjandi að vera vel að sér í íslenzku, ensku og norðuriandamáli. Við vinnum frá kl. 08.30 til 1 6.36 mánu- daga til föstudaga, í annasömu en skemmtilegu umhverfi. Vinsamlega sækið eða fáið send umsóknareyðublöð úr afgreiðslu að Klapparstig 27. IBM á Islandi. Sími: 27 700.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.